Morgunblaðið - 18.04.2000, Page 72
SHffgtniHiifeife
ATLANTSSKIP
- ÁREIÐANLEIKI ( FLUTNINGUM -
Leitió upptýsinga í síma 520 2040
www.atlantsskip.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
staðfestur
Starfsmenn íslenskrar erfðagreiningar setja sér siðareglur
Tvöfaldaði
verð-
launaféð
RÝRT verðlaunafé á skákmótum
varð að umtalsefni á uppskeruhátíð
skákfélagsins Hellis um síðustu
helgi, en í ræðu Helga Ólafssonar
stórmeistara á hátíðinni kom fram
að fyrstu verðlaun á Reykjavíkur-
skákmótinu hefðu skroppið veru-
lega saman á fjórtán árum, eða úr
12 þúsund dollurum árið 1986 í 5
þúsund dollara í ár.
Síðar í ræðu sinni upplýsti Helgi
viðstadda um að Sigurður Helga-
son, prófessor í stærðfræði við MIT-
háskólann í Bandaríkjunum, hefði
upp á sitt eindæmi ákveðið að bæta
5 þúsund dollurum við verðlaunaféð
í ár. Helgi sagði að Sigurður hefði
fylgst með skákmótinu á Netinu og
verið afar ánægður með þá þjónustu
en fundist uppskera vinningshaf-
ans, Hannesar Hlífars Stefánssonar,
fremur rýr og því ákveðið að tvö-
falda verðlaunaupphæðina. Hannes
Hlífar fær því 10 þúsund dollara í
verðlaun fyrir sigurinn á mótinu.
■ Helgi/45
---------------
Jarðskjálfta-
kippir norðan
við landið
TUGIR jarðskjálftakippa komu
fram á mælum Veðurstofu Islands í
gærmorgun. Skjálftarnir áttu upp-
tök sín á Kolbeinseyjarhrygg um 500
km norðan við landið og voru fjórir
stærstu skjálftarnir um 4 á Richters-
kvarða.
Samkvæmt upplýsingum Veður-
stofunnar urðu skjálftarnir vegna
umbrota undir Kolbeinseyjar-
hryggnum, sem er hluti Mið-Atlants-
hafshryggjarins norðan við landið. A
sunnudag mældist einnig um tugur
smáskjálfta norðan við Grímsey.
fslenskir tóbaksneytendur fliuga málaferli gegn bandaríska tóbaksiðnaðinum
Kanna bótarétt á hendur
tóbaksframleiðendum
JÓN Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmað-
ur og Gunnar G. Schram lagaprófessor hafa
tekið að sér milligöngu um að koma hópi Is-
lendinga, sem hafa orðið fyrir heilsutjóni í kjöl-
far reykinga, í samband við bandarískt lög-
fræðifirma í því skyni að kanna hugsanlegan
bótarétt þeirra á hendur bandarískum tóbaks-
framleiðendum.
Jón Steinar Gunnlaugsson staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær en sagði að mál-
ið væri enn á athugunarstigi.
Hann sagði að þarna væri um Islendinga að
ræða sem hefðu orðið fyrir heilsutjóni vegna
1 ^'ffibaksreykinga, að þvi er talið er, og vildu
kanna hvort þeir kynnu að eiga bótarétt á
hendur tóbaksframleiðendum í Bandaríkjunum.
„Við höfum séð það í fréttum að neytendur í
Bandaríkjunum hafa fengið viðurkenndan
skaðabótarétt vegna samskonar heilsutjóns,
sem hefur byggst á því að fyrirtækin hafi ekki
látið uppi vitneskju sem þau hafa haft um skað-
semi tóbaksins og jafnvel bætt efnum í tóbakið
til þess að auka á hin vanabindandi áhrif,“ sagði
Jón Steinar.
Jón Steinar og Gunnar G. Schram eru í sam-
bandi við tiltekið lögfræðifyrirtæki í Banda-
ríkjunum vegna þessa máls.
„Ég geri ráð fyrir að málið muni ganga fram
og einhverjir íslenskir tjónþolar gera samninga,
þar sem réttarstaða þeirra yrði könnuð og eftir
atvikum yrðu gerðar kröfur á hendur þessum
framleiðendum,“ sagði hann.
Ekki ljóst hversu stór hópurinn er
Að sögn Jóns Steinars liggur ekki endanlega
fyrir um hversu stóran hóp íslendinga er að
ræða, sem stæði að hugsanlegri kröfugerð á
hendur tóbaksframleiðendum.
„Það er alveg greinilegt að í bandarískum
rétti er talið að fólk eigi svona rétt. Það er ekk-
ert sjálfsagðara en að menn sæki hann ef hann
er fyrir hendi,“ sagði hann.
Léttklædd
við
leiki sína
BJARTVIÐRI hefur verið víða á
4i^fcndinu undanfarna daga þótt ekki
hafi verið tiltakanlcga hlýtt í veðri
að sama skapi. Engu að síður líta
margir til sólar, ungir sem aldnir,
og fagna henni sem aldrei fyrr eftir
þungan vetur. Oddur Björn Jónsson
og Védís Alma Jónsdóttir, sem nutu
bh'ðunnar við nýja tónlistarhúsið í
Hafnarfirði, voru léttklædd við
leiki sína í gær, en sýndu um leið þá
fyrirhyggju að setja upp snoturt
höfuðfat.
