Morgunblaðið - 30.04.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 30.04.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 11 aftur,“ segir Hilda Jana, „ég fór að umgangast sama hópinn og áður og flutti á milli heimila, var bara þar semhægt var að sukka hverju sinni.“ Fíknin jókst dag frá degi og hún lærði inn á efnin á undrahraða. „Þetta var í rauninni skeliilegur tími,“ segir hún en hún á að baki fjór- ar meðferðir á Vogi og eina á Vífil- stöðum. „Taktu mig í burtu frá öllu þessu ógeði“ Síðasta fylleríið er minnisstætt, móðir hennar var í útlöndum og faðir hennar var líka í burtu og hún hafði enn á ný byrjað í neyslu eftir með- ferð. Hún og félagar hennar héldu partý á heimili hennar þar sem mikið gekk á og áður en yfir lauk var máva- stellið í maski og íbúðin nánast í rúst. „Krummi var á þessum tíma edrú en ég hafði sem oftar fallið. Hann kom heim og sá strax að ég var í vímu. Mér þótti mjög vænt um Krumma, en það er kannski dæmi um þann til- finningakulda sem maður brynjar sig með að þegar hann fann hass- mola í veskinu mínu og hélt honum á loft og spurði hvort fíkniefnin væru mikilvægari en hann, þá svaraði ég að þetta væri fáránleg spuming; auðvitað væri hassið mikilvægara. Svo sagði ég honum að fara og setja efnið á sinn stað. Þegar þetta partý hafði gengið í einhverja daga og allt var í rúst var mér farið að líða veru- lega illa og ég fór til Krumma og bað hann um að taka mig í burtu frá öllu þessu ógeði. Við fórum út að keyra, fórum aust- ur fyrir fjall, á Selfoss og Þingvöll og enduðum á Akureyri, þar gistum við á Hótel Norðurlandi. Þegar ég vakn- aði morguninn eftir átti ég eitthvað smávegis af hassi og einn bjór. Ég fór í sturtu og þar þyrmdi einhvern veginn yfir mig, ég var 46 kíló, vart annað en beinagrind, öll marin á handleggjunum eftir sprauturnar og mér fannst ég einhvem veginn öll svo skítug. Þarna í sturtunni upp- götvaði ég eiginlega í fyrsta sinn að ég hafði enga stjóm á mér og það myndi enginn bjarga mér út úr þessu nema ég sjálf. Ég hafði alltaf haldið að einhver myndi koma og bjarga mér út úr þessu, en þarna sá ég í fyrsta skipti að ég yrði að gera það sjálf. Mér fannst ég í rauninni hvorki geta haldið áfram né hætt, en þarna gafst ég upp,“ segir Hilda Jana sem síðan, frá því í júní árið 1995, hefur ekki neytt áfengis- eða vímuefna. Hálfum mánuði síðar fór hún í 10 daga meðferð á Vogi, en fékk ekki eftirmeðferð þar sem hún hafði þegar farið í eina slíka það ár. Hún segir að sér hafi verið ráðlagt að búa ekki með Krumma, fara ekki í skóla og flytja ekki heim til foreldra sinna, en hún ekki farið eftir því. Þvert á móti fluttu þau Krummi heim til foreldra hennar og Hilda Jana hóf nám í Armúlaskóla. „Þetta gekk allt upp þótt mönnum hafi ekki fundist þetta vera ráðlegt, svona fyrst eftir að maður kemur úr með- ferð og fer að takast á við lífið.“ Árið 1996 fluttust foreldrar Hildu Jönu norður til Akureyrar og hún fluttist einnig þangað um haustið þar sem hún stundaði nám við Verk- menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan um jólin 1997. Hún starfaði hjá Jafningjafræðsl- unni í tvö sumur fyrir norðan en nú stundar hún nám í Kennaradeild Há- skólans á Akureyri og hefur metnað til að nýta krafta sína í framtíðinni í að uppfræða unglingana. Dýrkeypt reynsla „Þegar ég fór að nota áfengi og síðar fíkniefni hugsaði ég alveg út í það að ég gæti orðið háð þessum efn- um, en ég ætlaði mér aldrei að verða það. Það stóð aldrei annað til en að hætta ef mér fyndist ég vera að fara inn á þá braut. Á þessum tíma áttaði ég mig engan veginn á því hvað ég þurfti að ganga í gegnum áður en ég vildi og gat hætt, né heldur hversu ofboðslega erfitt það var. Þetta er ekkert eins