Morgunblaðið - 30.04.2000, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
L
FRÉTTIR
Eimskip
undirbýr
kaup eða
leiguá
nýju skipi
EIMSKIP vinnur nú að kaupum
eða þurrleigu á gámaskipi til
áætlanasiglinga. Gert er ráð fyr-
ir að skipið verði í siglingum á
suðurleið, þ.e. á milli Islands og
hafna á Bretlandi og meginlandi
Evrópu. Burðargeta skipsins er
um 700 gámaeiningar og kæmi
skipið í stað leigusldps með er-
lendri áhöfn sem félagið hefur
verið með í rekstri um nokkurt
skeið.
Pórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs
Eimskips, segir að þetta sé liður
í áframhaldandi endumýjun á
skipastóli félagsins sem stóð yftr
af krafti á síðasta ári, en á liðn-
um tólf mánuðum hafa verið
gerðar umtalsverðar breytingar
á skipastóli Eimskips. Félagið
tók skipin Selfoss og Mánafoss á
þurrleigu með kauprétti, og
voru þrjú af eldri skipum félags-
ins, Reykjafoss, Skógafoss og
Dettifoss, seld.
Samtals er félagið með 9 skip
í föstum áætlunarsiglingum, þar
af eru 6 þeirra með íslenskri
áhöfn, en 3 eru leiguskip með er-
lendri áhöfn. Þórður segir að
ekki sé búið að taka ákvörðun
um hvaða skip verði fyrir valinu
en ætlunin sé að það verði gert á
næstunni.
Alls eru starfandi um 140 ís-
lenskir sjómenn hjá félaginu.
Burðargeta þessara skipa og
ekjuskipsins Lyru, sem er í
leiguverkefnum erlendis, er
samtals 6.400 gámaeiningar eða
að meðaltali 640 gámar á skip.
Skipin hafa verið að stækka og
er það liður í því að auka hag-
kvæmni í sjóflutningastarfsemi
félagsins.
Breytingar gerðar á sigl-
ingakerfí Eimskips
í byijun ársins
í framhaldi af gerð flutninga-
samnings við Norðurál hf. voru
gerðar nokkrar breytingar á
siglingakerfi Eimskips í byijun
þessa árs. Tvö skip sigla nú til
Bretlands og meginlands
Evrópu, tvö skip til Hamborgar
og Skandinavíuhafna og tvö skip
sigla á Eskifjörð og þaðan til
Færeyja og hafna á Bretlandi
og meginlandi Evrópu. Auk
þess er félagið með tvö skip í
Ameríkusiglingum og eitt í
strandsiglingum. Þótt landflutn-
ingar hafi aukist verulega á síð-
ustu árum telur félagið að mikil-
vægt sé að reka strandferðaskip
bæði út frá hagkvæmnissjónar-
miðum og vegna þjónustuþarfa
viðskiptavina víða um land.
MEÐ Morgunblaðinu í dag er
dreift blaði frá Heimsferðum,
„Sumarsprengja Heimsferða
til Barcelona".
Fiskverð hefur farið snarhækkandi á mörkuðunum sfðustu vikurnar. Morgunblaðið/Jim Smart
Heiðar
fyrstur til að
skora gegn
Man. Utd.
HEIÐAR Helguson, sem leik-
ur með enska úrvalsdeildarlið-
inu Watford í knattspyrnu,
skoraði mark í leik liðsins gegn
Manchester United í gærmorg-
un. Heiðar er þar með fyrsti Is-
lendingurinn til að skora mark
í deildarleik gegn þessu heims-
þekkta knattspyrnuliði.
Fyrr á leiktíðinni hafði Heið-
ar fyrstur íslendinga skorað
mörk gegn hinum stórveldun-
um tveimur í ensku knatt-
spyrnunni, Arsenal og Liver-
pool.
Markið gegn Man. Utd.
skoraði Heiðar á 33. mínútu
með skalia eftir aukaspyrnu.
Leiknum lauk með 3:2-sigri
Manchester United.
V erð á ýsu á fiskmörkuð-
um hefur þrefaldast
HÁTT verð á ýsu á fiskmörkuðum getur valdið
skaða á mörkuðum erlendis sem erfitt er að laga.
Lítið framboð af ýsu og skuldbindingar kaup-
enda á erlendum mörkuðum hafa leitt til þess að
verð á fiskmörkuðum hefur þrefaldast.
Kílóið af ýsu seldist á allt að 555 krónur á fisk-
mörkuðum á fimmtudag vegna mikillar eftir-
spurnar í ferskfisksútflutningi. Miðað við að
greiddar hafi verið 520 krónur fyrir kílóið af
óslægðri ýsu á fiskmörkuðum hér má áætla að
verð á kílói af ýsuflaki hafi kostað 1.800 krónur
komið vestur um haf.
Kílóið af slægðri ýsu seldist á fiskmörkuðum í
fyrradag á 390 til 412 krónur. Ingvar Eyfjörð,
sölustjóri hjá ferskfisksútflutningsfyrirtækinu
Trosi ehf. í Sandgerði, segir algengt að framboð
á fiski detti niður á ferskfiskmarkaði og verð
hækki. Hinsvegar sé óvenjulegt að fiskverð
hækki svo mikið eftir páska. Hann segir kaup-
endur á erlendum mörkuðum hafa reiknað með
miklu framboði af fiski eftir hrygningarstoppið
og stórmarkaðir í Bandaríkjunum hafi, ásamt
þarlendum dreifingaraðilum, farið í kynningar-
herferðir til að auka sölu.
