Morgunblaðið - 18.04.2000, Síða 61

Morgunblaðið - 18.04.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 18. APRÍL 2000 61 ÍDAG BRIDS Umsjón Ouðm. I’áll Arnarsson SJÓNARHORNIN í vörn- inni eru tvö og því gerist það oft að rétta vörnin blasir við öðrum vamarspilaranum en er hinum gjörsamlega hulin. I slíkum tilfellum er það meginverkefni „sjáandans" að vísa makker veginn. Norður gefur; allir á hættu. Nopður A AKG8 v K7 ♦ 109753 + D3 Vestur Austur ♦ 1076 +D93 *65 vÁDGlO ♦ K642 ♦ D +G105 +98764 Suður +42 v98432 ♦ ÁG8 +ÁK2 Vestur Norður Austur Suður - ltígull Pass lhjarta Pass 1 spaði Pass 3grönd Pass Pass Pass Útspil: Laufgosi. Sagnhafi tekur íyrsta slaginn í borði og spilar tígli. Hann tekur drottningu aust- urs með ás og spilar gosan- um. Vestur dúkkar. Austur sér auðvitað að hægt er að hnekkja geiminu ef makker skiptir yfir í hjarta þegar hann tekur á tígulkónginn, sem hann virðist eiga. En sú vörn blasir ekki við frá bæj- ardyrum vesturs. Því er að skylda austurs að hjálpa makker. I fyrsta slag vísar austur laufinu frá. Annað getur hann ekki gert. Og í tígulgos- ann ætti hann að henda sínu lægsta laufi, ef það mætti vera til að benda á styrk í hjarta frekar en spaða. Það er hins vegar hæpið að vest- ur fari að leggja of mikla merkingu í það afkast, en þegar sagnhafi spilar tígli í þriðja sinn og vestur drepur, þá kemur kallið mikla - spaðadrottning! Ef það afkast dugir ekki til að fá hjarta í gegnum kóng- inn er eina ráðið að skipta um makker. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk ní\ ÁRA afmæli. í dag, þriðjudaginn 18. apríl, verður I V/ sjötug Emelía Baldursdóttir, Hamraborg 36, Kópa- vogi. Eiginmaður hennar, Sæmundur Þorsteinsson, verður 80 ára í september og ennfremur eiga þau 50 ára hjúskapar- afmæli í september nk. I tilefni tímamótanna taka þau á móti ættingjum og vinum á skírdag, 20. apríl, kl. 15-18 í Ásgarði, Glæsibæ, Álflieimum 74. r O ÁRA afmæli. í dag, OU þriðjudaginn 18. apríl, verður fimmtug Ingi- björg Friðriksdóttir, sjúkraliði, Seljabraut 32, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Helgi Bjarnason, blaðamaður. Ljósmyndast Mynd, Hafnarf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. aprfl sl. í Hafnar- fjarðarkirkju af sr. Þórhalli Heimissyni Sigríður Ósk Jónsdóttir og Róbert Magn- ússon. Heimili þeirra er á Suðurbraut 2a. Með morgunkaffinu Hvað meinarðu með þvf að óg komi seint heim? Ég fann ekki grímuna mina. UOÐABROT BARMAHLIÐ Hlíðin mín fríða! Hjalla meður græna, blágresið blíða, berjalautu væna. Á þér ástar augu ungur réð eg festa, blómmóðir bezta! Sá eg sól roða síð um þína hjalla og birtu boða brúnum snemma fjalla; skuggi skauzt úr lautu, skreið und gráa steina leitandi leyna. Blómmóðir bezta! beztujarðargæða gafþérfjöld flesta faðir mildur hæða; hver mun svo, er sér þig, sálar þjáður dofa, að gleymi guð lofa? Hlíð, þér um haga hlýr æ blási andi, döggvi vordaga dögg þig sífrjóvgandi! Um þig aldrei næði, afþérsvoaðkali, vetur vindsvali. Jón Thoroddsen STJ ÖRJVUSPA eftlr Frances Urake HRUTUR Afmælisbarn dagsins: Pú ert fullhugi en stundum of fljótur á þér svo þú þarft að venja þig á að fara þér hægar. Hrútur (21. mars - 19. aprfl) Það