Morgunblaðið - 05.11.2000, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýrlingamyndir og útskurður í altaristöflunni einstöku.
Minnismerki um fallna hermenn í heimsstyrjöldinni. Skúlabörn standa vörð og brúðhjón skilja eftir blómvendi.
Allir Rússar þekkja borgina Rostov við ana
Don. Þar var barist af hörku í borgarastyrj-
öldinni 1917 og afturí síðari heimsstyrjöld-
inni. Kósakkar kenna sig við svæöið og
borgin er hjarta samgangna, iönaöar og
landbúnaðarí Suður-Rússlandi. Hávar
Sigurjónsson var á ferö í Rostov í haust.
ROSTOV er sögð hafa verið
stofnuð árið 1749 en er
kennd við greifann.Dimitri
Rostovsky er stjómaði
byggingu vamarvirkis er
verja skyldi Rússland fyrir innrás
Tyrkja úr suðri. „Hliðið að Kákasus"
er annað heiti á borginni og vísar til
þess að umferð fólks og viðskipta frá
Kákasuslöndunum inn í Rússland
fór að mestu fram um Rostov. Borg-
in liggur vel við samgöngum, bæði af
sjó og landi, enda liggur borgin á
bökkum Azov-hafs, sem er innhaf úr
Svartahafi, og einnig er þar skipa-
skurður milli íljótanna Don og
Volgu. Til glöggvunar má geta þess
að loftlína frá Moskvu til Rostov er
960 km og með lest em þetta 1226
km. Ef farin er siglingaleiðin um
Don og Volgu þá er leiðin einir 3196
km.
Bitbein tveggja styrjalda
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika em
íbúamir mjög bjartsýnir á framtíð
borgarinnar þar sem höfnin á vafa-
laust eftir að verða Rússum enn mik-
ilvægari en áður þar sem helstu
Svartahafshafnir Sovétríkjanna sál-
ugu em nú innan Úkraínu og Georg-
íu. Á tímum Sovétríkjanna vom ein-
ar stærstu verksmiðjur landbún-
aðartækja, dráttarvéla og þreskivéla
í Rostov en starfsemi þeirra hefur
verið lögð niður og þar með hurfu
störf þúsunda borgarbúa. Erfitt hef-
ur reynst að finna þeim ný störf en
atvinnuleysi er landlægt vandamál í
Rússlandi eftir hmn kommúnism-
ans.
Rostov-svæðið er einnig þekkt í
rússneskri sögu fyrir að þar settust
að burthlaupnir ánauðarbændur er
höfðu flúið þrældóminn og fundu sér
griðastað á bökkum Don umhverfis
virkið. Rostov þótti ekki álitlegur
kostur til búsetu fyrir frjálsa Rússa
á 18. og 19. öld þar sem bardagar og
róstur við Tyrki og íbúa Kákasus-
landanna vom tíð. í lok 19. aldar
vom íbúar í Rostov aðeins 120 þús-
und en nú, 100 ámm síðar, em þeir
tæplega 1,5 milljónir. Rostov var
löngum þekkt fyrir sjálfstæði
íbúanna og þeir veittu harða mót-
spymu þegar bolsévikar vildu inn-
lima svæðið í Sovétríkin en urðu
undan að láta. Þama var eitt harð-
asta vígi hvítliða og var barist hart
um borgina. Eftir borgarastyrjöld-
ina hófst mikil uppbygging í borginni
og þangað vom fluttar þúsundir
manna víðsvegar að úr Sovétríkjun-
um. Dapurleg hlið á uppbyggingunni
var þó sú að margar sögufrægar
byggingar vom rifnar, t.d. tvær
glæsilegar dómkirkjur og stytta af
Elsta kirkja borgarinnar er kennd við Upprisu Krists.
Katrínu miklu var fjarlægð og á fót-
stallinn í hennar stað sett stytta af
Karli Marx. Hún stendur enn.
Borgin varð síðan fyrir miklum
skakkaföllum í síðari heimsstyrjöld-
inni er þýski herinn fór tvisvar um
borgina. Fyrst er hann sótti fram og
vörðust borgarbúar þá vasklega en
síðar var barist hús úr húsi er rauði
herinn hrakti þann þýska til baka.
Mannfall var gríðarlegt og er sagt að
41 þúsund óbreyttra borgara hafi
týnt lífi í átökunum og 53 þúsund
vom fluttir nauðungarflutningi til
Þýskalands. Mikilvægi borgarinnar í
hemaðarlegu tilliti er margþætt þar
sem þar var miðstöð samgangna,
iðnaðar og landbúnaðar í Suður-
Rússlandi. Má enn sjá för eftir
byssukúlur á veggjum húsa í mið-
borginni enda hefur litlu fé verið var-
ið til endurbyggingar eða lagfæringa
bygginga í borginni.
Fjölbreytt mannlíf setur svip sinn
á Rostov en þar búa fjölmörg þjóðar-
brot saman í sátt og samlyndi.
íbúamir era hreyknir af fjölbreytn-
inni og umburðarlyndinu sem þeir
em þekktir fyrir gagnvart hver öðr-
um; Tsjetsjenar, Armenar, Kúrdist-
anar, Rússar og jafnvel fjölmennur
hópur fólks er ættað er frá Kóreu-
skaganum og var flutt nauðungar-
flutningum á Stalíntímanum til Rost-
ov á sjötta áratugnum.
Skriffinnskan söm við sig
Hið fyrsta sem manni verður á að
hugsa er komið er til Rússlands er að
ferðamenn séu ekki sérlega vel-
komnir til landsins. Þetta stafar af
því að öll öryggisgæsla er mjög
ströng og vandlega er gengið úr
skugga um erindi útlendinga til
landsins. Ekki bætir úr skák að við
alla skriffinnskuna er erfitt að gera
sig skiljanlegan þar sem enskukunn-
áttu Rússa er í flestum tilfellum
fremur ábótavant og oft betra að
bjarga sér á þýsku ef hægt er. En
þegar öllu þessu er lokið taka Rússar
manni opnum örmum. Þeir em
gestrisnir og alúðlegir og vilja allt
fyrir mann gera. Ferðamannaiðnað-
ur virðist þó skammt á veg kominn ef
farið er annað en til Moskvu eða Pét-
ursborgar, þangað sem flestum út-
iendingum er stefnt þessi misserin.
Undirritaður átti þess kost að heim-
sækja borgina Rostov í Suður-Rúss-
landi um mánaðamótin sept./okt. og
naut þar ómældrar gestrisni heima-
manna í fimm daga enda var tilefnið
alþjóðleg leiklistarhátíð sem haldin
er annað hvert ár þar í borg. Frá ís-
landi fór Möguleikhúsið með sýning-
una Völuspá og slóst undirritaður í
för með leikhópnum. Hótelið sem
dvalið var á í Rostov heitir því virðu-
lega nafni Intourist Hotel og er 16
hæða, mörg hundmð herbergja fer-
líki frá tímum sovétstjórnarinnar.
Endurbætur stóðu yfir á hótelinu og
var búið að endurnýja fyrstu þrjár
hæðirnar mjög myndarlega en á 14.
hæð þar sem við dvöldum var greini-
lega nokkuð um liðið frá því að síðast
hafði verið tekið til hendinni. Her-
bergin vom þó rúmgóð og þrifaleg
en stóðust ekki þær kröfur sem
gerðar em til hótela í viðskipta- og
ráðstefnugeiranum. Matur var einn-
ig lítið spennandi en vel útilátinn og
verðlagið er auðvitað sérlega hag-