Morgunblaðið - 30.04.2000, Síða 38

Morgunblaðið - 30.04.2000, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ 38 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 T--------------------------------------------------------------------------------- Ávarp verkalýðsfélaganna í tilefni af baráttudegi verkalýðsins 1. maí , Afl í þína þágu Morgunblaðið/Ásdís EFTIRFARANDI er 1. maí- ávarp ársins 2000 frá Full- trúaráði verkalýðsfélag- anna í Reykjavík, BSRB, Bandalagi háskólamanna og Iðn- nemasambandi Islands: , „Islenskt launafólk stendur frammi fyrir þjóðfélagsbreytingum sem munu hafa mikil áhrif á vinnumarkað og launafólk á komandi árum. Fyrirtæki eru í flestum greinum að stækka og sameinast. A sama tíma tengist atvinnurekstur hér á landi í vaxandi mæli fjölþjóðlegum fyrir- tækjum. Markaðsvæðing og einka- væðing opinberra fyrirtækja hefur ýtt undir þessa þróun sem á sér sam- svörun víðast hvar um heiminn. Fjár- magn og völd safnast á fáar hendur og á nýjum forsendum. Fákeppni og einokun verða ríkjandi ef ekki er að gætt. Þjónusta við almenning víkur fyrir kröfu hluthafa um hámarks- gróða. -g Gagnvart þessum miklu breyting- um stendur verkalýðshreyfíngin með sígdd baráttumál sín um mannsæm- andi kjör, aukin réttindi, launajöfnuð, jafnrétti og bræðralag. Verkalýðshreyfíngin verður í vax- andi mæli að laga sig að þessum breyttu aðstæðum. Hún verður að styrkja enn frekar tengslin við fjöl- þjóðleg samtök launafólks, á Norður- löndum, innan Evrópu og um allan heim. Þetta er svar verkalýðshreyf- ingarinnar við hnattvæðingu fjár- magnsins. I umróti og uppstokkun efnahags- lífsins hefur víða tekist betur til en hér á landi að tryggja ýmis grunn- réttindi launafólks. Verkalýðshreyf- ingin verður að vera vakandi gagn- vart þjóðfélagsöflum sem eru að móta vinnumarkaðinn á forsendum mark- aðsafla. Það er ásetningur okkar og baráttumarkmið að beita okkur af al- efli til að rétta og bæta hlut launafólks í öllum greinum atvinnulífsins, til sjós og lands. Jafnframt er það hlutverk íslenskrar verkalýðshreyfingar að styrkja stöðu launafólks sem býr við lakari réttindi og kjör en við gerum hér á landi. Ekki á að þola að fyrir- tæki, hvort sem þau hafa innlent eða erlent heimilisfang, taki að sér verk- efni þar sem launafólki eru búin lak- ari kjör en íslenskir kjarasamningar kveða á um. Þessarar tilhneigingar hefur gætt við ýmsar stórfram- kvæmdir og á skipaflotanum. Endurskoðum baráttuaðferðir, leggjumst saman á áramar Verkalýðshreyfíngin hefur á liðn- um árum verið að endurskipuleggja sig og endurmeta baráttuaðferðir sín- ar. Hreyfingin verður í þessu efni enn að skerpa áherslur sínar. Stéttarfé- lögin verða áfram að vera lifandi bai- áttutæki þeirra þúsunda sem fylla raðir hennar, ella er hætt við að hún koðni niður í innri átökum og tilgan- gsleysi. Verkalýðshreyfingin þarf að efla umræðu um þá hugmyndafræði sem hún vill byggja á, hvaða skipulag henni henti best í átökum við atvinnu- rekendur og ríkisvald og hvaða starfshættir séu líklegir til að duga. Aldrei má gleymast að ekkert kemur í stað þrotlausrar vinnu og baráttu. Um áratugi hefur verkalýðshreyfing- in barist fyrir grundvallarréttindum launafólks. Þau réttindi voru ekki sjálfsögð og í dag eru þau ekki heldur sjálfgefin. Það þurfti harða baráttu