Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 43

Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 43 MINNINGAR KIRKJUSTARF HRAFNHILDUR LÁRA BENEDIKTS- DÓTTIR + Hrafnhildur Lára Benedikts- dóttir fæddist á Landspitalanum 2. apríl 1997. Hún lést á Barnaspítala Hrings- ins 14. apríl síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Fella- og Hólakirkju 25. aprfl. Elsku Hrafnhildur okkar, erfitt er að trúa því að þú sért farin frá okkur. En við eigum margar yndislegar minningai’ um þig, t.d. sl. sumar þegar þú fórst upp í sumarbústað með ömmu og Siggu frænku, þú varst svo ánægð í sveit- inni. I desember var líka góður tími hjá þér, þegar þú fórst á skautasvellið, þú varst svo dugleg á skautunum, en Didda tvíburabróður þínum fannst ekkert gaman. Margar yndislegar stundir áttum við í Blikahólum með þér og þér var ekki vel við að amma setti á sig gleraugun, þá sagðir þú „afi á“ og vildir að afi fengi gleraug- un. Þú varst alltaf svo dugleg og sterk þótt þú værir búin að ganga í gegnum erfiðan sjúkdóm. Þú varst svo blíð og góð. Við þökkum þér fyrir allar yndis- legu stundirnar sem við áttum saman og biðjum Guð fyrir Hrafnhildi okk- ar. Elsku Benni, Alda, Guðrún, Ás- laug, Brynjar, Sigurður og Guðni, megi guð vera með ykkur. Guð blessi ætíð þínófarinspor afturhanngefiþér sólskinogvor engu gæska hans gleymir. f hjarta þitt les hann semleturábók oglæturþigfinna að það sem hann tók hann hjá sér í himninum geymir. (G.V.G.) Amma, afi og Sigríður frænka í Blikahólum. með barbídúkkurnar, þú átth- rosalega flotta furby-uglu. Ég man þig alla tíð. _ Áslaug, stóra systir. Það var fóstudagur 14. aprfl er ég fékk þær sorgarfréttir að þú Hrafnhildur litla okkar værir látin, þetta var eins og hamarshögg í andlitið. Þú sem varst búin að ganga í gegnum svo miklar þjáningar, allar þessar erfiðu meðferðir og öll þessi lyf. Þú varst á svo góðum bata- vegi, en þá þurfti þessi sjúkdómur að blossa upp aftur, en þú stóðst þig allt- af eins og hetja á meðan þessi barátta stóð yfir. Þú varst að fara að flytja til Grundarfjarðar með mömmu, pabba og systkinum þínum, en þá þurfti þetta endilega að gerast. Ég og Anna María munum svo vel eftir því þegar við komum að heimsækja þig upp á spítala með stóran pakka handa þér, þú varst svo ánægð og alveg æst í að rífa pappírinn utan af pakkanum og sömuleiðis Diddi bróðir þinn. í pakk- anum var falleg dúkka sem er með þér núna og passar þig vel. Við mun- um líka eftir öllum stundunum upp í Blikahólum hjá ömmu og afa, þegar allir voru í kaffi og spjalli inni í eld- húsi nema þú, hvar varst þú? Jú, þú varst inni í herbergi hjá Bigga að horfa á Timon og Pumba og sagðir alltaf við mig, sjáðu Simmi, sjáðu Púmba. Þú varst svo blíð og góð og varst alltaf brosandi. Mamma þín og pabbi stóðu alltaf þétt upp við bakið á þér meðan þessi erfiða barátta stóð yfir og sömuleiðis Guðrún. Þið eruð öll hetjur í okkar augum. Við þökkum þér fyrir allar æðis- legu stundimar sem við áttum með þér og munum aldrei gleyma. Megi góður Guð geyma þig og vemda. Elsku Benni, Alda, Guðrún (Guggú), Brynjar, Áslaug, Diddi, og Guðni. Megi Guð vera með ykkur. Þín hlýju bros Margan fagran morgun mýktogbirtugæddi Sofðu engill, augun leggðu aftur, álfarnir geyma fögru gullin þín. Dagurinn hefur