Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 51 „Vígamenn í verkfalli“ GREIN með ofangreindu heiti birtist í DV mánudaginn 2. júlí. Greinarhöfundur veitist þar að for- manni Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis og öðrum nafngreindum að- ilum með gífuryrðum og rangfærsl- um. Þótt greinarhöfundur sé greini- lega í slíkri geðshræringu þegar greinin er skrifuð að honum getui- varla verið sjálfrátt, viljum við svara honum að nokkru. Helst er að skilja á höfundi greinarinnar að formaður Sleipnis sé einn í verkfalli og það komi öðrum félagsmönnum alls ekk- ert við. Þar sem greinarhöfundur er fyrrverandi varaformaður verka- Sleípnir Eðli málsins samkvæmt um og tilraunum til brota. Eðli máls- ins samkvæmt beinast aðgerðir verkfallsvarða að þeim aðilum sem stunda verkfallsbrot. Greinarhöf- undur er einn þeirra. Hann vitnar í samstarfsmann sinn sem ber for- manni Sleipnis ekki vel söguna. Mað- ur sá sem í hlut á, kom á skrifstofu Sleipnis, að því er virtist með það eitt að markmiði að úthrópa formanninn, auk þess sem hann hafði í hótunum um að hann yrði beittur líkamlegu ofbeldi af starfsmönn- um Allrahanda. Minnst er á varafor- mann Sleipnis í grein- inni. Varaformaður ásamt öðrum í stjórn félagsins var kosinn til starfa af félagsmönn- um og hafa engar at- hugasemdir komið fram um störf hans að málefnum félagsins, þvert á móti, enda hef- ur hann sinnt þeim af kostgæfni. Um hótan- ir greinarhöfundar um bótakröfur á hend- ur Sleipni er það að segja að ekki er vitað til að hann hafi með þau mál að gera, enda ekki einu sinni í stjóm fyrir- tækis eða fyrirtækja sem eiga í deilu við Sleipni. Reyndar er hann bróðir fram- kvæmdastjóra Allra- handa. Það gerir hann hins vegar ekki að tals- manni hópbifreiðafyrir- tækja almennt. Um skort á félagsfundum er það að segja að fundir hafa verið haldnir og þeir félagsmenn sem koma eða hringja á skrifstofu félagsins fá þær upplýsingar sem þeir eiga tilkall til. Greinarhöfundur er ekki meðlimur í Sleipni og kemur þar af leiðandi ekkert við hvort eða hvenær fundir eru haldnir hjá félag- inu. Greinarhöfundur, Guðmundur Sigurðsson bifreiðarstjóri, hefur trú- lega gengið allra manna lengst í „vígamennsku í verkfalli". í það minnsta er hann eini maðurinn sem vitað er um að hefur felgulykil við höndina að hans eigin sögn, ekki til að nota á hefðbundinn hátt heldur til að „berja helvítið hann Óskar með ef hann vogar sér að stoppa mig“. Verkfallsnefnd Sleipnis vill koma því á framfæri að verkfallsaðgerð er aðgerð félags en ekki einstaklinga. Það að persónugera aðgerðir, þannig að talsmenn félaganna standi einir í baráttunni er bæði rangt og ósann- gjarnt. Ákvarðanir um aðgerðir eru teknar innan félaganna á lýðræðis- legan hátt og einstaklingar síðan valdir til að stýra þeim. Höfundur er formadur verkfalls- nefndar Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis. Verðsamanburður í fluo-stöðvum á áfengi, tóbaki, sælgæti, gjafavöru, úrum, fatnaði og matvöru. Sveinn Matthíasson beinast aðgerðir verkfallsvarða að þeim aðilum. segir Sveinn Matthíasson, sem stunda verkfallsbrot. lýðsfélags, ætti honum að vera ljóst að þegar kjaradeila kemst á það stig að verkfall skellur á, hafa félags- menn í viðkomandi stéttarfélagi samþykkt þá aðgerð og falið aðilum innan félagsins að stjórna henni. Hjá Bifreiðastjórafélaginu Sleipni er starfandi verkfallsnefnd sem sér um framkvæmd verkfallsins. Talsmaður félagsins út á við er formaður þess, samkvæmt ákvörðun félagsmanna. Formaður Sleipnis er ekki í verk- fallsnefnd, en að sjálfsögðu fær hann upplýsingar um þær ákvarðanir sem hún tekur. Verkfallsnefnd tekur af- stöðu til beiðna um undanþágur vegna aksturs í verkfalli. Um sumar þær ákvarðanir hefur formaðurinn verið með í ráðum en um aðrar ekki. Greinarhöfundur minnist á atvik sem átti sér stað fyrir framan hótel Cabin. Verkfallsvörðum og öðrum sem urðu vitni að þeim atburði ber saman um hvernig hann átti sér stað. Lýsingu þessara vitna ber ekki sam- an við lýsingu Guðmundar Sigurðs- sonai’. Lýsing vitna staðfestir hins vegar að það sem Guðmundur segir vera rangt, er hin rétta lýsing á at- burðum. Þar sem Guðmundur var ekki vitni að atburðinum getur hann að sjálfsögðu ekkert fullyrt um hvað þarna átti sér stað. Um undanþágur til handa fyrirtækinu Allrahanda sem greinarhöfundur kemur að er það að segja að Allrahanda var aldrei veitt undanþága vegna Samvarðar 2000. Samverði 2000 var hins vegar veitt undanþága til að bifreiðastjórar í Sleipni sæju um akstur vegna verk- efnisins. Nefnd voru nokkur fyrir- tæki sem Sleipnir gat sætt sig við að sæju um verkefnið. Ekkert þeirra hafði þá verið staðið að því að reyna verkfallsbrot auk þess sem þau höfðu öll staðið í skilum með gjöld til Sleipnis. Lögmaður Sleipnis er með kröfu á Allrahanda, vegna vanskila fyrirtækisins á félagsgjöldum starfs- manna. Rrafan nemur hárri fjárhæð. I reynd er um að ræða skil á vörslufé þar sem gjöldin hafa fyrir löngu ver- ið dregin af félagsmönnum. Við fáum ekki séð að það sé á nokkurn hátt eðlilegt að stéttarfélag veiti aðilum undanþágur til starfa, ef vinnan er síðan unnin af fyrirtæki sem ítrekað hefur verið staðið að verkfallsbrot- Merkingar í föt og skó Laugalækur 4 • S: 588-1980 Vorúkönnun fmmkvæmd í janúar 1999 110% Leifsstöð Kastrup Hamburg Vfírókönnun framkvæmd íjanúar o<j febrúar 2000 ísland vann! Skv. verðsamanburði PricewaterhouseCoopers kom Flugstöð Leifs Eiríkssonar best út - annað árið í röð. Tvö ár í röð hefur Flugstöð Leifs Eiríkssonar komið betur samanburði við Kastrup og Hamborg var Leifsstöð með út en flugstöðvar annars staðar í Evrópu í verðkönnunum á vegum PricewaterhouseCoopers. í samanburði við Schiphol og Heathrow var Leifsstöð með hagstæðasta vöruverðið í 56% tilfella og í hagstæðasta verðið í 88% tilfella. Leitaðu því ekki langt yfir skammt, heldur gefðu þértíma og gerðu góð kaup í þægilegu umhverfi í Leifsstöð. FLUGSTÖÐ LEIFS ElRtKSSONAR -gefdu þér tíma Uftu ó lcid I iI ú I lundu?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.