Morgunblaðið - 14.05.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 14.05.2000, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA ÍDAG „ Víkur hann sér í Viðeyjar- klausturu Klaustrin vóru mikil menningarsetur og lögðu drjúgan skerf til íslenzkra bók- mennta. Stefán Friðbjarnarson minnir á sögufrægt klaustur í Viðey við sundin blá, sem vígt var Agústínusar-reglu. Víkur hann sér í Viðeyjarklaustur, víða trúég hann svamli, sá gamli. Við Dani var hann djarfur og hraustur og dreifði þeim í flæðarflaustur með bauki og bramli. (Jón biskup Arason.) Norðlendingar höfðu frum- kvæði að stofnun fyrsta íslenzka klaustursins, Þingeyraklausturs, árið 1133. Þeir stóðu einnig að tilurð þess næsta í röðinni, Munkaþverárklausturs, árið 1155. Austfirðingar fylgdu í kjölfarið: Þykkvabæjarklaustur árið 1168 og Kirkjubæjarklaust- ur árið 1186. Vestfirðingar vóru næstum samstiga Austfirðing- um: Hítardalsklaustur árið 1166 og Flateyjarklaustur árið 1172. Síðastnefnda klaustrið var flutt að Helgafelli árið 1186. Þegar hér var komið sögu var enn ekkert klaustur í Sunnlendinga- fjórðungi. Það er ekki fyrr en árið 1226 að Sunnlendingar stofna Viðeyj- arklaustur. Það var Þorvaldur Gissurarson í Hruna, af ætt Haukdæla, sem þar var príor. Magnús Gissurarson Skálholtsb- iskup, bróðir príorsins, lagði klaustrinu til biskupstíundir milli Botnsár í Hvalfirði og Hafnarfjarðar. Klaustrið var vígt Ágústínusarreglu (stundum kölluð svartmunkaregla). Bræð- ur í Ágústínusarklaustrum vóru gjaman kallaðir kanokar (í stað munka) og yfirmaður þeirra príor (í stað ábóta). Litið var svo á að biskup í því umdæmi, sem klaustrið heyrði til, væri ábóti klaustursins. Jón biskup Helgason segir í grein í Lesbók Morgunblaðsins árið 1939 að þó hafi „áður en langt um leið“ verið tekið „að kalla for- stöðumenn Viðeyjarklausturs ábóta“ og komi það fyrir í sjálf- um máldaga klaustursins. Klaustrin vóru mikil fræða- og menntasetur og lögðu drjúg- an skerf til íslenzkra bókmennta á sinni tíð. Þar var og stunduð kennsla og líknarstarf. Þau vóru, auk biskupsstólanna, höf- uðstoðir kaþólskrar kirkju hér á landi fram að siðaskiptum. Það- an komu margir af helztu for- ystumönnum kirkjunnar á miðöldum. Þau urðu sum hver stórauðug að jarðeignum og fjármunum. Til að mynda er tal- ið að Viðeyjarklaustur hafi eign- ast 116 jarðir meðan það var og hét. Konungur sló eign sinni á klaustrið um siðaskiptin. Annar í röð príora í Viðey var Styrmir Kárason hinn fróði. Árni Ola segir í bók sinni um Viðeyjarklaustur að „það hafi verið að ráðum Magnúsar bisk- ups Gissurarsonar og Snorra Sturlusonar að hann réðst þang- að. Var hann príor í 10 ár, 1235-1245. Áður höfðu þeir Snorri Sturluson skipzt á um að vera lögsögumenn: Styrmir 1210-1214, Snorri 1215-1218 og aftur 1222-1231, og Styrmir aft- ur 1232-1235“. Árni Óla segir um Styrmi príor Kárason, sem hér er til sögu nefndur sem dæmigerður fulltrúi þess menn- ingarstarfs er í klaustrunum var unnið: „Það er furðu lítið sem menn vita um jafn merkan mann og Styrmi, en í bókmenntasögu Is- lands mun nafn hans vera ódauðlegt. Hann var einn af frumhöfundum Landnámu, hann ritaði Ólafs sögu helga o.fl....“ Viðey kemur víða við íslands sögu. „Um 300 ára skeið var Viðey Ííkust ævintýralandi," segir Árni Óla, en hamingjusól hennar hneig til viðar „að kveldi hins gamla tíma... Þar ríkti samfellt 200 ára myrkur og ekki rofaði að nýjum degi fyrr en Skúli Magnússon landfógeti kemur til sögunnar.