til að ná fram réttindum til launa í veik- indum og slysum, uppsagnarrétti, or- lofsrétti, atvinnuleysistryggingum og hvfldarákvæðum. Reynslan kennir að stundum hefur það tekið áratugi áður en við njótum uppskerunnar af bar- áttu okkar. Þar má nefna lífeyrissjóð- ina sem í dag eru að verða fyrirmynd annarra ríkja um það hvemig eigi að byggja upp lífeyriskjör þjóða. Minn- umst þess að það á við um þessi rétt- indi sem önnur að þau urðu ekki tfl án baráttu. Til þess að árangur náist verðum við að leggjast saman á ár- amar. Baráttan skilar árangri Hinn fyrsta maí fyrir réttu ári gengu samtök launafólks til baráttu- funda þar sem sérstök áhersla var lögð á fjölskylduna. Arum saman hafði hreyfingin þá lagt áherslu á að bæta fæðingarorlofið og stuðla þann- ig að fjölskylduvænna samfélagi. Þessi barátta er nú að skila árangri með nýrri löggjöf um bætt fæðingar- orlof. Þetta er mikilvægt framfara- spor og færir okkur heim sanninn um að barátta skilar árangri. Af þessu þurfum við að draga réttan lærdóm og láta verða okkur hvatningu til dáða. Framundan er að bæta þessi réttindi enn meira, jafnframt því sem við hyggjum að öðrum þáttum. Þann- ig er með öllu óafsakanlegt að rflds- stjómin skuli ekki sjá sóma sinn í því að verða við kjarakröfum öryrkja og aldraðra. Þvert á móti er það látið við- gangast að bilið breikki á milli þeirra annars vegar og launafólks hins veg- ar. Verkalýðshreyfingin krefst þess að orðið verði við réttmætum kröfum samtaka öryrkja og eldri borgara um bættan hag. Framtíðarsýn Þegar litið er til framtíðar og þeirra verkefna sem bíða verkalýðshreyf- ingarinnar að takast á við er akurinn stór og víða lítt plægður. Við viljum stuðla að jöfnuði í samfélaginu, út- rýma atvinnuleysi, byggja upp hús- næðiskerfi sem þjónar öllum lands- lýð, bæta starfsmenntun og símenntun og stórbæta samfélags- þjónustuna á öllum sviðum. Góð og vönduð velferðarþjónusta er forsenda jafnaðar í þjóðfélaginu og heitir verkalýðshreyfingin því að standa vörð um hana og bæta. En til þess að slíkt megi takast þarf hreyfingin að byggja á samtakamætti. Hreyftngin verður að vera nægilega sterk, sam- stæð og skipulögð til að geta sinnt þessum verkefhum. Hún verður að laga starf sitt að breyttum tímum og nýjum kröfum. Hún verður að hafa afl tfl að móta áfram samfélagið og þróun þess. Á því byggir verkalýðshreyfing- in tilveru sína til framtíðar. Á því velta hagsmunir heimilanna í landinu. Til þess að verkalýðshreyfingin verði „afl í þína þágu“ þarft þú að leggja þitt af mörkum. “ F.h. verkalýðsfélaganna í Reykja- vík Guðmundur I. Guðmundsson Hildur Kjartansdóttir Guðrún Oladóttir Grétar Hannesson Georg Páll Skúlason f.h. BSRB Garðar Hilmarsson Þuríður Einarsdóttir f.h. Bandalags háskólamanna Björk Vilhelmsdóttir f.h. Iðnnemasambands Islands Þórunn Daðadóttir. Ávarp Alþjóðasamtaka frjálsra verkalýðsfélaga Breytum hugsjónum í veruleika UPPHAF nýs árþúsunds markar um leið upphaf nýs tímabils al- þjóðavæðingar í efnahagsmálum og framfara í vísindum og tækni. Áhyggjur hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyf- ingar af því hvernig þessari þróun er stýrt, hafa reynst á rökum reistar. Þrátt fyrir að óheft frelsi í viðskiptum geti skapað gífurleg- an auð verður sífellt augljósara að það veldur gka stóraukinni efnalegri mismunun, breikk- andi gjá milli rikra og fátækra auk þess sem það dregur úr möguleikum einstakra ríkja til að beita lýðræðislegum ákvarðanatökum. I dag þurfa þrír milljarðar manna, um helmingur jarðarbúa, að lifa af minna en 150 krónum á dag og einn milljarður á minna en 75 krónum. Yfir helmingur jarðarbúa er án nokkurra félagslegra réttinda eða velferðar. 