Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Síða 13

Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Síða 13
13 hluti safnaðarins heimtaði með frekju, að brunnurinn væri fylltur upp aptur, svo að ekki leiddi fleiri vandræði af þessu. Langt var síðan að ættingjar þeirra Traugotts og Vilhjálms grétu þá sem þeir væru dauðir, og gáfu því jákvæði sitt til þess, að þetta væri gjört. Samt vildi prestur gefa verki þessu hátíðlegt snið, eins og vana- legum greptrunum, og milda þannig lítið eitt hið ótta- lega, er honum fannst vera í því, að fylla upp brunn- inn og jarða mennina þarna. Hann ætlaði líka að gjöra þann reit að nokkurskonar kirkjugarði á prestsseturs- lóðinni, og láta reisa krossmark eða eitlhvert annað minningarmark á leiði bræðranna. Samt reyndi hann til, af einhverjum óljósum hvötum, að fresta þessarihá- tíðlegu athöfn um nokkra daga. Loksins var samt á- kveðið, að athöfn þessi skyldi fara fram sunnudag- inn hinn 16. dag desembermánaðar tveim slundum ept- ir hádegi. Samt gat hann ei hindrað það, að nokkrir menn væri fyrir laugardag falaðir til þess að byrja upp- fyllinguna. Undirbúningurinn til þessarar greptrunar var sár og bitur. Preslurinn var búinn að semja æfiágrip bræðr- anna, er sandurinn gróf; þá kom steinmeistari llöhmig föstudaginn hiun 14. dag desembermánaðar til prests- sctursins, 6 dögum eptir að óhappið vildi til. Böhmig þessi átti heima í Ortrand; hann banðst nú til að grafa líkin upp. uDauðir eru þeim sagði hann »dauðir eru þeir; en þeir hafa báðir áður fyrri unnið fyrir mig, og eg vildi fúslega styðja að því, að þeir yrðu skipulega greptraðir«. Prestur sagði honum, að þó að sig lang- aði einnig innilega til hins sama og hann, hefðu menn samt ei vogað að gjöra fleiri tilraunir, af því námu- mcnnirnir hefðu sagt, að þeir, sem reyndu það, tefldu

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.