Morgunblaðið - 14.05.2000, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 19
LISTIR
Já, ráðherra
BÆKUR
Sagnfræði
HEILSA OG VELFERÐ
Þættir úr sögu heilbrigðis- og
tryggingumálaráðuneytisins 1970-
1995. Höfundur: Páll Sigurðsson
læknir. Útg. Mál og mynd 1998.
PÁLL Sigurðsson læknir og fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri er löngu
þjóðkunnur fjrir störf sín að heil-
brigðismálum íslendinga og má segja
að í hugum margra sé hann samoflnn
þeim. Helztu ákvarðanir sem teknar
hafa verið í heilbrigðismálum hér á
landi síðustu áratugi hafa mótazt af
honum. Sem ráðuneytisstjóri starfaði
hann með 10 ráðherrum. Hann lærði
læknisfræði við Háskóla íslands, fór
til Bretlands í framhaldsnám, hóf
störf á Landakoti 1956 en gerðist
tryggingayfirlæknir 1960. Hann varð
ráðuneytisstjóri 1970 þegar heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið
var stofnað. Páll varð sjötugur 9. nóv-
ember 1995 og lét þá af störfum eftir
35 ár sem embættismaður en hefur
notað tímann síðan til að líta yfir far-
inn veg og skrá þætti úr sögu ráðu-
neytisins frá árunum 1970-1995.
I bókinni kennir ýmissa grasa eins
og vænta má. Páll reynir að vera sem
ópersónulegastur í frásögn sinni, tal-
ar til dæmis alltaf um sjálfan sig í
þriðju persónu. Hann hefur haldið til
haga gríðarlegu magni af minnisblöð-
um, ræðum ráðherra, umsögnum um
þingályktunartillögur, upplýsingum
um ýmis ágreiningsefni, fundi, sjón-
varpsþætti og ráðstefnur og rekur
jafnvel í ítarlegu máli hverjir hafi tal-
að og hvað þeir hafi sagt. Hann rekur
nefndarstörf, skýrslur um margvís-
leg efni, hveijir hafi unnið að þeim og
hveijar lyktir mála hafi orðið. Einnig
má finna ýmsar tækifærisræður, vís-
ur, minningargrein (um Jón Ingi-
marsson), ritdóm (um bók dr. Bjama
Jónssonar írá 1990: A Landakoti) og
bréfaskipti (m.a. við Eddu Her-
mannsdóttur og Ingimar Sigurðsson)
og kveður þar við mun persónulegri
tón. Margt af þessu hefði án efa ella
horfið í glatkistuna.
Páll skiptir bók sinni í tólf kafla og
byggist kaflaskipting á starfstíma
hvers ráðherra. Þannig tekst Páli að
skapa eins konar annál um hvem og
einn heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra
á 25 ára ferli sínum í
ráðuneytinu. Ráðherr-
amir vora Eggert Þor-
steinsson, Magnús
Kjartansson, Matthías
Bjarnason ( tvisvar),
Magnús H. Magnússon,
Svavar Gestsson, Ragn-
hildur Helgadóttir,
Guðmundur Bjarnason,
Sighvatur Björgvinsson
(tvisvar), Guðmundur
Árni Stefánsson og
Ingibjörg Pálmadóttir
(sem lengst allra hefur
verið ráðherra heil-
brigðismála samfleytt
eða í 5 ár). Páll er rauður þráður
heilbrigðisráðuneytisins eins og
Humphrey sælla minninga í frægum,
brezkum sjónvarpsþætti sem hét Já,
ráðherra (Yes, Minister).
Að mati Páls lagði ráðuneytið meg-
ináherzlu á þrennt í hans tíð, en það
var uppbygging heilsugæzlu (ekki
sízt vegna þess að þegar ráðuneytið
var stofnað fengust læknar ekki tÚ að
vinna úti á landi), málefni aldraðra og
hátæknisjúkrahúsin. Páll telur að enn
vanti nokkuð upp á til að heilsugæzl-
an geti annazt verkefni sitt og gefur
glögga innsýn í ástæður þess. Þar er
enn verk að vinna og um það getum
viðverið sammála.
Eg rak mig á nokkra ónákvæmni á
einstaka stað. Þannig er ekki minnzt
á nefnd sem bar til gamans vinnuheit-
ið Golíat, vegna þess að Davíð Á.