kveðjuorðin kallað, hvíslar nóttin næturljóðin sín. Elsku systir mín. Það er gott að þér líður vel núna, er skemmtilegt hjá Guði? Ég veit að þú ert í góðum höndum, þú getur flogið núna. Ég man þegar við lékum okkur brosíbamsinsaugum bættialltoggræddi gaf mér frið og fógnuð fáamunþað gruna. Litlahöndílófa ljúfterennaðmuna. (G.V.G.) Sigmundur og Anna María. Þá er uppáhaldið mitt farið frá mér. Það eina sem skiptir máli er, að þér líði vel og þurfir ekki að þjást lengur. Ekki skortir nú minningar um þig, Hrafnhildur mín. Þegar þú varst á leiðinni til mín í Blikahólana kallaðh-ðu alltaf: „Bigga, Bigga,“ um leið og þú sást húsið mitt. Það er varla hægt að lýsa því hvað þú, engill- inn minn, hélst mikið upp á mig. Ynd- islegri stelpu hef ég ekki kynnst en þér. Æðislegasta minningin mín um okkur er um hann púmba sem hvílir hjá þér. Oft gátum við legið í rúminu mínu og horft á púmba. Þessar yndis- legu stundir sem við áttum saman á spítalanum. Lengi mun minningin um þig lifa í huga mínum. Aldrei mun ég sætta mig við fráfall þitt. Ef það var einhver sem gat komið mér í mjög gott skap þá varst það þú, eng- illinn minn. Ég bið Guð að varðveita engilinn minn, Benna, Öldu, Áslaugu, Brynj- ar, Sigui’ð, Guðna, Guðrúnu og alla þá sem þótti vænt um Hrafnhildi mína. Vil ég að lokum koma með nokkrar ljóðlínur sem lýsa okkar sambandi: Égþakkirfæri því nú skilja leiðir. Þigg þú litla gjöf úrhendimér. Eg bið að þínir vegirverði greiðir égveitaðégmun aldreiglevma þér. (G.V.G.) Birgir Már. Elsku htla frænka. Nú þegar komið er að kveðjustund leitar það á hugann hversu sjálfsagt okkur þótti að þú fengir að njóta æsku og þroska eins og við flest. En þótt málin snerust á annan veg er svo margt að þakka, margar sólskins- og gleðistundir sem návist þín hefur skapað. Og það erfiða sjúkdómsstríð sem þú þurftir að heyja hefur verið átakanlegt og reynt mjög á þig og aðstandendur þína. Sorgin er svo sár og erfitt að sætta sig við orðinn hlut. Við biðjum Guð að hjálpa þeim yfir erfiðasta hjallann og finna til léttis með þér að veikindun- um er nú lokið. Við svona aðstæður kemur alltaf best í Ijós hvers virði samkennd og ástúð er. Þín stutta og áfallasama ævi hefur vissulega ekki verið tilgangslaus, því ótrúlegur lífskraftur sálarinnar í veikum líkama getur kennt okkur mikið. Við þökkum fyrir að þú þarft ekki að líða lengur, og trúum því að: Lausnarinn í ljóssins geim leiðirböminsmáu. Fylgir þeim í fegri heim fjarri öllu lágu. Við vottum fjölskyldunni dýpstu samúð. Fjóla, Gréta og fjölskyldur. S TEINGRIMUR STEFÁN THOMAS SIG URÐSSON + Steingríniur Stefán Tliomas Sigurðsson fæddist á Akur- eyri 29. aprfl 1925. Hann varð bráðkvaddur í Bolungarvík 21. aprfl síðastliðinn og fór útfór hans fram frá Kristskirkju, Landakoti, 29. aprfl. Sitt er hvað, gæfa eða gjörvuleiki, segir í Grettlu. Lífshlaup Steingríms Sigurðssonai’ var um margt óvenju- legt. í vöggugjöf hlaut hann góðar gáfur og listrænar taugar. En einnig óstöðuga skapsmuni og lundarfar. Togstreita á milli ólíkra þátta í skap- höfn hans mótuðu líf hans og list í ríkum mæli. Hann var kallaður „lífskunstner". Það var hálfgert öf- ugmæli. Að baki hverju óbrotgjörnu listaverki býr að vísu sköpunargáfa og frumleiki, en einnig formfesta og lögmál listarinnar sjálfrar. Lífið