Morgunblaðið - 05.11.2000, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAGARNIR Jóhann Gunnar Bergþórsson
og Aðalsteinn Hallgrímsson eru í hópi reynd-
ustu virkjanamanna hér á landi. Nú vinna þeir
við Vatnsfellsvirkjun þar sem Jóhann er staðai'-
stjóri hjá ÍAV-Ísafli ehf. og Aðalsteinn aðstoð-
arstaðarstjóri og staðgengill Jóhanns. Þeir eiga
að baki langt og viðburðaríkt samstarf, eru góð-
ir vinir og tengdir fjölskylduböndum.
Hraðsoðinn mælingamaður
Aðalsteinn er eldri í hettunni sem virkjana-
maður og á langa starfsreynslu að baki á öræf-
um íslands. Á háskólaárum sínum vann hann
þijú sumur sem leiðsögumaður hópa banda-
rískra og kanadískra jarðeðlisfræðinga. Hann
segir að þá hafi áhugi hans á óbyggðunum
kviknað, enda hafi þær borið nafn með rentu í
þá daga. Sumarið 1966, eftir 1. árið í verkfræði,
gerði Aðalsteinn undantekningu og vann við
byggingu Búrfellsvirkjunar. Hann segir að svili
sinn hafi stjómað framkvæmdum í Búrfelli og
útvegað sér vinnu við mælingar. Starfsþjálfunin
fór fram yfir eina helgi uppi á Vatnsenda. „Ég
var því mjög hraðsoðinn mæiingamaður," segir
Aðalsteinn. Einnig var hann eftirlitsmaður við
byggingu Mjólkárvirkjunar eftir að hann lauk
námi.
Verkfræðingur
gerist verktaki
Jóhann stofnaði Verkfræðiþjónustu Jóhanns
G. Bergþórssonar árið 1973. Þá hafði hann unn-
ið við verkfræðistörf hjá Hafnarfjarðarbæ í um
fjögur ár. Verkfræðiþjónustan kom að hönnun
og gerð útboðsgagna mannvirkja og aðstoðaði
verktaka við að gera tilboð í önnur verk. Jóhann
öðlaðist því mikla þekkingu á verktakastarf-
semi. Hann stofnaði verktakafyrirtækið Hraun-
virki 1978 ásamt nokkrum verktökum. Hraun-
virki bauð í tvo verkþætti Hrauneyjafoss-
virkjunar og var með lægsta boð í þá báða.
Minna verkið var unnið sumarið 1979.
Stærra verkið fólst í byggingu aðalstíflu og
greftri aðrennslisskurðar virkjunarinnar. Um-
fang þess var svo mikið að bæta þurfti við
stjómendum, og það var skilyrði af hálfu
Landsvirkjunar að ráðinn yrði reyndur
virkjanamaður í hóp stjómenda.
Þeir Jóhann og Áðalsteinn vissu hvor af öðr-
um, þegar þetta var, en þekktust ekki pers-
ónulega. Jóhann fékk augastað á Aðalsteini,
sakir reynslu hans af virkjanagerð, hringdi í
hann um veturinn 1980 og sagðist þurfa að tala
við hann. Aðalsteinn var heldur hvumpinn og
spurði: Eigum við eitthvað vantalað? Þeir hitt-
ust og í framhaldinu var Aðalsteinn ráðinn sem
yfirverkfræðingur Hraunvirkis við það sem
kallað var „stóra verkið" í Hrauneyjafossi.
Tveggja áratuga samstarf
Samstarf þeirra félaga hefur nú varað með
stuttum hléum i rúm 20 ár og verið ákaflega við-
burðaríkt. Ber þar hæst rekstur verktakafyrir-
tækjanna Hagvirkis og Hagvirkis-KIetts. Þeim
sem vilja kynna sér þá sögu nánar er bent á bók
Páls Pálssonar, Satt að segja, sem fjallar um
fyrirtækjarekstur og stjómmálabaráttu Jó-
hanns.
