Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Jón G Guðjónsson Verið að binda í rúllur á Melum. Heyskapur hafinn í Arneshreppi á Ströndum Árneshreppi - Sláttur hófst hér í sveit nú 8. júlí og er það óvenju- snemmt hér um slóðir. Spretta er mjög misjöfn, en mjög þurrt hefur verið að undanförnu. Allt er sett í rúllur eins og undanfarin þrjú til fjögur ár. Að þessu sinni byrjuðu bændur á Melum og í Bæ við Trékyllisvík heyskap. Ungir sem eldri gestir á fjölskylduhátíðinni spiluðu knattspyrnu af hjartans lyst og sáust þarna ágætis tilþrif. Morgunblaðið/Kristján Setið og spjallað yfir kaffibolla í stóru tjaldi sem kom- ið hafði verið upp á svæðinu. Líf ogfjör á Reykja- hátíð ÁRLEG fjölskylduhátíð starfs- manna Akureyrarbæjar og fjöl- skyldna þeirra var haldin í blíð- skaparveðri á Reylqum í Fnjóskadai nýlega. Reykir I og II eru í eigu Akureyrarbæjar og Hita- og vatnsveitu Akureyrar. Þar er jarðhitasvæði, heitur lækur til að busla í og ágætis aðstaða tii úti- vistar. Gestir á fjölskylduhátíðinni gerðu sér ýmislegt til skemmtunar en hápunkturinn var á laugar- dagskvöldið. Þá var kveikt í varð- eldi en efni í bálkostinn er safnað í Reykjaskógi, sem tilheyrir landar- eigninni. Hátíðin var nokkuð fjölmenn en talið er að um 80-100 manns hafi verið á svæðinu þegar mest var og skemmtu menn sér hið besta. Yngsta fólkið lék sér í heyinu og skemmtilegast fannst þeim að dreifa því aðeins um svæðið. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Frá stofhfundi Hollvinasamtaka Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Hollvinasamtök Fjórðungssiúkra- hússins í Neskaupstað stofnuð Mokveiði á sjó- stangaveiðimóti í Grímsey Neskaupstað - Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup- stað voru stofnuð fyrir nokkru. Stofnun samtakanna hefur verið í undirbúningi um tíma og undir- skriftalistar hollvina legið frammi í nokkrum byggðarlögum á Austur- landi. Alls hafa safnast um 500 nöfn á stuttum tíma og skráning stofnfé- laga og innritun er opin til loka þessa árs. Á stofnfundinum var kos- in stjórn og í henni eiga sæti: Aðal- steinn Valdimarsson, Eskifirði, Gíslunn Jóhannsdóttir, Reyðarfirði, Sigurður Rúnar Ragnarsson, Nes- kaupstað, Björg Þorvaldsdóttir, Neskaupstað og Bjöm Magnússon, Neskaupstað. Markmiðið er að styðja við og efla starfsemi Fjórðungssjúkrahússins með sem viðtækustum hætti. I lög- um um félagið segir m.a.: ,Að auka tengsl almennings við stofnunina og efla hag hennar með því að standa vörð um stofnunina og starfsemi hennar. Að veita stofnuninni fjár- hagslegan og siðferðilegan stuðning og hvatningu í ýmsum framfara- og hagsmunamálum.“ Mikilvægi sjúkrahússins fyrir fjórðunginn er augljóst en á undan- förnum árum hefur hafist endur- uppbygging sem miðar að því að gera sjúkrahúsið að sterkari stofn- un sem þjóni Austurlandi um næstu framtíð. Hollvinasamtökin munu beita sér fyrir málefnalegri um- ræðu um stöðu sjúkrahússins og starsfemi. Einnig munu þau leita fjárhagslegra leiða til að gera því kleift að starfa óhindrað allt árið en nú í sumar veðrur fæðingardeild þess lokað tímabundið í sparnaðar- skyni. Það hefur valdið almennri óánægju þar sem verðandi mæður hafa reiknað með óbreyttum að- stæðum miðað við það sem verið hefur undanfarin ár. Björn Magnússon yfirlæknir kynnti á fundinum nýjungar sem eru á döfinni í starfsemi sjúkra- hússins s.s. endurhæfingardeild sem fyrirhugað er að taki til starfa. Endurhæfingarnámskeiði fyrir hjartasjúklinga er nýlokið og stefnt er að fleiri slíkum námskeiðum. Rannsóknir á svefnerfiðleikum og öndunartruflunum í svefni eru einn- ig að fara af stað. Þá ræddi Stefán Þórarinsson, læknir á Egilsstöðum, um stöðu