Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 6

Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 6
6 ÞRIÐJLiL)AGUKU.JULl 2IUUU FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fyrsta starfsári Skógar- sjóðsins lokið FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grnnsson, afhenti þcim viðurkenn- ingarskjöl sem hæstu styrki hlutu úr Skdgarsjóði á Bessastöðuin í gær. Nú er lokið uppgjöri fyrsta starfsárs Skógarsjóðsins, en hann var stofnaður / maí í fyrra. Hann aflar fjár með frjálsum framlögum almcnnings og ver aflafé sínu til skógræktar og rannsókna á því sviði. A síðastliðnu ári tóku um 100.000 manns þátt 1 söfnunum Skdgarsjóðsins og veittir hafa ver- ið styrkir fyrir 11 milljónir króna. Stærstu styrkþegar ársins voru Markús Runólfsson, hönnuður tijáplöntunarvélar, Skógræktarfé- lag Rangæinga og Ragnhildur Ragnarsdóttir, eigandi jarðarinnar Syðri-Rauðalæks í Holtum. Þau Litlar verðsveiflur á ólöglegum vímuefnum SAMKVÆMT könnun sem SÁÁ gerði meðal sjúklinga sinna í júní- mánuði eru litlar breytingar á verðlagi ólöglegra fíkniefna um þessar mundir. Þykir þetta benda til þess, að framboð á fíkniefna- markaðnum haldist jafnt og stöð- ugt. Könnunin fer þannig fram, að þeir sjúklingar sem innritast á Sjúkrahúsið Vog á könnunardegi gefa upp vímuefnakaup síðustu tveggja vikna. Fara slíkar kannan- ir fram mánaðarlega og gefa með- ferðar- og forvarnaraðilum mikil- vægar upplýsingar um þróun mála á vímuefnamarkaði. Sem dæmi um litlar verðsveiflur vímuefna má nefna að meðaltals- verð á einum skammti af e-töflunni hefur hækkað um 50 krónur frá því í maí; kostaði þá 2.900 krónur en var komið í 2.950 krónur í júní. Verð á kókaínskammti hefur einnig hækkað lítillega, eða úr 10.250 krónum í 10.290 krónur en verð á amfetamíni helst stöðugt. Verð á flestum efnum hefur hins vegar hækkað frá því í apríl, þegar það var sem lægst. ------♦-♦-«----- Digranesprestakall Séra Magnús B. Björnsson valinn SÉRA Magnús B. Bjömsson hefur verið valinn til að gegna embætti prests í Digranesprestakalli. Val- nefnd komst að einróma niðurstöðu sl. sunnudagskvöld um að leggja til við biskup að sr. Magnús verði valinn en umsækjendur voru sex. Auk Magnúsar sóttu fimm guð- fræðingar um prestsembættið en sóknarprestur í Digranesprestakalli er sr. Gunnar Sigurjónsson. Um- sækjendur voru guðfræðingarnir Auður Inga Einarsdóttir, Elínborg Gísladóttir, Guðmunda Inga Gunn- arsdóttir, Petrína Mjöll Jóhannes- dóttir og Sveinbjörg Pálsdóttir. ---------------- „Vinningnr- inn fór á góðan stað“ ÞRIGGJA bama fjölskylda í Reykjavík datt í lukkupottinn um helgina þegar hún vann um 30 millj- ónir króna í laugardagslottóinu, en potturinn var sjöfaldur. Vinningur- inn kemur sér afar vel fyrir fjöl- skylduna og gerir henni m.a. kleift að finna sér húsnæði við hæfí, en eitt bamanna á við fötlun að stríða. í fréttatilkynningu frá íslenskri getspá segir að fjölskyldan hafi gefið sig fram á skrifstofu fyrirtækisins í morgun með vinningsmiðann, sem var 10 raða sjálfvalsmiði með jóker og kostaði 580 krónur. „Vinningurinn fór á góðan stað að þessu sinni þar sem fjölskyldan hef- ur verið að vinna í þvi að stækka við sig húsnæði en hún býr í 80 fermetra íbúð og farið að þrengja að. Eitt barnanna á við fötlun að stríða þann- ig að þessi vinningur mun gera fjöl- skyldunni kleift að finna húsnæði við hæfi,“ segir í tilkynningunni. Þar segir að fjölskyldan taki oft þátt í lottóinu. Um síðustu helgi þeg- ar fyrsti vinningur vai- sexfaldur hafi heimilisfaðirinn keypt tvo miða sem enginn vinningur hafi komið á. Hafi eiginkonan