Morgunblaðið - 11.07.2000, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 11.07.2000, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Lina.Net og Ericsson gera samning um ljósleiðaratenfflngu Eitt þiísund hús tengd fyrir lok ársins Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Þeir Eiríkur Bragason, framkvœmdasljóri Línu.Nets, Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Línu.Nets, Brian Madsen, framkvæmdastjóri ljósleiðaraverkefnis Ericssons, og Helgi Hjörvar, varaformaður stjórnar Línu.Nets, kynntu hið nýja samstarfsverkefni á fundi í Höfða í gær. LÍNA.NET, fjarskiptafyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, og sænska fjarskiptafyrirtækið Ericsson hafa skrifað undir samstarfssamning um ljósleiðaratengingu heimila á höfuð- borgarsvæðinu í nokkrum áföngum. Samningurinn um verkefnið, sem hljóðar upp á rúman einn milljarð íslenskra króna, var undirritaður í Reykjavík í síðustu viku og kynntur á blaðamannafundi í Höfða í gær. I máli Eiríks Bragasonar, fram- kvæmdastjóra Línu.Nets, kom fram að Ericsson myndi taka þátt í kostn- aðinum af fyrsta hluta verkefnisins. Aðspurður um hlutdeild Línu.Nets í verkefninu sagði Eiríkur að fyrir- tækið gerði sínar eigin viðskipta- áætlanir, en kostnaður á hvern og einn íbúa yrði u.þ.b. 7-9 þúsund krónur á mánuði. „Kostnaðurinn við fyrsta áfanga verkefnisins er um 100 milljónir króna. Stærsti hlutinn af þeim kostnaði eru kaup á búnaði sem Ericsson mun fjármagna." Viðræður í gangi við þjónustuaðila í fyrsta áfanga verða um eitt þús- und hús á höfuðborgarsvæðinu tengd ljósleiðarakerfinu fyrir næstu áramót. Framhaldið mun síðan ráð- ast af því hvernig eftirspurnin verð- ur og framboðið á búnaðinum sem til þarf, en samningurinn í heild kveður á um að tengingarnar verði allt að 18 þúsund talsins. Ekki hefur verið ákveðið í hvaða hverfum hús verða tengd, en þau verða innan sveitarfélaganna Seltjarnarness, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garða- bæjar og Reykjavíkur. Ljósleiðarakerfið mun byggjast á Tetra-kerfi Línu.Nets sem nú þegar nær yfir meginhluta höfuðborgar- svæðisins. Ljósleiðaratengingin tryggir 100 Mbps hámarksflutn- ingsgetu til heimilanna. Hún gefur íbúum kost á öflugu netsambandi, myndsíma, stafrænu og gagnvirku sjónvarpi, háþróuðum öryggiskerf- um, netverslun og menntunarþjón- ustu. Auk þess verður unnt að bjóða upp á fjölmarga aðra þjónustu- möguleika. Eiríkur Bragason sagði að nú væru viðræður í gangi við þá aðila sem bjóða þjónustu sem mögu- legt er að bjóða upp á í gegnum ljós- leiðarakerfið. Meðal þeirra eru sjónvarpsstöðvarnar, netþjónustu- aðilar og símafyrirtæki. í kjölfarið á þeim viðræðum mun að sögn Eiríks skýrast hversu hratt samstarfs- verkefnið mun ganga. „Markmið okkar er að tengja sem allra flesta í borginni við ljósleiðar- ann. Við setjum ekki punktinn þar heldur sjáum við þetta verkefni fyr- ir okkur í alþjóðlegu samhengi í samvinnu við Ericsson,“ sagði Ei- ríkur. Á fundinum í gær kom fram að fyrsta fjölbýlishúsið hefði nú þegar verið tengt við ljósleiðarakerfið, en það er staðsett gegnt höfuðstöðvum Línu.Nets við Skúlagötu í Reykja- vik. Allar íbúðir hússins eru tengd- ar. Ekki einblínt á neina eina tækni „Hér er á ferðinni tímamóta- samningur og verkefnið er hið stærsta sinnar tegundar í heimin- um,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Línu.Nets. Brian Madsen, framkvæmda- stjóri verkefnisins hjá Ericsson, sagði samninginn vera stórt fram- tíðarskref fyrir samningsaðila og að hann skapaði mikil tækifæri fyrir Reykvíkinga. Lína.Net var stofnað af Orku- veitu Reykjavíkur í júní á síðasta ári og voru markmið þess að veita fjarskiptafyrirtækjum þjónustu á sviði gagnaflutninga. Að sögn Ei- ríks Bragasonar hefur fyrirtækið meðal annars unnið að nettengingu heimila og þar hefur mismunandi tækni verið notuð. „Við ákváðum að einblína ekki á neina eina tækni. Meðal annars höfum við unnið að verkefnum í gagnaflutningum gegn- um rafveitukerfið og í gegnum ör- bylgjukerfi. En öflugasta tengingin og sú sem býður upp á mesta fram- tíðarmöguleika er tvímælalaust tenging með ljósleiðara," sagði Ei- ríkur. Hann bætti við að kostnaður á endatengingum hefði