Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 43

Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR11. JÚLÍ 2000 43 ég minnist þess aldrei að hafa séð hann öðruvísi en kátan og skemmti- legan. Þegar ég hugsa til baka og rifja upp minningar sem ég á um hann kemur alltaf upp í hugann hve hávaxinn og tignarlegur afi var. Sem smápatti átti ég þá ósk heitasta að líkjast afa mínum í skapgerð og að verða jafnhávaxinn og hann. Ekki náði ég hæðinni en ég mun hafa skapferli hans ávallt að leiðarljósi í lífinu og þegar eitthvað bjátai’ á mun mér ávallt verða hugsað til hans og ímynda mér hve rólega hægt sé að taka á öllum málum en þó að gera það óaðfinnanlega. Með andláti afa er stór hluti af lífí mínu hoi’finn en ekki lengra en svo að ég mun alltaf geyma minningarn- ar um hann innst í hjarta mínu. Eg sakna þín afi og ég þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér í lífinu. Eiríkur. Við eigum margar góðar minning- ar um afa, en það sem kemur fyrst í hugann er opni faðmurinn og hjálp- semi hans. Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa okkur öllum og er okkur minnisstæðast þegar hann lagðist á fjóra fætur og pússaði parketið í íbúðinni minni. Parketið varð eins og nýtt á eftir. Eða hvernig hann af natni yfirfór og lagaði eldgamalt barnareiðhjól sem mér hafði áskotn- ast. Afi var maður fárra orða, athugull og hlustaði vel. Það var mjög fyndið þegar hann laumaði inn í umræðu hárfínum athugasemdum og brosti kankvíslega. Fyrir einu ári var afi að hlaupa út í búð eins og hann gerði jafnan í há- deginu niður í Skeifu. Allt var sund- urgrafið og þegar hann kom að skurði gleymdi hann að hann væri 81 árs og sveif yfir skurðinn. I kjölfarið fékk hann verki í kviðarholið. Þegar í ljós kom að það var „bara“ kviðslit varð hann svo ánægður að hann lang- aði mest til að kyssa hjúkkurnar. Minningamar um þig munum við geyma í hjörtum okkar alla tíð. Guðrún og Sigríður. Svani kom inn í fjölskylduna í Laugardalnum þegar hann kvæntist Bergþóru móðursystur minni. Þau hófu búskap í Hafrafelli við Múlaveg um 1940. Þegar ég var lítill strákur fannst mér hann svolítið dularfullur. Nafnið hans, Svani, jók líka á þessa tilfinn- ingu. Ég skildi fyrst ekki hvers vegna hann var kallaður þessu nafni en svo datt mér í hug að líklega héti hann þetta vegna þess að svanurinn er okkar stærsti fugl og hann var með hæstu mönnum. Ég komst að því síðar að hann var danskur í aðra ættina og gerði það hann enn merki- legri í mínum augum. Um 1950 fluttu þau Bergþóra úr Laugardalnum. Þau keyptu sér hús við Háaleitisveg þar sem nú eru gatnamót Miklubrautar og Háaleit- isbrautar. Svani stækkaði bílskúrinn sem þar var og stofnaði eigið bíla- verkstæði. Bílaverkstæði Svana er mér af- skaplega eftirminnilegt. Börn fengu helst ekki að fara þangað inn en þá kíkti maður bara á gluggann. Þar fyrir innan var Svani, alvarlegur í bragði í vinnugallanum að logsjóða bilaða bíla í hálfrökkrinu sem þar var. Allt í kringum hann voru bfla- hlutar, tannhjól, sprautukönnur og hvers kyns verkfæri. Þetta var ævin- týraheimur sem hreif mig mjög og hefur greinilega haft áhrif á form- skyn mitt. Verkstæðið var líka hálf- súrrealistískt að innanverðu. Þegar opnunarhófið var haldið þar tók faðir minn sig til og málaði skreytingar á texplötur. Þetta voru endurminning- ar hans frá Ameríku stríðsáranna, meðal annars man ég þarna eftir svertingja að hrista kokkteil og prúð- búnu fólki sitjandi á barstólum. Seinna voru plöturnar teknar og negldar þvers og kruss um loftið til einangrunar. Framan á húsinu var mynd af mjög framúrstefnulegum bfl og grillið á honum myndaði stafina N.K.S. Já, þetta var sannarlega töfraveröld þar sem Svani galdraði bílaflota stórfjölskyldunnar í lag. Ég fékk oft að fara í heimsókn til Bergþóru og Svana og krakkanna þeirra. Fór ég þá fótgangandi. Leiðin var ekki löng, fyrst fór ég í gegnum braggahverfið við Suðurlandsbraut. Við enda þess var trukkaverkstæðið þar sem gert var við stóru Makkana. Uppi á brekkunni var svo drauga- húsið sem hafði verið flutt úr mið- bænum og stóð þarna á tunnum og bar við himin. Ég hljóp alltaf dauð- hræddur þar fram hjá. Svo lá leiðin upp með Hans og Grétu húsunum og þegar ég var kominn fram hjá tunnu- verksmiðjunni Beyki var ég kominn í ríki Bergþóru og Svana. Það var ákaflega gott að koma í heimsókn til þeirra. Þau voru svo blessunarlega laus við allt prjál og tilgerð og á heimili þem-a réði gleðin ríkjum. Þótt Bergþóra og Svani væru ólík um margt, hún lítil, hnellin og málglöð, hann hávaxinn, hægur og þögull, var augljóst að eindrægni og samheldni var beggja aðalsmerki og þeim tókst að skila þessum kost- um áfram til afkomenda sinna. Það er langt síðan ég áttaði mig á því að Svani galdraði ekki bílana í lag en hann bjó yfir þeim galdri að