Morgunblaðið - 18.04.2000, Síða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
^JÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stára stíiM kt. 20.00
DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT eftir William Shakespeare
Frumsýning fim. 20/4 uppselt, 2. sýn. fös. 28/4 örfá sæti laus, 3. sýn. lau. 29/4
örfá sæti laus, 4. sýn. mið. 3/5 örfá sæti iaus.
LANDKRABBINN — RagnarAmalds
' y8. sýn. mið. 26/4 örfá sæti laus, 9. sýn. fim. 27/4 örfá sæti laus, 10. sýn. fös. 5/5
nokkur sæti laus, 11. sýn. lau. 6/5 nokkur sæti laus, 12. sýn. fös. 12/5 nokkur
sæti laus, fim. 18/5.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Sun. 30/4 kl. 14 uppselt, sun. 7/5 kl. 14 örfá sæti laus, sun. 14/5 kl. 14 nokkursæti
laus, sun. 21/5 kl. 14.
ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt
Sun. 30/4. Takmarkaður sýningafjöldi.
KOMDU NÆR — Patrick Marber
Mið. 31/5. Sýningin er hvorki við hæfi barna né viðkvæmra.
Litta stfiM kt. 20.30:
HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir
Sun. 30/4, fös. 5/5, lau. 6/5
StntöamksUeM kt. 20.00:
VÉR MORÐINGJAR — Guðmundur Kamban
Lau. 29/4, fös. 5/5, sun. 7/5. Sýningum fer fækkandi.
Mídasalan er opin mánud,—þriðjud. kl. 13—18,
miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200. thorev@theatre.is.
GAMANLEIKRITIÐ
mið. 19/4 kl. 20.30 örfá sæti laus
lau. 29/4 kl. 20.30 nokkur sæti
fös. 5/5 kl. 20.30 nokkur sæti
lau. 13/5 kl. 20.30 nokkur sæti
MIÐASALA í S. 552 3000
og á loftkastali@islandia.is
Miðasala eropin virka daga frá kl. 12-18,
frá kl. 14 laugardaga og fram að sýningu
sýningardaga.
Athugið — ósóttar pantanir seldar
þremur dögum fyrir sýningu.
MiðasalaS. 555 2222
< )ulíu$
Sun. 30/4 kl. 14
Sun. 30/4 kl. 16
KaííiLeikMsíð
Vesturgötu 3
miö. 19.4 kl. 20.30.
STORSVEIT REYKJAVIKUR
flytur tónverk eftir Sigurð Flosason
MIÐAPANTANIR I S. 551 9055
Miðasala opin fim.-sun. kl. 16-19
M 5 30 30 30
! s jeiklspIr
EINS OG HANN
LEGGUR SIG
mið 19/4 kl. 20 UPPSELT
mið 19/4 kl. 23 AUKASÝNING örfá sæti
fim 27/4 kl. 20 UPPSELT
fös 28/4 kl. 20 UPPSELT
fös 28/4 kl. 23 AUKASÝNING örfá sæti
lau 29/4 kl. 20 örfá sæti laus
fös 5/5 kl. 20 í sölu núna
lau 6/5 kl. 20 í sölu núna
Ath! Sala hafin á sýningar í maí
STJÖRNUR Á
MORG UNHIMNI
fim 20/4 kl. 20 örfá sæti laus
sun 30/4 kl. 20 nokkur sæti laus
fim 4/5 kl. 20 örfá sæti laus
LEIKIR: HÁDEGISLEIKHÚS
Kl. 12. mið 19/4 nokkur sæti iaus
www.idno.is
ISI.I ASK V OI'liH V\
=!mi Simi 511 4201)
Vortónleikar auglýstir síðar
tif&tmasm
I flutnlngi Bjama Hauks
I leikstjórn SigurOar Sigurjónssonar
Sýningar hefjast kl. 20
fös 28/4 örfá sæti laus
ATH!