hríðlækkað og ný tækni hefði einfaldað uppsetn- ingu. Dómur Evrópu- dómstólsins yfir Volkswagen Spá aukinni samkeppni í sölu á nýj- um bflum MÖRG verslunarfyrirtæki í Þýska- landi eru nú alvarlega að íhuga að fara út í sölu á bílum í kjölfar dóms Evrópudómstólsins gegn Volkswag- en á dögunum en í honum var Volkswagen-fyrirtækið dæmt til greiða níutíu milljónir evra eða 6,5 milljarða íslenskra króna í sekt fyrir að hafa hindrað innflutning á ódýr- um Volkswagen-bifreiðum frá Italíu, segir í grein í Die Welt. Flestir hagfræðingar og lögfræð- ingar telja að með dóminum hafi ver- ið kippt grundvellinum undan einok- unarsölukerfi bílaframleiðendanna en stjórn Evrópusambandsins hefur tilkynnt að hún hyggist koma á auknu frelsi í sölu á nýjum bfium fyr- ir árið 2003. Spá allt að 25% verðlækkun í nýrri þýskri rannsókn sem gerð var á vegum neytendasamtakanna Stiftung Warentest kemur meðal annars fram að verð á nýjum bflum kunni að lækka um allt að fjórðung vegna aukinnar samkeppni í sölu á nýjum bflum. Gangi þessi spá eftir myndi það þýða að nýr Volkswagen Golf, sem kostar nú um 1,3 milljónir íslenskra króna í Þýskalandi, myndi lækka í um 980.000 krónur. Tals- maður verslunarkeðjunnar Markt- kauf í Þýskalandi, sem rekur 228 vöruhús og byggingarvöruverslanir, segir að keðjan muni taka upp sölu á nýjum bílum um leið og bílaframleið- endur séu tilbúnir að afhenda keðj- unni bifreiðar. Pöntunarrisinn Otto, kaffiframleiðandinn Tchibo og versl- unarkeðjan Karstadt/Quelle hafa þegar gefið út að þau vilji selja nýja bíla, bæði beint í verslunum sínum, með pöntunarlistanum og á Netinu. ------^-------T Afkoma ÚA lakari en áætlað var AFKOMA Útgerðarfélags Akureyr- inga hf. verður lakari fyrri hluta yfir- standandi árs en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í afkomuvið- vörun sem félagið hefur sent frá sér. Árið 1999 nam hagnaður fyrri hluta ársins 180 milljónum króna og veltufé frá rekstri 483 milljónum. Nú er sýnt að félagið verður rekið með töluverðu tapi á fyrri hluta ársins og veltufé frá rekstri verður einnig lak- ara en árið áður. Meginástæðurnar fyrir lakari af- komu má rekja til verulegs gengis- taps, sölutaps eigna, lækkandi af- urðaverðs og birgðasöfnunar. „Gengi krónunnar veiktist á síð- ustu dögum júnímánaðar, sem veld- ur um 160-170 milljóna króna geng- istapi á skuldum félagsins en þær eru nær allar í erlendri mynt. Veik- ing á gengi krónunnar veldur því að skuldir félagsins hækka en á móti kemur að tekjur þess hækka einnig til framtíðar. Þá hefur verð flestra afurða félagsins lækkað frá áramót- um og afurðabirgðir aukist. Enn- fremur nam sölutap við sölu loðnu- skipsins Arnarnúps ásamt veiði- heimildum í apríl sl. samtals 120 milljónum króna. Loks má nefna að tilkostnaður hefur hækkað og afla- brögð eru lakari en á sama tímabili í fyrra. Vert er að taka það fram að sölu- tap vegna eigna og gengistap lang- tímaskulda félagsins, samtals 280- 290 milljónir króna, hefur ekki áhrif á veltufé frá rekstri en það er, eins og oft hefur komið fram, sá mæli- kvarði sem félagið notar til að meta árangur sinn í rekstri," segir í af- komuviðvöruninni. I Morgunverðarfundur í Sunnusal á Hótel Sögu Föstudaginn 14. júlí 2000, kl.8:00 - 9:30 ALÞJOÐLEG VIÐSKIPTAFELÖG: STAÐA ÍSLANDS í ALÞJÓÐLEGRI SAMKEPPNI Hver er staða íslands í sívaxandi samkeppni um alþjóðlegt íjármagn? Eru London og New York stærstu aflanda (offshore) miðstöðvar heims? Hvað líöur skattasamræmingu innan ESB og OECD? Hver er reynslan af ársgömlum lögum um alþjóðleg viðskiptafélög? FRAMSOGUMENN OG RÆÐUR (Hlutveik íslands í alþjóðlegu hagkerfi) Iceland's role in the globalised economy Edmund L Bendelow, formaður Offshore institute, en þau samtök em leiðandi í að skipuleggja ráðstefhur um slík málefni víða um heim auk þess að gefa út tímaritið Shore to Shore Reynslan af lögunum um alþjóðleg viðskiptafélög Gunnar Jónsson hri., formaður starfsleyfisnelhdar um alþjóðleg viðskiptafélög Bjamfreður Olaísson hdL, fiá Tax.is ehf. Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 2.000,- Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is. VERSLUNARRAÐ ISLANDS 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.