Morgunblaðið - 11.07.2000, Síða 60

Morgunblaðið - 11.07.2000, Síða 60
ÓO ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Kramnik eða Anand? SKAK Durtmund DORTMUND SPARKASSEN 7.-16. júlí 2000 EFTIR að indverski stórmeistar- inn Anand hafnaði tilboði Kasp- arovs um einvígi bauð hann Vladi- mir Kramnik að tefla við sig „heimsmeist- araeinvígi". Anand virðist nú á hinn bóg- inn leggja áherslu á að sýna, að hann einn eigi mögu- leika á að binda enda á sigur- göngu Kaspar- ovs. Eftir nokkra lægð hefur hann náð frábærum árangri að undan- fömu og skákaði meira að segja sjálfum Kasparov á Fujitsu-Siem- ens-skákmótinu í Frankfurt í júní. Þar var Anand í sérflokki og varð IV2 vinningi á undan Kasparov. Hann virðist ætla að halda upp- teknum hætti á Dortmund Spark- assen-ofurskákmótinu sem nú stendur yfir. Þegar þremur um- ferðum er lokið hefur hann náð hálfs vinnings forystu. I fyrstu umferð vann Anand sigur gegn Alexander Khalifman, heimsmeistara FIDE, eftir að hafa sjálfur riðað til falls. Slæmur afleikur Khalifmans gerði Anand þó að lokum kleift að vinna skák- ina. í annarri umferð hafði Anand svart gegn Akopian. Skákinni lauk með jafntefli eftir stutta við- ureign. í þriðju umferð mætti An- and hollenska stórmeistaranum Piket. Piket, sem hafði svart, kom með illa athugaða nýjung og tap- aði liði í framhaldinu og síðar skákinni. Töluverða athygli hefur vakið að skákforrit tekur nú í fyrsta skipti þátt í ofurskákmóti með venjulegum umhugsunartíma. Það er greinilegt að sterkustu skákmenn heims eyða litlum tíma í að undirbúa sig fyrir þá sérstöku tegund af skák sem skákforrit tefla og lenda því alltof oft í vand- ræðum gegn forritunum. Ein- staka skákmenn hafa þó tekið tíma í slíkt og náð góðum árangri fyrir vikið. Almennt virðast skák- menn þó mun áhugasamari og ein- beittari þegar þeir undirbúa sig fyrir mannlega andstæðinga sína heldur en skákforrit. Það vantar algjörlega sálfræðilega þáttinn í slíkar viðureignir og sigur gegn skákforriti felur enga ánægju í sér nema úrslitin sjálf. Eftir tap gegn skákforriti fara menn varla að eyða miklum tíma í að undirbúa sig fyrir næstu viðureign við for- ritið, því „hefnd“ gegn því hefur enga þýðingu. Þetta er bara tölva sem tapar sumum skákum, vinnur aðrar og gerir engan greinarmun á þessu tvennu. Skákforritið sem teflir á Dort- mund Sparkassen-mótinu heitir Deep Junior og teflir á afar öfl- ugri PC-tölvu með mörgum ör- gjörvum. I fyrstu umferð gerði Deep Junior jafntefli við Bareev, eftir að sá síðarnefndi hafði þurft að beita meistaratöktum til þess að bjarga sér frá tapi. í annarri umferð átti forritið við þýska stór- meistarann Robert Hiibner, en þetta var fyrsta viðureign hans við skákforrit. Hubner, sem hafði svart í skákinni, tefldi franska vöm og virtist ná að jafna taflið. í 19. leik lék Deep Junior Kgl-hl, leik sem varla er góður. Anand hafði á orði að þetta þýddi að skákforritið væri í „leikþröng“, þ.e. hefði ekki hugmynd um hvernig ætti að tefla þessa stöðu. Eftir 19. leik Deep Junior var þessi staða komin upp: Hér valdi Hiibner að leika 19...Dd7 og bauð jafntefli. Skák- forritið var hins vegar fljótt að sjá, að þrátt fyrir að svartur hefði haft um fjölmarga góða möguleika að velja, þá var þetta kannski ekki einn af þeim. Stjórnandi Deep Junior kaus því að hafna jafntefl- isboðinu. Leikurinn sem skákfom- itið sá sem svar við 19...Dd7 var 20. dxcð og svo