Morgunblaðið - 23.06.2000, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landspítali-háskólasjúkrahús
Framkvæmdastjórn
I
Barna-
svið
Kvenna-
svið
Geðsvið
Lyflækninga-
sviðl
Skurðlækn.-
svið
- *,u' Lyflækninga-
st.svið svið II
Klfnísk
þjónustusvið
Almennar barnalækn. Meðganga og sængurlega
Nýbura- lækningar Fæðingar- hjálp
Barna- skurðlækn. Almennir kvensjúkd.
Illkynja kvensjúkd.
Almennar
geðlækn.
Barna og ungl.
geðlækn.
Vímuefna-
sjúkdómar
Vinnu-
iðjuþjálfun
- Almennar lyflækn. Skurð- —►
- Meltingar- sjúkdómar - Almennar skurðlækn.
- Húð- og kynsjúkd. - Æða- skurðlækn.
- Hjarta- sjúkdómar - Þvagfæra- skurðlækn.
- Gigtar- lækningar Lýta- lækningar
- Nýrna- lækningar Augn- lækningar
- Lungna- lækningar Bæklunar- skurðlækn.
- Innkirtla- sjúkdómar Háls- nef- og eyrnalækn.
-i Smit- sjúkdómar Heila- og tauga- skurðlækn.
Tauga- lækningar Brjósthols- skurðlækn.
Stofur
Svæfing
Gjörgæsla
Sótthreinsun
Krabbameins-
lyflækningar
Geisla-
lækningar
Geislaeðlis-
fræði
Blóð-
sjúkdómar
Líknardeild
Kópavogi
Myndgreining
LSH-Hb
Myndgreining
LSH-Fv
Rannsókna-
stofa HÍ
Skjalasafn
Prest-
þjónusta
Apótek
LSH-Hb
Slysa- og bráða-
móttaka Fv
Bráðamóttaka
Hb
Innskriftar-
miðstöð
Gæsludeild
Rannsókna-
stofa LSH-Fv
]] Þjónustusamningur
Sjálfstæður fjárhagur
Starfsemi Landspítala - háskólas.júkrahúss skipt í nfu svið
Stefnt að betri verkaskiptingu
MAGNUS Pétursson, forstjóri Landspítala -
háskólasjúkrahúss, segist vænta þess að nýtt
skipurit fyrir spítalann leiði til skilvirkara
starfs og betri verkaskiptingar. Skipuritið tek-
ur formlega gildi 1. október nk. og á næstu vik-
um verða stjórnendur sviðanna ráðnir úr hópi
starfsmanna.
Ríkisspítalar og Sjúkrahús Reykjavíkur, sem
nú hafa verið sameinuð í einum spítala, voru
með sitthvort skipuritið. Starfsemi Sjúkrahúss
Reykjavíkur var skipt upp í sjö svið; skurð-
lækningasvið, lyflækningasvið, endurhæfingar-
og taugasvið, öldrunarsvið, geðsvið, slysa- og
bráðasvið og myndgreininga- og rannsóknasvið.
Starfsemi Ríkisspítalanna var skipt upp í átta
svið; handlækningasvið, barnalækningasvið,
kvenlækningasvið, lyflækningasvið, geðlækn-
ingasvið, klínískt þjónustusvið, rannsóknasvið
og tækni- og rekstrarsvið.
Samningar gerðir um öldrunar-
og endurhæfingarþjónustu
Við sameiningu spítalanna hefur verið búið
til nýtt skipurit, sem gerir ráð fyrir að starf-
semi sameinaðs spítala skiptist í níu svið;
barnasvið, kvennasvið, geðsvið, lyflækningasvið
I, skurðlækningasvið, svæfinga-, gjörgæslu- og
skurðstofusvið, lyflækningasvið II, klínísk þjón-
ustusvið, slys- og bráðasvið. Þar að auki hafa
verið gerðir þjónustusamningar um öldrunar-
þjónustuna og endurhæfingarþjónustu. Auk
þess verða rannsóknarstarfsemi og Blóðbank-
inn rekin í félögum með sjálfstæðan fjárhag.
Endurskoðun eftir tvö ár
Þegar skipuritið var samþykkt í stjórnar-
nefnd Landspítalans var gerð sérstök bókun
um endurskoðun að tveimur árum liðnum. Þar
segir: „Að tveimur árum liðnum verði sviða-
skipanin endurskoðuð og sérstaklega lagt mat á
kosti og galla skiptingar lyflækningasviðs, stað-
setningu barnaskurðlækninga og samstjórn
skurðstofa."
