Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Blaðsíða 5
LANDSTJÓBN.
O
um og eptir heitorði konungs; það sem hann fann að efninu
var það, 1, að alþingi væri eigi áskilinn atkvæðisrjettur um þau
gjöld, er kynnu að verða lögð á ísland til almennra ríkismála,
því að með því væri skertur rjettur þingsins; 2, að alþingi væri
eigi áskilinn atkvæðisrjettur um það, hvort eitthvert mál sje sam-
eiginlegt eða eigi, því að með svofelldum hætti mundihvert mál
verða talið sameiginlegt, sem eigi væri beinlínis talið upp í lögun-
um sem sjerstaklegt, og þá látið heyra undir ríkisþingið ; 3, að
eptirlaun þeirra íslenzkra embættismanna, ekkna þeirra og barna,
sem hiugað til hafi verið goldin úr ríkissjóði, skuli framvegis
verða goldin úr hinum íslenzka landssjóði, þ v í a ð ríkissjóður-
inn hafl tekið upp á sig skuldbindingu um það, og sje bundinn
við hana; 4, að íslandi sje engin trygging gefin fyrir hinu fasta
árgjaldi úr ríkissjóðnum, því að ríkisþingið geti breytt þessu, er
það vill; 5, að árgjaldið sje of lítið, því að bæði eigi íslend-
ingar heimting á meiru og þurfl meira með; 0, að það skipa-
gjald, er greitt er af póstskipi því, er gengur milli íslands og
Danmerkur, skuli endurgoldið ríkissjóðnum með því að draga ár-
lega jafnmikið fje af árgjaldinu sem gjaldi þessu nemur, því að
með þessu sjeu brotin lög á íslendingum (lögin 15. apríl 1854).
Samkvæmt því, sem að framan er sagt, gjörði meiri hlutinn
ýmsar breytingar við frumvarp konungs um stjórnarskrána, eink-
um að því er snerti framkvæmdarvaldið og stjórnarábyrgðina, og
voru helztu breytingarnar fólgnar í því, að í staðinn fyrir ráð-
herra hjá konungi með ábyrgð fyrir ríkisþinginu, og landshöfð-
ingja á íslandi með ábyrgð fyrir ráðherranum, setti hann 1 a n d-
stjóra á íslandi með ábyrgð fyrir alþingi, og erindisreka
við hönd konungi; en jafnframt Ijet hann i Ijós, að þetta fyrir-
komulag væri eigi hið œskilegasta, heldur hitl, að skipaður værí
yflr ísland konunglegur umboðsmaður, er væri ímynd
konungdómsins á íslandi, hefði öll konungsstörf á hendi og
hefði ábyrgð gjörða sinna fyrir konungi einum, en hann tœki
sjer aptur ráðherra, einn eða fleiri, sem hefðu ábyrgð stjórnar-
athafnanna fyrir alþingi; en til þess að fjarlægjast sem minnst
frumvarpið gjörði hann þetta að varatillögu sinni, og rjeð þing-
inu til að fallast á frumvarpið með þeim breytingum, er nefnd-
in hafði gjört við það, •— og til vara, að ceskja þess, að yfir
landið yrði skipaður konunglcgur umboðsmaður (jarl), er sje