Auk þess að stýra framkvæmdum í Vatns-
fellsvirkjun reka þeir félagar nokkur fyrirtæki,
einir eða í félagi við aðra. Jóhann starfrækir enn
verkfræðistofu sína og er helsta verkefni henn-
ar þessa dagana að útvega staðarstjóra í Vatns-
felli. Jafnframt starfi aðstoðarstaðarstjóra er
Aðalsteinn einnig framkvæmdastjóri Hagtaks
hf., sem fæst við dýpkunarframkvæmdir, og er
Jóhann einn af eigendum og stjórnarformaður.
Aðalsteinn stýrir einnig Bensa hf., sem er eign-
arhaldsfélag og á dýpkunartæki. Einnig eiga
þeir félagar í Hagvögnum hf„ sem sjá um rekst-
ur almenningsvagna í sveitarfélögunum sunnan
Reykjavíkur, Hópbílum hf„ sem gera út hóp-
ferðabíla og í tengslum við þá starfsemi er
ferðaskrifstofan Iceland Explorer.
Aftur á fjöll
Tildrög þess að þeir félagar fóm í Vatnsfell
vom þau að Jóhann var beðinn um að aðstoða
við undirbúning jarðvinnu og val á tækjabúnaði.
Síðan óskuðu forsvarsmenn Islenskra aðalverk-
taka, móðurfyrirtækis ísafls ehf„ eftir því að
hann tæki að sér staðarstjóm. Að höfðu sam-
ráði við eiginkonuna segist hann hafa ákveðið
að taka því.
Aðalsteinn kom lítið að verkinu fyrsta árið, að
því undanskildu að hanna brú á virkjanasvæð-
inu. Að hans sögn er hún seld sömu örlögum og
■
Morgunblaðiö/Kristinn
Stoltir afar með sameiginleg bamabörn. F.v. Jóhann Gunnar Bergþórsson, Jóhanna Guðrún og Kristín
Björg Bergþórsdætur, Aðalsteinn Hallgrímsson.
worgunmaoio/Hax
Jóhann og Aðalsteinn á vinnupalli ofan við inntaksmannvirki Vatnsfellsvirkjunar. í baksýn sést í stöðvar-
húsið og inntaksleiðslumar.
aðrar brýr sem hann hefur hannað, að verða rif-
in þegar framkvæmdum lýkm’.
Annar maður hafði verið ráðinn aðstoðar-
staðarstjóri en sá veiktist seint í vetur sem leið
og segist Jóhann þá hafa platað Aðalstein til að
vinna í Vatnsfelli nokkra daga í viku. Aðalsteinn
segir að þessu tækifæri hafi hann ekki viljað
sleppa. Þó þyki sér ekki jafn gaman á fjöllum og
þegar hann kom þangað íyrst. „Óbyggðirnar
sem slíkar em horfnar. En virkjun er alltaf
spennandi verkefni. Þar koma fyrir nánast allar
greinar byggingaverkfræði. Brýr og hús, bæði
eipföld og flókin, vegir, stíflur og jafnvel þyrlu-
pallur. Stjómunarlega er það mjög ögrandi
verkefni að ná þessu saman á stuttum tíma. En
með aldrinum fer kannski mesti spenningurinn
úr manni. Ég neita því þó ekki að ég fæ einstaka
sinnum smá „kikk“ út úr þessu.“
Virkjunin
Framkvæmdir við Vatnsfellsvirkjun hófust í
byrjun júlí í fyrra, að sögn Jóhanns. Á virkjun-
arsvæðinu hafa unnið allt að 320 manns þegar
flest er. Virkjunarstaðurinn er í 550 metra hæð
yfir sjávarmáli, til samanburðar má nefna að
vegurinn yfir Holtavörðuheiði fer hæst í 407
m.y.s.
