Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Page 9
LANDSTJÓUN.
9
um hans var samið frumvarp það, er konungur lagði nú fyrir
þingið; var það að mörgu leyti sniðið eptir bœjarstjórnarlögum
í Danmörku. Þingið kaus nefnd í málið, og rjeð hún þinginu
að fallast á frumvarpið með nokkrum breytingum, er henni þóttu
þurfa; þó voru nefndarmenn eigi á eitt sáttir um breytingarnar,
en þær eru eigi svo vaxnar, að þörf þyki að geta þeirra hjer.
ÍMngið rœddi síðan málið, og bað konung í álitsskjali sínu um
frumvarpið, að hann löggildi það með nokkrum breytingum, er
þingið hafði gjört við það.
4. Póstmálið. í frumvarpinu um mál þetta er gjört
ráð fyrir því, að stofnuð verði póstskrifstofa og póstmeistari
skipaður í Reykjavík, en mest snertir frumvarpið sendingar með
póstum. Þingið setti nefnd til að rœða frumvarpið, og voru
henni fengnar 2 bœnarskrár um póstgöngur. Nefndin fjellst að
mestu leyti á frumvarpið; og er þingið hafði rœtt málið, komst
það að sömu niðurstöðu, og bað konung í álitsskjali sínu, að
lögleiða frumvarpið með nokkrum smábreytingum, er þingið
hafði gjört við það.
4. Brennivínstollsmálið. Tollálögur þær á vínföng,
er frumvarp konungs um málið fer fram á, eiga að miða til
þess að sporna við nautn áfengra drykkja, en einkum til þess
að auka tekjur landsins. í frumvarpinu er ákveðið, að 8 sk.
gjald skuli leggja á hvern pott brennivíns og annars víns, er
flyzt á tunnum, og jafnmikið á hverja 3 pela þess víns, er flyzt
á flöskum eða brúsum. Þingið kaus nefnd í málið. Nefndin
rjeð þinginu að biðja konung um að löggilda frumvarpið með
nokkrum smábreytingum, og meiri hluti nefndarinnar lagði það
jafnframt til, að frumvarpið yrði eigi að lögum, fyr en þingið
hefði ráð á að verja gjaldinu. ÍMnginu þótti ísjárvert að fallast
á tillögu eins þingmanns, er fór fram á það að vísa málinu frá,
þar sem hjer var um það að rœða að bœta hag landssjóðsins,
jafnvel þótt það hins vegar hefði eigi sjálft ráð á að verja gjaldinu
að svo komnu; það fjelist því á tillögur nefndarinnar og gjörði
það að niðurlagsatriði í álitsskjali sínu til konungs, að hann lög-
leiddi frumvarpið, en þó eigi fyr en þingið hefði fengið löggjaf-
arvald og fjárforræði.
6. Spítalagjaldsmálið. í frumvarpi því, er kon-
ungur lagði nú fyrir þingið um þetta mál, er tillagan um gjald-