Morgunblaðið - 14.05.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.05.2000, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÁTT í 20 stiga hiti var á Akureyri um miðjan dag í gær og nýttu bæjar- búar og aðkomufólk sér Sundlaug i Akureyrar. Að sögn Friðbjargar i Hallgrímsdóttur sundlaugarstarfs- manns hefur verið mikil aðsókn í laugina og öll aðstaða fullnýtt. Hún sagði að veðrið væri „eins og á Kúbu“ og svona góðviðriskafli hefði ekki komið í maímánuði síðan 1987 ef frá er skilinn stuttur kafli árið 1990. Vorverkin hafin VORVERKIN eru komin í fullan gang. I Fossvogi var verið að fjar- lægja garðúrgang við Eyrarland þegar ljósmyndari átti þar leið um. Atta grunaðir um ölvun við akstur SJÖ ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins vegna gruns um ölvun og sá áttundi var stöðvaður í gærmorgun. Eril- samt var í miðbænum að sögn lög- reglu en ekkert sérstakt bar þó til tíðinda. Lögreglan er farin að sinna vorverkum eins og eftirliti með reíð- hjólum og aðstoð við víðavangshlaup í borginni. Morgunblaðið/Kristinn Forsætisráð- herra í opinber- ar heimsóknir DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen eiginkona hans verða í opinberri heimsókn í Liechtenstein 15. maí og í Slóveníu 17.-18. maí. Dagana 25.-27. maí verða forsætisráðherrahjónin í opin- berri heimsókn í Lettlandi. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir miskabætur vegna sviptingar ökuleyfís HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt ríkissjóð til að greiða manni 100 þúsund kr. í skaðabætur vegna ökuleyfissviptingar, þar sem ákæruvaldið hafi vísvitandi haldið gögnum frá Hæstarétti sem hefði getað leitt til þess að ökuleyfissvipt- ingin hefði ekki verið staðfest af dómnum. Jafna megi þessu til ólög- mætrar meingerðar gegn persónu stefnanda. Málavextir eru þeir að maðurinn var stöðvaður af lögreglu síðla júlí- mánaðar árið 1998 og sviptur öku- leyfi til bráðabirgða eftir að hafa ver- ið látinn blása í öndunarsýnamæli, Intoxilyzer 5000-N. Maðurinn viður- kenndi að hafa drukkið einn lítinn bjór, en kvaðst ekki hafa fundið til áfengisáhrifa. Jafnframt kom fram að hann hafði verið að vinna við bfla- málun kvöldið áður. Bráðabirgðaökuleyfissviptingin var kærð til héraðsdóms, sem felldi Upplýsingum vísvitandi haldið frá Hæstaretti hana úr gildi, en Hæstiréttur stað- festi ákvörðunina með dómi 24. ágúst 1998 með þeirri breytingu að sviptingin var tímabundin í þrjá mánuði. Sýknaður í héraðsdómi í kjölfarið var ákæra gefin út á hendur manninum. Héraðsdómur sýknaði hann á grundvelli þess að hann hefði strax vefengt öndunar- sýnamælingar og að ekki hefði verið tekið blóðsýni úr honum, en talið var sannað að hann hefði farið fram á það. Málinu var áfrýjað til Hæsta- réttar en fallið frá áfiýjuninni með hliðsjón af dómi Hæstaréttar, sem gekk í millitíðinni um sama sakar- efni, en þai- var það niðurstaða Hæstaréttar að öndunarsýnamælir- inn uppfyllti ekki kröfur dómstóla um trausta öflun lögmæltra sönnun- argagna. Fram kemur í rökstuðningi stefn- anda að saksóknari hafi ekki gætt þeirrar hlutlægni sem honum sé skylt. Lögð hafi verið fram sérvalin gögn til að fá bráðabirgðaökuleyfis- sviptinguna staðfesta, en ekki kynnt skýrsla sem vefengdi áreiðanleika sýnatökuvélarinnar. Segir í dómnum að með hliðsjón af niðurstöðu Hæstaréttar í málinu þar sem áreiðanleiki mæliaðferðarinnar var vefengdur sé ekki útilokað að niðurstaðan hefði orðið önnur ef um- deilda skýrslan hefði verið lögð fyrir réttinn. Megi líta svo á, að ákæru- valdinu hafi borið að leggja fram skýrsluna með öðrum gögnum fyrir Hæstarétt. „Liggur ekki annað fyrir en skýrslunni hafi vísvitandi verið haldið frá öðrum gögnum málsins og má jafna því við ólögmæta meingerð gegn persónu stefnanda samkvæmt b-lið 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/ 1993,“ segir í niðurstöðu dómsins. Umræður á Alþingi um afnám skattfríðinda forseta Islands Forsætisráðherra hlynntur samþykkt frumvarpsins DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra lýsti sig hlynntan samþykkt frum- varps um afnám skattleysis forseta íslands og maka hans við umræðu á Alþingi í gærmorgun. Sagði Davíð að- spurður að sér hefði verið kimnugt um að áhugi væri á því meðal nokk- urra þingmanna Sjálfstæðisflokksins að leggja þetta frumvarp fram og sagðist telja eðilegt, úr því að frum- varpið kom fram, að afgreiða það sem lög. Davíð tók hins vegar fram að hann teldi engin rök standa tfl þess að afnám skattfríðinda forseta, og jöfn- un launa forsetans til jafns, hefði keðjuverkandi áhrif á laun ráðherra og annarra embættismanna rfldsins. