Morgunblaðið - 14.05.2000, Page 28
28 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smári Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, starfar hjá alþjóðadeild
Ríkislögreglustjóra. Hann starfaði hjá Interpol á árunum 1988-1992.
In,terpol
á Islandi
Alþjóðasakamálalögreglan Interpol er ein
þeirra alþjóðastofnana sem berjast gegn
glæpum. Guðni Einarsson kynnti sér Inter-
pol, sem heldur 29. Evrópuþing sitt í
Reykjavík dagana 17.-19. maí nk. Vænst er
háttsettra lögregluforingja frá 45 þjóðum,
auk fulltrúa ýmissa stofnana og samtaka.
ISLAND gerðist formlegur
aðili að alþjóðasakamála-
lögreglunni Interpol árið
1971. Aðildarþjóðir Interpol
eru nú 178 talsins og umfang
starfseminnar færist sífellt í vöxt.
Höfuðstöðvar Interpol eru í Lyon í
Frakklandi og þai- starfa á fjórða
hundrað manns af mörgum þjóðern-
um.
Interpol er alþjóðastofnun og
þurfa stjórnvöld í hverju landi að
sækja um inngöngu íyrir hönd síns
lands. Interpol er ekki alþjóðalög-
regla í eiginlegri merkingu orðsins,
heldur fyrst og fremst þjónustust-
ofnun og samstarfsvettvangur aðild-
arlandanna á sviði lögreglumála. Int-
erpol hefur því ekki neina lögsögu
innan aðildarlandanna hvers um sig.
A hverju ári er haldið allsherjar-
þing Interpol þar sem aðildarþjóð-
irnar hafa jafnan atkvæðisrétt. Einn-
ig eru haldin svæðisþing, líkt og
Evrópuþingið sem hér verður haldið
á næstunni. Viðfangsefni svæðis-
þinga snúa fyrst og fremst að því sem
er að gerast á viðkomandi svæði,
sameiginlegum viðfangsefnum og
eftir atvikum tillögugerð til allsherj-
arþingsins.
Háttsettir lögregluforingjar
Evrópuþingið, hið 29. í röðinni,
verður haldið á Grand Hóteli í
Reykjavik 17.-19. maí nk. Er þetta í
fyrsta sinn sem Interpol heldur svo
viðamikinn fund hér á landi.
Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra
hefur annast skipulagningu þingsins
í samvinnu við höfuðstöðvar Interpol
í Lyon í Frakklandi. Þingið í Reykja-
vík sitja æðstu yfirmenn lögreglunn-
ar í 45 Evrópulöndum, auk fjölda
áheyrnarfulltrúa frá stofnunum sem
tengjast löggæslu með einum eða
öðrum hætti. Nefna má Evrópulögr-
egluna Europol, Evrópusambandið,
Evrópuráðið, Alþjóða stríðsglæpa-
dómstólinn í Haag, vegna fyrrver-
andi Júgóslavíu og Oryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu. Alls verða
þingfulltrúar um 130 talsins og
næsta víst að aldrei fyrr hafi svo
margir háttsettir lögregluforingjar
gist Island.
Alþjóðleg glæpastarfsemi hefur
mjög færst í vöxt undanfarinn aldar-
fjórðung. Glæpahringir reyna að
hylja spor sín með því að hafa starf-
semi sína í mörgum löndum samtím-
is. Milliríkjasamskipti geta reynst
þrándur í götu þess að hulunni sé
svipt af slíkri skipulagðri glæpastarf-
semi. Helsta hlutverk Interpol er að
greiða fyrir samskiptum og miðlun
upplýsinga á milli lögregluliða hinna
ýmsu aðildarlanda. A hveiju ári
streyma um tvær milljónir skilaboða
og upplýsingaskeyta um alþjóðlegt
samskiptanet Interpol.
fslendingur hjá Interpol
Smári Sigurðsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn, stýrir alþjóðadeild
Ríkislögreglustjóra. Hann þekkir vel
til Interpol og mun vera eini Islend-
ingurinn sem þar hefur starfað.
