Morgunblaðið - 14.05.2000, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.05.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 21 LISTIR_________________ Útlitið er gott MYNDLIST I —flir -------- Morgunblaðið/Ámi Sæberg Claudio Rizzi og Ólína Gyða Ómarr sópransöngkona á æfíngu. Claudio Rizzi í Bústaðakirkju Ljósmynd/Halldór Bjöm Hluti af ljósmyndaverkum Kristins Más í Galleríi Oneoone við Laugaveg. CLAUDIO Rizzi heldur orgeltón- leika í Bústaðakirkju á þriðjudags- kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir Bach, Buxtehude, Brahms, Couperin, Bizet og Mozart. Gestur hans á tónleikunum verður Olína Gyða Omarr sópransöngkona. Claudio Rizzi er ítalskur tónlistar- maður sem kom til íslands árið 1997 til að vinna hjá íslensku óperunni. Hann útskrifaðist sem organisti árið 1989 og hefúr mikla þjálfun og reynslu í söng- og tónlistarkennslu. Ólína lauk 7. stigi við söngskólann í Reykjavík og stundar nú söngnám hjá Alinu Dubik. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr. Gallerí Oneottne, Laugavegi 48b LJÓSMYNDAPRENT KRISTINN MÁR INGVARSSON Til 22. maí. Opið á verslunartíma. UNDANFARIÐ hefur mátt merkja örlitla breytingu á afstöðu okkar íslendinga til ljósmyndarinnar með þeim afleiðingum að æ fleiri ung- ir listamenn taka upp þessa ágætu tækni, sannfærðir um að þar fari einn af mikilvægustu miðlum okkar tíma. Reyndar má slá því föstu að ljós- myndin hafi loksins tekið af skarið í atburðalýsingum og fáir láti sér til hugar koma að festa stóra heimsvið- burði á striga. Eftir að Jeff Wall sló í gegn með risastóra, baklýsta ljós- myndafleka hafa menn komist að því að Manet og Degas nútímans eru ekki málarar heldur ljósmyndarar. Ástæðan er einfóld. Ljósmyndin festir á augabragði líkamsbm-ði, fas, andlitsfall og tjáningu með nákvæmni sem málverkið leikur vart eftir nema með svo mikilli tímasóun að varla svarar kostnaði. Haldi menn að með þessu sé málverkið að glata gullnu tækifæri til að hafa áhrif má til gam- ans fullyrða að málarar hafi löngu fyrr verið hættir að skrá atburði á risafleti. Það þarf helst að fara aftur fyrir miðja 19. öldina til að finna mál- ara sem túlka sögulega atburði með einhverri sannfæringu. En hvað þá með Picasso og Guemica gæti ein- hver spurt. I fyrsta lagi er sú mynd ekki raun- sæ. Hún fangar ekki hina sorglegu loftárás öðruvísi en með táknrænum hætti. Frásögninni var fyrir löngu búið að farga úr málaralistinni. Eini glæpurinn sem hægt er að klína á ljósmyndlistina er að hún skuli hafa endurheimt það sem löngu var glatað. Eða væri ekki gaman að sjá hvem- ig málari færi að því að „ná“ myndefn- inu sem finna má í ljósmyndum Krist- ins Más Ingvarssonar? Myndir þess unga manns eru einfaldlega svo hend- ingarkenndar að varla væri hægt að varðveita í þeim safa augnabliksins ef málari ætti að standa í nokkrar klukkustundir eða dægur og þráast við að lýsa því sem þar er að finna. Reyndar færir Kristinn Már sér í nyt aðferð við upphengingu mynda sinna sem finna má hvarvetna í myndlist liðinna áratuga. Ljósmyndir hans em óreglulegar ljósmyndaraðir, en sem slíkar ríma þær afar vel sam- an. Yfirskrift sýningarinnar, „Looking Good“, fær hann af forsíðu tískublaðs. Kristinn Már lærði ljósmyndun í Kaupmannahöfn hjá Morten Bo og