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, mælti íyrir frumvarp- inu snemma í gærmorgun en Pétur er fyrsti flutningsmaður þess. Það gerir ráð fyrir að felld verði brott ákvæði í lögum þar sem kveðið er á um undan- þágur forseta Islands og maka hans frá greiðslu skatta og opinberra gjalda. Sagði Pétur að flutningsmenn - sem eru ásamt honum þeir Ami Steinar Jóhannsson, Vinstri-græn- um, Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls- lynda flokknum, og Olafur Öm Har- aldsson, Framsóknarflokki - teldu að nú væri rétti tíminn til að breyta þess- um lögum, þ.e. þegar kjörtímabih for- seta er að Ijúka. Skattfríðindin væm tímaskekkja sem gengju gegn al- mennum jafiiræðissjónarmiðum sem skattalög byggjast á. Mótmæltu vinnubrögðunum Þingmenn Samíylkingar gerðu miklar athugasemdir við það hvemig staðið væri að þessu máli. M.a. sagði Jóhanna Sigurðardóttir málsmeð- ferðina fyrir neðan virðingu Alþingis og fyrir neðan virðingu forsetaemb- ættisins. Menn hefðu í hyggju að gera þetta framvarp að lögum á örfáum klukkustundum, engan tíma ætti að taka til að kanna málið til hlítar. „Það era þessi vinnubrögð sem ég mót- mæli,“ sagði Jóhanna. Hún tók fram að hún teldi í sjálfu sér eðlilegt að skoða hvort rétt væri að afnema skattfríðindi forseta. Hún óttaðist hins vegar að þessi breyting gæti haft víðtækari áhrif en menn vildu vera láta. Spurði Jóhanna for- sætisráðherra hvort hann teldi enga hættu á að breytingin hefði keðju- verkandi áhrif á laun æðstu embætt- ismanna rfldsins. Lúðvík Bergvinsson, þingmaðm- Samfylkingar, gerði athugasemd við það að þessu máli ætti að lauma í gegn, svona eins og í skjóli nætur. Lýstu þingmenn Samfylkingar al- mennt þehri afstöðu að þeir væra ekki mótfallnir því að forseti Islands greiddi skatta eins og aðrir borgarar en að þeir skildu ekki hvers vegna ekki væri hægt að bíða með þessa breytingu um sinn. Kristinn H. Gunnarsson, þing- flokksformaður Framsóknarflokks- ins, tók undir að eðlilegra hefði verið að gefa þessu máli betri tíma og lýsti því fyrir sitt leyti yfir að hann hefði enn ekki heyrt viðhlítandi rök fyrir þeirri skoðun að afnám skattfrelsis forseta, og síðan hækkun launa hans svo ekki verði breytingar á kjöram forseta, myndi ekki hafa áhrif á laun æðstu embættismanna. Raunlaun verði sjáanleg Davíð Oddsson forsætisráðherra sagðist hlynntur samþykkt frum- varpsins fyrst það hefði komið fram. Sagði hann jafnframt að út af fyrir sig væri eðlilegt að gera þessar breyting- ar núna, þegar kjörtímabili forseta væri að ljúka, og vitnaði hann í ræðu sinni til þess að núverandi forseti - eins og reyndar aðrir frambjóðendur í síðustu forsetakosningum - hefði lýst því yfir að hann teldi rétt að afnema skattfrelsi forseta. Davíð svaraði ját- andi spurningu Sighvats Björgvins- sonar, þingmanns Samfylkingar, um það hvort hann hefði vitað af því að frumvarpið yrði lagt fram nú. Davíð sagði ákvæði um skattfrelsi forseta arf frá konungdæminu í Dan- mörku en fyrr á öldum hefðu menn talið slík embætti komin frá Guði og að konungar ættu ekki að greiða skatta. Þessi viðhorf ættu hins vegar ekki við í dag og sagði Davíð að allir nútímajafnaðarmenn hlytu að vera sammála um það. Davíð var ekki á þeirri skoðun að afnám skattfrelsis forsetans og hækk- un launa hans til jafns myndi leiða til hækkunar launa annarra embættis- manna. Markmið framvarpsins væri nefnilega ekki að hækka raunlaun forsetans heldur aðeins að gera þau sjáanleg. Hann sagði að eftir breyt- ingar sem kjaradómur hefði gert á launum embættismanna teldi hann sjálfur að laun forsætisráðherra og annarra ráðherra væra ekki of lág, heldur sanngjörn, og engin efnisleg ástæða væri til að hækka þau. Alþingi lýkur störfum ÞEGAR Morgunblaðið fór í prentun í gær var útlit fyrir að þinghaldi færi senn að ljúka. Var stefnt að því að slíta þessu 125. löggjafarþingi síðdegis, að sögn Halldórs Blöndal, forseta Alþingis. Nokkur mál biðu enn afgreiðslu en gert var ráð fyrir að ný heildarlög um mat á um- hverfisáhrifum yrðu samþykkt í atkvæðagreiðslu, einnig breytingai- á samkeppnislögum og stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ennfremur þótti líklegt að lög um afnám skattfrelsis forseta Islands yrðu samþykkt, sömu- leiðis lög um lífsýnasöfn, sjúkl- ingatryggingu og breytingar á lyfjalögum og almannatrygg- ingum. Loks var gert ráð fyrir að breytingar á fjarskiptalög- um yrðu samþykktar. Fyrr í gær hafði Alþingi samþykkt lög um starfsréttindi tannsmiða. Framvarp um lög- leiðingu ólympískra hnefaleika féll hins vegar við atkvæða- greiðslu eftir aðra umræðu. Þingið hafði lokið við að sam- þykkja þingsályktanir um full- gildingu samnings um allsherj- arbann við tilraunum með kjarnavopn en enn átti eftir að ljúka afgreiðslu þingsályktun- artillagna um vegaáætlun fyrir árin 2000-2004 og jarðganga- áætlun 2000-2004. Kunna að meta veður- blíðuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.