Morgunblaðið - 05.11.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 B 11
stjóma kór en hélt að því búnu til
Helsinki, Bergen og Kraká. Síðan
hófst hið mikla starf að verkefninu.
í Helsinki hitti ég Georg Dolivo,
sem er framkvæmdastjóri M-2000
þar og ræddi við hann um þá miklu
menningarlegu upplifun sem ég von-
aðist til að þetta kórverkefni yrði. Þá
hallaði hann sér aftur í stólnum og
sagði: „Þorgerður, ég gef þér tíu
mínútur til að sannfæra mig.“ Mér
tókst að sannfæra hann á þessum
tíma. Nú í haust hitti ég Dolivo, var
borðdama hans í veislu. „Manstu eft-
ir okkar síðasta fundi,“ sagði ég. „Já
Þorgerður, mjög vel. Ég vona að þú
sért búin að fyrirgefa mér,“ sagði
hann. Það gekk sem sé á ýmsu í
þessum undirbúningi öllum þótt yf-
irleitt væru þetta árangursríkir
fundir.
Ég hafði ekki peningamálin á
minni könnu, ég var listrænn stjórn-
andi, Þórunn Sigurðardóttir barðist
hart íyrir framgangi þessa verkefnis
sem var stærst þessara níu sameig-
inlegu verkefna menningarborg-
anna. Þetta verkefnið hefði aldrei
gengið upp hefði það ekki verið mjög
vel styrkt af Évrópusambandinu.
Það gleðilega var að þessi „eina
rödd“, sem ætlunin var að fá fram
. frá hinum ólíku þjóðum, hún heyrð-
ist. Ég átti gott samstarf við kór-
stjórana alla frá hinum menningar-
borgunum og við allt það ágæta
unga fólk sem söng, en ég fann eigi
að síður vel hve ólíkt fólkið getur
verið. Norski vísindamaðurinn Thor
Heyerdal sagði í minni áheyrn: „Því
eldri sem ég verð því líkara finnst
mér fólk vera - en viðbrögð þess
ólík. Ef ég gengum í frumskógi Afr-
íku og brosi til manneskju á ljómar
hún, en ef ég brosi til manneskju á
göngu um Fifth Avenue þá lítur hún
á mig eins og það væri réttast að
loka mig inni.“ Verkefnið var erfitt
en afar skemmtilegt.“
Ótrúlegur heiður að fá að
starfa með Arvo Párt
- Hvað er eftirminnilegast í sam-
bandi þetta verkefni?
„Það var ótrúlega mikill heiður og
alveg óverðskuldaður að fá að vera
með í því ferli þegar eistneska tón-
skáldið Arvo Párt samdi verk fyrir
Raddir Evrópu. Hann kom til Is-
lands og var hér í tíu daga uppi í
Reykholti og æfði með kórnum
myrkranna á milli, var vakinn og
sofinn í að móta þetta verk með okk-
ur öllum.
Arvo Párt tekur yfirleitt ekki að
sér verk eftir beiðnum. Hann getur
hins vegar látið slíkt eftir sér ef
hann vill. Kammersveit Reykjavíkur
flutti fyrir tveimm- árum efnisskrá
sem samanstóð eingöngu af verkum
eftir Arvo Párt. Félagar kammer-
sveitarinnar óskuðu eftir þátttöku
minni og beggja kóranna minna,
Hamrahlíðarkórsins og Kórs
Menntaskólans við Hamrahlíð. Við
fluttum með kammersveitinni eitt af
hinum stórum verkum Párt fyrir kór
og hljómsveit Te Deum. Párt þekkt-
ist boð kammersveitarinnar um að
koma og hlýða á þennan flutning.
Verk hans eru flutt út um allan heim
en hann fer sjaldan til að hlusta.
Éann kom hingað í febrúar, í myrkri
og kulda. Tónleikarnir gengu vel og
voru áhrifamiklir og hann varð auk
þess mjög hrifinn af landinu. Ég
vissi að hann geymdi þessa minn-
ingu og það var ástæðan fyrir því að
ég þorði að skrifa honum og leggja
fram þessa tillögu í sambandi við
Raddir Evrópu.