250 milljónir barna vinna og enn fleiri njóta ekki þeirra grundvallarréttinda að hljóta menntun. Atvinnuleysi og of lítil atvinna er stærra vandamál en nokkru sinni fyrr og fómarlömbin eru einkum ungt fólk og konur. En það hafa ekki allir tapað á því hvernig staðið hefur verið að alþjóðavæðingunni. Það þarf að leggja saman tekjur þriggja milljarða af fátækustu íbúum jarðarinnar til að þær nái þíkjum 225 ríkustu einstaklinganna. Áf 100 ríkustu efnhagsheildunum er meirihlutinn, eða 51, ekki þjóðriki heldur fjölþjóðafyrir- tæki. Þetta er ekki okkar sýn á það hvernig vinn- an ætti að vera á 21. öldinni Við viljum þvert á móti byggja upp samfé- lag án fátæktar, mismununar og óréttlætis, samfélag sem er laust við ógnir styrjalda og kúgunar. Við viljum útrýma atvinnuleysi og tryggja fulla atvinnu. Við viljum heim þar sem öfgar ofgnóttar og eymdar eru horfnar, heim þar sem konur og karlar njóta jafnréttis til að vinna, njóta hæfi- íf ika sinna og deila þeim með samfélaginu. Við viljum mannsæmandi vinnu fyrir alla. Við viljum lýðræðislegan heim þar sem rík- isstjómir eru ábyrgar gagnvart fólkinu, allt frá næsta nágrenni þess og upp til fjölþjóð- legra stofnana. Virðing fyrir grundvallarrétt- indum launafólks styrkir lýðræðið sem skapar svo aftur fijálsara og jákvæðara umhverfi fyrir launafólk til að beita þessum réttindum súnum. Við viljum að settar séu reglur um sam- þjöppun valds og alþjóðafyrirtæki og að þær séu settar með lýðræðislegum hætti, af fullri virðingu fyrir mannréttindum og að þeim sé hægt að beita til að framfylgja því að mann- réttindi séu virt. Við viljum ná fram því fulla jafnrétti sem stéttarfélög hafa svo lengi barist fyrir - sam- félagi þar sem engum er mismunað á grund- velli húðlitar, trúarbragða, stjómmálaskoð- ana, kynferðis, kynhneigðar, fötlunar, heilsu eða aldui-s. Við viljum skapa leiðir til að lifa og vinna í öryggi, auka lífsgæði og vernda náttúruna í þágu komandi kynslóða. Við viljum að afkomendur okkar njóti ævi- langrar menntunar og þroska sem skapi þeim möguleika á að búa við meiri lífsgæði en við njótum nú. Hin alþjóðlega verkalýðshreyfing er afl sem getur gert þessar hugsjónir að veruleika. Við vitum hvers hreyfingin er megnuð þeg- ar við lítum til baka yfir fyrstu 50 árin af starfi Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfé- laga (ICFTU). Kynslóðirnar sem stofnuðu ICFTU og gerðu úr því það sterka al- heimssamband sem það er, höfðu hugsjónir ekki ólíkar okkar. Þær stóðu frammi fyrir verkefni sem virtist óvinnandi en samt breyttu þær gangi veraldarsögunnar. Fmm- kvöðlarnir myndu ekki aðeins vera ánægðir með heiminn í dag heldur gætu þeir verið stoltir af þeim framföram sem vinnandi fólk hefur knúið fram víða um heim í nafni sam- takamáttar frjálsra stéttarfélaga. Viðfangsefni morgundagsins era ólík þeim sem verkalýðshreyfingin glímdi við, jafnvel fyrir skömmu síðan. Við vitum að við verðum að