getur oft verið gaman að deila sköpunarþrá sinni með öðrum sem hafa lík áhugamál því alltaf er það nú svo að maður er manns gaman. NdUt (20. aprfl - 20. maí) f** Menn þurfa að kunna að nýta sér þær breytingar sem verða á aðstæðum en þó er skynsamlegast að fara að öllu með gát og gera ekkert vanhugsað. Tvíburar (21. maí - 20. júní) nfl Það er margt talað í kring- um þig en þér finnst vanta að öllum þessum orðum fylgi einhverjar athafnir. Brjóttu þér þá leið til framkvæmda. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Fjölskyldan er þér mikils virði og þú leggur mikið upp úr uppruna þínum. Það gef- ur þér öryggi og dug til að takast á við framtíðina. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú ættir að hlusta oftar á þinn innri mann því þú ert sjálfur oft betur tii þess fall- inn að leysa málin en aðrir sem þú svo gjarnan leitar til. Meyjd (23. ágúst - 22. sept.) <SÍL Þótt úti sé svalt má vel hafa sumar í sinni og njóta þess inni. Fátt jafnast á við lestur góðrar bókar þegar hvfldar skal njóta. Vo£ VDk' (23. sept. - 22. okt.) Þér hefur vegnað vel og mátt því svo sannarlega gleðjast yfir árangrinum með þínum nánustu vinum. Njóttu því dagsins á allan hátt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Þú þarft að hafa það á hreinu að enginn misskilji skilaboð þín því þá gætu af- leiðingarnar orðið skelfileg- ar. Talaðu því skýrt og um- búðalaust. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) XTí Ef þú ekki leysir málin strax er hættan sú að þessir litlu hlutir safnist saman og þá fáir þú ekki við neitt ráðið. Steingeit (22. des. -19. janúar) ac Það er á hreinu að þú verður að taka á málum af fullri al- vöru. Farðu samt varlega og reyndu að særa engan í leið- inni. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) Einhver ótti steðjar að þér í sambandi við það að þú náir ekki takmarki þínu. Hann er þó ástæðulaus því þú hefur alla burði til þess að leysa málin. Fiskar (19. feb. - 20. mars) >%■» Þú þarft ekki að hafa eitt samviskubit þótt þú látir það eftir þér að dingla þér einn dagpart, lesa blöðin og slappa af. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Granvillé ÁRVÍK _____. «(..! LÍMKÍTTI EVOSTIK EN ÖRUGG 30 ARA ENDING ÁRVÍK ÁRMÚLA1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295 Á Léttu hjartanu lífið! Hjartað púlar fyrir þig allan sólarhringinn, allt þitt líf. Þú gctur styrkt hjartað og auðveldað því puðið: Taktu til fótanna. Rösk ganga í samtals 30 mínútur á dag dregur úr blóðfitumyndun, lækkar blóðþrýsting og styrkir hjartað og æðakerfið. Hreyfðu þig reglulega og taktu fjölskylduna með. Borðaðu góðan og hollan mat; litríka ávexti, ferskt grænmeti, fitulítið kjöt, ferskan fisk, léttar mjókurvörur og pasta. Njóttu matarinns í næði. Mundu að reykingar orsaka hjartasjúkdóma. Reykingamaður er í tvöfalt meiri hættu á að fá kransæðastíflu. Er blóðþrýstingur þinn í lagi? Eftir fimmtugt ætti að mæla hann annað hvert ár. Léttu hjartanu lífið og líf þitt verður betra. Landlæknisembættið Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is FræSsluauglýsing frá Landlæknisembættinu www.landlaeknir.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.