Párt valdi teksta úr Lúkasarguð-
spjalh sem er ættartala Jesú. Verkið
heitir „...which was the son of...“.
Hefst á Jesú sem var sonur Jóseps
og síðan kemur öll nafnarunan og
endar á sonur Adams sem var sonur
Guðs. Párt sagði: „Ég valdi þetta af
því að ég er svo hrifinn af ykkar
nafnahefð á íslandi. Ég hefði náttúr-
lega viljað hafa dóttir, „...which was
the daughter of...“ - kannski á ég
einhvem tíma eftir að skrifa slíkt
verk.“
Hann valdi að hafa textann á
ensku, tungumál þjóðanna voru ólík
en engin þeirra hafði ensku að sínu
móðurmáli. Ég hafði raunar í upp-
hafi áhuga fyrir latínunni til þess
ama en niðurstaðan varð þessi.
Þjóðsagan innan músíkheimsins
segir að Arvo Párt gefi yfirleitt ekki
blaðaviðtöl, en hann átti langt viðtal
við Morgunblaðið, hann virtist til í
allt mögulegt hér.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Arvo Párt i Reykholti, hann er eitt þekktasta tónskáid samtímans.
Auðvitað voru mörg hin verkefnin
stórkostleg, ekki síst verkið eftir
Penderecki, sem er Krakábúi og er
eitt af stærstu nöfnum í tónlist nú-
tímans. Við fluttum hið fræga verk
hans Agnus Dei. Það er magnað
verk.“
Tíml til samæfinga var lítill
- Hvemig gekk þér að stjórna
þessu öllu?
„Þetta var samsett verkefni. Vald-
ir vom tíu söngvarar og kórstjóri frá
hverri borg sem bar ábyrgð á vinnu
síns fólks og stjórnaði verki sinnar
borgar á tónleikum. Tími til samæf-
inga var lítill. Frá íslandi komu
raunar ellefu söngvarar, básúnuleik-
ari fór með okkur vegna Evrópska
rappsins a.d. 2000, sem Atli Heimir
Sveinsson samdi fyrir okkur. Því
miður gátu Pragbúarnir ekki verið
með okkur í öllu verkefninu. Þeir
vom með okkur hér um áramótin
síðustu, í alheimssjónvarps-
útsendingu á nýársnótt. Við sungum
í Perlunni á gamlárskvöld og á
nýársdag voram við með bænastund
fyrir friði. I seinni hluta verkefnis-
ins, sem var samvinnan í ágúst og
september, æfðum við á íslandi og
fóram síðan tónleikaferð um Evrópu
með ellefu stóram tónleikum."
Stjórnaði átta stórtónleikum
með brotin hrygg
- Er þessu verkefni nú lokið?
„Það lítur út íyrir það þótt sterkar
óskir hafi borist um framhald þess.
Hins vegar er svona verkefni mjög
háð fjármagni, það kostar töluvert
að fara með svona margt fólk og allt
annað sem fylgir milli landa til tón-
leikahalds. Þetta var viðamikið verk-
efni og flókið í framkvæmd og
reyndi talsvert á stjórnunarhæfi-
leika. Ég hafði mjög góða samstarfs
SJÁNÆSTU SÍÐU.
Fallegt og stílhreínt NORDEN bor6stofubor&
úr gegnheilu, glærlökku&u birki. StærS 220x100 cm.
/266x100 cm með stækkim. aukaplata geyrhist undii hotðf.iöiuj.
Verð 39.000 kr
HENRiKSDAL stóbr úr gegnheíiu birkí me&
100% bómuilarókíæ&i sem taka mó af og þvo.
Verð 11.900 kr
VÁRDE skenkur úr gegnheilu birkí. Stæró 176 x 90 cm
Vörde línan hefur fengió gæóaverólaun fyrir hönnun
Verð 64.000kr.