Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 URVERINU MORGUNBLAÐIÐ Ufsamerkingar hafnar að nýju HAFRANN SÓKNASTOFNUNIN hefur hrint af stað ufsamerkingum að nýju eftir 35 ára hlé en árin 1964 og 1965 voru 6000 ufsar merktir úti fyrir Norðurlandi og endurheimtust um 3000 merki úr þeim tilraunum. Stefnt er að því að merkja 3000 ufsa í ár og verða þeir teknir í helstu veiðarfæri sem ufsi fæst í. Fyrsta árið verður notað til að finna bestu aðferð til að merkja ufsann, vænlega staði til merkinga og öðlast nauðsynlega reynslu til að leggja drög að lang- tímaáætlun um ufsarnerkingar. Markmið slíkrar áætlunar er að veita upplýsingar um líffræði og far ufsans en að auki getur hún nýst við að meta sókn í stofninn. Hingað til hefur aðaláherslan verið lögð á að merkja ufsa sem veiðist á handfæri og hefur verið merkt í róðr- um frá Vestmannaeyjum, Grindavík, Ólafsvík, ísafírði, Mjóafírði og Norð- firði. Ennfremur var reynt, með litl- um árangri, að ná ufsa til merkinga í netaróðri frá Vestmannaeyjum í vet- ur og í snurvoð frá Norðfirði nú í júm'. Heiidarijöldi merktra ufsa er orðinn tæplega 1500, merkja á aðra 500 í sumar og a.m.k. 1000 til viðbótar í haust, en þá verða merktir ufsar sem fást í troll og dragnót. 1000 krónur íyrir merkið Fiskimenn, fiskvinnslufólk og aðrir sem verða varir við merkta ufsa eru hvattir til að fara eftir almennum leið- beiningum um meðhöndlun merktra fiska sem er að finna í sjómanna- almanaki eða á slóðinni http:/Avww.- hafro.is/tags/endurh.html á vefnum. Þar er beðið um að ski’áður sé veiði- staður og -stund, lengd fisksins mæld, kyn og kynþroskastig skráð sé þess kostur og ennfremur að kvam- imar séu teknar úr haus fisksins. Óskað er eftir að merkinu, upplýs- ingunum og kvömunum sé komið til Hafrannsóknastofnunarinnar eða útibúa hennar. Greidd verða 1000 króna verðlaun fyrir hvert merki sem skilað er inn. I ufsamerkingunum hefur hluti fiskanna verið tvímerktur í tilraunaskyni og verða greidd verð- laun fyrir hvort merki sé báðum skil- að. Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Búið að ramma 70 m löndunarkant við Nausthamarsbryggju. Nausthamarsbryggja lengd um 7 0 metra Vestmannaeyjar - Frá því í vor hafa ATV-verktakar í Vestmannaeyjum unnið við að lengja viðlegupláss við Nausthamarsbryggjuna í Vest- mannaeyjum, viðbótin sem er fyrir neðan Fiskimjölsverksmiðju Isfé- lagsins er hugsuð sem löndunarkant- ur fyrii- loðnuskip og opnast nú möguleiki á því að landa beint úr skipunum og í þrær verksmiðjunnar en hingað til hefur aflanum verið keyrt á vörubflum. Það var á vetramánuðum sem opn- uð voru tilboð í verkið og upphaflega þá samið við AVT-verktaka, sem samanstendur af Drangi ehf. og Ein- ari og Guðjóni sf. í Vestmannaeyjum, undirverktaki hjá þeim við dýpkun var Hagtak og við járnavinnu Vél- smiðjan Völundur í Vestmannaeyj- um. Að sögn Einars Guðnasonar og Kristjáns Eggertssonar verktaka hefur verkið gengið vel og í sátt og samlyndi við alla en eins og kunnugt er voru nokkrar seinkanir á verkinu vegna beiðni Ocean Future-samtak- anna um að ekki færu fram spreng- ingar á svæðinu meðan Keikó væri í kví sinni og endaði málið með því að Keikó fór í sinn fyrsta alvöru „göngutúr" meðan sprengingar á at- hafnasvæðinu fóru fram. Hagtak sá um dýpkun á svæðinu og nú hefur verið lokið við að ramma 70 m þil og þessa dagana er unnið við uppfyllingu um 12 þús. rúmmetra á svæðinu. Verkinu miðar vel áfram og verður lokið við það í sumar. Kostn- aður er á bilinu 35-40 millj. króna. Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni næsta fískveiðiár Byggðastofnun fær tæp 2.000 tonn til ráðstöfunar SJÁVARÚTVEGSRÁDUNEYTIÐ hefur gefið út reglugerð um veiðar í atvinnuskyni íyrir næsta fiskveiðiár, sem hefst fyrsta september. Reglu- gerðin er í stórum dráttum sú sama og gildir fyrir þetta ár að undantekn- um breytingum á leyfilegum heildar- afla einstakra tegunda og breyting- um á stjóm á veiðum smábáta. Samkvæmt reglugerðinni verður leyfilegur heildarafli á þorski 220.000 tonn miðað við óslægðan fisk með haus. 30.355 tonn koma í hlut króka- báta, 3.000 tonn fara til jöfnunar, Byggðastofnun fær 1.406 tonn til ráðstöfunar og 1.211 tonn fara í bæt- ur vegna skerðingar á afla af innfjarðarækju. Því verður úthlutað aflamark á næsta fiskveiðiári 184.028 tonn. Af öðrum tegundum má nefna að af ýsu má veiða 30.00 tonn, 3.000 tonn koma í hlut krókabáta, Byggðastofn- un fær 192 tonn til ráðstöfunar og 165 tonn fara í bætur vegna skerðingar á innfjarðarækju. Af ufsa má einnig veiða 30.000 tonn og koma 1.000 tonn í hlut krókabáta og sama magn og af ýsunni fer til Byggðastofnunar og í bætur vegna skerðingar á rækjuveið- um. Loks má veiða 13.000 tonn af steinbít, en 3.000 tonn af því fellur í hlut krókabáta og lítilsháttar fer til Byggðastofnunar og í bætur. Af karfa má veiða 57.000 tonn, 20.000 tonn af grálúðu, 5.500 tonn af sandkola, 5.000 af skrápflúru, 4.000 tonn af skarkola, 1.400 af þykkvalúru og 1.100 tonn af langlúru. Veiða má 110.000 tonn af íslenzku sumargotssíldinni, 20.000 tonn af út- hafsrækju, 1.200 tonn af humri og 9.300 tonn af hörpudiski. Sú veiði skiptist þannig á milli svæða að veiða má 8.000 tonn á Breiðafirði, 1.000 tonn á Húnaflóa og 300 tonn á Amar- firði. Af innfjarðarækju má veiða 2.200 tonn alls. Á Amarfirði má veiða 400 tonn, 1.200 í Ísafjarðardjúpi, 250 tonn á Skagafirði og 350 tonn á Öxar- firði. Engin veiði verður leyfð á Húnaflóa og Skjálfanda. Þorskígildisstuðlar íyrir næsta fiskveiðiár eru eftirfarandi: Þorskur 1,00, ýsa 1,15, ufsi 0,50, karfi 0,55, steinbítur 0,65, grálúða 1,65, skarkoli 1,25, langlúra 0,70, þykkvalúra 1,20, skrápflúra 0,50, sandkoli 0,50, loðna 0,03, sfld 0,06, norsk-íslenzk sfld 0,04, slitinn humar 6,85, rækja 0,90 og hörpudiskur 0,30. Litlar breytingar verða á veiði- stjórn fyrir smábáta, en þó er komið til sérstakt krókaaflamark, sem sömu reglur skulu gilda um og um aflamark samkvæmt settum reglum og lögum. Aflaheimildir krókabáta í þorski skerðast um 12,5% eins og hjá öðrum báta- og skipaflokkum. Daga- fjöldi verður sá sami og á þessu ári og 30 tonna þorskhámarkið gildir áfram hjá sóknardagabátum. -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.