virðist sem hvítur vinni peð vegna 20...bxc5 21. Re4. Málið er þó ekki alveg svo einfalt, því eftir 21...Híb8 nær svartur að halda jafnvæginu. Það má því heita með öllu óskiljanlegt hvers vegna Hiibner kaus að gefa skák- ina. Staðan á mótinu að loknum þremur umferðum er þessi: 1. Viswanathan Anand 2'Æ v. 2. Michael Adams 2 v. 3. Deep Junior 2 v. 4. Vladimir Kramnik 2 v. 5. Peter Leko 2 v. 6. Evgeny Bareev VÆ v. 7. Vladimir Akopian 1 v. 8. Alexander Khalifman 1 v. 9. Jeroen Piket 'Æ v. 10. Robert Hiibner 'Æ v. Daði Öm Jónsson Anand Viswathan ÍDAG VELVAKAIVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Mannvernd MANNVERND er stórt orð! Og þeim sem að sér tekur að vera málsvari sam- taka sem gefa sér slíkt nafn er falin mikil ábyrgð. Þegar fjölmiðlar fjalla um ís- lenska erfðagreiningu er oft leitað til fulltrúa sam- taka sem kalla sig „Mann- vemd“. Sá er þetta ritar hefur það óþægilega á til- finningunni að fulltrúar „Mannverndar" hafi ekki sérstakar mætur á Is- lenskri erfðagreiningu og telji þetta fyrirbrigði held- ur af hinu illa. Gagnrýni og skoðanaskipti eru af hinu góða en spurningin er ein- faldlega þessi: Hverjir standa á bak við samtökin „Mannvernd“? Hver kýs stjórn samtakana? Eitt er víst að undirritaður hefur ekki falið þessum samtök- um að vernda sig og mun hann þó maður talinn þótt einfaldur sé. Virðingarfyllst, Jón Sigurðsson, Kt 180252-3639. Til kristnitökunefndar og þjóðarinnar MIG LANGAR að byrja á því að þakka fyrir hátíð allra kristinna manna á Þingvöllum og hversu vel hún tókst, en þó að einu undanskildu: Það vantaði betra skipulag fyrir fatlaða að komast á milli svæða. Eg, maðurinn minn og bróðir hans fórum þarna sunnudaginn 2. júlí, en bróðir hans er lungnaveik- ur, mikið fatlaður og á erfitt með gang. Honum reyndist erfitt að þurfa að arka á milli svæða. Hann fékk hins vegar rútuferð frá bíla- stæðunum. Við vorum ánægð að öðru leyti og ekki spillti veðrið fyrii' því skaparinn sjálfur sá um þær aðstæður; sól hans skein á alla gestina. Einnig ætla ég að minn- ast á annað varðandi vernd Guðs yfir landi okkar. Allir ættu að þakka Guði fyrir vernd hans í jarðskjálftun- um að undanförnu og að enginn slasaðist alvarlega. Að lokum vil ég votta fólki samúð mína sem missti hús sín og eigur á Suðurlandi. Guð blessi ykkur öll. Eygló Karlsdóttir, Hvassaleiti 10, Reylq'avík Frétt um vændiskonur LAUGARDAGINN 8. júlí síðastliðinn var frétt um vændiskonur í Rúmeníu í Morgunblaðinu. Eg má til með að benda á að um svona böl talar maður ekki í gamansömun tóni eins og gert var í þessari frétt. Þetta er ekki eina dæmið heldur virðast þessi mál ansi oft meðhöndluð sem eitthvað „fyndið“. Vissu- lega segir það þó meira um þá sem um þau fjalla. Ég bið fólk að hugleiða þessi mál. Takk fyrir. Sylvía. Margir verða af aurum apar... eða hvað? NU er Kristnihátiðin yfir- staðin og eflaust anda margir léttar. Peningar okkar skattgreiðenda hafa farið í hátíð sem greinilega var ekki mikill áhugi fyrir. Hátíðin sem slík var ágætis hugmynd en mér finnst frekar kaldhæðnislegt að halda upp á kristni í 1000 ár þar sem hún kom inn í land- ið með þvílíkum eldmóði að fólk var drepið ef það tók ekki kristna trú. Kristin trú á að boða kærleika en ekki dráp og ég get þvi ekki séð neitt fallegt við innreið kristinnar trúar í landið. Ekkert hefur drepið jafn- marga menn og blessuð trúin, þótt hún sé í formi kristinnar eða