er annars eðlis og líf Steingríms var þar engin undantekning. Hann gat verið sjálfhverfur og tillitslaus í samskipt- um sínum við fólk, en einnig leiftr- andi frjór, andríkur og skemmtileg- ur. „Vér erum allh- blendnir, en mjög misblendnir," sagði Sigurður skóla- meistari, faðir Steingin'ms. Steingi’ímur kynntist óti’úlegum fjölda fólks á lífsleiðinni, eins og glögglega kemur fram í sjálfsævis- ögu hans, „Lausnarsteini". Það var sjaldan lognmolla í kringum hann og stundum æði stormasamt. Og Steingrímur reyndi það „að kenna til í stormum sinnar tíðar“. En eftir hvert áfall reis hann ætíð upp aftur fullur af lífsorku og með nýjar og misjafnlega raunhæfar áætlanh’ á prjónunum. Það kann að vera, að einhverjir telji sig eiga um sárt að binda vegna Steingríms. En hitt er víst, að fleiri minnast hans með hlýhug og söknuði, því að hann gat verið næmur, gefandi og hvetjandi og kallað fram ýmsa góða, og stund- um dulda, eiginleika í fari fólks og auðgað tilveru þess. Það er því ekki að ófyrirsynju að ætla, að margir samferðamenn hans standi í þakkar- skuld við hann. Steingrímur lagði metnað sinn og stolt í það að koma börnum sínum til manns, oft við erfiðar aðstæður. Kannski var það hans manndóm- svígsla og hana stóðst hann með prýði. Faðir Steingríms skrifaði eitt sinn í grein um Þorstein Arnljótsson: „En eitt böl sættist enginn við fullum sáttum: að fá ekki neytt beztu hæfi- leika sinna. í sárinu því, sem kalla má að njóta sín ekki, svíður meina sárast. Sú und er harmur, sem að vísu getur hemað yTir og bera má í leynd og hljóði. En þunglyndið lifir undir rósemd og glaðværð og ann- ríki lífsins, líkt og áin líður áfram undir fagurbláum ísum.“ Steingrímur þroskaði einungis suma af sínum góðu og fjölþættu hæfileikum og sálargáfum. Hinir lágu óbættir hjá garði. Það var hans böl. Gæfa hans var barnalán. En líka lífskraftur fram á hinsta dag, sköp- unargáfa og guðstrú. Hann var eng- inn meðalmaður og setti svip á sam- tíð sína. íslenskt mannlíf er fátæklegra að honum gengnum. Sigurður Olafsson. Breiðholtskirkja. Safnadarstarf Tómasarmessa í Breiðholts- kirkju ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til fjórðu messunnar á þessu ári í Breiðholts- kirkju í Mjódd í kvöld, 30. apríl, kl. 20. Verður þetta síðasta Tómasar- messan að sinni, en þær hefjast síð- an væntanlega aftur í haust. Fram- kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Kristilega skólahreyfingin, Fé- lag guðfræðinema, Breiðholtskirkja og hópur presta og djákna. Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa í safnaðarheimilinu þriðju- dag kl. 10-14. Léttur hádegisverður framreiddur. Mömmu- og pabba- stund í safnaðarheimilinu þriðjudag kl. 14-16. Dómkirkjan. Barnastarf í safnað- arheimilinu þriðjudag kl. 14 fyrir 6-7 ára börn, kl. 15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17 fyrir 10-12 ára börn. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi þriðjudag kl. 12.10. Orgel- leikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur málsverð- ur í safnaðarheimilinu eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbæna- guðsþjónusta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Laugarneskirkja. Morgunbænir mánudag kl. 6.45-7.05. 