Morgunblaðið - 30.04.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.04.2000, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Gamalt deilu- mál ógnar afvopnunar- samningum BAKSVIÐ ✓ Olíklegt þykir að samkomulag náist í deil- unni um breytingar á ABM-samningnum svokallaða fyrir fund Clintons og Pútíns í júní vegna andstöðu Rússa og ágreinings demókrata og repúblikana um hversu öflufft fyrirhugað eldflaugavarnarkerfí Bandaríkjanna eigi að verða. AP Igor Ivanov, utanrikisráðherra Rússlands, kyssir Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrir fund þeirra um afvopnunarmál í Washington á miðvikudag. Þriggja daga viðræðum þeirra lauk á fimmtudag án þess að samkomulag næðist í deilu ríkjanna um hvort breyta ætti samningnum sem takmarkar eldflaugavarnir þeirra. GÖMUL deila um eldflauga- vamir hefur nú blossað upp að nýju milli Banda- ríkjanna og Rússlands áratug eftir hrun kommúnismans sem virtist hafa bundið enda á karp stórveldanna um afvopnunarmál. Þótt sérfræðingar segi að nýjar leikreglur í kjamorkumálum séu tæknilega mögulegar hafa þær strandað á tortryggni ráðamanna í Rússlandi og ágreiningi demókrata og repúblikana, auk óvissunnar um niðurstöðu kosninganna í Bandaríkj- unum í nóvember. Deilumálið snýst um þá tillögu Bandaríkjastjórnar að breytingar verði gerðar á samningi frá 1972 sem takmarkar vamir gegn langdrægum eldflaugum (ABM) og hefur verið einn af grunnþáttunum í fælingar- stefnu stjómvalda í Washington og Moskvu í tæpa þrjá áratugi. Bandaríkjastjóm vill breyta samningnum þannig að ríkin geti komið upp eldflaugavarnarkerfum til að verjast hugsanlegum kjam- orkuárásum landa á borð við Norð- ur-Kóreu og íran. Rússnesk stjórnvöld hafa hins vegar hafnað tillögunni og neitað að semja um róttækar breytingar á samningnum. Vladímir Pútín, ný- kjörinn forseti Rússlands, hefur styrkt stöðu sína í deilunni með því að fá rússneska þingið til að stað- festa START-II samninginn um fækkun langdrægra kjamorkueld- flauga en setja um leið það skilyrði að Bandaríkin virði ABM-samning- inn. Repúblikanar em jafn ósveigjan- legir í deilunni og staðráðnir í að koma upp eldflaugavamarkerfi þrátt fyrir andstöðu Rússa. Ólíklegt þykir því að samkomulag náist í deilunni í heimsókn Bills Clintons Bandaríkja- forseta til Moskvu 4.-5. júní. „Þetta er mjög viðkvæmt tímabil," sagði Anotolí Díakov, forstöðumaður Afvopnunar- og umhverfismálamið- stöðvarinnar í Moskvu. „Bæði ríkin þurfa að gera það upp við sig hvort þau ætli að halda afvopnunar- samningunum eða eyði- leggja þá.“ Þessi deila kemur nokkuð á óvart því af- vopnunarmál hafa ekki verið á meðal helstu þrætuepla ríkjanna síðustu árin. Eftir hmn Sovétríkjanna töldu flestir að deilur og samningaþref um kjarnaodda og eldflaugar heyrðu sögunni til. Ríkin tvö væm ekki leng- ur óvinir. Og þótt afvopnunarviðræð- urnar hefðu oft dregist á langinn virtist meginástæðan vera sú að þær hefðu verið vanræktar. Hmn Sovétríkjanna hefur hins vegar einnig orðið til þess að Banda- ríkjamenn em ekki lengur einhuga um hvaða hættur steðji að landinu og hvernig draga eigi úr hættunni á kjarnorkustríði. Þingmenn repúblik- ana í Washington hafa lýst ABM- samningnum sem tímaskekkju og segja að annaðhvort þurfi að gjör- breyta eða rifta honum til að Banda- ríkin geti komið upp eldflaugavarn- arkerfi til að verjast hugsanlegum árásum óvinveittra