Morgunblaðið - 30.04.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 30.04.2000, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ ar ____ w FOLKI FRETTUM x Blásturshljódfæraleikari ársins heldur burtfarartónleika Mér líður eins og tónlistarmanni Morgunblaðið/Golli „Mig langar að gefa eitthvað af mér í tónlistina og ég vona að það kom- ist til skiia," segir tónskáldið Samúel Jón. Morgunblaðið/Golli Samúel Jón heldur tónleika annað kvöld í Leikhúsinu Ægisgötu 7. Básúnuleikarinn Samúel Jón mælir , með uppvaski við lagasmíðar og af- raksturinn af því geta menn heyrt annað kvöld í Leik- húsinu. Hildur Loftsdóttir er orð- in forvitin. f AMÚEL Jón Samúelsson er svona manna á milli kallað- ur Sammi básúna, enda K. J þekkja hann flestir sem básúnuleikarann í Casino og Jagúar. Hann hefur komið víða við í tónlist- arheiminum hér á landi, þar sem hann hefur útsett fyrir og leikið inn á plötur með Sigurrós, Maus, Möggu Stínu, Páli Óskari, Landi og sonum og ótal fleirum og komið fram með Funkmaster 2000, Stórveit Reykja- víkur, djasssöngkonunni Tenu Palm- er, Dip og Tómasi R. svo einhverjir ^séu nefndir. Nú ætlar Sammi að sýna á sér enn eina hliðina þegar hann heldur út- skriftartónleika sína frá Tónlistar- skóla FÍH á mánudagskvöldið kl. 20 í Leikhúsinu á Ægisgötu 7. Þar mun 17 manna stórsveit spila fönk- og djasslög sem Sammi samdi og útsetti sérstaklega fyrir sveitina, sem sldpuð er úrvals hljóðfæraleik- urum Islands. Sjálfur lofar hann að taka nokkur sóló. „Mér finnst að burtfarartónleikar eigi að vera á vettvangi þar sem tón- leikar eru, það er um að gera að rífa þá úr skólasamhenginu. Fyrir mér eru þetta bara tónleikar." - Ertu að útskrífast sem básúnu- leikarí? „Já... og nei, það eru skiptar skoðanir á því. Þar sem ég er að semja þetta allt voru prófdómararn- ir fyrst ekki vissir hvort þeir ættu að dæma mig sem hljóðfæraleikara eða útsetjara þannig að ég held að það verði hvort tveggja. Eg kom inn á kennarastofu eftir forprófið og þar sátu þeir allir, þeir óskuðu mér til hamingju og spurðu hvernig mér liði. Vel. Hvort mér liði eins og básúnu- leikara eða útsetjara? og þá svaraði ég að mér liði eins og tónlistarmanni. Og þá klóruðu þeir sér bara í hausn- um,“ segir Sammi og hlær. „Eg er ekki að reyna að stilla mér upp sem hljóðfæraleikara þótt ég sé í einleikshlutverki á tónleikunum, en bandið spilar í öllum lögunum." - Hvernig tónlist er þetta sem þú ert búinn að semja? „Ég hef aldrei átt auðvelt með að skilgreina mína eigin tónlist. Þetta getur örugglega flokkast undir fönk og djass að einhverju leyti, en þetta er bara mín tónlist, og ég verð að láta einhverja aðra um að setja hana á einhvem bás. Fólk verður bara að koma að sjá og hlusta." - Ertu undir áhrifum frá einhverj- um sérstökum? „Nei, bara frá öllu sem ég heyri og fíla. Ég hlusta mikið á fönk og djass, en líka þess vegna Burt Bacharach." - Ertu hrífínn af Glenn Miller? „Ég var það þegar ég var yngri. Hann hefur áreiðanlega haft einhver áhrif á mig ómeðvitað." -Er ekki sérstakt fyrir ungan mann að útsetja og semja fyrír stór- sveit? „Ég veit það ekki, ég hef alltaf fíl- að þetta „sánd“, og ég vil alls ekki setja samasemmerki milli big band- tónlistar og Glenn Millers. Hans tónlist er bara sérkafli, big band- hefðin á sér miklu lengri sögu og er nær okkur í tímanum líka. Ég er að koma með mína útgáfu af því.