Skírnir - 01.01.1838, Qupperneq 45
tindan sfcr. Ilerra Karl let þaS leingi í veSri vaka
að hann ætlaði að reyna til að komast suður yfir
Ebró og gjörðu Kristinarmenn sðr allt far ura að
verja honum ána, en alltí einu hvarf hann þeim
og fór austur í Katalóniu, þar hafði leingi verið
tipphlaup, en þó einkum í Barcellónu á móti
Kristinu drottningu, og átti hann þar vissa von
góðrar viðtöku; þó gökk Karli þar ekki eins vel
og hann mun hafa viðbúist, því einn hersliöfðíngi
Kristínar drottningar, Meer friherra, sem leingi
hafði verið grunaður um litla hollustu, rððist á
Karl alit í einu og náði af honum og feldi
hálfa 3ju þúsund manna, svo ætlaði hann að banna
lionum borgina Barcellónu, en svo sneri Karl leið
sinni allt i einu og fór þd suður yfir Ebró og
ætlaði að fara móts við Kabrera í Valensiu, hon-
um tókst það og urðu menn þá eigi litið hræddir
i Madríd höfuðborginni; Oróa hershöfðingi kvað
hafa varað Drottníngu við þessu bragði og nú
varð hann einn til að verja borgina og rfeðist
haun á Karl og neyddi hann til að fara norður
aptur úr Valensíu. Skömmu eptir þetta varð Karl
veikur og lá hann leingi sumars og var opt sagður
dauður, en bráðum raknaði hann við aptur, og i
Agúst mánuði komst einn hcrflokkur hans innf
Sögóvíu, sem er herað fyrir norðan Madrid, braut
þar höfuðborgina og náði miklum forða vista og
vopna, það hafa Karlsmenn komist næst Madrid
nú um nokkrahríð, en þá kom Esparteró þángað
allt f einu og varð hann æðsti stjórnarherra f
stað Kalatrava, var það mest að völdum sjálfs
hans og stríðsmauna hans og líkaði fulltrúunum