Morgunblaðið - 14.05.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 39
MINNINGAR
þerruð. Núna sé ég hversu ég van-
mat oft samverustundirnar. Þegar
við vöskuðum upp saman á jóladag
eftir matinn því amma var svo þreytt.
Það var reyndar ekM svo óvenjulegt
að Baddi stæði í eldhúsinu, því þar
leið honum yfmleitt best. Hann var
alltaf boðinn og búinn að hjálpa til og
var alltaf mættur fyrstur til ömmu til
að „skræla og músa“.
Mér þótti alltaf svo gott að tala við
Badda, það var eitthvað svo auðvelt
að segja honum frá draumum sínum.
Eg var aldrei hrædd um að hann
myndi dæma mig eða finnast eitt-
hvað fáránlegt. Honum fannst allar
hugmyndirnar svo sniðugar og
draumarnir þess virði að elta þá.
Kannski af því að hann gat það ekki
sjálfur, en mér þótti alla vegana gott
að deila þeim með honum. Um jólin
sagði ég honum frá öllu sem mig
langaði til að gera eftir stúdentspróf-
ið núna í vor. Hann hvatti mig áfram
og sagði að það væri um að gera að
framkvæma eins mikið og maður
gæti af því sem mann langaði til. Ég
hlakkaði svo til að fá hann í stúdents-
veisluna mína og deila gleðinni. En
þó hann verði ekki þar í eigin pers-
ónu vil ég trúa því að hann verði þar í
anda og sé stoltur með mér. „Vegir
liggja til allra átta/enginn ræður för“
skrifaði Indriði G. Þorsteinsson eitt
sinn. Þetta lýsir líklega lífi flestra, en
á mjög vel við frænda minn, sem Mfði
lífinu á sama hátt og hann dó, svo
hratt að enginn tími var til að ná átt-
um.
Baddi gerði ýmislegt á hlut ann-
arra, sem hann seinna meir vildi
gleyma. En oft er það svo að slíkt er
geymt en ekki gleymt og menn fá á
sig stimpil. Slæmu minningamar lifa.
En þá detta mér aðeins í hug orð
Jesú forðum: „Sá yður sem syndlaus
er kasti fyrsta steininum.“ Þá verðui'
víst lítið um grjótkast. Það eiga allir
syndii’, þó að þær séu misjafnar eins
og mennimir. En slíkar minningar er
best að grafa með kistunni og halda
því góða eftir. Aðeins þannig öðlast
menn sátt, ekki bara við hinn látna,
heldur einnig við sjálfa sig. Því sá
maður sem minnst er með góðu, deyr
aldrei alveg í hjörtum þeirra sem
muna. Og ég veit að Bjartmar mun
aldrei deyja alveg því hann á alltaf
stað í mínu hjarta.
Margir gráta bliknuð blóm.
Beygjasorgirflesta.
Án þess nokkur heyri hljóm,
hjartans strengir bresta.
Valta fleyið vaggar sér
votumhafsábárum.
Einattmænaeftirþér
augun, stokkin tárum.
Enginn getur meinað mér
minning þína’ að geyma.
Kring um höll sem hrunin er,
hugannlætégsveima.
Þú, sem heyrir hrynja tár,
hjartans titra strengi,
græddu þetta sorgarsár,
svo það blæði’ ei lengi.
(Erla.)
Kæri frændi, hvíldu í friði.
Blessuð sé minning þín.
Hulda María.
OBC QUARTET
Tölvutaflan er bylting í
fundaformi og fjarsamskiptum
SKKII'STOFLVÖBIB
J. lÍSTVflLDSSON HF.
SKipholti 33.105 Reykjavík. simi 533 3535
✓ Skráð er á töfluna
✓ Flutt í tölvuna
✓ Prentað út
✓ Sett upp
✓ Sent I tölvupósti
✓ Hugbúnaðurog
tengingar fylgja
INGVELDUR
JAKOBÍNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
tlngveldur Jak-
obína Guð-
mundsdóttir fæddist
á Vífilsmýrum í On-
undarfirði 21. júní
1910. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum
29. apríl síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Neskirkju
9. maí.
Þá er hún lögð af
stað í sína hinst.u ferð,
hún elsku amma mín.