Sjávarútveg’s-
samningur
við Rússa
Morgunblaðið/Kristinn
- ; W;
f If'rrr
íflltÉÍIfÍÍKffffí*
iWðáídllBBfHf
HÍfflSfWIPfflfllfl'
., V’>af|Sj
Engar rannsóknir á fólki eða
lífsýnum án upplýsts samþykkis
RÍKISSTJÓRNIN staðfesti 1 gær-
morgun sjávarútvegssamning
Rússa og íslendinga, sem undirrit-
aður var af sjávarútvegsráðherrum
landanna, þeim Yu. P. Sinelnik og
Árna M. Mathiesen, hinn 3. apríl sl.
Um er að ræða rammasamning,
en samkvæmt honum skuldbinda
ríkin sig m.a. til að greiða fyrir
samstarfi einkaaðila frá báðum
ríkjum varðandi veiðar, vinnslu og
markaðssetningu sjávarafurða. Þá
verður á grundvelli samningsins
stofnuð íslensk-rússnesk fiskveiði-
•’^iefnd sem mun koma reglulega
saman til að fjalla um sameiginleg
málefni í sjávarútvegi. Einnig er
gert ráð fyrir samvinnu ríkjanna á
sviði hafrannsókna.
STARFSMENN íslenskrar erfða-
greiningar hafa sett sér siðareglur og
gefið þær út á íslensku og ensku í litlu
kveri. Siðareglurnar voru samdar af
sérstökum vinnuhópi í samstarfi við
Siðfræðistofnun Háskóla íslands. í
siðareglum IE segir m.a. að virða
skuli sjálfsákvörðunarrétt og mann-
helgi þátttakenda í rannsóknum.
„Engar rannsóknir eru gerðar á fólki
eða á lífsýnum úr fólki nema með upp-
lýstu samþykki þess. Sé maður ófær
um að veita slíkt samþykki skal í stað-
inn leita eftir upplýstu samþykki for-
ráðamanns,“ segir í einni af siðaregl-
um fyrirtækisins.
í samræmi við viðurkenndar
alþjóðareglur og hefðir
í siðareglum IE er m.a. kveðið á
um siðferði í rannsóknum, meðferð
upplýsinga og lífsýna, samskipti við
almenning, sjúklingasamtök og heil-
brigðisstéttir, samskipti starfsmanna
og umhverfis- og náttúruvemd.
Markmið siðareglnanna á að vera
að tryggja sem best hagsmuni ein-
staklinga, jafnt sjúkra sem heil-
brigðra, í samræmi við kröfur stjóm-
valda, viðurkenndar alþjóðareglur og
hefðir um vísindarannsóknir.
Sett em fram markmið fyrirtækis-
ins m.a. um að vinna að rannsóknum í
mannerfðafræði til þess að auka
þekkingu og skilning á orsökum sjúk-
dóma, nota þessa þekkingu til að
bæta greiningu og meðferð sjúkdóma
og nýta sérstöðu íslensku þjóðarinnar
í þágu erfðavísinda.
í kafla um rannsóknir fyrirtækis-
ins segir m.a. að í þeim muni starfs-
menn ÍE virða þá meginreglu að
ganga úr skugga um að þátttakendur
séu vel upplýstir um rannsóknina og
hafi skilning á henni. Þar segir og um
meðferð upplýsinga og lífsýna að auk-
in geta til að setja á fót gagnabanka
og samtengja þá hafi skapað ný tæki-
færi til rannsókna en jafnframt kallað
á ömggari persónuvernd. „ÍE vinnur
með upplýsingar um heilsufar, erfðir
og ættfræði. Persónuvemd er því
mikilvægur þáttur starfseminnar.
Nauðsynlegt er að starfsmenn fylgi í
hvívetna þeim reglum sem IE setur
um meðferð slíkra upplýsinga, en þær
reglur ganga eigi skemur en íslensk
lög, reglugerðir og alþjóðlegar sam-
þykktir sem ísland er aðili að,“ segir í
reglunum.
Fimm manna siðaráð
Þar segir ennfremur að við rann-
sóknir á vegum ÍE sé persónuvemd
tryggð með þeim aðferðum sem best-
ar teljist hverju sinni og þess sé gætt
að aðgangur að gögnum takmarkist
við þá sem þurfi á honum að halda.
„IE gerir skriflegan samning við
alla sem láta fyrirtækinu í té heilsu-
farsupplýsingar um að þeir fylgi pers-
ónuverndaraðferðum þess að fullu.
ÍE kynnir þeim þessar siðareglur og
gildandi nafnleyndarkerfi.
Notkun lífsýna og rannsóknamið-
urstaðna er í samræmi við upplýst
samþykki þátttakenda, skilyrði
lífsýnabanka og reglur stjómvalda.
Samþykki þátttakenda í rannsóknum
skal vera starfsmönnum ÍE aðgengi-
legt með dulkóðuðum nöfnum svo
Ijóst sé hvemig nota megi erfðaupp-
lýsingar um þátttakendurna. Leitast
er við að gera skráningu og varðveislu
lífsýna og rannsóknamiðurstaðna
sem ömggasta. Tryggja skal nýtingu
lífsýna og áreiðanleika rannsóknar-
niðurstaðna með endurbótum á rann-
sóknaraðferðum og tölfræðilegri úr-
vinnslu," segir m.a. í siðareglunum.
Stofnað hefur verið fimm manna
siðaráð, sem mun starfa innan fyrir-
tækisins.