Morgunblaðið - 11.07.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 29
IÐNAÐARHURÐIR
Ein af myndum Gunnlaugs á sýningunni á Mokka.
Gunnlaugur Árnason
Morgunblaðið/Kristinn
mb l.is
ALLTA/= eiTTH\SA£> A/ÝT7
Abstr-
akt ljós-
myndir
á striga
GUNNLAUGUR Árnason heitir
ungur ljósmyndari sem í dag opnar
sína fyrstu einkasýningu í Galleríi
Mokka í Reykjavík. Sýningin nefnist
Leikur að ljósi og samanstendur af
abstrakt ljómyndum prentuðum á
striga. Morgunblaðið tók Gunnlaug
tali og fræddist um óvenjuleg verk
hans.
Ekki unnar í tölvu
„Eg nota hitanæma skyggnu sem
ég framkalla svo eins og venjulega
filmu. Á meðan á framkölluninni
stendur hleypi ég svo Ijósi inn. Eig-
inleikar filmunnar er að hún les hita,
frekar en Ijós þótt hún sé auðvitað
ljósnæm eins og allar filmur. Því má
eiginlega segja að ég sé að leika með
ljós,“ útskýrir Gunnlaugur, aðspurð-
ur hvað hann sé eiginlega að gera.
„Svo vinn ég heilmikið með þetta,
skeyti saman römmum, ríf filmuna
og festi aftur saman og margt fleira.
Eg er eiginlega að nota gömlu ljós-
myndatæknina til þess að búa til
abstrakt myndverk. Eftir að mynda-
vélin var fundin upp hafa lismálarar
þurft að lyfta sköpun sinni á annað
svið. Myndavélin tók við af raun-
sæismálurum og menn fóru að mála
kúbískt, súrrealískt eða abstrakt. En
ljósmyndarar eru óðum að ná list-
málurum eftir því sem tæknin leyfir.
Engar mínar myndir eru unnar í
tölvu, þetta er allt handgert, fyrir ut-
an prentunina.“
Óvenjuleg verk
Gunnlaugur skannar svo inn unna
filmuna og prentar í bleksprautu-
prentara á striga. „Það er tiltölulega
algengt að ljósmyndir séu prentaðar
á striga. Nú orðið er hægt að prenta
á hvað sem er,“ segir hann. „Einnig
er algengt að ljósmyndarar taki eftir
formum og myndi það, til dæmis
brot úr arkitektúr, ljós og skugga og
þess háttar. Hins vegar veit ég ekki
til þess að nokkur sé að gera það sem
ég er að gera.“
En hvernig fékk Gunnlaugur eig-
inlega þessa hugmynd? „Það var eig-
inlega óvart,“ svarar hann. „ Ég hef
búið í San Francisco síðastliðin fimm
ár og vann þar á dagblöðum og við
tímarit eftir að hafa lokið námi í
heimildaljósmyndun og fjölmiðla-
fræði. Þannig var að ég festi einu
sinni óvart filmu í framkallara og
varð þá að opna hann. Filman eyði-
lagðist auðvitað, rifnaði og lýstist, en
við að skoða hana komu í Ijós alls-
konar form sem mér þóttu áhuga-
verð og flott. Þá ákvað ég að vinna
aðra filmu á þennan hátt og fór að
leika mér að þessu. Nú er ég að sýna
afrakstur þess,“ segir Gunnlaugur,
en framundan hjá honum er svo MA
nám við Westminster-háskólann í
London.
Sýningu Gunnlaugs lýkur 11.
ágúst.
Loksins á íslandi!
Frönsku svefnherbergishúsgögnin frá Gerstyl.
Kynningartilboð
Að sofa, elska og njóta...
... að hætti franskra. Frakkar eru kröfuharðir. Góður matur, gott vín og
góður svefn skiptir þá verulegu máli - en umgjörðin þarf að vera sú rétta.
Ameríski draumurinn?
Við kynnum THER-A-PEDIC,
bandarískar heilsudýnur,
sem unnið hafa til margra verðlauna
fyrir hönnun og gæði.
Komdu og leggðu þig!