Morgunblaðið - 11.07.2000, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Arnaldur
Húseigendur á Suðurlandi fá skaðabætur vegna skjálft-
anna samkvæmt gildandi brunabótamati
Menn byggja ekki
nvtt fyrir gamalt
BRUNABÖTAMAT í húseignum
er frá ýmsum tímum og fram-
kvæmt af fjölda matsmanna. Það
er því eðlilegt að ekki sé fullt sam-
ræmi á milli sambærilegra hús-
eigna, segir í tilkynningu frá Fast-
eignamati ríkisins (FMR). Engu að
síður er það brunabótamat sem
skráð er hjá FMR sú upphæð sem
bætur frá Viðlagatryggingu ís-
lands eru miðaðar við sem há-
marksbætur og fá þeir húseigend-
ur sem misstu hús sín í Suður-
landsskjálftunum bætur sam-
kvæmt því.
Að sögn Freys Jóhannessonar,
matsstjóra Viðlagatryggingar, hafa
mjög fáir tjónþolar haft samband
við Viðlagatryggingu og lýst
áhyggjum af of lágu mati húseigna
sinna. Sagði Freyr það vera Ijóst,
að fyrir gömul og úr sér gengin
hús fengjust aldrei bætur sem um
ný hús væri að ræða, enda segir í
lögum um brunatryggingar að
brunabótamat húseignar skuli mið-
ast við byggingarkostnað að teknu
tilliti til aldurs, slits, viðhalds og
ástands eignar að öðru leyti. Sagð-
ist Freyr telja að mjög fá hús á
Suðurlandi, ef einhver, væru
tryggð undir markaðsverði þeirra
og því fengju eigendur þeirra und-
antekningarlaust fyllilega viðun-
andi bætur fyrir hús sín og jafnvel
bætur sem væru þó nokkuð hærri
en markaðsverð eignarinnar.
Benti Freyr á að hingað til
hefðu tryggingalögin verið gagn-
rýnd fyrir það, að gömul og úr sér
gengin hús hefðu verið metin of
hátt og eigendur þeirra hefðu því
borgað allt of há tryggingaiðgjöld
miðað við verðmæti eignarinnar.
Þar sem eignir hefðu verið afskrif-
aðar hefðu húseigendur hins vegar
verið mun sáttari hingað til.
Vinna að nýju mati
Fasteignamat ríkisins vinnur nú
að undirbúningi þess að færa
brunabótamat húseigna um land
allt sem næst endurbyggingar-
kostnaði. Segir í tilkynningu frá
stofnuninni að þessari aðgerð sé
ætlað að auka tryggingaöryggi eig-
enda fasteigna og tryggingafélaga.
Stefnt er á að nýju mati verði lokið
fyrir útgáfu nýrrar fasteignamats-
skrár 1. desember næstkomandi.
Við endurnýjun matsins nýtist
FMR við upplýsingatækni, þannig
að þær upplýsingar sem til eru um
hvert hús, svo sem um stærð,
byggingarefni og byggingarár eru
samkeyrðar með upplýsingum um
kostnað byggingarefna og bygg-
ingarhluta. Þannig er það liðin tíð
að matsmenn fari til að skoða
hvert og eitt hús, heldur er matið
unnið alfarið úr þeim upplýsingum
sem til eru í gagnagrunnum Fast-
eignamats ríkisins.
Að sögn Hauks Ingibergssonar,
forstjóra FMR, hefur brunabóta-
mat húseigna verið framkvæmt á
ólíkan hátt af mismunandi mats-
mönnum í gegnum tíðina og því
eðlilegt að ekki sé alls staðar fullt
samræmf á milli sambærilegra
húseigna. Segir Haukur að það
misræmi sem kemur fram í húsum
á jarðskjálftasvæðinu á Suður-
landi, á brunabótamati og endur-
stofnverði, hvetji FMR enn frekar
til að leita nýrra leiða til samræm-
ingar matsfjárhæða.
Næpan snyrt
VERIÐ er að lífga aðeins upp á útlit
Næpunnar við Skálholtsstíg 7 í
Reykjavík. Húsið á sér ríka sögu en
þar bjó Magnús Stephensen lands-
höfðingi um tíma, en framan af öld-
inni gekk húsið undir nafninu
Landshöfðingjahúsið.
Borgarfjörður
Þrennt flutt
með þyrlu
eftir árekstur
ÞRENNT var flutt með þyrlu Land-
helgisgæslunnar á Landspítalann í
Fossvogi eftir harðan árekstur við
Litla-Skarð í Borgarfirði skömmu
eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags.
Samkvæmt upplýsingum frá Land-
spítalanum er enginn í lífshættu og
hlaut fólkið ekki alvarleg meiðsl.
Vöruflutningabíll og fólksbíll
skullu saman með þeim afleiðingum
að þrír af fjórum farþegum fólksbíls-
ins slösuðust, þar af einn alvarlega,
og þurfti að bjarga farþega í fram-
sæti úr bílnum með klippum. Öku-
maður vöruflutningabílsins slapp
ómeiddur, en bíllinn skemmdist tals-
vert. Fólksbíllinn er ónýtur.
Gervitimgla-
sendar festir á
steypireyði
Hcllissandur. Morgunblaðið.
