Morgunblaðið - 11.07.2000, Page 14

Morgunblaðið - 11.07.2000, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI FMN fær vottun fyrir gæðaeftirlit Ljósmynd/Kristján Kristjánsson Valdimar Brynjólfsson, framkvæmdasljóri Heiibrigðiseftirlits Norður- lands eystra, til vinstri á myndinni, afhendir Gunnari Sigtryggssyni, framkvæmdastjóra FMN, vottun vegna innra gæðaeftirlits sem fyrir- tækið hefur tekið í notkun. FLUTNINGAMIÐSTÖÐ Norður- lands hefur fengið vottun frá Heil- brigðiseftirliti Norðurlands eystra vegna innra gæðaeftirlits, sem fyrir- tækið hefur tekið í gagnið. Gæðaeft- irlitið er samkvæmt Gámes-stuðli, sem er reglugerð fyrir matvælafyr- irtæki. FMN er skilgreint sem slíkt því að fyrirtækið flytur matvöru og nær því eftirlit til hitastigs kæla í bílum og vöruhúsum fyrirtækisins, auk þess sem mismunandi matvör- um skal haldið aðskildum. Það var Valdimar Brynjólfsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits- ins, sem afhenti Gunnari Sigtryggs- syni, framkvæmdastjóra FMN, viðurkenningarskjal sem vottar gæðaeftirlit fyrirtækisins. „Innra eftirlit er kerfi sem ætlað er að tryggja gæði, hollustu og ör- yggi matvæla fyi-ir neytendur. Þetta er kerfi sem öllum matvælafyrir- tækjum er skylt að koma upp, en FMN er skilgreint sem slíkt vegna þess að fyrirtækið flytur matvæli á milli staða,“ sagði Valdimar. Hann sagði að mánuður væri síðan FMN hefði sett kerfíð í gang og nú væri komin góð reynsla á virkni þess. Svala Rún Sigurðardóttir, gæða- eftirlitsstjóri hjá Landflutningum- Samskipum, sagði að unnið væri að því að koma upp slíku eftirliti í öll- um vöruhúsum fyrirtækisins. Skipulagsbreyt- ingar á mjólkur- iðnaðarsviði KEA Átta millistjórnendum sagt upp KAUPFÉLAG Eyfírðinga keypti alla hluti í MSKÞ ehf. á síðasta ári og stofnaði MSKEA ehf. um ára- mót. A þessu ári munu mjólkur- samlögin á Húsavík og Akureyri, ásamt félagi í eigu mjólkurfram- leiðenda, Grönum ehf., renna sam- an í eitt öflugt sameinað fyrirtæki. I kjölfarið hefur verið ákveðið að segja upp millistjórnendum í báð- um mjólkursamlögunum, samtals 8 manns. Agúst Þorbjörnsson hefur verið settur framkvæmdastjóri samein- aðs fyrirtækis en gengið verður frá ráðningu annarra stjórnenda í næsta mánuði. Ágúst sagði að þá yrði kynnt nýtt stjórnskipulag fyr- irtækisins og að hugsanlega gæti þá orðið breyting á starfssviði mjólkursamlagsstjóranna tveggja, Hólmgeirs Karlssonar á Akureyri og Hlífars Karlssonar á Húsavík. Ágúst sagði Hólmgeir taka yfír vöruþróunar-, nýsköpunar- og markaðsmál en hann yrði jafn- framt staðgengill framkvæmda- stjóra. Sameiginleg velta 2,2 milljarðar króna Markmiðið með þessum skipu- lagsbreytingum á mjólkuriðnaðar- sviði KEA er að styrkja stoðir mjólkurframleiðslu og mjólkuriðn- aðar á svæðinu. Sameiginleg velta hins nýja fyrirtækis er rétt um 2,2 milljarðar króna. Alls vinna tæplega 100 manns í mjólkursamlögunum á Akureyri og Húsavík og sagði Ágúst að ekki lægi fyrir á þessari stundu hvort starfsfólki myndi fækka í kjölfar sameiningarinnar. Hugsanlega yrði um að ræða einhverjar breyt- ingar á verkaskiptingu svæðanna en að þær breytingar yrðu þá kynntar í næsta mánuði. Utboð nýrrar heimavistar við MA og VMA Hefðbundin útboðsleið valin AKVEÐIÐ hefur verið í stjórn rekstarfélagsins Lundar að velja hefðbundna útboðsleið í útboði fyr- ir nýja heimavistarbyggingu fram- haldsskólanna á Akureyri. Að sögn Jóns Ellerts Lárussonar mun Arkitekta- og verkfræðistofa Hauks ehf. sjá um hönnun og von- ast er til að verkið verði boðið út í janúar. Jón Ellert sagði að eftir að hafa yfirfarið kosti og galla útboðsleiða hafi venjubundið útboð orðið fyrir valinu. „Okkur fannst of margt sem þurfti að skoða betur ef hinar leiðirnar hefðu orðið fyrir valinu. Þar má nefna staðsetningu og