Morgunblaðið - 05.11.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 B 31
DÆGURTONLIST
Hiphop
og harð-
kjarna-
bræðingur
í GERJUNINNI í rokkinu vestan
* hafs grípa æ fleiri sveitir til þess að
krydda tónlist sína fönki og hiphop.
Helsta dæmi um slíkt er gullsveitin
Limp Bizkit, en þær eru margar til
kraftmeiri og harðari. Þar á meðal
er hljómsveitin (hed)p.e.
Söngvarinn Jahred, sem einnig
kallast M.C.U.D., og gítarleikarinn
Wesstyle kynntust í pönkhreyfing-
unni um miðjan áratuginn í Kalif-
orníu. Um það leyti var Kaliforníu-
Iharðkjarninn að renna sitt skeið og
menn teknir að bæta rappi og fleiri
stefnum í tónlistina til að skerpa á
bragðinu eða snúa sér einfaldlega
að þungarokki. Þeir félagar, sem
eru allt í öllu í sveitinni, fengu fjóra
frækna til liðs við sig, B.C., Mawk,
Chizad og DJ Product, og sveitin
vann sér snemma orð fyrir kraft-
mikla sviðsframkomu og magnaða
tónlist.
Tónlistin sem þeir (hed)p.e. fé-
lagar leika er bræðingur af ýmsu
eins og getið er og þeir hafa meðal
annars fundið sérstakt nafn á tón-
Iistarstefnuna, kalla hana G-Punk
og segja næsta skrefið í náttúrleg-
um samruna hiphop og harðkjarna.
„Það hafa óteljandi sveitir reynt að
bræða þetta saman, en flestar eru
bara að skreyta sig með hiphop eða
rokki og ná ekki að kjarna máls-
ins,“ segir M.C.U.D.
Þeir félagar segjast reyndar hafa
alist upp á pönki, en þegar pönk-
hetjurnar sneru sér að þungarokki,
fannst þeim sem lítið hefði orðið úr
hugsjónum og sneru sér að hiphopi,
þar sem þeim fannst pönkandinn
lifa enn. Fyrir vikið segjast þeir
vera undir jafn miklum áhrifum af
bófarappi og harðkjarna.
Fyrsta útgáfa þeirra félaga var
stuttskífan ChurchOfRealities sem
kom út fyrir fimm árum, en það var
ekki fyrr en í ágúst síðastliðnum að
fyrsta breiðskífan kom Ioks út. í
kjölfarið Iögðust þeir (hed)p.e. fé-
lagar svo í ferðalög og undanfarið
hafa þeir meðal annars hitað upp
fyrir Korn, Static-X, Slipknot, Kid
Rock og System of a Down, svo
dæmi séu tekin.
Tilraunakennd naumhyggja
BRESKA leiðslurokkið á liðnum
áratug teygði anga sína víða; það
var ekld bara hér á landi sem menn
lögðust í naflaskoðun og nærðust á
bjögunarsúpu heldur tóku ýmsar
bandarískar sveitir að feta sömu
slóð og Swervedriver og My
Bloody Valentine. Þar á meðal var
Seattle-ílokkurinn Voyager One
sem sendi frá sér sína fyrstu breið-
skífu fyrir stuttu.
Voyager One varð til í tilrauna-
mennsku þeirra Peter Marchese
gítarleikara og söngvara og Jeramy
Koepping gítarleikara fyrir tveimur
ánim. Þeii’ félagar tóku upp nokkur
lög og vom svo ánægðir með af-
raksturinn að þeir auglýstu eftir
íleiri liðsmönnum. Efth- nokkrar
prufur réðu þeir Dayna Loeffler á
bassa og trommuleikara sem tekui'
ekld að telja upp því þeir áttu efth-
að verða sex áður en yfir lauk. Fast-
ur trymbill í sveitinni nú er John
Hollis.
Fyrsta útgáfan var prufuupp-
taka sem þeir félagar dreifðu í út-
Bandaríska rokksveitin
Voyager One
varpsstöðvar og vakti nokkra at-
hygli. Koepping segh- reyndar svo
frá að þeir félagar hafi verið hálf-
gerðir klaufar rið að kynna skííuna:
„Við sendum inn disk með fjórum
lögum og sendum inn á KCMU-út-
varpsstöðina. Daginn eftir hringdi
ég og bað þá um að spila lagið. Þeir
sögðust aldrei hafa heyrt okkar
getið en þegar ég hringdi aftur síð-
ai' um daginn sáu þeir í gegnum
mig og spurðu hvort ég væri í sveit-
inni. Þeir spiluðu samt plötuna af
hreinni vorkunnsemi ylir því hvað
rið værum miklir aular.“
Utvarpsspilunin varð til þess að
þeir félagar fengu tilboð um tón-
leikahald og í framhaldi af því
bauðst þeim útgáfusamningur hjá
Loveless Records. Fyrsta breið-
skífan, The Nation of Long Shad-
ows, kom svo út fyrir skemmstu.
A frumrauninni er allt með til-
raunakenndum naumhyggjublæ
sem vonlegt er með aðra eins gítar-
hljómasúpu og hljómsveitir þessar-
ar gerðar leika en inn á milli eru
líka grípandi popplaglínur rétt til
að tryggja að engum leiðist. Tón-
dæmi er að finna á vefsetri útgáf-
unnar, www.loveIessrecords.com/.
Morgunverðarfundur á Grand Hótel
Þriðjudaginn 7. nóvember 2000, kl. 9:00, Hvammi, Grand Hótel Reykjavík
STAÐA STJÓRNMÁLA
í DANMÖRKU
Paul Nyrup Rasmussen forsætisráðherra Dana
flytur ífamsögu á morgunfundi Dansk-íslenska verslunarráðsins
á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi, þriðjudaginn 7. nóvember.
Á eftir svarar hann fyrirspumum.
V__________________________________________________________
Fundargjald (morgunveröur innifalinn) kr. 1.500,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
aö tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100
cöa bréfasíma 568 6564 eöa meö tölvupósti
mottaka@chamber.is. DANSK-ÍSLENSKA VERSLUNARRÁÐIÐ
Toulouse
Nýkomið mikið
úrval afglæsiJegum
borðstoíiistóliim
frá Habufa
Sessur frá kr. 5.000.
meðleðursessu
Raðgreiðslur
til alltað56mán.
< -