Morgunblaðið - 14.05.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 35
---------------------S
Kj ána-
hrollur
Héráárum ádurhefóu menn verið
beinskeyttari - og kannski þar með
hreinskilnari - og bara slegið því
upp ífyrirsögn: Fjallað um Island
í útlendu blaði!
MAÐUR á víst að
vera ákaflega
stoltur af því að
vera íslendingur
núna. Það er
verið að sýna víkinga í Washing-
ton og fjallað er um ísland í er-
lendum blöðum. Þetta síðasta
hefur alltaf verið íslenskum
fjölmiðlum það sem fiskur er
fiskiflugum. Þannig segir Morg-
unblaðið frá því í leiðara að fjall-
að hafi verið um víkingasýning-
una í „hinum virtu tímaritum“
Time og National Geographic.
Og mikið rétt, bæði þessi tím-
arit fjölluðu um víkinga. Að vísu
fór greinin í
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
því „virta“
National
Geographic
ekki beint vel
af stað. Á fyrstu eða annarri síðu
kom fram að orðið „víking“ væri
gamalnorska og þýddi „piracy“,
eða rán. Ekkert um að þetta sé
sprellifandi orð í nútímaíslensku
og hafi þar öðlast víðtækari
merkingu. Ætli afgangurinn af
greininni í „því virta“ National
hafi ekki verið eftir þessu. En
þetta er smotterí, myndirnar
voru fínar og kortin flott.
Sem er meira en nóg til þess
að íslenskum fjölmiðlum þyki
mikið um vert. Reyndar má það
varla gerast að íslenskt nafn
(hvort heldur er manns eða stað-
ar) dúkki upp í erlendum fjöl-
miðlum öðru vísi en þess sé
vandlega getið heima á íslandi.
Að vísu eru íslenskir miðlar
farnir að fágast svolítið í þessari
brjóstbarningslist, og láta núorð-
ið eins og það sé auðvitað má-
lefnið sem öllu skiptir, en ekki
bara að útlendingar hafi veitt
íslandi athygli. Hér á árum áður
hefðu menn verið beinskeyttari -
og kannski þar með hreinskilnari
- og bara slegið því upp í fyrir-
sögn: Fjallað um ísland í útlendu
blaði!
Æ, hvaða nöldur er þetta?
Skiptir nokkru máli hvað sagt er
í þessum tímaritum? Er ekki að-
alatriðið að þar er minnst á Is-
land? Meira að segja myndir og
allt. Full ástæða til að berja sér
á brjóst og finna til stolts yfir
landi og þjóð. Er það ekki?
Af einhverjum ástæðum fer
samt kjánahrollur um mann við
að heyra þegar íslenskir fjöl-
miðlar byrja að æpa upp yfir sig
að útlendingar séu að fjalla um
ísland og birta myndir af ís-
landi. Þá langar mann mest til að
hverfa ofan í gólfið. Að minnsta
kosti fer maður með það eins og
morð að maður tilheyri þessari
íslensku þjóð.
Það er ekki hægt að vera
stoltur af þjóðerni sínu. Og þá
skiptir engu máli hverrar þjóðar
maður er. Maður getur nefnilega
bara verið stoltur af því sem
maður hefur sjálfui’ gert; af því
sem er manns eigin verk. Það er
ekki fyrir manns eigin tilverknað
sem maður tilheyrir þeirri þjóð
sem maður tilheyrir. Það er bara
fyrir tilviljun. Þess vegna felur
hugtakið þjóðarstolt í raun og
veru í sér mótsögn.
Svo má heldur ekki gleyma
öllum þeim hörmungum sem
svokallað þjóðarstolt og föður-
landsást hefur kallað yfir ótölu-
legan fjölda fólks, þótt líklega
verði mont íslendinga af víking-
unum seint til að valda meiðsl-
um.
En það eru ekki bara röklegar
ógöngur sem íslenskt þjóðarstolt
ratar í. Islenskir frammámenn
sjá til þess með orðum sínum að
íslendingur getur ómögulega
verið mikið upp með sér af þjóð-
erninu, og vill jafnvel fremur
halda því leyndu.
Jón Baldvin Hannibalsson,
sendiherra Islands í Banda-
ríkjunum, beit þannig höfuðið af
skömminni þegar hann hélt ræðu
við opnun víkingasýningarinnar
og sagði að úr því að Smith-
sonian-stofnunin, sem stendur
fyrir sýningunni í Washington,
segi að víkingar hafi orðið fyrstir
til að nema land í Norðu-
Ameríku, þá rengi það enginn.
Þetta var meðal þess sem haft
var eftir Jóni í Morgunblaðinu.
Það er að segja, sendiherrann
heldur því fram, að Smithsonian
sé einhverskonar dómari í mann-
kynssögukeppni þjóðanna, og
geti ákveðið hvað sé rétt og hvað
ekki. Núna hafi fyrsti kaflinn í
sögu Norður-Ameríku verið end-
urskráður, Kólumbusi steypt af
stalli og Leifi Eiríkssyni klambr-
að upp í staðinn. ísland vann!
Annað i ræðu sendiherrans var
eftir þessu og minnti helst á
sjálfsstyrkingarræðu manns sem
er á sjálfsálitsnámskeiði.
Það er ekki alveg gott að átta
sig á því hvort sendiherrann var
að grínast, eða hafði bara misst
stjórn á montinu í sér og hélt
hann væri á heimsmeistaramóti í
handbolta. Og úr því minnst hef-
ur verið á þjóð og meint stolt er
viðeigandi að orða þetta þannig,
að það sem hann sagði við opnun
sýningarinnar var svo hjákátlegt
og fráleitt, að það ætti að teljast
íslenskri þjóð til skammar.
Að minnsta kosti kynti sendi-
herrann ekki undir íslensku
þjóðarstolti, heldur gaf íslend-
ingum enn eina ástæðuna til að
fela andlitið og finna kjánahroll-
inn hríslast um sig.
Eða er þetta allt saman einn
allsherjar misskilningur? Er það
kannski alls ekki vegna þjóðar-
stolts (misskilins, reyndar) sem
það skiptir máli að nafn íslands
dúkki upp á síðum erlendra
tímarita og blaða, eða hrjóti af
vörum frægra sjónvarpsstjarna í
Bandaríkjunum?
Er þetta mikils vert vegna
þess hagnaðar sem íslensk fyrir-
tæki geta haft af þessu? Já, auð-
vitað, þetta er náttúrulega
spurning um landkynningu. Á
endanum er það bara gamla
góða gróðahyggjan sem ræður
ferðinni. Að sjálfsögðu. Og
merkilegt nokk, skyndilega er
gróðahyggjan manni mikil hugg-
un.
Veður og færð á Netinu
ý§>mbl.is
boHMA K LU B B U R
14. maí
heilsudagur
opið hús 13 -
16
4 kmog 8 km.
Hentaröllum gangandi
eða hlaupandi. Hlaupið
Allir þátttakendur fá bol.
DISKOTIMI
HJOLATIMI MEÐ LIFONDI TONLIST
UPPLYSINGAR OG RAÐGJOF
til sýnis, við veitum uj
evfingu og betri lífsha
YMSAR FRIAR MAELINGAR
HLAÐIN DAGSKRA FYRIR ALLR FJOLSKYLDUNA
bÓHMAKLUBBUR