Fjórðungssjúkrahússins í samtengingu við Heilbrigðisstofnun Austurlands og þróun sjúkrahúss- þjónustu. Það er einmitt á vettvangi sam- takanna að upplýsa almenning um þessi mál og að kynna betur þá fjöl- þættu starfsemi sem Fjórðungs- sjúkrahúsið veitir Austfirðingum og þeim sem þurfa þjónustu á hinum ýmsu deildum þess. Á þessu stigi er nokkuð óljóst um stöðu sjúkrahúss- ins í þeirri uppstokkun sem á sér stað innan heilsugæslunnar á Aust- urlandi þar sem ný yfirstjórn er tekin við í nafni Heilbrigðisstofnun- ar Austurlands. Kom fram hjá yfir- lækninum að innlagnir á sl. þremur árum eru frá níuhundruð til eitt- þúsund og er það veruleg aukning frá því sem verið hefur á undan- förnum árum. Er því Ijóst að hér er um mikil- væga þjónustu að ræða sem sjúkra- húsið veitir og því telja félagsmenn samtakanna mjög mikilvægt að standa vörð um öfluga heilsugæslu sem þjóni öllu Austurlandi með fjöl- þættri þjónustu án þess að draga verði úr starfsemi einstakra deilda. Grímsey - Mokveiði var hjá keppend- um á innanfélagsmóti sjóstangaveiði- félags Akureyrar (SjóAk), Sólrúnar- móti, sem haldið var í Grímsey um helgina. Þetta er í annað skiptið sem slíkt mót er haldið í eyjunni en í fjórða sinn sem félagið heldur slíkt mót. Alls tóku 60 manns, 15 ára og eldri þátt í sjóstangaveiðimótinu, um tuttugu fleiri en í fyrra og að sögn Péturs Sigurðssonar, formanns SjóAk, tókst mótið gífurlega vel. Hann sagði að aflinn væri metafli í kílóum og var efsti veiðimaðurinn með 450 kíló eftir einn dag sem væri alveg frábært. Einnig fengu böm yngri en 15 ára að taka þátt og var siglt með þau um eftirmiðdaginn. „Við erum öll virkilega ánægð og sérlega glöð yfir móttökum Grímsey- inga í alla staði. Þegar við vorum að sigla að eyjunni á feijunni Sæfara kom allur bátafloti Grímseyinga á móti okkur og það lá við að maður táraðist yfir slíkum móttökum," sagði Pétur. Mikil hátíðarhöld vom eftir veið- ina. Á meðan að fólk var að landa spil- aði hljómsveitin Bahoja frá Bakka- firði niður á höfn og myndaðist mikil stemmning. Um kvöldið var svo efnt til grillveislu og var öllum í eyjunni, ungum sem öldnum, boðið til hennar. Eftir matinn fór fram verðlauna- afhending. Veitt voru verðlaun til aflahæsta skipstjórans fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið til aflahæstu félaga í SjóAk í karla- og kvennaflokki, afla- hæstu nýliða í karla- og kvennaflokki, aflahæstu bátanna og fyrir stærsta fiskinn og stærsta fiskinn sinnar teg- undar, alls um fimm tegundir. Einnig voru veitt verðlaun „Bjart- asta vonin“ en þau eru veitt eru ungl- ingum og fengu tveir slík verðlaun. Að lokum var slegið upp balli þar sem hljómsveitin Bahoja lék íyrir dansi. Mótið er styrkt af útgerðaríyrir- tækinu Sólrúnu á Árskógsströnd á Árskógssandi og KEA. Skipulagning var unnin í samvinnu við KiwanLs- klúbbinn Grím og Kvenfélagið Baug í Grímsey og var Óttar Jóhannsson forseti Gríms í forsvari. Afreksmannasjóður USAH Sigurbjörg hlaut Blönduúsi - Sigurbjörg Ólafs- dóttir frjálsíþróttakona úr Ung- mennasambandi A-Húnvetninga (USAH) hlaut í dag 100 þúsund króna styrk úr afreksmannasjóði USAH. Sigurbjörg, sem aðeins er þrettán ára, á íslandsmet í 60 metra hlaupi telpna innanhúss og á dögunum setti hún íslands- met í 80 metra grindahlaupi ut- Ólafsdóttir styrk anhúss í flokki telpna 13-14 ára á Gogga galvaska-mótinu. Auk spretthlaupa er Sigurbjörg vel liðtæk í lang- og þrístökki. _ Aðspurð sagðist Sigurbjörg Ólafsdóttir æfa allt að tíu sinnum í viku og í máli Björgvins Þórs Þórhallssonar formanns USAH, sem afhenti Sigurbjörgu styrk- inn, kom fram að auk íþróttanna þá stæði hún sig mjög vel í námi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.