LEIÐANGUR var farinn á vegum
Hafrannsóknarstofnunar vikuna
30. júní til 7. júlí til rannsóknar á
steypireyði og fleiri hvalategund-
um. Leiðangurinn hafði bækistöð á
Hellissandi og Rifi og naut aðstoð-
ar frá Slysavarnardeildinni Björgu
á Hellissandi og var farkosturinn í
leiðangrinum gúmmíbjörgunarbát-
ur deildarinnar.
Þátttakendur í leiðangrinum
voru leiðangursstjórinn Gísli A.
Víkingsson og Birgir Stefánsson
frá Hafrannsóknarstofnun, Mikkel
V. Jenssen frá Pinngortitaleriffik,
Rannsóknarstofnun náttúruauð-
linda Grænlands og Danmerkur og
Richard Sears frá MICS í Kanada.
Að sögn Gísla er aðalmarkmið
leiðangursins að kanna stofngerð,
far og kynblöndun steypireiðar á
Þjónusta númer eitt!
Norður Atlantshafi. Teknar eru
ljósmyndir og húðsýni til þess að
greina einstaka steypireyði. Um 50
steypireyðir eru þekktir af ljós-
myndum hér við land og 300 við
Kanada. Ekki hafa sést hér við
land sömu hvalir og þekktir eru
við Kanada. Vetrarstöðvar steypi-
reyðar eru óþekktar.
Veðurfar var hagstætt meðan á
leiðangrinum stóð og tókst leið-
angursmönnum að komast á hvala-
slóð alla dagana. Þeir komu gervi-
tunglasendum í þrjá steypireyði
vestur af Snæfellsjökli og verður
Þátttakendur í leiðangrinum, Birgir Stefánsson. Gísli A. Víkingsson,
Richard Sears og Mikkel V. Jenssen.
nú hægt að fylgjast með ferðum og
köfunarhegðun dýranna, m.a. að fá
upplýsingar um hvar þau halda sig
á veturna.
Málafjöldi eykst á ný hjá yfírskattanefnd
550 kærur vegna
hlutabréfakaupa
Til sölu Toyota Avensis
Wagon. Nýskráður
30.07.1999, 2000 vél, 5 gíra,
svartur, ekinn 8.000 km, ál-
felgur. Ásett verð 1.990.000.
Nánari uppl. hjá Bílaþingi
Heklu, sími 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16 .
BÍLAÞINGfEKLU
Nmie-i c-ÍH í nohPu/yi bílvrn/
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
YFIRSKATTANEFND hefur
fengið að minnsta kosti 550 kærur
vegna ágreinings um skattlagningu
starfsfólks hlutafélaga vegna kaupa
þess á hlutabréfum á sérstökum
kjörum. Eru þetta 60% móttekinna
mála hjá nefndinni á þessu ári og nú
stefnir í að fjöldi mála hjá yfirskatt-
anefnd verði meiri en verið hefur
undanfarin ár.
Við skráningu hlutafélaga á al-
mennan hlutabréfamarkað og
hlutafjárútboð hefur starfsfólki í
sumum tilvikum verið boðið að
kaupa hlutabréf á sérstökum kjör-
um, oft á lægra verði en almenningi
hefur gefist kostur á í almennum
útboðum. Á þetta meðal annars við
um ríkisviðskiptabankana, Lands-
banka íslands og Búnaðarbanka ís-
lands. Skattstjórar hafa talið undir-
verðlagningu hlutabréfanna til
skattskyldra tekna og hafa risið
mörg mál vegna þeirrar afstöðu.
Skattgreiðendur geta skotið
úrskurðum skattstjóra til yfir-
skattanefndar. Jónína B. Jónas-
dóttir, varaformaður nefndarinnar,
staðfestir að borist hafi að minnsta
kosti 550 slík mál það sem af er ári.
Málin bíða afgreiðslu nefndarinnar
og verða afgreidd hvert fyrir sig en
þó væntanlega á svipuðum tíma, að
sögn Jónínu.
Afgreiðslutími hefur styst
Yfirskattanefnd hefur fengið 932
mál það sem af er þessu ári. Eru
það fleiri kærur en undanfarin ár.
Fram til þessa hefur smám saman
dregið úr málafjölda fyrir nefnd-
inni, að því er fram kemur í árs-
skýrslu yfirskattanefnar fyrir síð-
asta ár. Flest voru málin árið 1990,
1445, þau voru um 1000 á árunum
1995 til 1997 en voru komin niður í
614 á síðasta ári og hafa aldrei verið
svo fá. í ársbyrjun átti yfirskatta-
nefnd eftir að afgreiða 326 mál.
Hún hefur afgreitt 320 mál frá ára-
mótum og eru því nú tæplega 940
mál hjá nefndinni.
Yfirskattanefnd ber samkvæmt
lögum að úrskurða um mál innan
sex mánaða frá því ríkisskattstjóri
hefur lokið athugun sinni á kæru.
Það hefur ekki alltaf tekist. Á síð-
asta ári var meðaltími máls fyrir
nefndinni um það bil 5,5 mánuðir
sem er um það bil helmingi styttri
tími en á árunum 1992 til 1997.
Vegna fjölda mála vegna hluta-
bréfakaupa stefnir í verulega aukn-
ingu á nýjan leik. Jónína vonast þó
til þess að það verði ekki til að af-
greiðslutími lengist aftur.