Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 40

Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 40
40 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, NJÁLLINGJALDSSON, Hagamel 33, Reykjavík, sem lést á Landakotspítla miðvikudaginn 19. apríl, verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 3. maí kl. 13.30. Hjördís Jónsdóttir, Guðrún Njálsdóttir, Þóra Hrönn Njálsdóttir, Sigurjón Pétursson, Ragnheiður Njálsdóttir, Magnús R. Dalberg, Helga Bestla Njálsdóttir, Björn Hermannsson, Laufey Ása Njálsdóttir, Baldvin Valtýsson, Sigríður Hulda Njálsdóttir, Gunnar Guðni Tómasson, Edda Njálsdóttir, Örn Kr. Arnarson, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HJÖRLEIFS JÓNSSONAR, Miðtúni 84, Reykjavík. Drottinn blessi ykkur öll. Ósk Bjarnadóttir, Bjarnveig Hjörleifsdóttir, Gunnar Ingvi Hrólfsson, Guðrún Ósk Gunnarsdóttir, Carl Gránz, Ólafur Carl Gránz, Grétar Þór Gunnarsson, Erla Guðrún Arnmundardóttir, Gyða Rós Gunnarsdóttir, Ari Hjörleifsson, Svala Guðlaugsdóttir, Daníel Arason, Dagný Aradóttir, Hjördís Hjörleifsdóttir, Þorsteinn V. Reynisson, Björgvin Þorsteinsson, Baldvin Þorsteinsson, Steinunn Þorsteinsdóttir Ingunn Þorsteinsdóttir. SOFUSPALL HELGASON + Sófus Páll Helga- son fæddist í Kverkártungu Skeggjastaðahreppi 9. nóvember 1907. Hann lést á Sjúkra- húsi Húsavíkur eftir stutt veikindi 13. apr- íl síðastliðinn. Páll var sonur hjónanna Arndísar Karitasar Sigvaldadóttur, f. 16.7. 1868 á Langa- nesi, d. 1942, og Helga Sigurðar Páls- sonar, f. 31.12. 1866 í Mývatnssveit, d. 1936. Þau Arndís og Helgi bjuggu lengi í Árseli á Langanesi. Þau eignuðust fímm syni og var Páll þeirra næst- yngstur. Hinir voru: Hólmsteinn, f. 5.5. 1893 í Mývatnssveit, d. 1988; Jónas Aðalsteinn, f. 13.8. 1896 á Langanesi, d. 1978; Sigurbjöm Valdemar, f. 15.7. 1903 á Langa- nesströnd, d. 1993; Jón Sigurðsson Helgason, f. 17.6. 1912 á Langa- nesi, d. 1980. Árið 1934 kvæntist Páll Ingibjörgu Sig- urrósu Sigurðardótt- ur, f. 2.6. 1914, d. 22.11. 1972. Þau eignuðust níu börn sem eru: Helgi Sig- urður, f. 13.2. 1934, d. 27.5. 1979, bjó á Húsavík; Amþór, f. 2.3. 1938, búsettur í Hafnarfirði; Aðal- björg Rósa, f. 6.11. 1944, búsett á Rauf- arhöfn; Páll, f. 19.6. 1946, búsettur á Ak- ureyri; Jónas, f. 12.11. 1947, d. 13.7.1995, bjó á Raufarhöfn; Borg- hildur, f. 23.10. 1950, og Sigurður, f. 15.10. 1952, bæði búsett á Hjalt- eyri; Dísa, f. 8.11. 1953, búsett á Raufarhöfn, og Einai- Hálfdán, f. 7.3.1956, d. 11.3.1973. títför Páls fór fram frá Raufar- hafnarkirkju laugardaginn 22. april. Elsku afi Palli. Nú ert þú kominn til nýrra heim- kynna og við trúum því að þar hafir þú fengið góðar móttökur. Á langri ævi þinni mættir þú bæði gleði og sorg. Þú eignaðist yndislega eigin- konu, ömmu okkar Rósu, og með henni níu mannvænleg börn. En þau öll fékkst þú ekki að hafa eins lengi hjá þér og þú, og við öll, hefðum vilj- að. Ommu misstir þú fyrir nær þrjá- tíu árum og þú þurftir líka að sjá á eftir þremur sonum þínum i blóma lífsins. Eins og um aðra af kynslóð afa upplifði hann miklar þjóðfélags- breytingar. Hann fæddist og ólst upp í torfbæ norður á Langanesi og vand- ist því að það þyrfti að hafa fyrir líf- inu. Hann fór ungur að vinna fyrir sér og vann oft myrkranna