Sýningin er ekki
fyrir viðkvæma
Miðasala: sími 551 1475
Miðasala opin frá kl. 13-19, mán.—lau.
og alla sýningardaga frá kl. 13 og fram
að sýningu. Símapantanir frá kl. 10.
TOBACCO ROAD
eftir Erskine Caldwell
sýn. mið. 19. apríl kl. 20
sýn. fim. 20. apríl kl. 20
sýn. lau. 22. apríl kl. 20
Miðasala opin alla virka daga
kl. 13—17 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
EXEM EXEM EXEM
Er laus við 33 ára exem í andliti
Upplýsingar í slma 698-3600
FÓLK í FRÉTTUM
Jóhanna Ósk Halldórsdóttir keppti í Ungfrú ísland.is
Minnisstæðast að
þora að taka þátt
Jóhanna Ósk Hall-
dórsdóttir er að vestan
og lenti í þriðja sæti í
---------7--------------
Ungfrú Island.is. Egill
Egilsson mælti sér mót
við hana á kuldalegum
vordegi í þeim ásetningi
að gefa fólki innsýn í
undirbúning og þátt-
töku í slíkri keppni og
um væntingar Jóhönnu
til framtíðarinnar.
NÝAFSTAÐIN er fegurðarsam-
keppnin Ungfrú.ísland.is, en keppni
þessi var óvenjuleg hvað varðar
breyttar aherslur og viðhorf til feg-
urðar. Ólíkt þeim fegurðarsam-
keppnum sem haldnar hafa verið hér
á landi, var þessi keppni haldin með
breyttum formerkjum þar sem feg-
urðin vó jafnt á við metnað, persónu-
leika og sjálfstæði á vogarskálum
fegurðargilda. Ein af þátttakendum
keppninnar var Jóhanna Ósk Hall-
dórsdóttir, frá Neðri-Breiðadal í Ön-
undarfirði. Jóhanna lenti ásamt
Hrönn Sveinsdóttur í þriðja sæti
keppninnar og var jafnframt kosin
andlit Maybelline-snyrtivörufyrir-
tækisins. Frá því að keppninni lauk
hefur verið mikið að gera hjá Jó-
hönnu, þar sem skólanámið varð að
sitja á hakanum undanfarinn tvo og
hálfan mánuð vegna undirbúnings
keppninar en Jóhanna er á öðru ári
við Menntaskólann á ísafirði. Einnig
eftir að keppni lauk hefur nýr veru-
leiki orðið til í lífi Jóhönnu, við
myndatökur og fleira.
Beið í von og óvon
Hvernig atvikaðist það að þú tókst
þátt íþessarí keppni?
Það var hringt í mig. Ég hafði tek-
ið þátt í Sumarstúlkukeppninni sem
haldin var á ísafirði sl. sumar. Um
leið og ég heyrði af keppninni lang-
aði mig til að taka þátt. Ég var boðuð
Morgunblaðið/Egill
í viðtal og spurð um framtíðaráform
og fleira í þeim dúr. Þó var ég tvístíg-
andi heillengi eftir á í von og óvon
um hvort ég kæmist inn. Samt lang-
aði mig til að taka þátt í þessari
keppni vegna breyttra viðhorfa til
fegurðar. Um leið var þetta spenn-
andi heimur sem mig langaði til að
kynnast samhliða keppninni.
Hvernig leið þér á sjálfu úrslita-
kvöldinu?
Ég var meira spennt en stressuð.
Allur undirbúningurinn hafði miðast
við lokakvöldið, í mörg hom að líta
fyrir það kvöld. Fram að keppninni
vorum við á námskeiði hjá Vegsauka
í sjálfsrækt og markmiðasetningu.
Öll keppnin var mjög vel undirbúin
hvað varðar okkur sem tókum þátt í
henni, við fengum mjög góða þjálfun
hjá Hönnu Frímannsdóttur dans-
kennara í framkomu á sviðinu.