ríkja í þriðja heiminum. Stjóm Clintons svaraði þessu póli- tíska áhlaupi hægrimanna með því að leggja til takmarkað vamarkerfi, sem krefðist breytinga á ABM- samningnum án þess að honum yrði kastað fyrir róða. Stjórnin segir að vamarkerfið eigi að vemda öll ríki Bandaríkjanna fyr- ir kjamorkueldflaugum Norður- Kóreu og írans. Gert er ráð fyrir því að tillögunni verði komið í fram- kvæmd fyrir árið 2005 og samkvæmt henni á að reisa nýja ratsjárstöð og skotpalla fyrir hundrað gagneld- flaugar á einum stað í Alaska, auk þess sem fimm ratsjárstöðvar verða endumýjaðar. Rússar segja að Bandaríkjastjórn gangi of langt með þessari tillögu en margir repúblikanar segja að ganga þurfi enn lengra. Forystumenn repúblikana, þeirra á meðal forseta- efni þeirra, George W. Bush, vilja að gagnflaugum verði komið fyrir á fleiri stöðum, meðal annars í hersk- ipum. Kínverjar hóta að fjölga eldflaugum sínum Andstæðingar varnarkerfisins í Bandaríkjunum segja að Rússar og fleiri þjóðir sem eiga kjamavopn hafi fulla ástæðu til að óttast að áform Bandaríkjanna raski hemaðarjafn- vægi kjarnorkuveldanna. Rússneskir embættismenn efast um að Bandaríkin myndu ráðast í svo dýrar og flóknar framkvæmdir til þess eins að veijast hugsanlegum árásum þróunarlanda eins og Norð- ur-Kóreu. Ljóst er að varnarkerfi gegn tak- mörkuðum kjamorkuár- ásum dugar ekki gegn 6.000 kjarnaoddum Rússa en rússnesku embættismennirnir ótt- ast þó að áætlun Clintons valdi nýju vígbúnaðarkapphlaupi og verði vísir að öflugu varnarkerfi sem geti varið Bandaríkin fyrir allsherjarkjarnorkuárás og geri kjamavopn Rússa gagnslaus. Vitað er að Rússar hafa ekki bolmagn til að koma upp slíku varnarkerfi. Aætlun Bandaríkjastjórnar veldur Kínverj- um jafnvel enn meiri áhyggjum þar sem þeir eiga aðeins rúmlega tíu eld- flaugar sem hægt yrði að skjóta á Bandaríkin. Kínveijar hafa þegar lýst því yfir að þeir hyggist svara áætluninni með því að fjölga langd- rægum kjarnavopnum sínum. Embættismenn bandarísku stjórnarinnar hafa ráðlagt Rússum að semja um breytingar á ABM- samningnum fyrir forsetakosning- amar í Bandaríkjunum í nóvember þar sem skilmálar Bandaríkjanna yrðu miklu óhagstæðari ef Bush yrði kjörinn forseti. Sérfræðingar í afvopnunarmálum sögðu að rökréttasta lausnin á deil- unni fælist í því að Bandaríkin fengju rétt til að koma upp takmörkuðu eld- flaugavamarkerfi til að verjast hugsanlegum árásum ríkja í þriðja heiminum. í staðinn myndi Banda- ríkjastjórn fallast á kröfu Rússa um að ríkin semdu um mikla fækkun langdrægra kjarnorkueldflauga. Bandarískir embættismenn hafa reyndar gefið til kynna að Clinton hyggist leggja til þessa málamiðlun- arlausn. Rússar hafa hvatt til þess að kjarnaoddum hvors ríkis verði fækk- að í 1.500. Bandaríska varnarmálar- áðuneytið hefur sagt að Bandaríkin þurfi um 2.500 kjarnaodda til að tryggja öryggi landsins en hugsan- legt er að stjómin reyni að sefa Rússa með því að fallast á að kjama- oddunum verði fækkað í tæp 2.000. Fámennur en áhrifamikill hópur sérfræðinga í Rússlandi er þeirrar skoðunar að slík lausn kynni að vera landinu í hag. Takmarkað eldflauga- varnarkerfi í Bandaríkjunum myndi ekki raska hernaðarjafnvæginu verulega ef takmarkanirnar yrðu skilgreindar vandlega. Rússar hóta að rifta afvopnunarsamningum Ráðamennirnir í Kreml hafa hins vegar ekki léð máls á þessari hug- mynd. Þeir segja