haft á orði að þessum peningum hefði ekki verið vel varið. Eiginmaðurinn hafi þó ekki látið segjast og keypt aftur tvo miða fyrir sjöfalda pottinn. tóku við viðurkenningum frá for- seta íslands, Ólafi Ragnari Gríms- syni, sem er verndari sjóðsins. Frá vinstri á myndinni eru: Ragnheiður Ragnarsdóttir, Mark- ús Runólfsson, Sigurbjörg EIi- marsdóttir, sem tók við viðurkenn- ingu fyrir hönd Skógræktarfélags Morgunblaðið/Árni Sæberg Rangæinga, Þorvaldur Þorvalds- son, stjórnarmaður í Skógarsjóði, og Ólafur Ragnar Grímsson for- seti. Milljón króna styrkur veittur til þróunar trjáplöntunarválar Markúsarplóg- urinn ryður sér til rúms MARKÚS Runólfsson hlaut í gær einnar milljónar króna styrk úr Skógarsjóði til hönnunar og smíði trjáplöntunarvélar. Markús segist hafa fengið hugmynd að vélinni, sem gjarnan er kölluð Markúsar- plógur, fyrir nokkuð mörgum ár- um. „En hugmyndin komst fyrst í framkvæmd í ágúst 1998,“ segir hann. Heildarkostnaður vegna vélar- innar nemur ekki undir fjórum milljónum, en Markús hefur feng- ið rúmlega 3 milljónir í styrki. Af- ganginn hefur hann lagt til sjálfur. Hann hefur stofnað fyrirtækið Trjáplöntur ehf., sem selur gróð- ursetningarþjónustu með hjálp vélarinnar. Markús segist hafa að mestu leyti hannað tækið sjálfur, utan að hafa fengið aðstoð smiða við út- færslur á ýmsum atriðum. Vélin er smíðuð í Vélsmiðjunni á Hvols- velli. Gróðursetur betur en mannshöndin Trjáplöntunarvélin virkar þann- ig að hún gerir plógfar í jörðina og ýtir grassverðinum í burtu. Þá jarðvinnur hún í plógfarinu og gerir rauf ofan í farið. Þangað er plöntunni smeygt. Vélin gefur áburð, sem lendir undir plöntunni. Síðan kemur svokallaður vökva- rótur, sem rótar jarðvegi að. Vélin getur sáð lúpínu, þannig að lúpína komi á milli plantnanna. I mjög snauðum jarðvegi er það hentugt, þar sem lúpínan skapar skjól og gefur næringu. Markús segir að einn aðalkostur vélarinnar sé hversu vel hún gróð- ursetur. „Hún kemur plöntunni í skjól, jarðvinnur og setur áburð undir hana,“ segir hann. Annar höfuðkostur er afköst, en vélin af- kastar yfir 1.000 plöntum á klukkustund við þokkalegar að- stæður. Maður sem vinnur við gróðursetningu í akkorði getur náð 1-2.000 plöntum á dag. Hann jarðvinnur þó ekki, né gerir hann rásir fyrir plönturnar eða ber á. Þar hefur vélin einnig yfirhöndina. Nú eru til tvö eintök af Markús- arplógi hér á landi, en eftir því sem Markús kemst næst er hún ein sinnar tegundar í heiminum. „Ég veit reyndar um vélar til gróðursetningar erlendis, en þá er það í unnið land,“ segir hann. Vélin er 5-600 kíló og því þarf nokkuð kröftuga dráttarvél til að draga hana. Hún þarf að vera yfir 70 hestöfl og vera með framdrifi. Útlendingar hafa hrifist af vélinni Markús er kennari að mennt og býr á Hvolsvelli. Hann hætti kennslu árið 1993 og síðan hefur hann helgað sig þessum störfum. Trjárækt hefur verið áhugamál hans í gegnum tíðina og er hann formaður Skógi’æktarfélags Rangæinga. Þessa stundina er fyrirtæki Markúsar að gróðursetja í gamla lúpínuakra í Gunnarsholti. Þar eru báðar vélar í notkun. Alls verða, segir Markús, settar niður um 200 þúsund plöntur þar í sumar, á 80 hekturum lands. Að sögn Markúsar hafa nokkrir útlendingar komið til að skoða trjáplöntunarvélina og verið mjög hrifnir, en þau mál eru ekki komin á það stig að pantanir liggi fyrir. „Það er auðvitað ljóst að hægt er að nota tækið á ýmsum stöðum á jörðinni," segir Markús Runólfs- son. Markús Runólfsson við stjórnvölinn í trjáplöntunarvél sinni sem kölluð er Markúsarplógur. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.