Morgunblaðið - 14.05.2000, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.05.2000, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ 49,7% Hafa aðgang að Netinu heima Með aðgang að Netinu? Greint eftir kyni á heimili í vinnu í skóla Nei Karlar 52,1% 41,5% 15,5% 30,5% Konur 47,2% 37,1% 22,1% 31,7% Greint eftir fjölskyldutekjum, 300 þús. kr. eða meira 65,5% 55,8% 22,5% 14,3% 200 - 299 þús. kr. 54,3% 43,6% 18,1% 23,4% 100- 199 þús. kr. 36,2% 26,1% 16,1% 28,2% Undir 100 þús. kr. 26,1% 15,9% 8,7% 62,3% Greint eftir búsetu á heimili í vinnu í skóla Nei Höfuðborgarsvæðið 53,5% 42,9% 18,6% 26,4% Landsbyggðin 44,5% 34,5% 18,9% 37,5% Greint eftir aldri 55 - 75 ára 22,2% 16,3% 2,0% 67,3% 45 - 54 ára 47,1% 27,5% 3,6% 34,1% 35-44 ára 56,5% 56,5% 6,1% 24,5% 25-34 ára 61,7% 52,7% 15,6% 18,6% 16-24 ára 57,7% 26,0% 54,6% 16,3% Meðalnotkun á Netinu klst. á viku 2------------------------------------ 1------------------------------------ feb.‘98 sept.'98 mars‘98 nóv.'98 Reuters SVEITARFELOGIN Skýrt og skorinort LOGIN Frumvarp um rafrœna undir- skrift vœntanlegt Gert er ráð fyrir að miðstöð upp- lýsingatækni verði í Bókasafni Hafnarfjarðar þegar það flytur að Strandgötu 1. Safnið verður þá í miðbænum, steinsnar frá þeim stað á norðurbakka hafnarinnar þar sem hugsanlegt er að Listaháskóli ís- lands verði staðsettur. í miðstöð upplýsingatækni er ráðgert að almenningur hafi greið- an aðgang að upplýsingatækninni í bókstaflegri merkingu, bæði vélum og hugbúnaði auk góðrar aðstöðu til skrafs og ráðagerða. I framtíðarsýn Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir að þar geti verið gerj- unarsvæði fyrir frjósama frum- kvöðla sem vinni að hugmyndum á byrjunarstigi. Þannig geti almenn- ingur fengið aðgang að helstu tækni og tækninýjungum og fylgst með þróun á sviði upplýsingatækni. Hugmyndin er sú að tölvur verði víðs vegar um safnið en á einum til tveimur stöðum verði tölvuklasar eða ver. Annars vegar fyrir fólk að tylla sér niður í einhvers konar al- menningi nálægt aðalinngangi, jafn- vel með kaffíbolla, flakka um Netið eða vinna að verkefnum. Hins vegar gæti verið tölvuver annars staðar í húsinu þar sem er meira næði til viðameiri verkefnavinnu. Draga verður mörk þess sem má og má ekki Nú er unnið að hönnun safnsins og ekki hægt að segja fyrir um ná- kvæmlega hvernig málum verður háttað að þessu leyti, eftir því sem Jóhann Guðni Reynisson, forstöðu- maður upplýsinga- og kynningar- mála í Hafnarfirði, tjáði Morgun- blaðinu. Jóhann nefndi að meðal fjöl- margra atriða sem geti verið að finna á uta.is, eða hvaða nafni sem allsherjarvefur fyrir Hafnarfjörð mun nefnast, megi nefna landupp- lýsingar af ýmsu tagi - sem nefna megi bæjarvefsjá. Þannig geti áhugasamir skoðað margvíslegar upplýsingar um ein- stök hverfi og götur, íbúasamsetn- ingu og fleiri lýðfræðilegar upplýs- ingar. Hann segir að í þessum efnum séu menn þó enn á hugmyndastigi, enda verði að draga mörk þess sem má og má ekki varðandi upplýsing- ar úr þjóðskrá ög verði það gert í samráði við tölvunefnd. Jóhann segir að í þessum efnum séu Hafnfirðingar í viðræðum við embætti borgarverkfræðings í Reykjavík um samstarf, en þar á bæ hafi mikið verið unnið á þessu sviði. Hann nefnir einnig að unnið sé að því að lagnakerfi Vatnsveitu og Raf- veitu Hafnarfjarðar verði til á tölvu- tæku formi í sama tilgangi, en ýms- ir kortagrunnar séu nú þegar til. • Akranes: Metnaðarfullur og góður vefur með fréttum, pistlum og handhæg- um upplýsingum. Tengimöguleikar mættu vera meiri. www.akranes.is • Akureyri: Mjög gegnsær og handhægur vef- ur sem býður upp á fréttir, upplýs- ingar og líflegar umræður. Með þeim betri hérá landi. www.akureyri.is • Árborg: Meðalgóður vefur þótt ritara fund- argerða virðist um síðustu áramót hafa þrotið örendi. Helstu upplýs- ingar á sínum stað