“ Viðeyjarklaustur gegndi gagnmerku hlutverki í þjóðar- sögunni. Það rís þó ef til vill hæst í frásögnum af Viðeyjarför sjálfstæðis- og trúarhetjunnar Jóns biskups Arasonar þá er hann rak danska valdsmenn, Laurentius Mule hirðstjóra og málalið hans, úr eyjunni, trú- lega árið 1549. Það er ljúft til þess að hugsa Reykvíkingar gera vel við Við- ey, perluna við sundin blá, sem fólk fjölmennir til ár hvert í leit að fegurð og fróðleik. Það er gott að vita þessa „sögueyju" við túnfót höfuðborgar í góðum höndum staðarhaldarans, séra Þóris Stephensen. Hún er heim- sóknarverð á þúsund ára afmæli kristnitöku í landinu. VELVAK4NDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags ar er ofsetinn, þegar fram- tíðarbyggingaland og aðal samgönguæð til og frá borginni til norðurs verður um Geldinganes og næsta nágrenni? Með byggingu í Geldinganesi yrði athafna- svæði Gömlu hafnarinnar ekki skert, ekki þyrfti að koma til umfangsmikillar landfyllingar þar og vænt- anlega yrði Tónlistarhúsið „Klettaborgin" eftirtektar- verðari útávið en hús byggt með hefðbundnum hætti frá grunni. Þá mætti hugsa sér byggingu eða bygging- ar umhverfis og ofan við klettaborgina sem gætu hýst hótel eða smærri tónl- istar-, ráðstefnu- og fundar- sali með innbyrðis neðan- jarðar tengingu. Sé þessi hugmynd ekki framkvæmanleg, mætti í staðinn hugsa sér tilkom- umikið menningar- og tónl- istarhús, reist með hefð- bundnum hætti á hábungu Geidinganess, einskonar „Perlu“ þess. Gunnar H. Ingi- mundarson, Safamýri 34, Rvík. Tapað/fundið Glænýr körfu- bolti fannst DRENGURINN sem tap- aði körfubolta mánudaginn 8. maí sl. í Seljahverfi, er beðinn að hringja í síma 587-4746. Kannast einhver við myndirnar? ÞESSAR myndir fundust í versluninni IKEA við Holtagarða í síðustu viku. Ef einhver kannast við þær, er hægt að vitja þeirra hjá Morgunblaðinu 2. hæð, sími 569-1201. Hækkun fast- eignaverðs - gífurleg skuldasöfnun EINS OG margoft hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarið hefur fasteigna- verð hækkað óeðlilega mik- ið á undanförnum misser- um. Lánastofnanir eru að lána ungu fólki gríðarlegar upphæðir til að kaupa eða byggja sér húsnæði. í 6% verðbólgu og með 5,1% vöxtum á húsbréfalánum er auðvelt að reikna út hvað 7-9 milljóna skuld gerir í hækkun á láninu og vöxtum bara á einu ári. Það eru fleiri tugir þúsunda á mánuði. Af 10 milijóna skuld er þetta 1,1 milijón á ári. Þá er ekki byrjað að greiða krónu af höfuðstól. Nú er unga fólkið hvatt til þess af fasteigna- sölum að taka lán og taka fleiri lán til að kaupa þessar rándýru íbúðir. Vandamálið er að hér á landi er enginn leigumark- aður. Að leigja sér íbúð á meðan safnað er fyrir kaup- um á húsnæði er ekki úr- ræði fyrir Islendinga enn sem komið er. Húsnæði hefúr hækkað óeðlilega mikið undanfarið og miðað við venjulegar iaunatekjur er húsnæði orð- ið allt of dýrt. Verðbólgan sem nú ógnar okkur er til komin að mestu leyti vegna hækkunar á húsnæði og bensínverðhækkana. Fasteignasalar mættu hugsa sinn gang. Þeir of- meta húsnæði og búa til eft- irspum með því að klifa á því í fjölmiðlum að nú sé rétti tíminn til að kaupa og að það sé „slegist um hverja eign“ og alltaf er verið að láta vita af því að það verði meiri hækkanir á næstunni. Fólk verðm- æst og hugsar „ég verð að kaupa núna“. Þetta getur allt endað með hruni hjá fjölskyldunum í landinu. Við verðum að hafa möguleika á því að spara nú og kaupa síðar. Margrét Ólafsdóttir. Hugleiðing um stað- setningu tónlistarhúss í FRAMHALDI stórhug- mynda Vestmannaeyinga sbr. Mbl. 9. apríl sl. um tón- listar- og menningarhús inngrafið í hraunstálið á Heimaey, leitaði á hugann sú hugmynd að byggja mætti fyrirhugað Tónhstar- hús í Reykjavík í Geldinga- nesi, nánar til tekið í sárinu sem skapast hefur sunnan- vert á nesinu eftir grjótnám síðustu ára. Þama er þegar búið að „byggja“ þrá veggi inn í bergstálið, sem vænt- anlega gæfu innanrými hússins sérstæða ásýnd og e.t.v. hljómburð, framhlið- ina mætti sjá fyrir sér sem glæsilega glerhöll og hvolfþak yfir. Framanvið húsið sjávarmegin, mætti gera fyrsta flokks útivistar- svæði og