Tilbúnir að borga hvað sem er
„Það kom hinsvegar mjög lítið af ýsu inn á
markaðina en þessir aðilar hafa skuldbundið sig
til að eiga hana til. Því eru þeir tilbúnir til að
borga nánast hvað sem er fyrir fiskinn. Hættan
er hinsvegar sú að þegar framboð á fiski verður
svona lítið, skapist svigrúm fyrir aðrar vörur í
staðinn og það getur tekið langan tíma að vinna
það til baka.“
Meðalverð á ýsu á fiskmörkuðum á íyrstu
þremur mánuðum ársins var um 180 til 190
krónur að sögn Ingvars. „Þetta er því gríðarleg
verðhækkun og hún er slæm í alla staði. Þegar
verðið er svona hátt er áhættan orðin mikil. Óll
mistök í ferlinu, til dæmis í framleiðslunni, verða
mjög dýr.“
Ingvar segir framleiðendur hérlendis og dreif-
ingaraðila erlendis taka þessar verðhækkanir á
sig. Ferskfisksútflytjendur séu hins vegar ekki
að borga með ýsunni þegar verðið sé svo hátt.
Breyttar akstursleiðir á Reykjanesbraut
^\\ milli Nýbýlavegs og Fífuhvammsvegar í Kópavogi ;
/ % vegna gerðar undirganga undir eldri hluta hennar >Dl
undirgöng
Smára
torg
ðABPAí
BÆJARLIND
BREIÐ-
HOLTS-
BRAUT
Ein
akrein 1 hvora att
um tíma á þessum
Reykjanesbrautar
nu
hiuta
REYKJAVIK
■'l
kópavogupíID
GARÐABÆR
Borgarstjóri
í Seattle
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, heim-
sækir Seattle í Bandaríkjunum dag-
ana 29. apríl til 3. maí. Borgarstjóri
fer fyrir sendinefnd skipaðri fulltrú-
um frá Reykjavíkurborg, Landa-
fundanefnd, Reykjavík - Menning-
arborg 2000 og íslenskum
fyrirtækjum á sviði sjávarútvegs,
hátækni, fjarskipta og samgangna.
Seattle er ein af vinaborgum
Reykjavíkur. Borgirnar gerðu með
sér samkomulag 1986 sem kveður á
um samstarf á ýmsum sviðum. M.a.
að leitast skuli við að efla viðskipti og
samstarf borganna á sviði menning-
ar og menntunar. Löng hefð er fyrir
því að íslendingar leiti til framhalds-
náms í Seattle, ekki síst á sviði verk-
fræði og í tæknigreinum.
Hluta Reykja-
nesbrautar
lokað vegna
framkvæmda
Á ÞRIÐJUDAGSMORGUN verður
hluta Reykjanesbrautar lokað
vegna framkvæmda milli Breið-
holtsbrautar og Fífuhvammsvegar
og verður umferð beint á eina
akrein eftir nýrri akbraut fyrir
sunnan Nýbýlaveg.
Rjúfa á veginn og byggja göng
í gegnum hann og 23. júní er
stefnt að því að framkvæmdum
verði að mestu lokið. Þá verður
vegurinn með fjúrum akreinum,
tvennum göngum og mislægum
gatnamútum við Fífuhvammsveg.
Ollum frágangi á svo að vera lok-
ið 1. júlí.
Utanríkisráðherrar íslands og Bandarrkjanna á fundi
Ræða tvfliliða sam-
skipti ríkjanna
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra á fund á morgun með Mad-
eleine Albrigt, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Verður fundarefni
þeirra tvíhliða samskipti ríkjanna og
framvinda mála á alþjóðavettvangi.
Fundurinn fer fram í Washington.
Ráðgert er að utanríkisráðherra
hitti einnig staðgengil Slocombe að-
stoðarvarnamálaráðherra, Richard
Danzig, flotamálaráðherra Banda-
ríkjanna. Þá mun Halldór sitja
ásamt konu sinni, Sigurjónu Sigurð-
ardóttur, kvöldverðarboð hjá Strobe
Talbott, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Halldór Ásgrímsson hefur síðustu
daga dvalist í Norfolk og tekið þátt í
svonefndri Azalea-hátíð, þar sem ís-
land er í heiðurssæti, ásamt konu
sinni. Þá hefur ráðherrann og átt
fund með yfirmanni Atlantshafsher-
stjórnar Atlantshafsbandalagsins.
Á Azalea-hátíðinni í gær og fyrra-
dag voru ýmis íslensk dagskrár-
atriði, m.a. söngur kórs Snælands-
skóla og Valgeirs Guðjónssonar og
Magnús Ver Magnússon átti að taka
þátt í kraftakeppni. Þá var íslenskur
fiskur á boðstólum sem Hilmar B.
Jónsson matreiddi.
Sendiherra íslands, Jón Baldvin
Hannibalsson, krýndi írisi Huld
Halldórsdóttur sem Azalea-drottn-
ingu og flutti ávarp. í gærkvöldi átti
dagskrá að ljúka með 600-700
manna hátíðarkvöldverði þar sem
Azalea-drottningin og fylgdarlið
hennar voru í aðalhlutverki