Að sögn Magnúsar er vinna langt komin við
að sameina aðra starfsemi spítalans. Búið sé að
ráða yfirmenn byggingadeildar og tæknideild-
ar. Búið sé að sameina fjármálaskrifstofur
spítalanna, en sameiginlegt fjármálakerfi verði
tekið upp um næstu áramót
Stærstu svið hins nýja spítala verða skurð-
lækningasvið og lyflækningasvið, en þar á eftir
kemur geðsvið. Hvert þessara sviða veltir millj-
örðum, en heildarvelta Landspítalans er um 20
milljarðar. Heildarfjöldi starfsmanna er um
5.000 og heildarkomur sjúklinga eru um hálf
milljón. Húsnæði spítalans er samtals rúmir 15
hektarar.
Morgunblaðið/Óskar Jónsson
Sveinbjörn kampakátur með laxinn væna.
Morgunblaðið/Guðm. Guðjóns
Nokkrir laxar hafa veiðst í Ytri Rangá. Hér er Þröstur Elliðason, leig-
utaki árinnar, með þann fyrsta, 12 punda hrygnu af Rangárflúðum.
Stærsti lax sumarsins við Blöndu
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
ngur vel á
Arnarvatnsheiði
SVEINBJÖRN Jónsson á Akur-
eyri veiddi þennan 21 punds lax á
fýrsta svæði í Blöndu á dögunum,
en hann var þar að veiðum með
Óskari bróður sínum. Þetta er
stærsti laxinn sem veiðst hefur í
Blöndu í sumar og fékk Sveinbjöm
hann á maðk. Laxinn var 103 sentí-
metrar að lengd. Þeir bræður
fengu samtals 12 laxa þennan dag
við Blöndu og voru þeir frá 10
pundum upp í 21 pund.
Veiði hófst á Amarvatnsheiði um
síðustu helgi og sagði Snorri Jó-
hannesson veiðivörður í samtali við
Morgunblaðið að veiði hefði farið
vel af stað og færð væri góð á með-
an þurrt væri. „Menn hafa mest
stundað Úlfsvatnið og ámar sem
renna í það og úr. Mest hefur komið
á land af bleikju og er bæði um
smáfisk og vænan fisk að ræða.
Urriðinn nyög vænn
Urriðinn er í sókn hjá okkur,
enda höfum við sleppt miklu af
seiðum síðustu árin. Úrriðinn getur
verið mjög vænn á Heiðinni, einn
sem veiddist um helgina var 7
punda sem veiddist út af ósi Aust-
urlækjar," sagði Snorri.
Rætt um mál-
efni Eystra-
saltsráðsins
Utanríkisráðherrafundur Eystra-
saltsráðsins var haldinn f Bergen
dagana 21.-22. júní. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra sat
fundinn fyrir íslands hönd.
A dagskrá fundarins vom hin
ýmsu málefni Eystrasaltssam-
starfsins, þ.á m. efnahagsmál, um-
hverfismál og lýðræðisþróun. Meðal
þess sem rætt var á fundinum var
stefna Evrópusambandsins er varð-
ar norðurhluta Evrópu og kennd
hefur verið við norðlæga vídd.
Einnig var rætt um að efla sam-
vinnu á ýmsum sviðum.
Á fundinum ræddi Halldór Ás-
grímsson um nýja áætlun Evrópu-
sambandsins um norðlæga vídd.
Hann lýsti ánægju með áætlunina
almennt og lagði áherslu á þá hluta
hennar sem lúta að umhverfismál-
um, meðferð kjarnorkuúrgangs á
norðurslóðum, einkum í norð-vest-
urhluta Rússlands og málefnum
norðurskautsins. Utanríkisráðherra
ræddi jafnframt um að auka sam-
starf aðildarríkja Eystrasaltsráðs-
ins, þ.á m. á sviði upplýsingatækni
og heilsugæslu sem stofnað var til á
nýlegum leiðtogafundi ráðsins.
-----------------
Ríkissak-
sóknari Kína
í heimsókn
RÍKISSAKSÓKNARI Alþýðulýð-
veldisins Kína, Han Zhubin, kom til
Islands 19. júní sl. ásamt fylgdarliði
sem gestur Boga Nilssonar ríkissak-
sóknara. Kínverski ríkissaksókna-
rinn kom hingað að loknum heim-
sóknum til ríkissaksóknara Noregs
og ríkissaksóknara Finnlands.
Kínverski ríkissaksóknarinn hitti
forseta íslands, Ólaf Ragnar Gríms-
son, og heimsótti Hæstarétt íslands,
Alþingi, dómstólaráð, Héraðsdóm
Reykjavíkur, ríkislögreglustjórann
og fangelsið á Litla-Hrauni.
Á fundi ríkissaksóknaranna var ís-
lenska réttarvörslukerfið kynnt og
sérstaklega embætti ríkissaksókn-
ai-a, hlutverk þess og störf, að því er
fram kemur í frétt frá embætti ríkis-
saksóknara.
Heimsókn kínverska ríkissak-
sóknarans lauk í 22. júní og hélt hann
þá til Danmerkur.