og að vakna einn góðan veðurdag og segja; nú er komið nóg, nú hætti ég. Ég vissi ekki þá að áður en ég myndi hætta þessu ætti ég eft- ir að aka drukkin, ljúga, stela, æla, pissa á mig, lemja fólk og vera nauðgað, særa fjölskyldu mína, missa vini og reyna aftur og aftur að fyrirfara mér, að missa trúna á allt, líka á lífinu. Markmið í forvamarstarfi þurfa að vera skýr svo þau skjli árangri, segir Hilda Jana, sem hér er Uti á leikvelli með dóttur sinni, Iirafnhildi Lám. Hún segist oft hafa verið spurð að því hvemig í ósköpunum hún hafi leiðst út á þessa braut, heimilisað- stæður í góðu lagi, hún stundaði íþróttir, gekk vel í skóla og féll þar ágætlega inn í hópinn. „Ég sé ekkert sérstakt sem hægt er að benda á, það var ekkert sérstakt sem varð þess valdandi að ég fór að sukka. Þetta gerðist bara.“ Hilda Jana segir að síðar þegar hún fór að vinna við forvarnarstörf hafi einmitt það sem var hallærislegt við fíkniefnaneyslu slegið í gegn. Unglingunum hafi til að mynda þótt það fyndið að helsta líkamlega einkenni karlmanns sem notað hefur ákveðin efni er að typpið á honum skreppur saman og verður sama sem ekkert. „Þetta var miklu áhrifameira heldur en frásagnir af því hversu margir sem byrja að nota fíkniefni fremji sjálfsmorð eða verði geðveik- ir,“ segir hún. Enginn vill taka ábyrgð Reynsla hennar af forvarnarstörf- um er sú að enginn vill taka ábyrgð, kennarar bendi á heimilin, heimilin á félagsskap unglinganna, unglingarn- ir bendi öllum á að láta sig í friði og stjórnmálamennimir bendi bara hver á annan. „Þetta skilar afskap- lega litlum árangri,“ segir hún og finnst að því miður sé það viðhorf enn ríkjandi meðal margra unglinga að það sé flott að neyta áfengis og fíkniefna. Því þurfi að breyta, en það sé erfitt því hvarvetna megi sjá þess stað að fullorðnir gefi frá sér tvöföld skilaboð. „Foreldrar benda börnum sínum á að byrja ekki að drekka, en neyta áfengis sjálf, kennarar sem fjalla um skaðsemi áfengis neyta þess engu síður, þjálfarar í íþróttum sömuleið- Hilda Jana með dóttur sinni, Hrafnhildi Láru Hrafnsdóttur, þriggja ára. Ég er fegin því að þessum kafla í lífi mínu er lokið, í bili að minnsta kosti, og nú á ég gott líf, yndislega dóttur og mann, heimili, vini, sam- visku, heiðarleika, bjartsýni og von. Það er mér mikils virði að hafa feng- ið fjölskyldu mína aftur, en hún hef- ur stutt mig í gegnum þykkt og þunnt. Ég fann lausn í AA-samtök- unum, líkt og milljónir karla og kvenna um víða veröld, ég er sko langt í frá einsdæmi og margir hafa margfalt verri sögu að segja en ég. Sá stuðningur sem ég fékk í AA hef- ur verið mér ómetanlegur, ég þarf þó enn þann dag í dag að sinna mér sem fíkli, þetta er ekkert búið, ég get aldrei vitað hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég get bara ákveðið að í dag ætla ég ekki að neyta vímuefna og reyna að vera eins góð manneskja og mér er fært. Meira get ég ekki, fortíðin er að baki og framtíðin ókomin, núið er það eina sem ég á, núið er gjöf í sjálfu sér enda kallast núið present á ensku. Því miður voru ekki allir eins heppnir og ég, nýlega frétti ég af tveimur neyslufélögum mínum sem selja sig í Kaupmannahöfn, sumir eru í fangelsi og enn aðrir völdu auð- veldu leiðina; dauðann. Ekkert okk- ar ætlaði að verða dópisti þegar við yrðum stór.“ Þótti verra að vera hall- ærislegur en dauður Hilda Jana segist ekki vilja horfa á sig sem fómarlamb aðstæðna, hún beri ábyrgð á sínu lífi, fortíð sinni líka. Hún hafi eins og aðrir fengið fræðslu um skaðsemi áfengis- og eit- urlyfja í skóla. Það hafi bara ekki skipt svo miklu máli, „mér fannst ég þá vera ódauðleg og sérstök og ekk- ert gæti komið fyrir mig, ekkert slæmt. Þegar ég var unglingur skipti þessi fræðsla okkur heldur ekki svo miklu máli, þvi það þótti í rauninni miklu verra að vera hallærislegur en dauður.