Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Page 32

Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1869, Page 32
32 leið þeirra lá nálægt prestsetrinu, þar sem hann var fæddur; hann hafði eigi komið þangað, síðan að hann fór þaðan, eptir lát föður síns, og langaði hann nú mjög til að sjá aptur æskustöðvar sínar; hann skildi því við félaga sína og fór þangað; þetta var á sunnu- degi, og er hann kom á kirkjustaðinn, stóð þar á em- bættisgjörð; kirkjan var opin og gekk hann inn. Þegar hann kom inn í kirkjuna, varð hann ein- livern veginn eins og utan við sig. Ilánn stóð nú á þeim stað, þar sem hann svo opt hafði heyrt föður sinn boða guðsorð, þar sem hann sjálfur svo opt í guðraiki- legum hugleiðingum hafði selið við lilið móður sinnar; hann minntist þess, hve opt hann á þessum stað hafði liallað sér upp að brjósti hennar, meðan blessunarorð föður lians hljómuðu yfir söfnuðinn. Honum þótti, sem hann aptur væri orðinn barn og heyrði hina sterkn raust föður síns og sæi hið blíða auglit móður sinnar. Hánn kannaðist við hvern hlut í kirkjunni; allt minnti hann á hið rólega og sæla æskulíf hans og vakti söknuð og þrá f brjósti honum. Meðan hann var að hugsa um þetta, var messugjörðinni lokið; djákninn gekk fram og las útgöngubænina: "Drottinn eg þakka þér af öllu mínu hjarla, <að þú hefir nú kennt mér, hvað þú vilt að eg skuli gjöra. Iljálpa mér nú minn guð með þínum heilaga anda fyrir sakir Jesú Iírists, að eg megi varðveita þitt orð í hreinu hjarta, og þar af styrkjast í trúnni, í guðrækilegu framferði betrast og mig þar við í lífi og dauða hugga». »Og mig þar við í lífi og dauða hugga» endurtók hinn ungi maður með sjálfum sér, og djúp og sár hrvggð greip hjarta hans, því hann fann glöggt, að hann hafði ckkert, er liann gæti huggað sig við í lífi ogdauða. Ilann flýtti sér nú út úr kirkj-

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.