Morgunblaðið - 30.04.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.04.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ I ÍDAG Arnað heilla f7A ÁRA afmæli. Nk. I V/þriðjudag 2. maí verður sjötugur Jón Böð- varsson cand. mag., Safa- mýri 67, Reykjavík. Jón er fyrrverandi menntaskóla- kennari, skólameistari Fjölbrautaskóla Suður- nesja og ritstjóri Iðnsögu íslendinga. Eiginkona Jóns er Guðrún Erla Björgvinsdóttir aðstoðar- skólastjóri Engjaskóla í Reykjavík. Vinir hans og nemendur halda honum samsæti í Borgarleikhús- inu kl. 20 á afmælisdaginn. Allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir. Æski- legt er að tilkynna þátt- töku hjá Endurmenntun- arstofnun Háskóla íslands í síma 525-4231 eða hjá Tómstundarskólanum 588-7222. HA ÁRA afmæli. í dag, I \/sunnudaginn 30. apríl, verður sjötug Ólöf Pálsdóttir, Einimel 18, Reykjavík. Hún er stödd í Seattle í Bandaríkjunum á afmælisdaginn. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með. tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númcr. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík I7A ÁRA afmæli. Nk. • v/þriðjudag 2. maí verður sjötug Steinvör Esther Ingimundardóttir, húsmóðir, Reynihvammi 4, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Hlöðver Guð- mundsson. Steinvör er að heiman á afmælisdaginn en tekur á móti gestum á heimili sínu laugardaginn 6. maí eftir kl. 18. n A ÁRA afmæli. Á I v/morgun, mánudag- inn 1. maí, verður sjötugur Heimir Brynjúlfur Jó- hannsson, prentsmiðju- stjóri og útgefandi, Gull- smára 11, Kópavogi. Eiginkona hans er Frið- rikka Baldvinsdóttir. Þau taka á móti gestum í Fé- lagsmiðstöðinni Gullsmára 13, Kópavogi, á morgun mánudag, frá kl. 17. pT A ÁRA afmæli. í dag, tl V/ sunnudaginn 30. apríl, verður fimmtugur Gissur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumað- ur og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, Breiðvangi 32, Hafnarfirði. Eigin- kona hans er Svanhildur Pótursdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum í Stjörnuheimilinu, Ásgarði, Garðabæ, í kvöld milli kl. 20-23. RÚBÍNBRÚÐKAUP. í dag, sunnudaginn 30. apríl, eiga 40 ára hjúskaparafmæli hjónin Birna Ingadóttir og Bragi G. Bjarnason, Máshólum 5. LJOÐABROT í FJARLÆGUM SKÓGI í fjarlægum, fógrum skógi ég friðsælt rjóður veit. Þar skjálfa geislar í grasi, þar ganga hindir á beit. Á bak við blávötn og akra rís borgin með þys og ljós, en skóggyðjan felur í faðmi friðarins hvítu rós. Hulda. ORÐABÓKIN Frekur til fjörsins FYRIR allöngu voru ofan- greind orð fyrirsögn fyrir leikdómi í DV. Ég staldr- aði við þetta orðalag og ekki sízt, þegar lesið var áfram. Þar stóð þetta m.a. „Þessi persóna er frek til fjörsins og ekkert á þeim buxunum að láta leikar- ann alfarið ráða kúrsin- um.“ Ég skildi þetta svo, að leikarinn hefði sjálfur viljað ráða ferðinni í leik sínum án áhrifa annarra. Nú er það svo, að no. fjör hefur nokkrar merkingar, m.a. táknar það líf og eins lífsafl eða þrótt samkv. OM. Fyrri merkingin kemur fram í orðtakinu: frekur er hver til fjörsins, sem er skýrt þannig í OM: sérhverjum er annt um líf sitt. Er auðskilið mál, hvað felst í þessum orð- um, þ.e. að honum finnst h'fið þess virði að lifa sem lengst. Ég held þessi merking sé vel þekkt í máli okkar enn í dag. í leiknum var ekki verið að tefla um hf og dauða í beinum skilningi. Virðist því heldur kveðið fast að orði með orðtakinu á þess- um stað. Samkv. þessari skýringu getur hún því engan veginn átt hér við. Síðari merkingin getur ekki heldur komið til greina. Merkingin lífsafl, þróttur er alkunna í orða- sambandinu að vera í fullu fjöri , sem menn segja um þann, sem er fullur af lífs- afli og þrótti. Enda þótt vel skiljist, við hvað var átt í téðum leikdómi, er vafasamt - og raunar óþarft - að breyta þannig gömlu orðtaki. - J.A.J. SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 51 STJÖRIVUSPA cftir Fraiiccs llrake NAUT Þú ert kappsfullur og mætt- irstundum kunna þérbetra hófen til þess er litið að þú nærð yfirleitt góðum ár- angri. Hrútur (21. mars -19. apríl) Ef þú eyðir tímanum með ein- hverjum sem þú vilt alls ekki vera með þá ertu í raun að eyða allra tíma til einskis. Vertu því þar sem þú vilt vera. Naut (20. apríl - 20. maí) Það getur verið gaman að líta um öxl og rifja upp Iiðna at- burði en það má þó ekki ganga svo langt að þú gleymir nútímanum og þeim skyldum sem þú hefur. Tvíburar t (21. maí-20.júní) AÁ Það er gott að þiggja aðstoð annarra þegar mikið hggur við en gleymdu ekki að þakka hana þegar allt er afstaðið. Og svo er að endurgjalda greiðann. Krabbi (21. júní - 22. júh) Þér finnast dagarnir hver öðrum líkir og ert gripinn leiða útaf því. En ef þú bara breytir örlítið út af þá er dag- urinn orðinn allur annar. Ljón (23. júh - 22. ágúst) Leggðu mál þitt fram af sanngirni og festu og varastu að ganga á annarra hlut því slíkt kallar aðeins á vandræði og skemmir málstað þinn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Tilfinningarnar standa hátt hjá þér og þú mátt hafa þig allan við að þær beri þig ekki ofurliði. Leitaðu hjálpar ef með þarf. 