12 spora hóparnir hittast mánudag kl. 20. Gengið inn um aðaldyr kirkjunnar. Fundur Kvenfélags Lauganeskirkju mánudagskvöld kl. 20 í safnaðar- heimili. Morgunbænir þriðjudag kl. 6.45-7.05. Fullorðinsfræðsla þriðju- dag kl. 20 öllum opin. Önnur síðasta samvera vetrarins. Þriðjudagur með Þorvaldi þriðjudagskvöld kl. 21. Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara þriðjudag kl. 16.30 í umsjón Ingu J. Backmann og Reynis Jónas- sonar. Selfjarnarneskirkja. Æskulýðs- félagið í kvöld kl. 20-22. Foreldra- morgunn þriðjudag kl. 10-12. Árbæjarkirkja. Yngri deild æsk- ulýðsfélagsins kl. 20-22. Kirkjupr- akkarar, 7-9 ára, kl. 16-17 á mánu- dögum.TTT-starf 10-12 ára, kl. 17-18 á mánudögum. Eldri deild æskulýðsfélagsins kl. 20-22. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 áradrengi á mánudögum kl. 17-18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á mánudögum kl. 20-22. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í Bókhaldskerfi gsn KERFISÞRÓUN HF. L_N http://www.kerfisthroun.is/ kirkjunni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587-9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag íyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánu- dögum.Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um- sjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Kópavogskirkja. Mömmu- og pabbamorgunn þriðjudag kl. 10 í Borgum. Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni þriðjudag kl. 12.30. Seljakirkja. Æskulýðsfundur í dag kl. 20. KFUK-fundir á mánu- dögum. Kl. 17.15 stelpustarf á veg- um KFUK og kirkjunnar fyrir 6-T7 áraog kl. 18.30 fyrir 10-12 ára. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Ungl- ingakór á mánudögum kl. 17-19. Æskulýðsfélag mánudag kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Æsku- lýðsstarf yngri deild kl. 20.30-22 í Hásölum. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kh~ 17.30 á prestssetrinu. Landakirlga Vestmannaeyjum. Kl. 11 barnasamvera. Mæting við Landakirkju en þaðan verður farið með rútu inn í Herjólfsdal til að grilla og leika saman, allt í boði sóknarnefndar. Síðasta barnasam- vera vetrarstarfsins. Kl. 14 ferming- armessa með altarisgöngu. Kl. 20.30 Æskulýðsfundur. Síðasti fundur vetrarins. Þriðjud: Kl. 20 fundur um sorgarviðbrögð og missi. Lágafellskirkja. Lokastund kirkjukrakka og TTT-starfs verður mánudaginn 1. maí. Farið verður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með rútu frá safnaðarheiminu kl. 11. Áætluð heimkoma kl. 13.30. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Almenn samkomakl. 16.30 í umsjón Kvennamóts. Mikill söngur og vitn- isburðir. Ungbarna- og bamakirkja meðan á samkomu stendur. Allir hjartanlega velkomnir. Mán: Marita samkoma kl. 20. Allir velkomnir. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kl.17.30 á prestssetrinu. Akraneskirkja. Mánudagur: Fundur í æskulýðsfélaginu í húsi KFUM og K kl. 20. Hólaneskirkja Skagaströnd. Á morgun mánudag: Unglingadeild KFUM & K kl. 20 fyrir 13 ára og eldri. Víkui’prestakall í Mýrdal. Fen#- ingarfræðsla á mánudögumkl. 13.45. Frelsið, kristileg miðstöð. AJ- menn fjölskyldusamkoma sunnu- dagakl. 17. Tilbodsverd Fallegir borödúkar og servíettur í gjafakössum V** I ppsotiiiiitfubúóiti i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.