“ is, líka löggumar og stjómmála- menn og fyrirmenn í þjóðfélaginu fá sér í glas og sjást iðulega með glas á loft í fjölmiðlum. Svo til allir drekka og hvers vegna hefði þá ég ekki átt að byrja á því líka, sem og unglingar yfírleitt?“ Margir hafa bent á hversu sorg- legt það er hve margt ungt fólk fer í meðferð, fólk undir tvítugu, en Hilda Jana segir að ólíkt því sem margir telja, að forvamarstarf skili engu, skili það þó þessu fólki fyrr inn í meðferð og sem betur fer sé mikið um að þetta unga fólk snúi af braut eiturlyfjaneyslunnar. „Ég held að það sé bara gott að fólk fer snemma í meðferð, það á framtíðina fyrir sér og vitanlega er betra að það takist á við hana allsgáð, fremur en að halda áfram í ruglinu," segir hún. Sorgleg staðreynd Áfengi og fíkniefni hafa leikið marga grátt, lagt einstaklinga og fjölskyldur í mst og skilið eftir sig djúp spor. „Ég held að nánast allir sem hafa notað áfengi hafi lent í ein- hverju sem þeir síðar kysu að hafa ekki reynt, hafa gert eitthvað eða sagt sem þeir sjá eftir. Þetta á við um fjöldann sem vanalega er ekki að misnota áfengi, en þeir sem lenda í því að misnota vín þurfa að glíma við margvísleg vandamál, kvíða, ótta, depurð, þunglyndi, sjálfsvíg. Það er sorgleg staðreynd að tæp 25% allra karla á Islandi fara einhvem tíma á lífsleiðinni í meðferð og tæp 10% kvenna. Stundum hugsar maður um hvort þetta sé allt þess virði, fyrir stundar- slökun og skemmtun," sagði Hilda Jana. Að hennar mati þarf að setja skýr markmið í forvömum og hvað virkar í þeim efnum. Nota ætti rannsóknir til að komast að því og þegar menn hafa komist að niðurstöðu þar um þurfi að skoða gaumgæfilega hvern- ig þessum markmiðum verður best náð. Og þá þurfi allir að vinna saman sem ein heild til að ná þessu mark- miði. „Auðvitað er þetta draumsýn, en við getum samt gert eitthvað, ef við gefumst upp breytist ekkert, mér finnst að við ættum að líta í eigin barm án þess þó að verða svo sjálf- selsk að við viljum eða þorum ekki að styðja náungann. Foreldrar geta staðið saman, mikið upplýsingaflæði milli þeirra sem taka þátt í uppeldi bama og unglinga getur skilað árangri. Það sem mér finnst þó skipta mestu máli er að unglingarnir sjálfir sýni hvað í þeim býr og þeir þurfi ekki að gera sömu mistökin, mistökin þarf ekki að endurtaka, við erum mörg sem höfum reynt þessa leið, hún er ekki þess virði. Að lokum vil ég minna á að uppreisn unglinga í baráttu sinni við að verða fullorðin er ekki ný af nálinni eins og glöggt má sjá á þessum orðum: Krakkar nú til dags eru harðstjórar. Þeir standa uppi í hárinu á foreldrum sínum, gleypa í sig matinn og eru dónaleg við kennara sína. Sókrates (425 f.kr).“ Rósa Ingólfsdóttir er yfir sig hrifin Rósa Ingólfsdóttir er mjög hrifin af Karin Herzog súrefniskremunum og segir að þau henti sér af- skaplega vel. „Þessi frábæru krem samræmast al- veg minum lífsstíl en ég leitast við að nálgast upp- runann sem mest. Ég er með blandaða húð en er heldur betur búin að finna lausn á því með Vita-A- Kombi 2 og 3. Þau vinna vel á þurrki í húð og líka bólum. Eins er mjög gott að bera það á húðina þegar maður er þreyttur, því það er endurnærandi. Ég nota kremin alltaf undir farða og þá helst hann vel á allan daginn. Með fullri virðingu fyrir öðrum merkjum þá er ég á þeirri skoðun að Karin Herzog vörurnar séu húðsnyrtivörur framtíðarinnar." Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland Rósa IngóHsdóttir kynnir vörurnar í Apótekinu Smáratorgi laugardaginn 6. maí kl. 13 til 17. ...ferskir vindar í umhirðu húðar l

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.