annarrar trúar. Er þá ekki meira við- eigandi að halda sorgar- messu eftir 1000 ár til að syrgja alla þá sem hafa fall- ið á grundvelli trúar sinnar, t.d. gyðinga? Samt verð ég að segja að mér finnst peningunum betur varið í hátíð þessa en í jarðgangagerð úti á landi, þar sem byggð er hvort sem er að leggjast í eyði. Þar og hér finnst manni og öðrum tilgangslaust að bora jarð- göng fyrir örfáar hræður á meðan tryggingafélögin hækka tryggingamar hér í bænum vegna aukinnar slysatíðni. Borgarstjóri vor segir að ekki séu til pening- ar fyrir gatnamálum hér en samt eru til milljarðar fyrir skitnum jarðgöngum! Þeir sem stjórna fjárstreyminu hér á landi ættu að fara í endurmenntunarstofnun HI og taka kúrsinn „vitur- leg fjárútlát" í staðinn fyinr að taka kúrsinn „heimsku- legeyðslá'. Ég spyr: „Verða ekki margir af aurum apar?“ Ein í hugleiðingum. Þakklæti ÉG vil koma á framfæri þakklæti til starfsmanna á OLIS-bensínstöðinni á Húsavík. Ég var á ferðalagi 17. júní og barn sem var með mér í bíl gleymdi peysu á bensínstöðinni. Við vorum á leiðinni i sumar- búðir og ég gat ekki sótt peysuna sjálf en einhver hjálpsamur, einn eða fleiri, kom peysunni til sumar- búðanna. Ég gat ekki þakk- að viðkomandi því ég hitti hann ekki en sendi mínar bestu þakkir. Þórunn Ósk Guðmundsson. Morgunblaðið/Golli Víkverji skrifar... BRIDS IJ111 s j 6 n A r n « r G. Ragnarsson Sumarbrids Úrslit síðustu kvölda í Sumarbrids má sjá hér á eftir (efstu pör): Mánudagur 3.7. Vilhjálmur Sigurðss,- Þórður Sigfúss. 266 Hrólfur Hjaltas. - ísak Öm Sigurðss. 265 Geirlaug Magnúsd. - Torfi Axelss. 253 Kristjana Steingr.d. - Sigrún Pétursd. 247 Þriðjudagur 4.7. SigmundurStefánss.-JúlíusSnorras. 195 Alfreð Kristjánss. -Friðrik Jónss. 170 Gylfi Baldurss. - Gísli Hafliðas. 164 Baldur Bjartmarss. - Guðm. Þórðars. 162 Miðvikudagur 5.7. Kristinn Karlss. - Gylfi Baldurss. 238 ísak Öm Sigurðss. - Ómar Olgeirss. 236 Guðmundur Baldurss. - Sævin Bjarnas. 235 Steinberg Ríkarðss. - Guðbjöm Þórðars. 233 Afreð Kristjánss. - Loftur Þ. Péturss. 233 Fimmtudagur 6.7. Norður-suður Guðlaupr Sveinss. - Páll Þ. Bergss. 307 Kristjana Steingrímsd. - Jóna Magnúsd. 248 Albert Þorsteinss. - Auðunn R. Guðm.s. 235 Austur-vestur Hallur Símonars. - ísak Örn Sigurðss. 255 Garðar Jónss. - Ingibjörg Ottesen. 236 Stefán Stefánss. - Hróðmar Sigurbj.s. 231 Föstudagur 7.7. Norður-suður Pétur Steinþórss. - Úlfar Kristinss. 254 Jón Þorvarðars. - Hrólfur Hjaltas. 248 Alda Guðnad. - Kristján B Snorras. 241 Austur-vestur Guðm. Skúlas. - Vilhjálmur Sigurðss. 245 Hrafnhildur Skúlad. - Jömndur Þórðars.234 Friðrik Friðrikss. - Jóhannes Ágústss. 232 Eftir tvímenninginn var að venju spiluð sveitakeppni og lauk henni að þessu sinni með öruggum sigri stór- sveitar Árna Hannessonar (Vil- hjálmur Sigurðsson jr„ Guðmundur Skúlason og Elvar Hjaltason). Isak Örn Sigurðsson vann vikuverðlaunin eftir harða keppni við Vilhjálm Sig- urðssonjr. Spilað er í Þönglabakkanum öll kvöld nema laugardagskvöld og hefst spilamennskan alltaf klukkan 19:00. Skráð er á staðnum og hjálpað er til við myndun para. Nýjustu úr- slit úr má jafnan finna á síðu 326 í textavarpinu og öll úrslit ei'u auk þess skráð á íþróttasíðu mbl.is. Slóð- in þangað er http:/Avww.mbl.is/ sport/sumarbrids/. Aðalfundur Bridsfélags Reykjavíkur Aðalfundur Bridsfélags Reykja- víkur verður haldinn þriðjudaginn 11. júlíklukkan 17:00. Dagskráfund- arins verður