Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 49,
UMRÆÐAN
Staða efnahags-
mála og horfur um
kj arasamninga
ÉG hef verið gagn-
rýndur fyrir að vera með
stórar yfirlýsingar um
mögulega uppsögn
kjarasamninga um ára-
mót vegna mikillar og
viðvarandi verðbólgu.
Megintilefni þessara yf-
irlýsinga var reyndar
ótrúleg hækkun trygg-
ingaiðgjalda sem boðuð
hefurverið.
I þessu sambandi hef-
ur verið bent á hættuna
á því að tala upp vanda-
mál og óstöðugleika. Að
mínu mati er sú hætta
ekki stærri en hættan
við það að tala sífellt um
að allt sé í lagi þegar allar upplýsing-
ar sem til eru um stöðu mála segja
okkur að allt sé einmitt ekki í lagi og
að lítið sé sjáanlegt framundan sem
breyti því.
Hver er staðan?
Bæði Þjóðhagsstofnun og Seðla-
banki hafa á þessu ári sent frá sér yf-
irlit um stöðu mála og spár um fram-
tíðina sem greinilega segja að staðan
sé slæm og horfur einnig slæmar.
Þenslan í efnahagslífinu er allt of
mikil sem sést best á því að við-
skiptahallinn er í kringum 50 millj-
arða. Viðskiptahallinn hefur nú verið
hættulega mikill í þrjú ár í röð sem
er einstakt í okkar efnahagslífi. Ekk-
ert er enn sjáanlegt um breytingar á
þessari stöðu, aukning innflutnings
miðað við síðasta ár er enn ótrúlega
mikil.
Verðbólgan er enn mjög há. Þegar
kjarasamningarnir voru gerðir í
mars var 6 mánaða verðbólguhrað-
inn 4,9%. I júní var sama hlutfall
5,3%. Á tímabilinu frá apríl 1999 til
aprfl 2000 var verðbólga 1,7% á
Evrópska efnahagssvæðinu. Island
og Irland skáru sig mikið úr með um
5% verðbólgu, verðbólgan á hinum
Norðurlöndunum er mun lægri. Það
er augljóst að verðbólga hér er mun
meiri en í nágrannalöndunum og hef-
ur alls ekki farið lækkandi.
Ofan á þetta hafa bæst slæm tíð-
indi að undanförnu víða úr atvinnu-
lífinu. Þar má nefna fiskistofna, afföll
húsbréfa, lækkun gengis hlutabréfa,
afkomuviðvaranir og óróa á gengis-
markaði sem dæmi. Þrátt fyrir sí-
endurteknar yfirlýsingar ráða-
manna er erfitt að telja sér trú um að
allt sé hér í stakasta lagi í efnahags-
málum.
Hvernig er hagstjórnin?
I rauninni má segja að Seðlabank-
inn sé eini aðilinn sem reyni að halda
uppi einhverri hagstjórn. Markmið
bankans er að halda
verðlagi sem stöðug-
ustu og það gerir
hann með vaxtabreyt-
ingum (hækkunum!)
og því að reyna að
halda stöðugu háu
gengi. Vaxtamunur-
inn gagnvart útlönd-
um er mjög mikill, allt
upp í 6-7% sem býður
upp á marga mögu-
leika fyrir þá sem eru
á þessum markaði.
Um aðra virka hag-
stjórn er varla að
Ari ræða. Úr röðum at-
Skúlason vinnurekenda heyrast
þær raddir að þeim
finnist herkostnaðinum við barátt-
una við verðbólguna og þensluna illa
skipt niður vegna þess að kostnaður-
Þensla
Að mati Ara
Skúlasonar er
nauðsynlegt að slá á
einkaneysluna til þess
að ná tökum
á þenslunni.
inn leggst langmest á útflutnings- og
samkeppnisiðnað sem ekki stóð vel
fýrir. Áf hálfu ráðamanna hefur ver-
ið sagt lengi að þetta hljóti að fara að
skána. Ég man ekki betur en að hafa
heyrt þau orð í tengslum við hverja
einstaka hækkun olíu- og bensín-
verðs á síðustu mánuðum að nú séu
öll teikn um að olíuverð sé að ná
hámarki. Hámarkið er ekki enn
komið, vonandi kemur það sem fyrst,
en litlar tryggingar eru til í því sam-
bandi.
Fyrir utan olíuverðshækkanir er
meginvandamál okkar þenslan. Hún
er borin uppi af miklum fjárfesting-
um og mikilli einkaneyslu. Til þess
að slá á þensluna þarf að reyna að
draga úr einkaneyslu og fram-
kvæmdum, kannski sérstaklega op-
inberum framkvæmdum.