Smári vann hjá Interpol á árunum
1988-92 og var í deiid sem fæst við
rannsóknir á fölsunum af ýmsu tagi,
til dæmis fölsuðum vegabréfum, pen-
ingaseðlum og greiðslukortum. ís-
lendingar hafa ekki fast stöðugildi
hjá Interpol, líkt og aðrar Norður-
landaþjóðir.
Smári segir að Interpol-samstarf-
ið hafi komið Islendingum til góða:
„Samskipti lögreglunnar hér við lög-
regluyfirvöld í öðrum löndum, að
undanskildum Norðurlöndum, hafa
fyrst og fremst verið um samskiptan-
et Interpol undanfarin ár. Samstarf-
ið við Norðurlandaþjóðimar er mjög
náið og auðvelt. Ég hef stundum sagt
að það sé til fyrirmyndar um lög-
reglusamstarf milli landa.“
Viðamikið samskiptanet
Aðildarríki Interpol eru öll tengd
lokuðu samskiptaneti, líkt og starfs-
menn fýrirtækis hafa aðgang að sam-
eiginlegu tölvupóstkerfi. Smári telur
að þetta samskiptanet Interpol sé
kjaminn í starfsemi stofnunarinnar
og segir að það sé ákaflega fullkomið
og áreiðanlegt. Netið er jafnt notað
til almennrar upplýsingamiðlunar til
allra aðildarlanda og til samskipta á
milli einstakra landa eða landahópa.
,JÁð mínu mati er þetta net það
besta sem völ er á í dag í lögreglu-
Höfuðstöðvar Interpol eru í Lyon í Frakklandi.
Saga Interpol
1914 - Fyrsta alþjóðaþing
sakamálalögreglu, sem haldið
var í Mónakó, ræddi möguleika
á því að stofna alþjóðlega saka-
skrá og auka alþjóðasamstarf í
baráttunni gegn afbrotum.
Fyrri heimsstyrjöldin kom í
veg fyrir þau áform.
1923 - Annað alþjóðaþing
sakamálalögreglu haldið í Vín í
Austurríki. Stjórn alþjóða saka-
málalögreglunnar (Internation-
al Criminal Police Commisson -
ICPC) skipuð. Höfuðstöðvar í
Vín. Starfaði sleitulaust til síð-
ari heimsstyrjaldar.
1946 - Þing haldið í Brussel,
Belgíu, til að endurvekja ICPC-
samstarfið. Nýr stofnsáttmáli
gerður og höfuðstöðvar fluttar
til Parísar. Interpol valið sem
simnefni stofnunarinnar.
1956 - ICPC verður Alþjóða
sakamálalögreglan (Interna-
tional Criminal Police Organ-
ization), skammstafað ICPO-
Interpol.
1989 - Nýjar höfuðstöðvar
teknar f notkun í Lyon í Frakk-
landi.
1998 - 75 ára alþjóðlegu lög-
reglusamstarfi fagnað.
samskiptum á milli landa,“ sagði
Smári. Þótt netið sé á vegum Inter-
pol er aðildarþjóðum í sjálfsvald sett
hvort þær óska afskipta Interpol af
málum sem send eru um samskipta-
netið eða hvort um þau er einungis
fjallað af lögreglu viðkomandi landa.
Landsskrifstofur Interpol
í hverju aðildarlandi er landsskrif-
stofa Interpol sem rekin er af lög-
regluyfirvöldum landsins. Lands-
skrifstofur Interpol eru mikilvægir
tengiliðir sem lögregluyfirvöld í að-
ildarlöndum geta leitað til vanti þau
upplýsingar t.d. um einstaklinga,
símanúmer eða framsalsmál. Smári
segir að þetta fyrirkomulag hafi
reynst vel. Stundum sé Interpol
gagnrýnt fyrir seinagang í afgreiðslu
mála, en sú gagnrýni sé á misskiln-
ingi byggð. „Samskiptin á milli landa
fara um fjarskiptanetið og skilaboðin
fara á leiðarenda á nokkrum mínút-
um. Þar með hefur Interpol skilað
sínu hlutverki. Það er hins vegar lög-
reglan á hinum endanum sem er sein
ef málið tefst, en ekki Interpol.“
Interpol rekur viðamikinn upplýs-
ingabanka í Lyon þar sem safnað er
upplýsingum jafnt um eftirlýsta af;
brotamenn og fólk sem saknað er. I
bankanum er hægt að nálgast upp-
lýsingar með mynd og jafnvel fingra-
för þessara einstaklinga. Landsskrif-
stofur Interpol eru beintengdar við
upplýsingabankann og geta leitað
þar upplýsinga um einstaklinga, stol-
in ökutæki, vegabréf og margt fleira.
