Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 61
BRIDS
Umsjón Guðmundur
l'áll Aruai'Min
ÞEGAR trompásinn er
hjá vörninni í slemmu er
ljóst að ekki má gefa slag
til hliðai'. Suður er í sex
laufum og þarf einhvern
veginn að komast hjá því
að gefa slag á spaða til
hliðar við laufásinn:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
<k D83
v K
♦ KG95
♦ KG1065
Suður
*Á7
»ÁD
♦ ÁD103
+ D9732
Vestur Norður Austur Suður
- _ _ llauf
Pass 21auf* Pass 2tíglar
Pass 3 tíglar Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
* krafa
Vestur spilar út hjarta-
gosa og nú er spurt:
Hvemig í ósköpunum er
hægt að komast hjá því að
gefa spaðaslag?
Ekki eru svo sem miklar
líkur á að það takist, en
vissulega gæti spaðakóng-
urinn verið blankur. Nei,
varla; hitt er sennilegra að
laufásinn sé stakur. Og þá
er nokkur von ef sami mót-
herji er líka með spaða-
kóng:
Norður
* D83
»K
♦ KG95
+ KG1065
Vestur Austur
* G95 + K10642
v G10976 * 85432
♦ 862 ♦ 74
+ 84 *Á
Suður
+ Á7
V ÁD
♦ ÁD103
* D9732
Sagnhafi gengur hreint
til verks og spilar upp á
draumaleguna. Hann tek-
ur báða hjartaslagina og
spilar tígli tvisvar. Og þá
fyrst er trompi spilað.
Austur lendir inni á blönk-
um ás og kemst hvergi út
án þess að gefa slag. Það
er búið að loka útgöngu-
leið hans í tígli, og hjarta í
tvöfalda eyðu gefur slag,
og að sjálfsögðu spaði frá
kóngnum.
Þetta er sannarlega
heppileg lega, sem sést
oftar á blaði en á borði.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sin-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningnm og/eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Arnað heilla
ÁRA afmæli. Laug-
ardaginn 15. júlí
verður fimmtugur Önundur
Björnsson, sóknarprestur á
Breiðabólstað, Fljótshlíð.
Eiginkona Önundar, Harpa
Viðarsdóttir lyfjafræðing-
ur, varð 35 ára 5. júlí sl. Þau
hjónin taka á móti gestum á
heimili sínu á afmælisdag
Önundar, 15. júh nk., milli
kl. 18 og 21. Veislan verður
haldin í hlöðunni að Breiða-
bólstað og þeim sem hug
hafa á að líta til með afmæl-
isbömunum er bent á að
vera í skjólgóðum fatnaði.
GULLBRÚÐKAUP. í dag,
þriðjudaginn 11. júlí, eiga
50 ára hjúskaparafmæli
hjónin Unnur Ágústsdótt-
ir kennari og Páll Guð-
mundsson, fyrrverandi
skólastjóri Mýrarhúsa-
skóla. Þau dvelja nú í
Bjarnabúð á Súðavík, en
munu halda upp á daginn
með vinum og vandamönn-
um á Isafirði þar sem þau
voru gefin saman 11. júlí
1950.
SKAK
Ilmsjón Ilelgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik
Alþjóðaskáksambandið,
FIDE, hyggst í nóvember
og desember halda heims-
meistarakeppni sem fram
á að fara í Nýju-Delhí á
Indlandi og Teheran í Ir-
an. Svæðamót eru sem óð-
ast að taka
enda, en efstu
skákmennirnir
þaðan öðlast
þátttökurétt á
HM. Staðan er
frá svæðamóti
1.5. sem haldið
var í Jerevan í
Armeníu fyrir
nokkru og
hafði gríski al-
þjóðlegi
meistarinn
Hristos Banik-
as (2535) hvítt
gegn Tyrkjan-
um Selim Gurcan (2306).
20. Hxf7!! Rxc3 Svörtum
voru einnig allar bjargir
bannaðar eftir 20...Kxf7
21. Dc4+ Kf8 22. HD +
Bf6 23. g3 Dh5 24. De6 21.
bxc3 Kxf7 22. Dc4+ Ke8
23. Dg8+ Bf8 23...Ke7
gengur ekki upp sökum 24.
Bc5+ Kf6 25. Hfl + Kg5
26. Be3+ og hvítur vinnur.
24. Hfl De7 25. Bg5 og
svartur gafst upp.
UOÐABROT
HEIM TIL ÞÍN, ÍSLAND
1974
Heim th þín, Island, ættjörð vor og móðir,
vér börn þín einum huga hverfum öh
í dag, á meðan niður ellefu alda
fer þungum söng um þögn vors myrka blóðs.
Því land vort kallar. Upp úr aida svefni
í minningum og sögu rödd þess rís
og þræðir innstu einstigu vors hjarta,
jafn gömui mold og grjóti ahrar jarðar.
Já, þökk sé Guði, er geymdi oss þetta land,
með reisnarsvip, er hæfir stórum höfum,
og heldur víðan vörð um norðurhvel.
Því handan tímatals og breiðra sæva
það beið síns fólks í ósnortinni einsemd,
og enn var langt til sjónmáls þeirrar sögu,
sem leit sín ríki rísa og hrynja í grunn
og ódauðlegan orðstír gróf í gleymsku.