e.t.v. smábáta- og feijubryggju fyrir útsýnis- feiju milli Gömlu hafnar og Tónlistarhúss, fagurt útsýni yrði þaðan til suðurs yfir sundin og varðveita mætti að hluta opið, náttúmlegt umhjverfi, í námunda við húsið. E.t.v. mætti gera neð- anjuarðar bílastæði fyrir gesti. Af hveiju að reisa enn eina stórbygginguna inni í gamla miðvænum, sem þeg- Víkverji skrifar... ASTARORMURINN svokallaði hristi rækilega upp í tölvunot- endum fyrir skömmu. Fá dæmi, ef nokkur, eru fyrir því að vírus hafi fjölgað sér jafnhratt og skekið tölvu- heiminn jafnhressilega. Víkveiji fór ekki varhluta af þessum sendingum. Vinnudagur hans hófst með hefð- bundnum hætti, hann ræsti tölvuna sína um morguninn og í póstinum biðu einhverjir tugir af nýjum tölvu- skeytum. Það flokkaðist undir eðli- legt ástand og var sá póstur af- greiddur á hefðbundinn hátt. Næst þegar Víkvera varð litið á skjáinn var hann þéttskrifaður af nýjum skilaboðum með ástarjátningum frá fólki sem hingað til hafði ekki tjáð Víkverja ást sína með neinum hætti. xxx AR SEM Víkverji er virkur tölvu- og netnotandi kveikti hann strax á perunni, opnaði þvi ekk- ert þessara skeyta, þó svo þau hafi verið send frá netföngum virtra lækna, lögfræðinga, ráðherra og frá ýmsum stofnunum, bæði hérlendis og erlendis. Víkverji gekk því ekki í vatnið í þetta skiptið þótt freistingin hafi verið mikil að kíkja í a.m.k. eitt skeyti og skoða innihaldið. En þann- ig berast víst flestir vírusar á milli tölva, sá sem býr forritin til nýtir sér andvaraleysi notandans og traust hans til vina og vandamanna sem senda skemmtiefni á milli tölva. En sem betur fer getur fólk tekið svona áföllum og jafnvel gert grín að. Fyrir skömmu barst Víkverja skeyti frá kunningja þar sem hann varaði Víkverja við nýjum vírus sem slái öll- um öðrum vírusum við. XXX SKEYTIÐ var svohljóðandi: „Ef þú færð tölvupóst sem byrjar á orðinu „hæ“ þá skaltu eyða honum án þess að lesa hann. Þetta er versti vírusinn sem geng- ið hefur tölva á milli. Hann mun eyða öllu sem er á harða disknum þínum. Og ekki nóg með það - þessi vírus stekkur á diskettur sem liggja ná- lægt tölvunni þinni í allt að 100 metra radíus. Hann setur inn nýjar setningar í allan tölvupóst sem þú skrifar. Hann bindur hnúta á allar leiðslur sem liggja úr tölvunni þinni og herðir allar skrúfumar svo fast að þú nærð þeim aldrei úr. Hann útbíar lyklaborðið svo að bókstafimir sjást ekki lengur og setur fingraför á skjá- inn (með smjör- og sultubragði). Hann fiktar í ísskápnum þínum svo að smjörið bráðnar og mjólkin súrn- ar. Hann falsar peningaseðla á tölv- unni þinni og setur þá í veskið þitt. Hann drepur blómin í garðinum þín- um. Hann setur laxerolíu í hunda- matinn svo að þú þarft að vaka í alla nótt til að hleypa hvutta út. Hann sér til þess að ljósaperan á klósettinu springur og felur allar varapemrnar. Hann breytir öllu efninu á videospól- unum heima hjá þér og setur t.d. klámmyndir á teiknimyndaspólurn- ar. Sendir svo tölvupóst til lög- reglunnar um að þú eigir fullt af barnaklámi. Hann drekkur allan bjórinn þinn og sér til þess að það verða alltaf skítugir sokkar á stofu- borðinu miðju í hvert sinn sem það koma gestir. Hann setur ofninn á fullt og lokar köttinn inni í honum. Þessi víras hellir sykri í bensíntank- inn á bílnum þínum og rakar af þér augabrúnirnar. Hann millifærir af reikningnum þínum í sjóð til styrkt- ar stöðumælavörðum. Hann minnk- ar annan skóinn þinn hægt og rólega þangað til þú endar með þvi að detta og nefbrjóta þig. Vírasinn gerir þig kossasjúka/-n og passar að þú sturtir aldrei niður. Þetta er bara lítil upp- talning á skaðanum sem þessi víras getur valdið en hann kemur að sjálf- sögðu ekki sem viðhengi heldur sem venjulegur texti í tölvupósti."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.