Morgunblaðið - 11.07.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þýskalandsheimsókn
Khatamis
Lögreglan
með mikinn
viðbúnað
Berlín. Reuters, AFP.
ÞÝSKA lögreglan var með óvenju-
mikinn viðbúnað í Berlín og við
landamæri Þýskalands í gær þegar
Mohammad Khatami, forseti Irans,
kom í þriggja daga heimsókn til
landsins.
Lögreglan staðfesti að 50 íranskir
útlagar hefðu verið handteknir í
Berlín. Leitað var að vopnum í húsum
tuga Irana, sem voru grunaðir um að
hafa skipulagt óeirðir, og landa-
mæraverðir meinuðu nokkrum Irön-
um að fara til landsins. Andspymu-
ráð írans (NCR), stjómmálahreyfing
íranskra skæruliða sem era með
bækistöðvar í írak, sagði að 10.000
írönum hefði verið meinað að fara til
Berlínar vegna heimsóknarinnar.
Um 7.000 íranar söfnuðust saman í
Berlín til að mótmæla heimsókninni
en mannfjöldinn var mun minni en
búist hafði verið við.
. Æím. tá
tÆJZÍmú
Reuters
franskir útlagar halda á skopmynd af Mohammad Khatami, forseta írans, á mótmælafundi í Berlín vegna komu
hans til borgarinnar í gær.
Deilan um hval-
veiðar Færeyinga
Lögreglan
óttast átök
LÖGREGLAN í Þórshöfn í
Færeyjum óttast að til átaka
komi milli hvalveiðimanna og
andstæðinga hvalveiða þegar
grindhvaladráp Færeyinga
hefjast í sumar, að sögn norska
blaðsins Aftenposten í gær.
Félagar í umhverfisverndar-
samtökunum Sea Shepherd,
undir forystu Pauls Watsons,
era komnir á skipi í færeysku
landhelgina til að reyna að
hindra veiðarnar. Hermt er að
almannavarnayfírvöld í Dan-
mörku hafi gert ráðstafanir til
þess að senda lækna og hjúkr-
unarlið til Færeyja ef þörf kref-
ur. Þá skýrði yfirlæknir Land-
sjúkrahússins í Þórshöfn frá
því að öllum læknum, sem eru í
sumarfríi, hefði verið sagt að
vera undir það búnir að mæta
til vinnu ef átök blossuðu upp.
Leiðtogar Israels og Palestínumanna hefja friðarviðræður í Bandaríkjimum
Barak stóð af sér van-
trauststillögu á þinginu
Jerúsalem. Reuters, AFP.
Mannréttindabrot gagnrýnd
Þetta er í fyrsta sinn sem íranskur
forseti fer í heimsókn til Þýskalands
síðan íslömsk bylting varð í íran
1979. Khatami ræddi við Gerhard
Schröder kanslara, sem sagði að
heimsóknin markaði tímamót í sam-
skiptum ríkjanna. Kanslarinn gagn-
rýndi mannréttindabrot klerka-
stjómarinnar í Iran en lofaði að
stuðla að auknum fjárfestingum
þýskra fyrirtækja í landinu.
Þýska stjómin styður lýðræðisum-
bætur sem Khatami hefur beitt sér
íyrir í íran og leggur mikið kapp á að
tryggja að mótmæli varpi ekki
skugga á heimsóknina. Spenna hefur
verið milli ríkjanna frá 1997 þegar
þýskur dómstóll sakaði stjórnvöld í
Iran um að hafa fyrirskipað morð á
kúrdískum andófsmönnum í Berlín.
EHUD Barak, forsætisráðherra
ísraels, hélt til Bandaríkjanna í
gærkvöld til að hefja friðarviðræður
við leiðtoga Palestínumanna eftir að
hafa haldið velli í atkvæðagreiðslu á
ísraelska þinginu um vantrauststil-
lögu Likud-flokksins. Meðan flugvél
forsætisráðherrans beið eftir honum
á flugvellinum greiddu 54 þingmenn
atkvæði gegn samsteypustjórninni,
en vantrauststillagan þurfti að fá 61
atkvæði til að stjórnin félli og boða
þyrfti til þingkosninga. 52 þingmenn
greiddu atkvæði með stjórninni en
14 þingmenn sátu hjá eða vora fjar-
staddir.
Hefði Barak beðið ósigur í at-
kvæðagreiðslunni hefði ekkert orðið
af friðarviðræðunum við Yasser Ar-
afat, leiðtoga Palestínumanna, og
Bill Clinton Bandaríkjaforseta, sem
hefjast í Camp David í dag.