'tPTK (23. sept. - 22. október) & Þótt allt virðist vera í stak- asta lagi skaltu hafa varann á því alltaf getur eitthvað gerst. Það er of seint að byrgja brunninn þegar bam- ið er dottið ofan í hann. Sporðdreki ^ (23. okt. - 21. nóv.) Það er gott að þekkja sín eig- in takmörk og þá ekki síður að virða þau þegar á það reynir. En ástæðulaust er að prófa þau á hverjum degi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) ftC) Nú er þér óhætt að setja tnarkið hátt ef þú gætir þess aðeins að ganga ekki fram af þér. Sinntu þeim sem næst þér standa af kostgæfni. Steingeit (22. des. -19. janúar) 4bÍP Margar hendur vinna létt verk og það er málstað þínum til framdráttar að taka hönd- um saman við þá sem vilja veita þér brautargengi. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) Þótt að allir aðrir virðist vera á einu máli er ekki þar með sagt að þú þurfir að taka upp þeirra skoðun ef þér finnst sjálfum eitthvað annað. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ef þér finnast aðstæður erf- iðar þá reyndu að þrauka þar til það versta er gengið yfir. Þú munt uppskera laun erfið- isþíns. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hafnarfjöröur Verslunin hættir Útsalan hefst þriðjudaginn 2. maí. 25 — 50% afsláttur. Verslun Bergþóru Nýborg, Strandgötu 5, sími 555 0252. Stangaveiði Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörgu, unglingar (innan 16 ára aidurs), og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi, fengið afhent veiðileyfi án greiðslu. Veiðifélag Elliðavatns London með Heimsferðum frá kr. 7.900 alla fimmtudaga í sumar Heimsferðir tryggja þér lægsta verðið til London í sumar með beinu flugi alla fimmtudaga í sumar. Þú getur valið um helgar- ferðir, flugsæti eingöngu, flug og bíl eða flug og hótel, en við bjóðum fjölda góðra hótela í hjarta London á ffábæru verði. Tryggðu þér lága verðið meðan enn er laust. Verð kr. 7.900 Flugsæti, önnur leiðin. Skattarkr. 1.830 ekki innifaldir. Verð kr. 14.200 Flugsæti fram og til baka. Skattar kr. 3.790 ekki innifaldir. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Málþing um sveitarsfjórnarrétt fslandsdeild Norræna stjórnsýslusambandsins (NAF-ÍS) og félagsmálaráðuneyt- iö halda málþing um sveitarstjórnarrétt í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi fimmtudaginn 4. maí 2000 kl. 13-17. Á þinginu verður m.a. fjallað um niður- stöður nýlegra athugana á sviði stjórnskipunar og stjórnsýslu sveitarfélaga. Þingið er ætlað þeim sem starfa við stjórnun og stjórnsýslu sveitarfélaga og öðrum sem áhuga hafa á viðfangsefninu. Þátttaka tilkynnist til félagsmálaráðuneytisins með tölvupósti: postur@fel.stjr.is eða í síma 560 9100 fyrir lok 3. maí. Þátttökugjald er þrjú þúsund kr. Dagskrá: Setning málþings. Páll Pétursson, félagsmálaráöherr.a Jóhann Tómas Sigurðsson, lögfræðingur. Ólafur Jóhannes Einarsson, lögfræðingur. Birgir Tjörvi Pétursson, lögfræðingur. Erla Þuríður Pétursdóttir, lögfræðingur. Hvað felst ísjálfsstjórn sveitarfélaga? Endurskoðun dómstóla á stjórnvalds- ákvörðunum sveitarstjórna sem teknar eru í skjóli sjálfsstjórnar. Eru einhverjar hömlurá því að sveitarstjórn megi taka að sér ný verkefni, sé verkefnið ekki lögmælt? Frumkvæöiseftirlit með stjórnsýslu sveitarfétaga. Fyrirspurnir og umræður. Kaffihlé. Reglustjórn sveitarfélaga - Olíkt hlutverk sveitarstjórnarmanna og starfsmanna sveitarfélaga. Breytingar á sveitarstjórnarlögum - Hvernig hafa sveitarstjórnarlög nr. 45/1998 reynst? Eftir hvaða reglum taka varamenn sæti í sveitarstjórn? Fyrirspurnir og umræður. Fundarstjóri: Ómar H. Kristmundsson, formaður NAF-ÍS. íslandsdeild Norræna stjórnsýslusambandsins. Félagsmálaráðuneytið. Páll Hreinsson, dósent. Sesselja Árnadóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Sigurður Líndal, þrófessor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.