Hvernig þyrfti
hagstjórnin að vera?
Seðlabankinn hefur verið virkur í
hagstjóm og beitt peningamálatækj-
um sínum. Það sama er ekki hægt að
segja um stjórnvöld sem hafa farið
rólega í að beita fjármálatækjum.
Það verður því mjög spennandi að
sjá fjárlagatillögur ríkisstjórnarinn-
ar í haust. Þar verður t.d. spennandi
að sjá hvaða meðferð háleitar áætl-
anir þingmanna í samgöngumálum
munu fá.
Að mínu mati er nauðsynlegt að
slá á einkaneysluna til þess að ná
tökum á þenslunni. Aðgerðir í þá átt
eru hins vegar mjög óvinsælar póli-
tískt séð. Einkaneyslu er hægt að
minnka með þrengingum og álögum,
en einnig með því að slá á væntingar
fólks. Að segja sífellt að allt sé í stak-
asta lagi slær ekki á væntingar fólks.
Danir hafa nokkrum sinnum á und-
anförnum árum farið út í aðgerðir til
þess að slá á einkaneyslu og má þar
nefna kartöflu- og hvítasunnukúra. í
Danmörku hefur ríkt mikill skilning-
ur á því meðal stjórnmálamanna og
fólks úr atvinnulífinu að slá verði
sem fyrst á þenslu þegar hún kemur
upp. Að mínu mati hefur þenslan
fengið að grassera hér allt of mikið í
allt of langan tíma og stjórnvöld
hefðu fyrir löngu átt að leita eftir víð-
tækri sátt um leiðir til þess að ná
tökum á henni.
Að tala upp
verðbólguna
Því hefur verið haldið fram að
sumir, t.d. ég, séu að tala verðbólg-
una upp með því að minna á að kjara-
samningum kunni að verða sagt upp
í upphafi næsta árs. Að mínu mati
væri mikill ábyrgðarhluti að benda
ekki á þá hættu sem framundan er.
Þegar kjarasamningar Flóabanda-
lagsins voru gerðir var 6 mánaða
verðbólga 4,9%. Forsenda samning-
anna var að verðbólga færi hratt nið-
ur á við og yrði á samningstímanum
sú sama og í nágrannalöndunum. I
júní var 6 mánaða verðbólgan 5,3%
og ekkert framundan sem benti til
lækkunar, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar hefur t.d. bent á óvenju mikla
sumarverðbólgu á þessu ári. Þessu
til viðbótar var boðuð 29% meðal-
hækkun tryggingaiðgjalda (miklu
hærri á sumum svæðum). Þau rök
sem sett voru fram í því sambandi
voru sígild verðbólgurök úr fortíð-
inni. Ef ekki hefði verið bent á þess-
ar staðreyndir og sett fram mat á
horfunum framundan hefði ASÍ ekki
verið að vinna nauðsynlega og eðli-
lega vinnu í þágu félagsmanna sinna.
Félagsmenn okkar ætlast til þess að
við vinnum með þessum hætti. Þar
að auki er mat hagdeildar ASÍ á
stöðu mála og horfum nákvæmlega
það sama og annarra aðila sem fást
við efnahagsmál hér á landi. Þess
vegna vísa ég því algerlega á bug að
það sé verið að tala upp verðbólguna
af hálfu ASÍ. Þar er verið að segja
sannleikann, en hann getur stundum
verið óþægilegur.
Höfundur er framkvæmdastjóri ASÍ.
Green Tea
711 grenningar
íítóala
'UndirfM
'Nattfot
ff>eum§allar
WARNEKS
JbuonQs*
g INIIMO 11AIIANO
Aubade
QD
VALENTINO
'Undúj'ataoerslun,
T^inffltutni 1,
1. tkvú, mmi 553 /355.
\
Launahækkun
Hefur þú fengið 3,9% launahækkun?
Samkvæmt nýgerðum kjarasamninc
eiga félagsmenn VR nú að hafa fengif
Starf okkar
þitt starf
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur w
14.000 kr.
með flugvallarskatti
báðar leiðir
250 kr. aukaafsláttur ef bókað er á www.go-fly.com
bókunarsími 00 44 12 79 66 63 88
miðast við eftirspum I samkvæmt skilmálum I nýja lágfqirgjaldaflugfélagið í eigu british airways I flýgurtil stansted