venjuleg aðalfundar- störf þar sem gefin verður skýrsla um starfsemi félagsins síðasta ár og kosning nýrrar stjómar. HIÐ nýja hafrannsóknaskip okk- ar Islendinga, Ámi Friðriks- son, er nú að halda af stað í sinn fyrsta rannsóknaleiðangur. Það er mikilvægur áfangi í hafrannsóknum við ísland að svo glæsilegt og velbúið skip sé komið í eigu okkar. Rann- sóknir á auðlindinni okkar eru mikil- vægasti þáttur í efnahagslífi þjóðar- innar og nauðsynlegt að vel sé staðið að verki og ekkert til sparað til að sem beztur árangur náist. Við þennan áfanga vaknar sú spuming hjá Víkveija, hvert hlut- verk forvera hins glæsilega skips, Árna Friðrikssonar eldri, verður. Það er enn í eigu Hafrannsókna- stofnunar og finnst Víkverja kjörið að finna því einhver verkefni á sviði eftirlits, rannsókna og fræðslu. Skipið mætti nota til rannsókna á afmörkuðum svæðum á grannslóð jafnframt sem það mætti nota til að fylgjast með veiðum annarra skipa og reyna að meta í hve miklum mæli hið umdeilda brottkast á fiski kann að vera. Það mætti jafnframt nota sem skólaskip að einhverju marki og fiskurinn sem fengist gæti þá gengið upp í útgerðarkostnaðinn. Það er ljóst að eftirlits og rannsókna er þörf á miðunum umhverfis Island og sjálf- sagt að nota skipið til slíkra verk- efna. x x x BROTTKAST á fiski hefur verið mikið til umræðu að undan- fömu og kannski kann einhverjum að virðast það vera að bera í bakka- fullan lækinn að Víkverji blandi sér í þá umræðu. Ljóst er að fiski hefur alla tíð verið hent í sjóinn, bæði fyrir og eftir kvótakerfi en ákaflega erfitt hefur reynzt að festa hendur á því í hve miklum mæli svo er gert um þessar mundir. Upp á síðkastið hafa komið fram raddir þess efnis að menn séu neyddir til að kasta minni þorskinum og lakari í sjóinn vegna þess að svo dýrt sé að leigja sér heimildir til veiðanna. Leiguverð á þorski er nú um 106 krónur en það hefur farið mun hæma. Rök þessara manna eru þau að leiguverðið sé svo hátt að ekkert þýði annað en að koma með stærsta þorskinn í land, eigi eitt- hvað að fást út úr dæminu. Víkverji kemur þessu ekki heim og saman. Ef leiguverð á þorski er of hátt til að veiðar borgi sig, ættu menn einfaldlega ekki að róa. Það er næga vinnu að fá í landi. Það, að reksturinn gangi illa, getur að mati Víkverja ekki réttlætt lögbrot. Svona framferði er ekki aðeins lögbrot, það er sóun á verðmætum og það brengl- ar þann grann sem fiskifræðin bygg- ist á. Að mati Víkverja er það mikil skammsýni að auki að fleygja fiski. xxx AÐ fer óendanlega í taugamar á Víkveija hve orðið aðili er mis- notað í íslenzkunni. Orðið söluaðili trölhíður auglýsingum í öllum fjöl- miðlum. Orðið aðili er þama algjör- lega óþarft. Orðið seljandi segir allt sem þarf. Víkverji hefur áður bent á orðskrípið samkeppnisaðili sem notað er í stað keppinautar og gerir svo enn, enda er góð vísa sjaldan of oft kveðin. Af sama toga er ofnotkun á sögn- inni að framkvæma. Oftar en ekki heyrir Víkverji 1 lýsingum á kapp- leikjum í boltaíþróttum að þessi eða hinn framkvæmi vítaspyrnuna eða framkvæmi innkastið. Það er eins og menn skilji ekki eigið tungumál. Þeg- ar Víkverji var að sparka bolta, tók- um við víti og köstuðum boltanum inn, en framkvæmdum ekki neitt. Það létum við vertakana um, en þeir hafa auðvitað fengið nýtt heiti í smekkleysunni: Framkvæmdaaðil- ar! Þvílíkt og annað eins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.