á milli til að hafa ofan í sig og sína. Þegar hann átti lausa stund frá vinnu voru áhugamálin mörg og margvísleg. Afi hafði gaman af að dansa og lét sig sjaldan vanta á dansleiki á Raufar- höfn og nágrenni. Hann var einnig liðtækur briddsspilari og var fljótur að grípa tækifærið ef hann taldi vera spilafært í húsinu. Á meðan sjónin leyfði las hann mikið og var um margt fróður. Á yngri árum spilaði hann á fiðlu og átti auðvelt með að setja saman stöku. Eldspýtustokk- um safnaði hann til margra ára og laumuðum við oft stokki í vasa okkar ef við héldum að afa vantaði einmitt svona eldspýtustokk. I minningu okkar systkinanna á Húsavík eru Ásbyrgi og Raufarhöfn eitt. Ásbyrgi er húsið sem afi og amma bjuggu í lengst af og stendur í miðju þorpinu. Þar var alltaf sól, hlýja og gott að vera. Þegar Húsa- víkurhersingin lagði af stað á gamla Villis austur til Raufarhafnar ríkti mikil spenna. Við hlökkuðum til að hitta afa, ömmu og hina ættingja okkar. Leiðin var löng og vegimir erfiðir yfirferðar. Oft var spurt: „Er langt eftir?“ „Erum við ekki alveg að verða komin?“ Um leið og bíllinn nam staðar á túninu við Ásbyrgi kom amma út á hlað og breiddi út faðm- inn. Eitt af öðru rukum við um háls hennar og fengum að heyra hvað við hefðum stækkað. Þegar von var á afa heim úr vinnunni stóðum við á stól- um við gluggann í eldhúsinu og fylgdumst með ferðum hans. Strax og grillti í hann þutum við niður og fórum í kapphlaup niður túnið til að heilsa honum. I kvöldmatinn vonuð- umst við eftir fiskibollum eða lamba- kjöti með karrýsósu. Það var heims- ins besti matur og oft varð okkur að ósk okkar. Sum okkar voru heppin og fengu að lúlla á milli afa og ömmu. Við munum þegar þau teygðu sigyfir okkur til að kyssa hvort annað góða nótt. Síðar sagði afi að þau hefðu aldrei farið ósátt að sofa og hefur móðir okkar sagt að hjónaband þeirra hafi verið einstaklega gott og ástríkt. Afi var mikill dýravinur og í Ás- byrgi voru oftast einhver dýr - kött- ur, kýr, kindur, hestar og hænur. Öll- um dýrunum sínum gaf hann nafn og talaði við þau eins og þau væru HRAFN DAVÍÐSSON + Hrafn Davíðsson fæddist á Dalvík 20. ágúst 1972. Hann lést 26. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 4. aprð. Elsku Krummi. Æskuvinur okkar og leikfélagi til margra ára er látinn, aðeins 27 ára. Þegar maður fær svona fréttir fer maður að hugsa til baka og rifja upp æskuminn- ingar. Við vorum svo mörg sem áttum Krumma sem vin og skólabróður, en við vorum nokkur sem bjuggum í Fjólugötunni og svo Krummi í Eyr- arveginum. Við vorum alltaf saman á sumrin og svo „Stjáni frændi“, eins og Krummi sagði alltaf. Hápunktur- inn var 17. júní. Þá fengum við að fara í bæinn eldsnemma til að sýna okkur og sjá aðra. Með smá aur í nesti þrömmuðum við út um allt, all- an daginn. Þetta var best af öllu. Versti tíminn var aftur þegar þeir frændur fóru að Ástjörn í nokkrar vikur yfir sumarið. Það lá við að við stelpurnar færum að skæla þegar tveir sætustu strákarn- ir fóru í burtu. Við viss- um ekkert hvað við átt- um að gera af okkur á meðan. En tíminn var fljótur að líða og þeir komu aftur jafnhressir og venjulega. Því mið- ur, eins og svo oft verð- ur, rofnaði sambandið smám saman þegar við fórum að eldast. Svo flutti Krummi