Vatnsfellsvirkjun mun nýta fallið í veitu-
skurði sem liggur á milli Þórislóns og Króks-
lóns, uppistöðulóns Sigöldu\irkjunar. Vélamar
í Vatnsfellsvirkjun verða þær fyrstu sem vatnið
úi’ Þórislóni knýr á leið sinni til sjávar. Á þeirri
leið mun það einnig renna um Sigöldu\irkjun,
Hrauneyjafossvirkjun, Sultartangavirkjun og
Búrfellsvirkjun.
Vatnsfellsvirkjun á að fara í gang að ári og er
ætlunin að skila henni fullbúinni í febrúar 2002.
ÍAV-Ísafl hefur sett upp heimasíðu með fjöl-
breyttum upplýsingum um virkjunina. Slóðin er
www.isafl.is.
Veðravíti í Vatnsfelli
Vatnsfellsvirkjun er staðsett í hálendisbrún-
inni og þar geta veður orðið vond. Jóhann segir
að síðasti vetur hafi verið sá versti sem hann
man á fjöllum. Aðalsteinn þekkir veðurfarið á
JOHANN GUNNAR BERGÞORSSON
erfæddur í Hafnarfirði 12. desember
1943. Hann varð stúdent frá MR 1963,
lauk fyrrihlutaprófi í verkf ræði við HÍ
1966 og prófi í byggingaverkfræði frá
DTH í Kaupmannahöfn 1969.
Hann hóf verkfræðistörf hjá Torkil
Laursen A/S í Danmörku 1969, deild-
arverkfræðingur hjá Hafnarfjarðarbæ
1969-73 og hjá Verkf ræðiþjónustu Jó-
hanns G. Bergþórssonarfrá 1973.
Hann varforstjóri Hraunvirkis hf. 1979-
82, forstjóri Hagvirkis 1982-91, stjórn-
arformaður Hagvirkis & Hagvirkis-
Kletts 1992-93, forstjóri Hagvirkis-
Kletts 1993-94. Jóhann var um árabil
varabæjarfulltrúi og aðalbæjarfulltrúi í
Hafnarfirði og nefndarmaður í ýmsum
nefndum. Hann hefur setið í stjórnum
fyrirtækja og stofnana, m.a. Verktaka-
sambands íslands, Verslunarráðs,
Almennra trygginga hf. og síðar
Sjóvár-Almennra hf., Marels hf„ Hval-
eyrar hf„ Arnarflugs hf„ Smjörlíkis-
Sólar, Atvinnueflingar hf„ Hagsýnar
hf„ Hagvagna hf„ Sorpu hf„ Al-
menningsvagna og stjórn Iðnskólans í
Hafnarfirði.
Jóhann er kvæntur Arnbjörgu G.
Björgvinsdóttur og eiga þau fjögur
börn, Maríu Jonný, Bergþór, Önnu
Kristínu og Björgu Ýr.
AÐALSTEINN HALLGRÍMSSON
erfæddur í Reykjavík 16. júlí 1945.
Hann varð stúdent frá MR 1965, lauk
fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ1968 og
prófi i byggingaverkfræði frá KTH í
Stokkhólmi 1971.
Hann starfaði sem verkfræðingur hjá
ístaki 1971-72, hjá Almennu verkfræð-
istofunni hf. 1972-80, yfirverkfræðing-
ur Hraunvirkis hf. 1980-81, yfirverk-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Hagvirkis hf. 1983-91. Framkvæmda-
stjóri Hagtaks hf. f rá 1992 og f ram-
kvæmdastjóri Bensa hf. frá 1995.
Hefur setið í stjórnum Jarðganga-
félags íslands, Verkefnastjórnunar,
Hagvirkis hf„ Hagvagna hf„ Hvaleyrar
hf„ Fiskeldis Grindavíkur hf„ Hagtaks
hf„ Bensa hf. og fleiri fyrirtækja.
Aðalsteinn er kvæntur Kristlnu
Gísladóttur og eiga þau tvö börn, Ás-
dísi og Gísla ísleif.