Morgunblaðið - 18.04.2000, Qupperneq 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
i
MORGUNBLAÐIÐ
lí{iND'
HAND:
REPAIR
liliHÐ = lilEHD
Með því að nota 7í?/>\D naglanæringuna færðu
þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo
þær hvorki klofna né brotna.
^'Þ'VO' ^^kurðurmn
1 ~ 7 teygjanlegri, þéttari huð.
Sérstaklega græðandi.
EINSTÖK GÆÐAVARA VSá
Fást i apótekum og snyrti- k
vöruverslunum um land allt.
Ath. naglalökk frá Trínd fást í tveimur stærðum
Vor naglalökkin eru komin í 6 nýjum bláum litum
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317
Einstaklingsíbúð í Hfj.
Höfum fengið í sölu einstaklega bjarta og fallega 36 fm einstaklings-
íbúð að Miðvangi 41, Hafnarfirði. Mjög góð staðsetning, frábært
útsýni og öll þjónusta við hendina. Verð: Tilboð.
pr_Fasteígnasala, Sími 555 1500, bréfsími 565 2644
InStrandgötu 25, Hfj. Netfang: stefanbj@centrum.is.
BÁmi Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskari). Þessi (svarti) gamli
góði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
Frábærar vörur á frábæru verðí
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á með
spaða frá
byly
Laboratorios byly: S.A.
Útsðlustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana; Rvík, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek,
Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Alfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1,
Borgarapótek, Álftamýri, Fína Mosfellsbæ, Sauöárkróks Apótek, Stykkishólms
Apótek, Finar Línur, Vestmannaeyjum, Árnesapótek, Selfossi.
Þýskar förðunarvörur
Ekta augnahára- og augnabrúnalitur,
er samanstendur af litakremi og geli
sem blandast saman, allt í einum
pakka. Mjög auðveldur í notkun,
fæst í þremur litum og gefur frábær-
an árangur. Hver pakki dugir í 20
litanir.
I DAG
viiwkwm
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Mengun
í MORGUNBLAÐINU 13.
apríl sl. er fróðleg grein um
sjókvíaeldi á laxi eftir Guð-
mund Val Stefánsson. Ein
setning þótti mér vera
nokkuð tvíræð „sem er
mengun frá iðnaðarsvæð-
um Evrópu" (í Mið-Evrópu
Ruhr og víðar?). Ber að
skilja hana svo að engin
mengun sé frá stóriðju í
Noregi, frá til dæmis 750
þúsund tonna álframleiðsla
N-Hydro enga sök á hrörn-
un lífríkis náttúru og dauða
meðal annars laxastofna í
Noregi? Myndast ekkert
súrt regn í Noregi? Hljóm-
ar setningin ekki öllu held-
ur sem viðvörun til íslensku
þjóðarinnar um að lang-
stærsti draumurinn L.S.D.
áform LV um virkjanir fyr-
ir sjöhundruð og fimmtíu
þúsund tonna álframleiðslu
á Austurlandi, sem Kára-
hnjúkavirkjun yrði aðeins
fyrsti áfangi af, megi aldrei
komast í framkvæmd. Ef
álfestum tekst að gera þá
martröð að veruleika og
eituráhrif hennar fara að
koma í ljós í íslensku lífríki
er þá ekki orðið of seint að
segja eins og oft er gert
þegar upp kemst um
prakkarastrik, þeir gerðu
það - ekki við. Það er skoð-
un undirritaðs að Islend-
ingar hafi nú þegar lagt af
mörkum sinn skerf af
mengunarlausri orku til
mengandi stóriðju í heimin-
um. Við það er engu að
bæta. Vita menn um annað
land þar sem þannig stór-
iðja er jafnmikil á hvern
íbúa?
Hafsteinn Hjaltason.
Páskaliljur og
skreytingar
EG fór í Blómaval fimmtu-
daginn 13. apríl sl. um
klukkan átta til þess að
kaupa páskaliljur til gjafar.
