Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 25

Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Blaðsíða 25
25 séum dauðir». Af þessu kom þeim saman um það, þegar Böhmig og hans menn voru því nær að þeim komnir, að vera hljóðir og láta ekkert á sér bera. En er Sonntag hafði dregið eitl borð upp, og þeir heyrðu hann segja: «Hvað er þetta? það er eins og móða», hafði Traugott ansað honnm og sagt: «Já Sonntag, við erum enn á lífi!» Uafði hinn þá sagt: «Hvað þá? eruð þið enn þá á lífi ?» Rak Traugott þá handlegg sinn upp í gegnum opið, til þess að benda þeim Sonn- tag á, hvar að þeim yrði komizt. Þegar menn höfðu dregið Traugott upp úr holunni sagði hann: «Æ! hvað hér er kalt!» og kallaði svo til bróður síns: «Haf þú með þér sokkinn minn og flösk- una mína litluU Það var flaskan, sem þeim hafði verið send mjólkin á og vínið, eptir að menn sáu þá lifandi niðri í holunni. Daginn eptir lét Auerswald prestur sig síga niður í brunninn, til þess að sjá holu þeirra. Henni var lok- að að ofan af borði einu, sem lá um þveran brunninn; myndaði borð þetta eins konar hurð. Hafði Böhmig sveigt það til hliðar og skrúfað það fast við þverbita, til þess að enginn hristingur skyldi koma af því, að reka nagla í það með hamri; þannig opnuðust dyrnar. Til hins síðasta höl'ðu menn orðið að vinna að þessu með hinni mestu varúð, svo að enginn hristingur kæm- ist á. Holan var að öðru leyti furðu föst, en ekki var hún hallkvæm eða rúmgóð. Prestur gat naumast skriðið inn í hana, og varla snúið sér þar við, og ekki gat hann skilið í því, hvernig tveir menn, sem voru fullt eins þreknir og stórir vexti og hann, hefðu getað kom- izt þar fyrir. Samt hafði hann alveg náð ætlun sinni, og var orðinn vitni að guðs miskunsemi.

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.