stærð sem við hefðum þurft að ákveða á skömmum tíma“, sagði Jón Ellert. Hann sagði einnig að forsendur væru breyttar frá því að rætt var um heimavist eingöngu fyrir MA, nú væri Verkmennta- skólinn einnig aðili að þessari nýju byggingu. „Við hefðum ekki haft nægan tíma til að velja hinar leið- irnir, alútboð og einkaframkvæmd. Það er almennt talið að hinar leið- irnir séu betri þegar um síendur- tekin verkefni er að ræða. Þegar hins vegar er byrjað frá grunni þá er gamla aðferðin betri en þar er um meiri hönnun að ræða,“ sagði Jón Ellert. Viðhorf til framhaldsskóla við utanverðan Eyjaförð Vilji foreldra ótvírætt jákvæður NIÐURSTÓÐUR könnunar sem Rannsóknastofnun Háskólans gerði íyrir starfshóp á vegum bæjarstjóma Dalvíkurbyggðar og Ólafsfjarðar á viðhorfum foreldra og unglinga til stofnunar lítils framhaldsskóla á svæðinu liggja nú fyrir. Að sögn Ósk- ars Þórs Sigurbjömssonar skóla- stjóra í Ólafsfírði, sem á sæti í starfs- hópnum, komu niðurstöðumar þeim ekld á óvart. Milli 80 og 90% foreldra vom hlynnt slíkri hugmynd en um 50% nemenda lýstu yfir áhuga á að nýta sér skólann. „Þetta er keimlíkt reynslu okkar Ólafsfirðinga á meðan við rákum okkar framhaldsdeild. Þá var vilji foreldranna ætíð sá að ungl- ingarnir tækju þetta fyrsta ár sem í boði var á staðnum, töldu það góðan kost félags- og kostnaðarlega séð. Unglingamir vom aftur á móti hlynntari því að fara í stærri skóla þar sem hugsanlega væri meira líf og fjör. Þegar á hólminn var komið vom krakkamir þó ósköp sátt við það að vera heima. Ég held því líka að af- staða unglinganna kynni að breytast þegar eitthvað væri í hendi, þ.e. ef hér væri kominn framhaldsskóli á staðn- um sem raunvemlegur valkostur. Ef til þess er litið finnst mér bara gott að helmingur unglinganna hafi lýst yfir áhuga á stofnun framhaldsskóla hér á svæðinu," sagði Óskar Þór. Óskar Þór sagði að þrátt fyrir að innritun í sjávarútvegs- og fram- haldsdeildina á Dalvík hefði ekki ver- ið eftir væntingum þá væri það Ijóst að áfram yrði unnið í þessum málum á svæðinu. „Það þarf að vinna málinu traust, skapa gmndvöll fyrir fram- haldsskóla á svæðinu og þá á ég von á því að honum verði vel tekið. Það hlýt- ur að vera akkur íyrir þessi sveitar- félög að reka nám í heimabyggð leng- ur en út 10.bekk,“ sagði Óskar Þór. Hann sagði að nefndin væri enn að fara yfir niðurstöður úr skoðanakönn- uninni og myndi skila áhti sinu á næstu dögum. Áfram yrði síðan unnið í málinu í vetur. Skráðu húsnæðið þitt hjá Leigulistanum þér að kostnaðariausu. Með aðeins einu símtali er húsnæðið þitt komið á skrá hjá okkur og þar með ert þú komin(n) í samband við fjölda leigjenda. Skráðu íbúðina núna áður en hún losnar og komdu í veg fyrir að hún standi auð og arðlaus. Skráning í síma 511-1600 WIGULISTINN LEIGUMIÐLUN Skipholti 50B, • 105 Reykjavík Styttist í nýju Hríseyj- arferjuna „NÝJA Hríseyjarferjan ætti að vera komin til Hríseyjar einhvern tímann á fjölskylduhátíðinni," sagði Einar Hermannsson, verk- efnisstjóri hjá Vegagerðinni, en fjölskylduhátíðin er um komandi helgi. Að hans sögn eru menn bjartsýnir á að ferjunni verði siglt norður í land um helgina, allar prófanir á búnaði hafi gengið eins og í sögu og því ætti ekkert að tefja afhendinguna frekar. „Skrúfubúnaðurinn hefur skilað því sem af honum var vænst og jafnvel meira en það ef maður mið- ar við þann búnað sem við skiluð- um fyrr á árinu,“ sagði Einar. Hann sagði reyndar að skrúfurnar næðu ekki alveg fullum gangi. „Það er hins vegar auðleyst, minniháttar vandamál, þar eð allt annað gengur eins og klukka. Þetta er eitthvað sem verður lagað síðar, við viljum alla vega ekki tefja afhendingu ferjunnar fyrir þetta lítilræði, nóg er víst komið,“ sagði Einar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.