suður og við misstum allt sam- band við hann. Knimmi hafði þá ánægju að verða fyrstur okkar til að verða foreldri og óskum við honum Jóel litla alls hins besta í lífinu. Ef horft er á í réttu ljósi hvað lífið er stutt og lukkan svo hverful og frá. Ef horft er á í réttu ljósi, hver dagurergjöf, svo margt sem að hægt er að sjá. Ef hórft er á í réttu Ijósi hvaðþaðeríraun, sem fær lítið þjarta til að slá, mennsk. Var alltaf jafn gaman að fara með honum að gefa þeim, sjá litlu lömbin og tína eggin. Afi tók aldrei bílpróf en átti skellinöðru og vélsleða. Okkur systkinunum þótti ekki ónýtt að segja frá því að við ætt- um afa sem æki um á mótorhjóli og vélsleða og færi meira að segja á böll með okkur. Eftir að amma dó bjó afi lengi áfram í Ásbyrgi en flutti svo í þjón- ustuíbúð aldraðra á Raufarhöfn. Ur íbúð sinni gat hann séð upp í Ásbyrgi sem var honum alltaf kært. Afi fylgd- ist mjög vel með öllu sem gerðist og hafði jafn gaman af að fá fréttir og segja fréttir. Það kom alltaf ákveðinn spotskur svipur á hann þegar hann hafði frá einhverju skemmtilegu eða merkilegu að segja. Þá hallaði hann undir flatt og glampi kom í augu hans og svo dró hann seiminn og sagði: „Jáhá ....ég get sagt ykkur eitt.“ Stolt afa voru afkomendur hans. I hvert sinn sem við töluðum við hann sagði hann okkur nýjustu tölur. Hann fylgdist nákvæmlega með hverju einu og einasta bamabarni. Við hvað það starfaði, hvar það byggi, hvað það ætti af börnum og hvað þau hétu. Um síðustu jól veiktist afi og var fluttur á Sjúkrahús Húsavíkur í jan- úar. Þegar við vorum lítil óskuðum við þess oft að eiga afa og ömmu á Húsavík sem við gætum heimsótt þegar okkur langaði til. Það var stuttur tími sem þessi ósk varaði. En heimsóknirnar urðu samt fleiri og líklega flesta daga frá einhverju okk- ar. Að eigin sögn hafði afi reykt í um áttatíu ár og ákvað nýlega að nú skyldi hann hætta. Nokkrum dögum síðar fékk hann lungnabólgu og var vart hugað líf. En hann náði sér um tíma að nokkru og fannst það for- kastanlegt að fá lungnabólgu í fyrsta sinn á ævinni þegar hann var hættur að reykja. Elsku afi. Við barnabörnin þín frá Húsavík munum ávallt minnast þín með þakk- læti og virðingu. Nálægð þín færði okkur nær föður okkar sem við misstum ung. Við þökkum þér fyrir hversu vel þú hugsaðir um leiði fóður okkar sem var á Raufarhöfn. Það gladdi okkur alltaf að sjá hversu fal- legt það var og er. Við gátum ekki öll verið viðstödd útfór þína en munum í sumar eiga kveðjustund við leiði þitt. Við biðjum Guð að blessa þig og að lokum viljum við segja þér að nýj- ustu tölur í afkomendaskránni þinni eru 81 og þrír nýir á leiðinni svo vitað sé. Far þú í friði, fnðurGuðsþigblessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem). Helgaböm frá Húsavik. Ef horft er á í réttu ljósi, hversvegnaást er eitthvað sem allir þrá. Eitt yfir alla gengur, yfir einn. Eitt fyrir alla gildir, fyrir einn. Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Elsku Hrafnhildur, Davíð, Halli og aðrir sem eiga um sárt að binda. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi góður guð styrkja ykkur og vera með ykkur um alla eilífð. Arney, Óskar, Haukur, Hólmfríður, Kristín og Júlía. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.