Einhvers staðar heyrði ég því
fleygt að ólíkt öðrum keppnum væri
ekki lagt blátt bann við neyslu sæt-
inda og skyndibitafæðis í þessari
keppni?
Það er ekki rétt, við fengum lista
yfir hvað væri ráðlegt, þar sem okk-
ur var ráðlagt að forðast öll sætindi.
Þó máttum við eiga einn nammidag
án þess að neyta súkkulaðis eða sæt-
inda. Við fengum mjög gott næring-
ar- og matarprógramm. Það var
mjög vel passað upp á okkur í einu
og öllu.
Góður hópur
Ef þér byðist þátttaka í svipaðri
keppni, myndirðu slá til á ný? Mynd-
irðu ráðleggja stúlkum á þínu reki að
taka þátt í keppni með þessum for-
merkjum?
Engin spurning. I svona keppni
kynnist maður svo mörgu nýju í
kringum þetta og um leið nýjum
andlitum. Okkar hópur var mjög
góður, ein stelpa úr hverjum lands-
hluta. Þar að auki var þetta mjög
jafn hópur, allar að stefna á háskóla-
nám, nema ein sem var að ljúka há-
skólanámi sínu. Þetta er mjög gott
hvað varðar frekari stuðning við
áframhaldandi markmið hvers og
eins.
Hefur þessi keppni breytt skoðun
þinni almennt á slíkum keppnum ?
Já, þessi keppni breytti svo sann-
anlega áliti minu á svokölluðum
„kroppakeppnum". í þessari keppni
var mikið lagt upp úr því hvernig við
hugsuðum, metnaði, framkomu og
stundvísi og um leið kurteisi og virð-
ingu gagnvart keppnishöldurum og
gagnvart hvort öðru. Við áttum
marga fundi með dómnefndinni áður
en að lokakeppninni kom og á þess-
um fundum lagði dómnefndin sitt
mat á okkur.
Hvað er þér minnisstæðast núna
þegar keppninni erlokið?
Það er svo margt, en ég held að
það sem muni verða mér minnis-
stæðast er að hafa þorað að taka þátt
í keppni sem þessari. Vissulega var
gaman að sjá Claudiu, hún kom nið-
ur og spjallaði við okkur og kynnti
sig ásamt kærasta sínum og enskum
blaðamanni. Hún var mjög elskuleg í
alla staði. Þátttakan í keppninni mun
því seint hverfa mér úr minni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þeir voru vörpulegir í rússnesku
einkennisbúningum, Eyþór
Bragi Einarsson og Jón Jónsson.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Það var rússnesk stemmning í opnunarveislunni og kavíar að sjálfsögðu
allsráðandi. Marta Arnardóttir kunni vel að meta veitingamar.
Fíton fagnar nýjum heimkynnum
AUGLÝSINGASTOFAN Fíton er
flutt í eigið húsnæði í Garðastræti
37.1 húsinu er jafnframt nýtt marg-
miðlunarfyrirtæki, Atómstöðin,
sem er að hluta til í eigu Fítons. Af
því tilefni var boðið til mikillar
veislu á föstudaginn var. Til heið-
urs nýjum nágrönnum í rússneska
sendiráðinu var yfirbragð veislunn-
ar með rússnesku sniði; klæðnaður
þjónustufólksins og veitingarnar
voru upp á rússneskan máta og því
var kavíarinn að sjálfsögðu í háveg-
um hafður.
Húsið í Garðastræti 37 reis árið
1938 en Gunnlaugur Halldórsson
arkitekt teiknaði það í hreinrækt-
uðum funkisstfl. Byggt hefur verið
við húsið og gerðar á því breyting-
ar í gegnum tíðina og síðustu 20 ár-
in var sfldarútvegsnefnd með starf-
semi sína þar. Innra útlit hússins í
Garðastræti 37 hefur nú verið lag-
að að þörfum núverandi starfsemi
en heiðurinn af því eiga arkitekt-
arnir Guðrún Margrét Ólafsdóttir
og Oddgeir Þórðarson.