Stjórn Baraks missti meirihluta
sinn á þinginu um helgina þegar þrír
flokkar slitu stjómarsamstarfinu af
ótta við að Barak myndi stofna ör-
yggi ísraels í hættu með því að sam-
þykkja á fundinum í Bandaríkjunum
að láta fleiri hemumin landsvæði af
hendi. Flokkar araba og fleiri
vinstriflokkar á þinginu greiddu hins
vegar atkvæði með stjórninni til að
koma í veg fyrir að hún félli fyrir
leiðtogafundinn.
Meirihluti Israela styður Barak
Yaron Dakel, virtur stjórnmála-
skýrandi í ísrael, spáði því að Barak
héldi velli að minnsta kosti þar til
leiðtogafundinum lyki. „Ef hann nær
samkomulagi er nánast öraggt að
efnt verður til kosninga," sagði hann.
„Fari fundurinn út um þúfur verður
líklega mynduð þjóðstjórn. Stóra
spumingin er hvað gerist ef aðeins
næst hálfgildings samkomulag."
Samkvæmt viðhorfskönnun, sem
gerð var á sunnudag, voru 52% ísra-
ela hlynnt því að Barak færi til
Bandaríkjanna. 53% aðspurðra
sögðu að Barak hefði umboð til að
fallast á tilslakanir í viðræðunum við
Palestínumenn en 44% vora á önd-
verðum meiði. Skekkjumörkin voru
4,5%.
Bill Clinton sagði í gærkvöld að
hann teldi að Barak og Arafat hefðu
báðir „kjark“ til að ná friðarsam-
komulagi á fundinum. Barak sagði í
sjónvarpsávarpi á sunnudag að ef
samkomulag næðist yrði það borið
undir þjóðaratkvæði. Helsti ráðgjafi
hans í öryggismálum spáði því að
friðarsamkomulagið yrði þá sam-
þykkt með miklum meirihluta at-
kvæða.
Hröð útbreiðsla alnæmis í Afríku rædd á alþjóðlegri ráðstefnu
Aukin aðstoð við Botswana
Morgunblaðið/Þorkell
Óeirðir á Norður-írlandi
TIL átaka kom milli lögreglu-
manna og mótmælenda í bænum
Portadown á Norður-frlandi í gær
þegar sambandssinnar lokuðu göt-
um í borgum og bæjum í héraðinu
með vegatálmum til að mótmæla
banni við aðalgöngu Óraníuregl-
unnar. Talsmaður lögreglunnar
sagði að lögreglumenn hefðu orðið
fyrir grjótkasti og þurft að beita
kylfum þegar þeir hefðu reynt að
koma í veg fyrir að mótmælendur
stöðvuðu umferðina á götum bæjar-
ins. Lögreglan beitti síðan háþrýsti-
dælum til að dæla vatni á óeirða-
seggina.
Hundruð mótmælenda komu upp
vegatálmum í Belfast og helstu göt-
ur borgarinnar voru mannlausar.
Börn og unglingar kveikja hér í
rusli á götu í miðborginni til að
hindra umferð.
■ Mikil spenna/26
Durban. AP.
TILKYNNT var í gær að styrkt-
arsjóður, sem Bill Gates, stofnandi
hugbúnaðarfyrirtækisins Micro-
soft, og kona hans komu á fót,
hygðist veita 50 milljónir dala,
andvirði 3,9 milljarða króna, til að
bæta heilbrigðisþjónustu í
Botswana.
Greint var frá styrkveitingunni
eftir setningu 13. alþjóðlegu al-
næmisráðstefnunnar í Durban í
Suður-Afríku á sunnudag. Þar
hafði Festus Mogae, forseti
Botswana, sagt íbúa landsins í út-
rýmingarhættu tækist ekki að
draga úr hraðri útbreiðslu alnæm-
is í landinu. Útbreiðsla alnæmis í
Botswana er nú slík að þriðji hver
fullvaxta íbúi greinist með veiruna
og benda útreikningar til að tveir
af hverjum þremur 15 ára drengj-
um í landinu eigi eftir að verða
sjúkdómnum að bráð.
Ibúar Botswana ná nú þegar
ekki nema um 39 ára aldri að með-
altali í stað 71 árs aldurs eins og
áður hafði verið gert ráð fyrir.
Talið er að meðalævi íbúanna verði
29 ár að tíu árum liðnum.
Lyfjafyrirtækið Merck og Co.
tilkynnti enn fremur í gær að það
hygðist fylgja gjöf styrktarsjóðs-
ins eftir með lyfjagjöfum. Lyfja-
fyrirtæki á Vesturlöndum hafa oft
verið gagnrýnd fyrir ósveigjan-
leika gagnvart efnalitlum ríkjum
Afríku.
■ Óttast fólksfækkun/ 27
MORCUNBLAÐIS11. JÚLÍ 2000