Samt vakti ísland eftir sinni þjóð
og aðeins hollum vættum björg sín byggði.
Oft fram á nætur fjöll þess ræddust við
sem himintungl, er talast við í öldum,
og horfðu á, er ungir skógar lögðu
land undir fót í fylgd með gróðri þeim,
sem land sitt hefur borið fyrir brjósti
af mestri þolinmæði, ást og auðmýkt,
en það er grasið grænt og mosinn hlýr,
sem móðurlegast mold og eldhraun vefur.
Þá voru fuglar himins einir enn
til frásagnar um fjarlæg undralönd.
Á vængjum, sem ei veröld þekkir grennri,
þeir báru með sér heila himna af vori
og fylltu landið söng og sumardýrð.
Svo var það dag einn fyrir ellefu öldum
að fyrir sjón hins fyrsta landnámsmanns
úr reginhafi, jökulskjöldum skarað
og hvítt af morgunsól, úr bláum bylgjum
reis ísland, verðug háborg himinguða.
- Með þeirri dýrðarsýn vor saga hefst.
Tónms Guðmundsson.
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Pú ert kraftmikill einstakl-
ingur og lætur fátt standa í
vegi fyrir þér. Þú mættir
sýna ögn meiri tillitssemi.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Hafðu sérstakar gætur á fjár-
málunum. Það er með ólík-
indum hvað peningamir
renna út, ef ekki er haldið fast
um budduna. Óstjórn leiðir th
falls.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fátt er tilviljunum háð, þegar
betur er að gáð. Maðurinn
uppsker eins og hann sáir.
Sýndu öðrum það viðmót,
sem þú vht að þeir sýni þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu öldungis viss um
hverju þú lofar. Það er svo
hvimleitt, þegar misskilning-
ur kemur upp og menn fara
að deha um það sem átti að
verða til góðs.
Krabbi _
(21. júní-22. júlí)
Syndin er lævís og lipur. En
með góðum hug má standast
allar freistingar. Það er þó
óþarfi að gerast einhver
meinlætamaður. Meðalhófið
er bezt.
Ljón
(23. júh - 22. ágúst) m
Stundum skjóta upp kohinum
mál, sem þú heldur að þú haf-
ir afgreitt endanlega fyrir
löngu. Láttu þau ekki raska
ró þinni. Þau hjaðna aftur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér hættir th þess að sanka
að þér of mörgum verkefnum
í einu. Reyndu að verða þér
úti um aðstoð áður en allt fer í
handaskolum hjá þér.
Vos tctk
(23.sept.-22.okt.)
Þótt hlutirnir líti vel út á
pappírnum er ekki þar með
sagt að þeir séu borðleggj-
andi gróði. Farðu þér hægt
og kynntu þér smáa letrið vel.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þótt þér finnist mikið liggja
við og nauðsyn á hreinskipt-
um orðræðum, skaltu reyna
að haga máli þínu svo að eng-
inn verði sár þess vegna.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) ClO
Oft er eins og hvað eina rekist
á annars horn. Seztu niður og
gaumgæfðu allar hliðar mála.
Smám saman kemstu að nið-
urstöðu um það sem rétt er.
Steingeit ^
. (22. des. - 19. janúar) aF
Það verður þér bara hindrun í
starfi, ef þú ætlar að hunza
nýjustu tækni. Breyttu um
sth og taktu tæknina í þína
þjónustu; þá stendur enginn
þér á sporði.
Vatnsberi r ,
(20. jan. -18. febr.) Cím
Þótt einhver ummæli komi
ekki heim og saman við skoð-
anir þínar, skaltu fara þér
hægt í fordæmingunni. Líttu
vandlega í eiginn barm.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er enginn önnur leið th í
lífinu en að halda áfram. Þú
þarft að vinna úr allri þinni
reynslu og sækja í þann lær-
dóm styrk th framhaldsins.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
30-60% AFSLÁTTUR
KA BVLON
LAUGAVEGI 55 SÍMI 561 3377
ALA
tiskuverslun v/Nesveg,
rnarnesi, sími 561 1680.
Opið daglega kl. 10-18,
í laugardaga kl. 10-14.
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembacttinu www.landlaeknir.is
Lífið er línudans
Okkur getur auðveldlega skrikað
fótur á lífsins leið, en
þurfa ekki að vera alvarlegar,
því mikill munur er á fífldirfsku
og fyrirhyggju.
Áhætta er eðlileg í daglegu
umhverfi okkar.
Hafðu vaðið fyrir neðan
þig og hugsaðu um
afleiðingar gerða þinna:
• Snertu ekki fíkniefni.
Ein tilraun getur gert
útaf við þig
’ Spenntu beltin og aktu hægar
en þig langar til
• Njóttu kynlífs með fullri
meðvitund og notaðu smokkinn
• Óvissuferðir eru frábærar en ekki án fyrirhyggju
• Reykingar eru aldrei áhættunnar virði
’ Ef þú notar áfengi notaðu það í hófi
• Ekki gleyma hvíldinni, reglubundinn svefn er öllum nauðsynlegur
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess!
I
I Landlæknisembættið