“ - Langar þig að semja stórsveitar- tónlist í fram tíðinni ? „Alveg eins, en ekki eingöngu. Mig langar að gera alls konar tónlist. Ég stefni á að fara í framhaldsnám í tónsmíðum, ekki eingöngu djass heldur komast í gott alhliða nám. Ég ætla samt að bíða í eitt ár og spila meira með Jagúar, gera aðra plötu.“ - Er þetta í fyrsta skipti sem ein- hver útskrífast bara með eigin lög- um? „Nei, Óskar Guðjóns saxófónleik- ari gerði það fyrir nokkrum árum. Hann var með tríó og það var mjög gott, en ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem einhver reynir að fela sig á sínum eigin tónleikum, stefnir saman fullt af öðrum hljóðfæraleik- urum og vonast til að hverfa í fjöld- ann,“ segir Sammi með óræðu glotti. „Þetta er reyndar í fyrsta skipti sem einhver setur saman heila stórsveit á sínum forsendum og og stjórnar henni á burfarartónleikunum sín- um.“ - Hvenær fékkstu hugmyndina? „Ég gekk með hana í maganum í nokkur ár, sá það alltaf í hillingum þegar ég myndi útskrifast og svo var allt í einu komið að því. Hilmar Jens hvatti mig til að gera þetta svona fyrst mig langaði til þess. Barði í mig kjarkinn. Ég varð strax spenntur því mig langaði ekki til að klára skólann eins og allir aðrir, með kvartett að spila „standarda". Mér fínnst það ekkert spennandi. Mig langaði að gefa eitthvað af sjálfum mér í tónlist- ina, og ég vona að það komist til skila, hvort fólki síðan líkar tónlistin eða ekki er svo annað mál.“ - Áttir þú eitthvað af lögum ? „Já, það eru átta lög á efnis- skránni. „Húbba Búbba“ er elsta lagið, það er reyndar að finna á síð- ustu plötu Jagúars, en það mun hljóma í breyttri mynd á mánudag- inn. Hitt eru bæði gamlar og nýjar hugmyndir en ég þurfti að setjast niður og skrifa þetta allt. Ég byrjaði bara á þessu í jólafrúnu þannig að í janúar og febrúar gerði ég ekkert annað.“ -Hvernig færðu hugmynd að lagi? „Maður fær lagbút í hausinn af því að hlusta eða spila. Þegar ég vinn úr honum kemur fullt af öðrum hug- myndum og kannski hendi ég upp- haflegu hugmyndinni. Lagið „Hvað?“ er smá grínlag sem ég samdi þegar ég var að vaska upp og fór að slá í og syngja. Þá kom það og ég hljóp inn í herbergi og skrifaði það niður. Þannig að ég mæli eind- regiðmeð uppvaski!“ -Áað taka þetta upp? „Já. Helst hefði ég viljað fara í stú- díó, en það er ekki auðvelt að koma öllum saman. Þegar það verður lang- ar mig til að geta borgað þeim. Ég er rosalega þakklátur öllum þessum gaurum, þeir voru allir rosalega já- kvæðir og þetta hefði ekki verið hægt án þeirra.“ Hvernig var að heyra lögin í fyrsta skipti í þeirra flutningi? „Það er æðisleg tilfínning að mæta með eitthvað á pappír sem maður er búinn að ganga með í hausnum, og heyra það flutt af alvöru hljóðfæra- leikui-um. Maður fær vægt sjokk- .Eftir fyrstu æfingarnar var adrena- linið alveg í toppi.“ - Hverjir heldurðu að komi? „Það ættu allir að koma. Þetta verður bara í þetta eina skipti og er óvenjulegt á vissan hátt, en samt í anda þess sem ég hef verið að gera í þeim hljómsveitum sem ég hef verið í, nema núna fæ ég að ráða öllu, ha, ha,“ segir Samúel Jón að lokum, ánægður með sitt. Auglýsendur! Netið er nýtt sérblað sem fylgir Morgunblaðinu annan hvern miðvikudag. í Netinu er að finna fullt af fréttum, greinum, viðtölum og fróðleik um Netið. Skilafrestur auglýsingapantana í næsta blað er til kl. 16 mið. 3. maí AUGLYSINGADEILO Sími: 569 1111 - Bréfasími: 569 1110 ■ Netfang: augl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.