sýningin í Galleríi Oneoone er fyrsta einkasýning hans. Hann sýnir því merkilega sannfærandi tilþrif, sem hljóma trúlega vegna þess að lista- maðurinn er hluti af þeim heimi sem hann festir á filmu. Hitt er ekki eins sannfærandi að hann skuli sýna tölvu- prent í stað ekta ljósmynda. Smá- vægilegur feill, en þó nægilega stór til að taka rækilega til bæna. Halldór Björn Runólfsson ----------------- Sumarlegur djass á Sóloni SUMARLEGUR .djass verður á Múlanum, Sóloni íslandusi, í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 21. Fram koma Omar Einarsson gít- arleikari og félagar. Á efnisskránni eru léttir djass-standardar, nýir og gamlir, bossa nova og swing í bland. Hljómsveitina skipa Ómar Einars- son gítarleikari, Kjartan Valdimars- son píanóleikari, Jóhann Ásmunds- son bassaleikari og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari. M-2000 Sunnudagur 14. maf. Islenska óperan. Kl. 20.30. Sólrún Bragadóttir og Einar Steen-Nökleberg. Þetta er fyrsti þáttur í í tónleikaröðinni Nord- vest Musik sem er á dagskrá Menningarborgar og nær einnig til Færeyja og Grænlands. Mánudagur 15. maí. Hveragerði - blómstrandi bær Þungmiðja dagskrárinnar er Hverasvæðið þar sem gestum og gangandi er boðið í vettvangs- ferðir, að bragða á framleiðslunni og sagt frá líf- og jarðfræði svæðsins. Blómstrandi bær er eitt af samvinnuverkefnum Menningarborgar og sveitarfé- laga. SumarPLÚS Vika í Portúgal 23 maí. Flugsæti á mamm Dammörk Billumd Gautaborg Alícamtc 19.450 24.900. 25.400. flugvallarskattar 3.540 kr. ekki innifaldir flugvaliarskattar 2.740 kr. ekki innifaldir flugvallarskattar 2.650 kr. ekki innifaldir allar nánari upplýsingar fást hjá sölu- og umboðsmönnum Má VISA þér á laegsta vcrðið? 550 miðað við 2 í stúdíói á Sol Doiro. Innifalið: Flug, gisting i 1 viku og flugvallaskattar. Dammörk Portúgal 27. júní Krít 10. júlí 22.395 43.005 40.645 kr ánann Innifalið: Flug, bílaleigubíll í A flokki í 1 viku og allir fiugvallarskattar. M.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman. Ef2fullorðnirferðast saman er verðið 26.740 kr* 6.000 afsláttur á mann 17. júní, 24. júní og 5. júlí. Þú getur bókað á retiru Innifalið er flug, gisting á Sol Doiro í 2 vikur, flugvallaskattar og 10.000 kr. afsláttur fyrir Visa-korthafa. M. v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman. Ef 2 fullorðnir ferðast saman er verðið 56.550 kr.* 10.000 kr. afsláttur á mann í brottför 27. júní. á mann Innifalið: Flug, gisting í 2 vikur á Dolphin, flugvallarskattar og 10.000 kr. afsláttur fyrir Visa-korthafa. M.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman. Ef 2 fullorðnir ferðast saman er verðið 54.990 kr* 10.000 kr. afsláttur á mann í brottför 10. júlí 1 Miðað er við að ferðin sé að fullu greidd með VISA. Umboðsmemm Plúsferða um allt lamd V/SA Akranes• S: 431 4884 Blðnduós• S: 452 4168 Borgames* S: 437 1040 Dalvík'S. 466 1405 Isafjörður • S: 456 5111 Sauðárkrókur • S: 453 6262/896 8477 Akureyri• S: 462 5000 HöfwS: 4781000 Egilsstaðir • S: 471 2000 Se/foss* S: 4821666 Vestmannaeyjar • S: 481 1450 Keflavík-S: 421 1353 Griudavik’ S: 426 8060 Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 535 2100 • Fax 535 2110 »Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.