Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 23 NEYTENDUR Matvöruverð yfírleitt lægra í Bónus á fslandi en í Færeyjum Landbúnaðarvör- ur dýrar á Islandi Verð á nokkrum tegundum matvöru hjá Bónusi á íslandi og í Færeyjum Vörutegund Saltkjöt, kr/kg Lambalæri, kr/kg Kryddsíld Hamborgarasósa Pastaslaufur Súkkulaðikex Mjólk, 1 lítri Kaffi Appelsínusafi, 2 lítrar j Verð Verð Verðmunur og | á íslandi í Færeyjum hlutfallsl. verðm. fefcfct kr/kg EKI kr/kg +57 kr +15% iái:l kr/kg tdrM kr/kg -101 kr -15% lEEIkr lESkr -4 kr -2% ISlkr EEQkr +13 kr +10% í SBDkr KQkr +24 kr +48% liþ-ÞÍ kr EEÞ1 kr +17 kr +13% ' MEl kr EQkr +15 kr +21% EEEIkr Ríglkr +15 kr +6% -44 kr -18% ÞEGAR borið er saman verð á mat- vörum í Bónus á íslandi og Bónus í Færeyjum kemur í ljós að yfírleitt er verðið lægra á íslandi nema þegar kemur að landbúnaðarvörum. Að sögn Jóhannesar Jónssonar kaup- manns í Bónus eru það landbúnaðar- vörurnar sem helst standa lágu mat- vöruverði á íslandi fyrir þrifum en innfluttar landbúnaðarvörur eins og kjöt og flestar mjólkurvörur eru ódýrari í Færeyjum. „Allt svínakjöt og kjúklingar eru til dæmis langtum ódýrari í Færeyjum því það eru vör- ur frá Danmörku. Við erum til dæm- is að seija stykkið af dönskum kjúkl- ingum á 150 krónur í Bónus í Færeyjum. Saltkjötið og lambalærið sem við seljum í Færeyjum er ís- lenskt en ástæðan fyrir því að lambalærið er mun ódýrara þar er að við erum að kaupa kílóið á 220 krónur í Bónus í Færeyjum en Bón- us á íslandi borgar 410 krónur fyrir kílóið af sama kjöti vegna þess að út- flutningsbætur eru greiddar með kjöti sem flutt er út. Astæðan fyrir því að mjólkin er dýrari í Færeyjum er að hún er færeysk en ekki innflutt frá Danmörku eins og flestar land- búnaðarvörur í Færeyjum.“ Ef landbúnaðarvörurnar eru undanskildar þá er verðið yfirleitt svipað í þessum löndum eða heldur hærra í Færeyjum en það byggist að sögn Jóhannesar á því að markaður- inn þar er ennþá minni en markað- urinn hér, laun eru hærri og orka dýrari. Færeyingar hrifnir af sviðum og skyri íslenskar vörur sem seldar eru í Bónus f Færeyjum eru aðallega iðn- aðarvörur ásamt íslensku lamba- kjöti. „Við seljum mikið af sviðum og rúllupylsu en salan á slíku feitmeti hefur minnkað mjög mikið hérna heima á meðan Færeyingar borða slíkan mat af bestu lyst.“ Einnig voru Færeyingar mjög hrifnir af ís- lenska skyrinu en byrjað var að selja skyr í Bónus í Færeyjum fyrir nokkrum árum þangað til það var gert ókleift vegna ofurtolla. „Þannig var að við byrjuðum að selja út mikið magn af unnum mjólkurvörum sem seldust mjög vel og voru mjög vin- sælar en útflutningurinn var stöðv- aður af landbúnaðarráðuneytinu á Islandi þegar Færeyingum var bannað að selja mjólkurvörur til ís- lands. Við urðum því að hætta með útflutninginn því samningarnir urðu að vera gagnkvæmir en mjólkurvöruframleiðslan hjá þeim samanstendur af framleiðslu á drykkjarmjólk og þremur tegundum af jógúrt. I dag eru það Danir, Bret- ar og Hollendingar sem sjá þeim fyr- ir mjólkurvörum í stað íslendinga. Við fáum nóg af mjólkurvörum frá þessum löndum í búðirnar en gæðin eru miklu meiri á íslensku vörunni sem við gátum ekki selt vegna ofur- tolla sem á voi'u lagðir að undirlagi íslenska landbúnaðarráðuneytisins." Flytja ekki sjálfir inn íslenskar vörur Bónus flytur ekki inn íslenskar vörutegundir til Færeyja heldur kaupir þær af heildsölum þar. „Við byrjuðum að selja mikið af íslensk- um vörum þarna þegar við fórum af stað en íslensk stjórnvöld eyðilögðu það fyrir okkur því við máttum ekki taka vörur af sameiginlegum lager. Við urðum alltaf að panta sérstak- lega fyrir Færeyjamarkað frá fram- leiðendunum þó að við ættum allar vörurnar á lager því okkur var ekki treyst fyrir að afreikna vörugjöld og tolla. Þetta má í dag en við höfum ekki farið út í útflutning aftur eftir þetta. Stefnt er að því að það verði gert í framtíðinni.“ Bónus gengur vel í Færeyjum Fyrsta Bónusverslunin í Færeyj- um var opnuð 1993 og hefur rekstur- inn gengið mjög vel að sögn Jóhann- esar. „Við byrjuðum með tvær búðir 1993 og þær eru orðnar fjórar nú en við stefnum að því að þær verði orðnar sex á næsta ári. Við fórum í samstarf við Miklagarð í Færeyjum sem var stærsta matvöruverslunin þar þá. Fyrirtækjunum var slegið saman en núna eiga þessi tvö fyrir- tæki fjórar matvöruverslanir og verslunarmiðstöðina SMS, sem er einskonar Kringla þeirra Þórshafn- arbúa.“ Að auki hefur Bónus opnað tólf verslanir í Flórída á einu ári. „Þar seljum við engar íslenskar vör- ur en það er aldrei að vita hvort af því verður einhvern tíma.“ Aðspurð- ur um frekar landvinninga segir Jó- hannes að það verði bara að koma í ljós hvert næst verður haldið. Sósur NÓATÚN hefur hafið sölu á Beikonsósu og Gráðostasósu. í fréttatilkynningu segir að sósurnar séu þróaðar af matreiðslumeisturum veitinga- hússins Argentínu en um 12 matvörutegundir eru nú fáan- legar í þeirri línu. ^öðkaupsveislur—öftsamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl. ®8@®ipy - w®3s0(ujeti©0(áoo „og ýmsir fylgihlutir p Ekki treysta á veðrið þeqar #Ln “ skipuleggja á eftirminnilegan viðburð - Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. B /fr^fgJTjöldafi af öllum stœrðum frá 20 - 700 mJ Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og tjaldhitarar. iBcQsa sfeáita ..meo skátum á heimavelll simi 5621390 • fax 552 6377 • b!s@scout.ls Grandagarði 2 | Reykjavík ! sími 580 8500 i i-------------- Kassi sem skiptir sköpum! Neyðarkassinn sem er viðurkenndur af Kanadíska heilbrigðiskerfinu hefur reynst einstaklega vel í Norður- Ameríku. Hægt er að sníða kassann að þínum óskum, hvort sem er við snjóflóða-, jarðskjálfta- eða önnur svæði. Allar upplýsingar og sala í síma GIALDFRJÁLST ÞJÓNUSTUNÚMER Heildartausnir i áfaLLa og neyðartiLfeLLum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.