I blómasölunni fyrir af-
skorin blóm voru tvær
stúlkur að afgreiða sem
verður að teljast ágætlega
mannað miðað við að á
þessum tíma var ekki
margt fólk á staðnum. Þær
voru báðar að afgreiða þeg-
ar mig bar að en ég var
næst. Engu að síður þurfti
ég að bíða í 15 mínútur eftir
afgreiðslu. Stúlkurnar voru
að selja afar þunna vendi en
tíminn fór í að skreyta þá.
Það voru fleiri gerðir af
pappírum settar með
kúnstferðugum hætti við
vendina þunnu, gylltur
borði vafinn og brotinn eft-
ir sérstökum skreytiregl-
um, öðruvísi böndum bætt
við o.s.frv. og þessu ætlaði
aldrei að iinna. Mér datt í
hug að stúlkurnar væru
ekki fyrst og fremst að
selja blóm heldur skreyt-
ingar og það er e.t.v. dálítið
einkennileg stefna í Blóma-
vali.
Einhver benti mér á að
oft væru þarna vendir í fot-
um, en mér leist vel á
páskaliljurnar í kæliskápn-
um á bak við stúlkurnar og
svo vildi ég fá þeim pakkað
inn án þessara óskaplegu
tilfæringa. Væri ekki hægt
að hafa sérstakt borð fyrir
þá sem vilja láta skreyta
vendi, þannig að þeir sem
bara ætla að fá sér afskor-
inn vönd geti fengið af-
greiðslu sem gengur eðli-
lega hratt fyrir sig?
Helga.
Peningar og
jarðgöng
EFTIR uppákomuna um
tvenn jarðgöng til Siglu-
fjarðar er auðséð að sam-
gönguráðherra verður að
koma úr þéttbýlinu. Aðrir
þingmenn láta eins og
óþrjótandi peningar séu til
alls, í jarðgöng, snjóflóða-
garða, ný þorp, uppkaup
húsa og hvað sem er. Engu
skiptir hvað hlutirnir kosta.
Næst eru það jarðgöng á
milli Dýrafjarðar og Arnar-
fjarðar fýrir nokkur hundr-
uð manns, því ekki næst til
Grímseyjar. Eru þingmenn
Reykjavíkur orðnir þreytt-
ir, það heyrist lítið frá
þeim. Ættu þeir ekki að
kaupa upp hús við Miklu-
brautina, sem eru orðin
heilsuspillandi vegna bíla-
umferðar sem enginn gat
séð fyrir, ólíkt því sem er
um hús í snjóflóðahættu.
Það er von að skattarnir
séu háir.
Skattborgari.
Tapaö/fundið
Lesgleraugu týndust
FIMMTUDAGINN 13.
apríl sl. týndust lesgler-
augu með gylltum spöngum
einhvers staðar á leiðinni
frá hái’greiðslustofunni
Hólmgarði 34 að Teiga-
gerði 16. Skilvís finnandi
vinsamlega hafi samband í
síma 553 3647 eða 567 0485.
COSPER
Konan mín sér um kvenlega þáttinn á skrifstofunni.
SKÁK
llinsjón llelgi ,Vss
Grétarsson
í meðfylgjandi
stöðu sem kom upp
á milli Róberts
Harðarsonar (2356)
hvítt, og Þjóðverj-
ans Andreas
Schmied (2158)
fann sá fyrrnefndi
snjalla leið til að
brjótast í gegnum
varnir andstæð-
ingsins á Reykja-
víkurskákmótinu
sem lauk í síðustu
viku í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
23.Rxf5! gxf5
24.Hg3 Rd5 25.Hxd5!
Dxd5 26.Bb2 og svartur
gafst þar sem eftir til að
mynda 26...Hec8
27.Hxg7 + Kf8 28.Hg8+!
Kxg8 29.Dg3+ verður
hann óumflýjanlega mát.
Víkverji skrifar...
AÐ er árviss vorboði þegar
borgarstarfsmenn og verktak-
ar byrja að gera við malbiks-
skemmdir á götum borgarinnar.