og útlit ágætt. www.selfoss.is • Borgarbyggð: Einn besti vefur íslensks bæjarfé- lags, vel uppsettur meó fjölbreytt- um tengimöguleikum og ríkur aö innihaldi. Til fyrirmyndar, www.borgarbyggd.is • Garðabær: Nokkuð góöur vefur, prýðilega uppfærður og fær plús fýrir nýjar fréttir. Mætti hins vegar vera gegn- særri. www.gardabaer.is • Grindavík: Prýðilegur vefur að mörgu leyti, nokkuð gegnsær og reynir að miðla fréttum úr bæjarlífinu. Umræðu- vettvangur setur skemmtilegan svip ávefinn. www.grindavik.is • Hafnarfjörður: Besti bæjarvefurinn hér á landi, prýðilega gegnsær og greinilegt að Hafnfiröingar hafa mótað sér skýra stefnu í upplýsingamálum. Útlit ein- falt og gott og fjölmargir góðir tengi- möguleikar. www.hafnarQordur.is • Hveragerði: Vefurinn til fyrirmyndar, vel hann- aður og innihaldsrikur. Fréttir, fund- argerðir og aörar upplýsingar allt á sínum stað. www.hveragerdi.is • ísafjarðarbær: Ágætur vefur, helst mætti setja út á fábreytt og litlaust útlit hans. Helstu upplýsingar fyrirliggjandi, en vantar þó eiginlega forsíðu og fréttir. www.isaQoidur.is • Kópavogur: Prýðilega gegnsær, en líður fyrir slælegan yfirlestur ritaös máls. Sums staðar em grunnupplýsingar orðnar úreltar, en í heild er vefurinn yfirmeðallagi. www.kopavogur.is • Mosfellsbær: Mosfellingar hafa nýlega tekið sig á, en vefur bæjarins var mjög slak- ur.,Nokkra furöu vekur að ekki skuli hafa verið gengið lengra, en breyt- ingin er allténd til batnaöar. Skortir víða netföng bæjarstarfsmanna og stofnana. www.mosfellsbaer.is • ÓlafsQörður: Ýmsar upplýsingar, þar á meóal fróðleikur um sögu bæjarins, en minna fer fyrir handhægum tenglum fyrir bæjarbúa. Virðist enn á vinnslu- stigi. www.olafsQordur.is • Reykjanesbær: Gegnsær og skipulegur vefur sem er býsna mikill að umfangi. Fréttir, umræður og allar upplýsing- ar á einum stað auk fundargerða og nauösynlegra netfanga. www.mb.is • Reykjavíkurborg: Stór og umfangsmikill vefur, sem fremur hefur verið líkt viö kóngulóar- vef en upplýsingavef. Einstakar stofnanir standa sig vel í miölun upplýsinga, en umfangsmiklar breytingar til batnaðar munu fyrir- hugaðar á hausti komanda. www.reykjavik.is • Seltjarnarnes: Býður upp á afar skemmtilega undirsíðu bóksafns bæjarins og stendur sig þokkalega, t.d. hvað varðar fundargerðir. Hins vegar vantar netföng margra starfs- manna, sem er afleitt á vef sem þessum. www.seltjamames.is • SigluQörður: Mjög góður vefur, raunar einn sá besti hér á landi. Greinilega talsvert lagt upp úr nýjum upplýsingum og einföldu aðgengi. Til fýrirmyndar. www.siglo.is • SkagaQörður: Einfaldur vefur sem gerir sitt gagn, en mætti vera markvissari. Fréttirúrbæjarlífinu skortir. www.skagaQordur.is • Vestmannaeyjar: Ágætur upplýsingavefur og skemmtilega hannaður. Til fyrir- myndar að birta lista yfir netföng helstu fyrirtækja og stofnana bæjar- félagsins. Vantar þó fréttir úr bæjar- lífinu. www.vestmannaeyjar.is • HornaQörður: Hornfirðingar voru í mörgu braut- ryðjendur í að taka Netið f þjónustu sína, en hin síðari ár hafa þeir að nokkru leyti misst dampinn og bjóða t.d. upp á nokkurra mánaða gamlar fréttir. Hins vegar hæfir brautryðjendum á Höfn að betri tím- ar eru í vændum og þeir hyggjast að nýju skipa sér í fremstu röð í upp- lýsingatækninni. www.hornaQordur.is SAMFARA upplýsingabylt- ingunni hefur athyglin beinst að ýmsum lögfræði- legum álitaefnum sem varða Netið og vefi þess. Þar kemur margt til, m.a. hvernig sannreyna megi sendanda og viðtak- anda gagna sem send eru um Netið og einnig hvort rafræn gögn njóti sömu stöðu í lagalegu tiiliti, eða hvort setja þurfi um þau sérstakar reglur. Eitt af þeim álitaefnum sem upp hafa komið samfara aukinni notkun Netsins í upplýsingatækni, er sú spuming hvort rafræn miðlun upp- lýsinga sé fullnægjandi birting þeirra. Kristján Andri