Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 21
Einn af hápunktum 1. maí í Tomsk var knattspyrnuleikur við landa að norðan. Útlendingnum var vel tekið og nærstaddir buðu honum reykta sfld, bjór og vodka.
Morgunblaðið/Þorkell
Á heimili í Tomsk. Hann rekur litla húsgagnaverksmiðju og er bjartsýnn á gott gengi; eigin-
konan er langt gengin með annað barn þeirra hjóna.
til fimm hundruð manns og langflestir komnir
á efri ár. Gangan fór af stað en nam fljótlega
staðar við volduga styttu af Lenín. Þar var
lagður blómsveigur og gömul kona, sem mér
sýndist vart göngufær, kraup niður og kyssti
stall styttunnar; margir fylgdu á eftir. Lokst
komst gangan aftur af stað. Gengin var um
átta km löng leið, að virðulegri byggingu við
stóran garð, en það mun hafa verið ráðhús
borgarinnar. Ræðumaður þrumaði yfir við-
stöddum með hnefa á lofti, við mikinn fögnuð
viðstaddra. Þótt ég hafi lítið skilið af því sem
sagt var þá fuku oft orð eins og „kammerat",
„kommunistus" og „kapitalist". Það var eins
og um trúarlega athöfn væri að ræða.
Eftir um það bil tvær klukkustundir leyst-
ist samkoman upp og fólkið dreifðist um garð-
inn; yngra fólk varð meira áberandi. Krakkar
hlupu um með blöðrur og skríktu í sólinni.
Dagurinn endaði síðan með knattspyrnukapp-
leik þar sem heimamenn öttu kappi við landa
sína frá lítilli borg nærri Murmansk. Áhorf-
endur voru vel stemmdir, drukku bjór og
Margar síberískar yngismeyjar dreymir um vodka, og kjömsuðu á reyktum fiski sem þykir
að verða frægar fyrirsætur í útlöndum. ómissandi við slík tækifæri.
Margir Rússar líta á Lenín sem föður landsins. Hér fellur fólk í 1. maí göngunni að fót-
stalli styttunnar, kyssir hann og skilur eftir blóm.