þeir sem kynntust honum og nutu sam- vista við hann báru umsvifalaust virðingu fyiir honum enda fór ekki fram hjá neinum hversu góður mað- ur hann var. Ég og fjölskylda mín sendum fólk- inu hans okkai’ innilegustu samúðar- kveðjur. Sigurður Orlygsson. Mig langar með fáeinum orðum aðminnast Níels Svane er lést á heimili sínu 28. júní sl. 82 ára að aldri. Kynni okkar Svane hófust fyrir hartnær tveimur áratugum. Þá starfaði ég eitt sumar í Skíðaskálan- um í Hveradölum og kynntist þar fyrst Bergþóni eftirlifandi eiginkonu hans. Við bundumst fljótt sterkum vinaböndum sem hafa haldist alla tíð. Ég flutti til Reykjavíkur þá um haustið sautján ára gömul og fékk að njóta þeirrar gæfu að dvelja hjá þeim hjónum um tveggja ára skeið á heim- ili þeirra á Norðurbrún. Þau voru viðburðarík og skemmtileg þessi ár og á ég frá þessum tíma margar góð- ar og hugljúfar minningar. Það sem mér er efst í huga á þessari kveðju- stundu er þakklæti, þakklæti fyrir þann hlýhug og stuðning sem Svane hefur sýnt mér öll þessi ár, þakklæti fyrir þær samverustundfr sem ég átti með honum. Þegar ég velti fyrir mér hvað einkenndi Svane helst þá kemur margt í hugann. Hann var einstakt ljúfmenni, rólyndur og hóg- vær, ávallt boðinn og búinn að veita öðrum hjálparhönd. Hann mátti ekk- ert aumt sjá og studdi ævinlega þá sem áttu undir högg að sækja í lífs- baráttunni. Aldrei heyrði ég Svane hallmæla öðrum, hann gerði alltaf gott úr öllu og jákvæðni hans til allra hluta var einstök. Á heimili þeirra hjóna var yndislegt að koma en gestrisni og félagslyndi voru sterkir þættir í persónu Svane. Á seinni ár- um tókum við nokkur upp þann skemmtilega sið að skiptast á að bjóða hvort öðru í sunnudagskaffi og var oft kátt á hjalla. Þó Svane væri rólegur og yfirvegaður þá bjó undir niðri rík kímnigáfa. Nú þegar Svane er fallinn frá þá er stórt skarð höggv- ið í vinahópinn og söknuðurinn er sár. Um leið og ég þakka Svane fyrir samfylgdina þá fylgja hlýjar hugsan- ir til hans í eilífðarferðina. Elsu Bergþóra mín, Þorgeir, Una, Margrét, Eiríkur og fjölskyldur. Megi guð styrkja ykkur á erfiðri stund. Ólöf Guðjónsdóttir. Kjossar á Ceiði ‘Kyðfrítt stáí- varaníefjt efni ‘Krossamir em framteiddir úr Fivítfiúðuðu, ryðfríu stáCi. ‘Minnisvarði sem endist um óCpmna tíð. SóCfross m/yeistum. ttíæð 100 smfrá jörðu. mwm , : - : . . - ‘Tvöfatdur Cjoss. ttíceð 110 sm frá jörðu. tíringið í síma 431-1075 og fáið [itaSœtjtirig. BLIKKVERKsf. A Dalbraut 2, 300 Akranesi. Sími 431 1075. fax431 1076 Legsteinar í Lundi SÖLSTEINAR við Nýbýlaveg, Kópavogi Sími 564 4566 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf- ang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, ÓLAFUR JÓNSSON fyrrum bóndi í Álfsnesi og á Oddhóli, til heimilis í Lóurima 23, Selfossi, lést á Ljósheimum föstudaginn 7. júlí. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og langalangafabarn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda faðir og afi, ÞÓRSTEINN BERGMANN MAGNÚSSON kaupmaður, Baughúsum10, lést sunnudaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstu daginn 14. júlí kl. 10.30. Karitas Bjargmundsdóttir, Þorsteinn Þórsteinsson, Berglind Karitas Þórsteinsdóttir, Stefán Garðar Óskarsson, Karitas Alfa, l'sak Hrafn og Jakob Steinn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, HULDA PÁLSDÓTTIR frá Þingholti, Vestmannaeyjum, síðast til heimilis í Engjaseli 70, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 9. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Birgir Þór Sverrisson, Kolbrún Eva Valtýsdóttir, Ragnar Kristján Gunnlaugsson, Erla Baldursdóttir. barnabörn, barnabarnabarn og systkini frá Þingholti. + Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur, JÓNAS SIGURÐUR KONRÁÐSSON, írabakka 20, Reykjavík, lést á heimili sínu. Jarðarförin auglýst síðar. Konráð Páll Ólafsson, Ingigerður St. Óskarsdóttir, Guðjón Árni Konráðsson, Jóna Ósk Konráðsdóttir, August Hákansson, Guðmundur Kristinn Konráðsson, + Ástkær móðir, tengdamóðir og amma, JÓHANNA S. ÞORGEIRSDÓTTIR, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík föstudaginn 7. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Flosi Már Jóhannesson, Arna B. Friðriksdóttir, Gunnar Þór Jóhannesson, Sigurborg fris Vilhjálmsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, BJÖRN RAGNAR ÓSKARSSON bryti, Rauðalæk 14, er lést á Landspítala, Fossvogi, laugardaginn 8. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júlí kl. 13.30. Hjördis Guðmundsdóttir, Guðmundur Þór Björnsson, Birna Björnsdóttir og barnabörn. + SIGURÐUR RÓSBERG TRAUSTASON frá Hörgshóli, lést á Call Beean House spítala í Los Angeles að morgni laugardagsins 8. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Trausti Sigurjónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.