Stefánsson, deild- arstjóri í forsætisráðuneytinu, hefur m.a. fjallað um þetta í erindi. „Öll miðlun upplýsinga á Netinu telst enn sem komið er til nokkurs konar aukaþjónustu af hálfu hins op- inbera og engin sett ákvæði gera ráð fyrir að miðlun upplýsinga með raf- rænum hætti teljist nægileg birting eða fullnaðarbirting. Á hinn bóginn er hagræði af rafrænni miðlun upp- lýsinga sem þessara augljós og ekki vafi á því að með tímanum ætti raf- SAMFARA aukinni miðlun hvers kyns upplýsinga á Netinu vakna spumingar um öryggismálin. Hversu ömggar era upplýsingar þær sem fara um upplýsingahrað- brautina? Nokkuð ör þróun hefur orðið í þess- um efnum á síðustu árum, nú era til fyrirbæri eins og dulkóðun upplýsinga og eldveggir kringum móðurtölvur. Enn er þó staðan sú að skv. könn- unum er nokkuð í að almenningur treysti Netinu fullkomlega fyrir verð- mætum upplýsingum, t.d. númeram á greiðslukortum, þótt fáir geri athuga- semd við það þegar t.d. þjónustufólk á veitingastöðum hverfur frá með greiðslukort í lengri eða skemmri tíma. Frekari kröfur um öryggi og vemd Ljóst er að um leið og stjómsýslan verður rafræn í auknum mæli verður að gera frekari kröfur um öryggi og vemd þeirra upplýsinga sem um Net- ið fara. Með dulkóðun er upplýsingum komið þannig fyrir að þær era ein- göngu skiljanlegar þeim sem hefur undir höndum viðeigandi dulmálslyk- il. Því er grandvöllur rafrænnar und- irskriftar að persónuleg staðfesting sé send með þeim hætti að viðtakandinn geti verið viss um að hún sé frá til- teknum aðila. Jafnframt verður að ræn birting þeirra að geta komið í stað miðlunar með öðram hætti.“ Kristján sagði að stefnan lægi skýr fyrir að því er varðaði rafræna stjómsýslu og gagnvirk samskipti stjórnvalda og almennings, stjóm- völdum beri að færa sér í nyt alla þá kosti sem upplýsingatæknin veitti og leitast bæri við að ryðja á brott þeim lagalegu hindranum sem kynnu að standa þar í vegi. „Ég hef því út af fyrir sig ekki sér- staka ástæðu til að ætla að rafræn stjórnsýsla verði sliguð af formkröf- um í íslenskri löggjöf." sagði Kristján Andri. Annað álitamál, sem segja má að hafi staðið gagnvirkri stjómsýslu fyrir þrifum, er að rafræn undirskrift nýtur ekki sem stendur sömu stöðu í lögfræðilegu tilliti og hefðbundin undirskrift. Því er rafræn stjómsýsla enn sem komið er bundin þeim annmörkum að nálgast má eyðublöð á Netinu, prenta þau og fylla út, en síðan verð- ur að grípa til gamalkunns ráðs og sleikja Mmerki - senda eyðublöðin í pósti. Vissulega er að því aukið hagræði vera tryggt að sá hinn sami geti ekki sent upplýsingamar áfram til þriðja aðila og látið í það skína að þær séu frá upphaflegum sendanda. Þetta ger- ist með dulkóðun upplýsinga, í þessu tilviki undirskriftarinnar. Fram hefur komið að rafrænar undirskriftir muni skipta miklu varð- andi frekari framþróun upplýsinga- byltingarinnar. I riti sem kom út í fyrra og fjallaði um rafræn viðskipti og íslensk lög í því sambandi var vikið að þessu. Höfundamir, Gunnar Thor- oddsen og Skúli Magnússon, sögðust ekki ætla að halda því fram að rafræn- ar undirskriftir leystu allan þann vanda sem fylgdu vafa á öryggi send- inga og hættu á misnotkun upplýs- inga. Friðhelgi einkalífsins og persónuvemd Þeir Gunnar og Skúli ræða líka frið- helgi einkalífs og persónuvemd í rit- inu og benda á að þau væra meðal þeirra mála sem hæst bæru þegar þróun nettækni væri til umræðu. Segja þeir Ijóst að nákvæmar skrár yfir hreyfingar manna á Netinu, tölvupóst og önnur samskipti með hjálp tölvunets kunni að geyma við- kvæmar persónuupplýsingar um hagi manna, fjárhag, skoðanir og hugðar- efni. Benda þeir á tvenns konar réttar- vemd í þessum efnum, annars vegar rétt til þess að óviðkomandi geti ekki ORYGGI Sporin geta verið skeinuhœtt • ■; f- P ■ i-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.