endurskapa hreyfingu okkar til að ná markmiðunum. Við vitum að við verðum að breytast til að geta breytt heiminum. Við verðum að sannfæra allt vinnandi fólk um að með því að ganga í stéttarfélag geti það tekið þátt í að breyta lífi sínu og aðstæð- um til batnaðar og hjálpað félögum sínum í öðrum löndum að gera það sama. Við verðum að einbeita okkur að aðgerðum sem skila árangri, bæði til að uppfylla vænt- ingar félaga okkar og til að viðhalda sterkri og skilvirkri verkalýðshreyfingu. Við verðum að fá fram alþjóðlega viður- kenningu á rétti stéttarfélaga til að hafa áhrif á langtímaáætlanir og stefnumótun. Við verðum að virkja hreyfinguna sem tæki til að skapa valdajafnvægi á alþjóðavísu um leið og við látum finna fyrir návist okkar á vinnustöðum um heim allan. Og við verðum að leita eftir meiri einingu og samstöðu innan hinnar frjálsu og lýðræðis- legu, alþjóðlegu verkalýðshreyfingar. Við dagrenningu nýs árþúsunds þarf verka- lýðshreyfingin á yngri kynslóðunum að halda til að tryggja framtíð þeirra. Sú vinna hefst í dag því það er nú í dag sem ICFTU hefur formlega herferð sína við að virkja ungt fólk til liðs við verkalýðshreyfinguna undir kjör- orðinu Framtíðin hefst núna! Ungt fólk þarf á verkalýðshreyfingunni að halda því það er sá hópur sem verður harðast fyrir barðinu á neikvæðum hliðum al- þjóðavæðingarinnar. Það þarf á stéttarfélög- unum að halda til að láta rödd sína heyrast og til að leita sameiginlegra lausna á þeim vandamálum sem það stendur frammi fyrir í starfi og í samfélaginu öllu. Og verkalýðshreyfingin þarf að gefa ungi fólki aukið svigrúm til að láta skoðanir sínar í ljósi og gera því kleift að leggja orku sína, áhuga og hugmyndir í starf hreyfingarinnar. Þegar við fögnum 1. maí árið 2000 hafa verkalýðsleiðtogar frá öllum fimm heimsálf- unum, sem sóttu 17. heimsþing ICFTU í Durban í Suður-Afríku (3.-7. aprfl), heitið því að vinna saman að því að gera heiminn að betri stað fyrir launafólk og fjölskyldur þess. Heimsþingið ákvað að forgangsverkefni hreyfingarinnar ætti að vera baráttan fyrir viðurkenningu á þeim grandvallarréttindum launafólks sem Alþjóða vinnumálastofnunin (ILO) byggist á, baráttan gegn mismunun í hvaða mynd sem er, efling lýðræðis og aukinn efnahagslegur stöðugleiki með því að koma reglu á hinn alþjóðlega fjármagnsheim. Þetta era ekki ný verkefni fyrir stéttarfélög. Nýj- ungin felst í því að hreyfing okkar mun leitast við að koma upp alþjóðlegu félagslegu örygg- isneti og mun þannig teygja sig langt út fyrir hina hefðbundnu kjarasamningagerð. Markm- iðið er að virkja hundrað milljóna launafólks í einni baráttu til að stöðva þá flóðbylgju fá- tæktar sem sviptir milljarða manna tækifær- inu til mannsæmandi lífs. Nú sem fyrr gegna óháð, lýðræðisleg og frjáls stéttarfélög lykilhlutverki við að byggja upp félagslegt réttlæti og efnahagslegt lýð- ræði. Og það mun ekkert vald megna að stöðva okkur því styrkur okkar byggist á mannlegri samstöðu og gildum sem eru bæði sammann- leg og njóta alþjóðlegs stuðnings. Lengi lifi baráttudagur verkafólks. Lengi lifi alþjóðleg samstaða verkalýðs- hreyfingarinnar. Innan raða ICFTU era 216 sambönd stétt- arfélaga í 145 löndum með samanlagt uml25 milljónir félagsmanna um heim allan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.