Gunnarsson (núverandi ráðuneytis-
stjóri) var formaður hennar. Eg á
hana í handriti og er skrifað á titilsíðu
101. útgáfa (!!!) 19. júní 1985. Hún var
skipuð af Matthíasi Bjamasyni og var
verkefni hennar að kanna reynzlu og
kostnað af rekstri heilsugæzlustöðva
á Stór-Reykjavíkursvæðinu og sátu í
henni auk Davíðs Hilmai- Björgvins-
son, Jón Gauti Jónsson, Kristján
Guðmundsson, Lúðvík
Ólafsson og undirrituð
sem tók við af Eggerti
Jónssyni. Einnig er
ráðuneytisstjóri boðinn
í kvöldverð til sveitar-
stjóra nokkurs 1993 og
„bar Steingerður kona
hans fram fullt fat af
fuglakjöti, skarfi".
Steingerður en hins
vegar án föðumafns í
nafnaskrá. Hún er
skráð sem Steingerður
sveitarstjórafní og vil
ég því upplýsa að þarna
mun vera átt við
Steingerði Hilmars-
dóttur. Auðvitað er
fróðlegt fyrir þá sem lengi hafa starf-
að í heilbrigðisþjónustunni að
skyggnast bak við tjöld í ráðuneytinu
og sjá hvemig góðar hugmyndir hafa
fæðzt og orðið að veraleika eða góðar
hugmyndir verið kæfðar í fæðingu.
Skoða deilur fyrri áratuga í baksýnis-
speglinum og sjá að margar þeirra
eru endanlega úr sögunni en aðrar
enn óleystar. Þegar ráðuneytið var
stofnað var ég læknanemi og ég get
ekki sagt að sá atburður hafi vakið
mikla athygli okkar sem áttum eftir
að verða læknar framtíðarinnar. Ekki
sáum við fyrir hve mikil áhrif þetta
langverkefnamesta fagráðuneyti
myndi hafa á starfvettvang okkar og
heilbrigðisþjónustu við landsmenn.
Katrín Fjeldsted
Páll
Sigurðsson
. Arsfundur
Útflutningsráðs íslands
árið
verður haldinn föstudaginn 19. maí kl. 14:00-16:30 í Versölum, að Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
Dagskrá
Ávarp
Halldór Ásgrímsson, utanrikisráðherra
Skýrsla stjórnar
Páll Sigurjónsson, formaður
íslensk vörumerki á neytendamarkaði erlendis:
Vörumerki SÍF erlendis, Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri SÍF
Vörumerkið lcelandair, Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum
X18 um víða veröld, Óskar Axel Óskarsson, framkvæmdastjóri X18
Að loknum framsöguerindum verða veitingar í boði Útflutningsráðs íslands
1/insamlega tilkynnið þátttöku í síma 511 4000 eða með tölvupósti icetrade@icetrade.is
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS
Hallveigarstígur 1*101 Reykjavík • Slmi 511 4000 • Fax 511 4040 • icetrada@icetrade.is • www.icetrade.is
^skassar
Á allar gerðir bíla.
Verð frá aðeins kr.
19.900,-
Gsu
JÓNSSON ehf
112 Reykjavík, sími 587 6644
í dag, sunnudaginn 14. maí verða
Skógarmenn með kaffisölutil
styrktar starfinu í Vatnaskógi.
Kaffisalan verður í húsi KFUM &
KFUK við Holtaveg og hefstkl. 14:00.
Um kvöldið verður Skógarmanna-
samkoma á sama stað og hefst hún
kl. 20:00.
Vinir Vatnaskógar eru hvattir til að
fjölmenna.
Skógarmenn KFUM
Holtavegi 28,124 Reykjavík
Sími 588 8899
Nokkur pláss laus í eftirfarandi flokkum:
9. flokkur 8. til 16. ágúst Unglingaflokkur 14 til 17 ára, bæð kynin. 19.800 kr.
12. flokkur 1. til 3. sept. Feðjahelgi. 4.700 kr.
13. flokkur 8. til 10. sept. Feiþahelgi. 4.700 kr.
14. flokkur 15. til 17. sept Heilsudagar karla. 2.900 kr.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 34. útdráttur
3. flokki 1991 - 31. útdráttur
1. flokki 1992 - 30. útdráttur
2. flokki 1992 - 29. útdráttur
1. flokki 1993 - 25. útdráttur
3. flokki 1993 - 23. útdráttur
1. flokki 1994 - 22. útdráttur
1. flokki 1995 - 19. útdráttur
1. flokki 1996 - 16. útdráttur
2. flokki 1996 - 16. útdráttur
3. flokki 1996 - 16. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júlí 2000.
ÖU númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess
eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan
birt í DV mánudaginn 15. maí. Upplýsingar um útdregin
húsbréf Liggja frammi hjá íbúóalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
íbúðalánasjóður
I Borgartúni 21 I 108 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800