að ABM-samning- urinn sé undirstaða allra þeirra af- vopnunarsamninga sem gerðir hafa verið á síð- ustu 25 árum og hóta að rifta þeim ef Bandaríkin koma upp varnarkerfinu. Pútín hefur varað við því að Rússar myndu ekki aðeins hætta við að fækka langdrægum kjarnorkueld- flaugum sínum, heldur einnig smíða nýjar fjölodda eldflaugar, rifta samningnum um upprætingu meðal- drægra kjarnorkueldflauga í Evrópu og jafnvel samningnum sem takmarkár hefðbundinn herafla í álf- unni. Rússar hafa aðeins léð máls á því að semja um varnarkerfi sem bygg- ist á skammdrægari gagnflaugum en gert er ráð fyrir í tillögum Banda- ríkjastjórnar. Talið er að mjög erfitt verði fyrir Pútín að ná málamiðlun- arsamkomulagi við Clinton eftir að hafa tekið þessa hörðu afstöðu i upp- hafi viðræðnanna. Það hjálpar ekki heldur að kjörtímabili Clintons er að ljúka og hann hefur ekki alltaf haft betur í deilunum um afvopnunarmál heima fyrir. Samið verði eftir kosningarnar Nokkrir rússneskir sérfræðingar óttast að náist málamiðlunarsam- komulag á fundinum í júní verði erf- itt fyrir Clinton að fá þingið til að styðja það. Þeir benda á að Clinton beið mikinn ósigur 1 fyrra þegar öld- ungadeildin hafnaði samningnum um allsherjarbann við kjarnorku- sprengingum í tilraunaskyni. Þeir segja að ef ráðamennirnir í Kreml vilji ná málamiðlunarsamkomulagi þurfi þeir að semja við leiðtoga sem geti tryggt að það nái fram að ganga á bandaríska þinginu. Jafnt stuðningsmenn sem and- stæðingar varnarkerfisins hafa reyndar hvatt bandarísk stjómvöld til að fresta því að taka ákvörðun um hvort koma eigi áætluninni í fram- kvæmd þar til eftir kosningamar. „Jafnvel þótt Rússar næðu sam- komulagi við Clinton væri engin trygging fyrir því að næsta stjóm Bandaríkjanna kæmi ekki til Moskvu 18 mánuðum síðar til að hefja nýja lotu viðræðna um breyt- ingar á ABM-samningnum og jafn- vel aftur síðar,“ sagði Aleksandr Píkajev, sérfræðingur í afvopnunar- málum í Moskvu. Kostar 60 milljarða dala Frumvarp um að komið yrði upp takmörkuðu eldflaugavamarkerfi um leið og það væri tæknilega mögu- legt var samþykkt með miklum meirihluta á bandaríska þinginu í fyrra og Clinton staðfesti það. Tilraun til að skjóta niður langdræga eldflaug með nýju vopni, sem verður hugsanlega uppistaðan í varnarkerf- inu, misheppnaðist í jan- úar og önnur tilraun er ráðgerð í júní. Fjárlagaskrifstofa Bandaríkjaþings áætlar í skýrslu sem birt var á þriðjudag að varnar- kerfi gegn takmörkuðum eldflauga- árásum myndi kosta tæpa 60 millj- arða dala, andvirði 4.400 milljarða króna, til ársins 2015. í skýrslunni var þó varað við því að auðvelt kynni að reynast fyrir ríki eins og Norður- Kóreu og Iran að finna leiðir til að gera varnarkerfið gagnslaust. Byggt á The New York Times, Reuters og AP. Greittfyrir vitnisburð Kaupmannahöfn. Morgunblaðid. RÚMU ári eftir branann í Gautaborg 29. október 1998, þegar 63 ungmenni létu lífið, samþykkti sænska stjómin að greiddar yrðu þijár milljónir sænskra króna, um 30 milljónir ís- lenskra, fyrir vitnisframburð er gæti leitt til þess að hægt væri að koma dómi yfir hina seku. Degi síðar sagði einn í hópi fjögurra granaðra frá hver fjórmenninganna það var sem kveikti í. Eftir það hafa hinir sagt frá og sá, sem álitinn er hafa kveikt í, hefur ját- að á sig verknaðinn. Þetta hefur leitt til vangaveltna í Svíþjóð hvaða áhrif það hafi að greitt