Þær eru víða illa farnar eftir vet-
urinn. Sömu sögu er að segja um
vegi landsins, vegagerðarmenn eru
byrjaðir að taka til hendinni, enda
virðist Yíkverja ekki vanþörf á.
Víða eru vegstikur brotnar og
skilti skökk og snúin eftir snjó-
ruðninginn. Þegar mokað er með
bílum á fullri ferð þeytist snjórinn
með miklu aíli undan tönninni og
getur eyðilagt það sem fyrir
verður.
XXX
ÍKVERJI hefur verið töluvert
á ferðinni að undanförnu.
Finnst honum að þjóðvegirnir
komi víða illa undan vetri. Vegir
sem hafa verið taldir góðir, upp-
byggðir með varanlegu slitlagi,
eru orðnir ósléttir. Þetta kann þó
að vera uppsafnaður vandi fleiri
ára. En að minnsta kosti finnst
það á hreyfingum bílsins að veg-
irnir eru ekki samir og áður. Og
sums staðar eru svo miklar
skemmdir í vegunum að þeir eru
beinlínis hættulegir, enda hafa
verið sett upp viðvörunarskilti á
einstaka stað. Meðal annars er
unnt að benda á nokkra þannig
staði á leiðinni úr Reykjavík og
vestur á Snæfellsnes. Ekki er Vík-
verji sérfróður um vegagerð en
honum finnst heldur snemmt ef nú
er komið að allsherjar endurnýjun
á tiltölulega nýlögðum vegum.
XXX
EFTIR því sem lengri leiðum
vegakerfisins er komið í gott
lag með bundnu slitlagi verða þeir
malbornu kaflar sem eftir eru
meira áberandi. Sérstaklega á til-
tölulega fjölförnum vegum. A leið-
inni til Ólafsvíkur er Fróðárheiðin
slíkur kafli, á leiðinni til Stykkis-
hólms er Kerlingarskarðið farar-
tálmi allt árið og á leiðinni í Búð-
ardal er langur malarkafli yfir
Bröttubrekku. Kolgrafarfjörðurinn
bætist síðan við Kerlingarskarðið
þegar farið er í Grundarfjörð. Vík-
verji varð fyrir hálfgerðu áfalli
þegar hann átti leið um þessa vegi
á dögunum. Sérstaklega var
keyrslan yfir Kerlingarskarðið
erfið. Vegurinn var eitt allsherjar
þvottabretti auk þess sem vatnið
hafði grafið úr honum. Greinilegt
var að ekki hafði verið sturtað
ofaníburði eða hefill sést í langan
tíma. Eftir þessa reynslu skilur
Víkverji vel eindregnar kröfur
íbúa í Stykkishólmi og Grundar-
firði um nýjan veg yfir Vatnaheiði.
Byrjað verður á þeim vegi á næst-
unni, sem betur fer. Jafnframt er
unnið að lagfáeringum á ákveðnum
köflum á Fróðárheiði og Bröttu-
brekku en óákveðið með frekari
framkvæmdir að því er Víkverja
skilst, meðal annars hefur ekki
verið ákveðið hvort vegurinn verð-
ur lagður fyrir Kolgrafarfjörð eða
yfir hann eins og Snæfellingar
óska eftir. Þá má ekki gleyma
hinni gríðarlega fjölförnu ferða-
mannaleið, veginum fyrir Snæ-
fellsjökul, þar sem fólk hossast
megnið af sumrinu í rykmekki.
xxx
AÐ gleymist stundum í um-
ræðunni um vegamál að fjöldi
nýlegra bíla er hreinlega ekki
gerður fyrir akstur á malarvegum.
Það er svo lágt undir bílana. Vík-
verji ferðast töluvert um landið og
áttaði sig ekki á því fyrr en um
seinan að nýr fólksbíll sem hann
keypti er í raun aðeins gerður fyr-
ir malbik. Þótt ráðist hafi verið í
það að hækka bílinn er reynslan af
síðasta sumri svo sár að við skipu-
lagningu næsta sumarleyfis verður
meira tillit tekið til ástands vega-
kerfisins en áður. Ekki farið út
fyrir malbikið nema brýna nauð-
syn beri til.