Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 1

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 1
Landstj órn. í landstjórnarefnum hafa hvorki miklir nje margbreyttir atburðir orðið á íslandi næstliðið ár. Eigi að síður hefur þó ýmislegt gjörzt í þeim efnum, er verða má að eigi hafi svo litla þýðingu fyrir land og lýð, þegar fram líða stundir; en með því að fljótt verður yfir að fara og eigi er ráðrúm til að gjöra grein fyrir þýðingu viðburðanna, skal hjer að eins í stuttu og þurru yfirliti getið hins helzta, er að þessu lýtur. Þá er fyrst að segja frá alfiingi, er haldið var næst- liðið sumar; það var hið þrettánda í tölunni. Konungur kvaddi stiptamtmann Hilmar Finsen fyrir fulltrúa sinn á þinginu, en hann kvaddi aptur yfirdómara Magnús Stephensen til aðstoð- a r sjer. Konungsfulltrúi setti þingið i Reykjavik laugardaginn 1. dag júlímánaðar; þá voru aðalþingmenn komnir úr flestum kjördœmum; úr Húnavatnssýslu og Norður-tingeyjarsýslu komu varaþingmennirnir, en úr Norðurmúlasýslu kom hvorugur þing- mannanna. I*ingmaður ísfirðinga, riddari Jón Sigurðsson, var kjörinn forseti þingsins, en hinn fimmti konungkjörni þing- maður, biskup Pjetur Pjetursson, varaforseti. Konungsfull- trúi afhenti þá forseta auglýsingu konungs til þingsins (dag- setta 22. maí 1871) um árangurinn af tillögum alþingis 1869; er það nóg að geta þess hjer, að fáar af tillögum þess höfðu verið teknar til greina af ýmsum ástœðum. Síðan afhenti kon- ungsfulltrúi forseta lagaboð þau, er út höfðu verið gefin síð- an um þinglok 1869, og verður þeirra, er út komu næstliðið ár, síðar getið. Enn fremur lagði hann fram 12 konungleg laga- frumvörp, er rœða skyldi á þessu þingi, og eitt konunglegt álitsmál (um lögleiðslu danskra lagaboða, er út höfðu komið á árunum 1869—70). Frumvörpin voru þau, er nú skal greina: 1, frumvarp til stjórnarskrár um hin sjerstaklegu málefni ís- lands; 2, frumvarp til tilskipunar um sveitastjórn á íslandi; 8, frumvarp lil tilskipunar um bœjarstjórn í Reykjavík; 1

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.