Morgunblaðið - 11.07.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 11
Reykjanestá og nágrenni
í umhverfísmat
Hitaveita Suður-
nesja kærir úrskurð
skipulagsstj óra
HITAVEITA Suðurnesja hefur
kært úrskurð skipulagsstjóra um
nýtingu jarðhita í nágrenni salt-
verksmiðjunnar á Reykjanesi.
Að sögn Júlíusar Jónssonar,
forstjóra Hitaveitu Suðurnesja,
fór svæðið í umhverfísmat og í
kjölfarið voru gerðar ákveðnar
takmarkanir á því hvers konar
vinnsla megi fara þar fram.
„Jarðhiti hefur verið nýttur
þarna í 30 ár. Við vildum skapa
aðstæður fyrir frekari iðnað á
svæðinu en áður vildum við vera
vissir um að nýta megi jarðhit-
ann enn frekar. Með úrskurði
skipulagsstjóra er verulega
þrengt að okkur og allar fram-
kvæmdir gerðar óhagkvæmari,"
segir Júlíus.
Oddur Sigurðsson jarðfræð-
ingur segir að fara þurfi afskap-
lega varlega í allt rask á þessu
svæði. „Reykjanestáin og um-
hverfi hennar er í raun einstakur
staður á jörðinni. Þetta er einn
af fáum stöðum á yfirborði jarð-
ar, þar sem úthafshryggur skríð-
ur á land og skýrasta og besta
dæmið um slíkt. Þarna getur
fólk komist í námunda við þetta
fyrirbrigði sem er gríðarlega
mikilvægt fyrir skilning á jörð-
inni,“ segir Oddur.
Úthafshryggir verða til þegar
jarðflekar reka í sundur og gos-
belti myndast. Kerfi af úthafs-
hryggjum liggur um alla jörðina
en nánast alls staðar eru þeir á
hafsbotni.
Morgunblaðið/Kristinn
Rennt
fyrir
laxí
Elliða-
ám
VEIÐIMENN búsettir
á höfuðborgarsvæðinu
þurfa ekki að fara
langt til að svala veiði-
þorstanum því ein af
fjölrnörgum laxveiði-
ám landsins rennur í
gegnum borgina
miðja. Veiðin í Elliða-
ám hófst þann 15. júní
og í gær höfðu 157
laxar verið dregnir á
land.
Ekki fylgir það sög-
unni hvernig veiðin
gekk hjá þessum
ágætu mönnum. Ann-
ar þeirra stendur ein-
beittur með stöngina
við árbakkann en hinn
virðist hafa fengið nóg
í bili og ákveðið að
taka sér stutt kaffihlé.
Sýningar- og
reynsluakstursbílar
ACTfíPI Ælflfllflll
w I lm mmMmm Im Im %3 mJ
VFRÐTI
V Ih ll ■■ •
FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ
Þeir sem hafa hraðar hendur geta nú tryggt sér bíl af
bestu gerð á enn lægra verði. í nokkra daga seljum við
með góðum afslætti nokkra bíla sem notaðir hafa verið
á sýningum og í reynsluakstri.
Fyrstir koma, fyrstir fá. Ekki missa af þessu tækifæri.
RENAULT HYUnDni
f-y ' ''
-
|
ú :
■ ■ ■
■
BfLAR AF BESTU GERÐ