Miðlun upplýsinga
Aðildarlönd geta óskað eftir því að
lýst sé eftir fólki, týndu eða eftir-
lýstu, stolnum munum eða öðru slíku
í upplýsingakerfí Interpol. Þegar
ástæða þykir til eru sendar úr viðvar-
anir og upplýsingar um skipulagða
glæpastarfsemi til aðildarlandanna.
Smári dregur upp myndskreytta til-
kynningu sem nýlega barst. Þar er
lýst í máli og myndum aðferð sem
nýlega var reynt að nota til smygsl á
fíkniefnum frá tilteknu landi í Asíu.
Ef lýst er eftir afbrotamanni eru
sendar persónuupplýsingar, mynd,
fingraför, sakaskrá og annað sem
getur gert lögreglu aðildarlanda
kleift að handtaka eða stöðva för hins
eftirlýsta og framselja hann síðan.
Greiningardeild Interpol vinnur
að rannsóknum á alþjóðlegum saka-
málum og gefur síðan út skýrslur,
jafnvel í bókarformi um niðurstöður
sínar. Smári segir þess dæmi að Is-
lendingar hafi komið við sögu í slík-
um málum, til dæmis sem burðardýr
fyrir alþjóðlega fíkniefnahringi sem
teygja anga sína víða um heim.
Erlendir glæpamenn á íslandi
Smári segir að íslenska lögreglan
hafi tvímælalaust orðið vör aukning-
ar í afbrotum hér á landi sem tengj-
ast útlöndum. „Við erum hluti af um-
heiminum, ekki alveg einangruð. En
það er erfitt að segja hvað er skipu-
lagt og hvað ekki. Fíkniefnainnflutn-
ingur og ólöglegur innflutningur á
fólki er líklegast skipulagður í sum-
um tilvikum. Dæmi um slíkt hafa
komið upp í báðum málaflokkum, og
er sjálfsagt um einhverja skipulag-
ningu að ræða í flestum tilfellum þótt
ekki sé alltaf hægt að færa sönnur á
það.“
Smári segir einnig nokkur dæmi
um að útlendingar svíki hér út fé með
einum eða öðrum hætti. Til dæmis
hafi verið keyptar ávísanir í bönkum
hér upp á lága upphæð í erlendri
mynt, sem síðan skjóta upp kollinum
erlendis og þá búið að breyta upp-
hæðinni margfalt. Ein ávísun upp á
10 dollara varð til dæmis að 100.000
dollara ávísun.
Annað dæmi er um útlendinga
sem komu hingað og leigðu kvik-
myndatökubúnað upp á margar
milljónir. Þeir stungu af án þess að
skila búnaðinum. Þessir aðilar voru
síðan handsamaðir í Englandi þar
sem þeir voru í sama tilgangi, að
svíkja út kvikmyndabúnað. Ekki
hafðist upp á búnaðinum sem þeii-
stálu hér.
Beinn aðgangnr að Interpol
Að sögn Smára verður meðal ann-
ars rætt á Evrópuþinginu í Reykja-
vík um að veita lögreglu aðildarlanda
Interpol beinan aðgang að sam-
skipta- og upplýsingakerfi samtak-
anna í stað þess að aðgangurinn verði
bundinn við landsskrifstofurnar.
Smári segir þetta vera mikilvægt
skref sem muni auðvelda hinni al-
mennu lögreglu að rækja sitt starf.
Hægt er að fræðast nánar um
starfsemi Interpol á heimasíðum
samtakanna: http:/Awvw.interpol.int
og http://www.interpol-pr.com.