sé fyrir vitnisburð. En það er þó ekki allur vitnisburður falur fyrir fé. Langt er um liðið síðan sænska stjómin auglýsti 50 miHjónir sænskra króna fyrir upplýsingar er leitt gætu til að morðið 1986 á Olof Palme þáver- andi forsætisráðherra upplýstist. Það hefur þó ekki dugað. Sagði frá daginn eftir Sá, sem sagði fyrst frá, er sá yngsti í hópi fjögurra granaðra, sem allir hafa verið í varðhaldi um hríð. Hann er nýorðinn nítján ára, en var sautján ára þegar bruninn varð. Hann missti frænku og marga félaga í brananum, sem varð á samkomu krakka er flestir voru af erlendum upprana, einkum frá Makedóníu. Þegar braninn varð hafði drengur- inn aldrei komist í kast við lögin. A skemmtuninni hitti hann þrjá kunn- ingja sína. Þeir eiga allir drjúga saka- skrá þrátt fyrir ungan aldur. Tveir era nítján nú og einn 21 árs. Þeir hafa verið dæmdir fyrir þjófnað, rán, gróf- ar misþyrmingar og einn þeirra einn- ig fyrir morðtilraun. Þegar kunningjamir lentu upp á kant við þá sem héldu skemmtunina af því þeir vildu komast ókeypis inn og ekki borga sem svarar 400 íslensk- um krónum fóra þeir út og vitnið með þeim. Hann var viðstaddur þegar stólum var hlaðið upp, eldfimum vökva hellt yfir, rasl borið að og kveikt í. Sá, sem vitnið benti á sem þann er kveikt hefði í, var samkvæmt framburði vitnisins og fleiri undir annarlegum áhrifum, líklega af hass- reykingum. Hann hegðaði sér undar- lega og þegar vitnið hvatti hann til að láta vera að kveikja í og síðan til að slökkva eldinn sagði hann að þeir skyldu fara út. Ekkert myndi gerast. Sænskir fjölmiðlar hafa birt hluta úr yfirheyrsluskýrslum lögreglunnar. Þar kemur fram hvað flcveikjan var hörmulega vanhugsuð og áhrifin, sem ódæðið hefur haft á ungmennin. Vitn- ið segir til dæmis frá að í hvert skipti sem hann hafi hugsað um þetta hafi hann kastað upp. Allir segjast óska þess að þeir gætu farið aftur á bak í tímann og látið vera að kveikja í. Sá, sem kveikti í, segist hafa deyft sárs- aukann á eftir með því að sniffa am- fetamín. Það hefur færst í aukana að yfir- völd lofi greiðslum fyrir vitnisburð. Auk lofaðrar greiðslu fyrir vitneskju um Palme-morðið hefur verið lofað tveimur milljónum fyrir upplýsingar um morð á lögreglumanni, sem er enn óupplýst. I viðtali við sænska útvarpið á fostudag sagði lögreglumaður að af- staðan til greiðslna fyrir vitnisburð hefði breyst mikið á undanfömum ár- um. Hér áður fyrr hefði mönnum kannski verið lofað vindlingapakka og smápeningum. Breytingin nú endur- speglaði bæði minni löngun almennt til að segja frá og dragast inn í dóms- mál, en einnig vaxandi hræðslu við hefndarráðstafanir meintra glæpa- manna. Flestir rannsóknarlögreglu- menn og dómarar segja hræðsluna mjög útbreidda í dómsmálum tengd- um skipulagðri glæpastarfsemi. Það veldur þó einnig áhyggjum að greiðslur af þessu tagi geta farið til glæpamanna, sem ekki fást til að koma upp um félaga sína fyrr en fyrir greiðslu. Spumingin sé líka hvort með tilboðum um greiðslu sé verið að ná í óheppilega gerð vitna. Almennt má heyra að aðferðin að borga vitnum sé í sjálfu sér hvorki góð né slæm, en hins vegar sé nauðsynlegt að hugsa fyrir hugsanlegar afleiðingar hennar. Varnarkerfið sagt geta rask- að hernaðar- jafnvægi kjarn- orkuveldanna Takmarkað eld- flaugavarnar- kerfi talið kosta 4.400 milljarða kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.