Það sem við öll sem
hana þekktum eigum í minning-
unni, er hversu elskuleg, blíðlynd
og glöð í bragði hún var, alltaf. Á
mínum uppvaxtarárum bjó ég úti á
landi en sumrin á þeim tíma voru
alltaf mikið tilhlökkunarefni, þá fór
ég um leið og skóla lauk á vorin
suður til Reykjavíkur að hitta
ömmu og afa. Þeim kærleik og
blíðu sem mætti manni og umlék
þann tíma sem þessar heimsóknir
vörðu gleymi ég aldrei. Oft var
handagangur í öskjunni og stutt á
milli hláturs og gráts þegar við
frændsystkinin vorum öll komin
saman en alltaf fékk hún amma
okkur til að brosa að lokum eins og
henni var lagið.
Alltaf held ég að
matur sé ofarlega í
huga þegar þeir nán-
ustu minnast hennar
ömmu, mér er það til
efs að nokkurn tíma
hafi einhver farið
svangur út af hennar
heimili, ef einhver leit
inn var fyrsta spurn-
ingin alltaf: Ert’ekki
svöng/svangur éska?“
Löngunin til að
gleðja aðra á einn eða
annan hátt var henni
ömmu í blóð borið, það
var alveg sama hversu
yndislegt okkur þótti það sem eitt-
hvað þáðum úr hennar hendi, ekk-
ert var of gott fyrir okkur og allt
þótti henni þetta sjálfsagt.
Við sem eftir stöndum gleymum
aldrei því hjartalagi og þeiiri pers-
ónu sem þú hafðir að geyma, þetta
mun ylja okkur í minningunni um
aldur og ævi.
Elsku amma mín, megir þú hvíla
í friði á stað hins eilífa ljóss þar
sem þú að lokum hittir þá ástvini
sem þessari sömu ferð hafa lokið
og bíða eftir þér með útbreidda
arma.
Guð blessi þig.
Þinn sonarsonur,
Hjalti Sigurbergur Hjaltason.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
OSWALDS
simi 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
I AÐALSTR/l l l 4B • 101 Rl'YKJAMK
Da\'ú) htgcr Úlafur
l hfirarstj. I hjararstj. I 'tjararstj.
1. ÍICK lSTUVINNUSTOf :A
EWINDAR ÁRNASONAR
1899
Blównastofa
Friðjínns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
Fornsala Fornleifs — gðeins ó vefnum
Netfang: antique@simnet.is Sími 551 9130, 692 3499
Veff ang:www.simnet.is / antique
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÞÓRU AÐALHEIÐAR SIGTRYGGSDÓTTUR,
Vesturgötu 59,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar
FSA.
Páll Þórir Jóhannsson,
Ásta Garðarsdóttir,
Sigrún Garðarsdóttir,
Sigtryggur Jónsson, Lára Einarsdóttir,
Sigurður Pálsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum af öllu hjarta auðsýnda ástúð, hlýju,
tryggð og vináttu vegna andláts og útfarar
SIGRÍÐAR BIRNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Skeljatanga 21,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B-7
Landspítala, Fossvogi, fyrir aðhlynningu og
elsku á erfiðri stund.
Guð geymi ykkur öll.
Guðbjartur Vilhelmsson,
Vilhelm Guðbjartsson,
Guðmundur Örn Guðbjartsson,
Eydís Erna Guðbjartsdóttir,
Sigurður Guðmundsson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum
þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GRETTIS JÓHANNESSONAR,
Gullsmára 9, Kópavogi,
áður til heimilis
á Skarði í Þykkvabæ.
Sérstakar þakkir sendum við laeknum og hjúkrunarfólki Vífilsstaða-
spítala, heimahlynningu Krabbameinsfélagsins og Lögreglukór Reykja-
víkur.
Guð blessi ykkur öll.
Fanney Egilsdóttir,
Egill Grettisson, Lilja Sigurðardóttir,
Kristbjörg Grettisdóttir, Sigurður G. Þórarinsson,
Jóhannes Grettisson, Elín Leifsdóttir,
Marta Grettisdóttir, Valur Jóhann Stefnisson,
Sigrún Grettisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og útför ástkærrar móður minnar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
THEODÓRU M. STELLU GRÍMSDÓTTUR,
Stórholti 32,
Reykjavík.
Ágústa Hjálmtýsdóttir, Hafsteinn Sigurðsson,
Hjálmtýr Hafsteinsson, Stephanie Smith,
Ágúst Hafsteinsson, Anna Jóhannesdóttir,
Theodóra Stella Hafsteinsdóttir, Bergur Sandholt,
Hafsteinn Sv. Hafsteinsson, Sigurlaug K. Jóhannsdóttir
og langömmubörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
SIGURÐAR GEIRSSONAR,
Hjarðarholti 8,
Akranesi.
Björgvin Sigurðsson, Helga Magnúsdóttir,
Marta Sigurðardóttir, Tómas Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.