Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 12

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 12
12 LANDSTJÓRN. embættislaun frá 1. nóv. 1870 til 6. júní 1871. þingið kaus nefnd í málið, og rjeð hún þinginu að biðja um, að eptirlaun Havsteins yrðu ákveðin í rjettri tiltölu við laun hans 5 seinustu árin. Þingið fjellst á þetta, og stýlaði niðurlagsatriði bœnarskrár sinnar um málið samkvæmt því. 14. Fjárhagsáætlunarmálið. Stjórnin Ijet eigi leggja fjárhagsáætlun íslands fyrir alþingi, og var hún eigi lögð fram, fyr en þingið skoraði á konungsfulltrúa um það. Sú til- laga kom þá til þingsins frá 3 þingmönnum, er fór fram á það, að þingið kysi menn til þess að rannsaka fjárhagsáætlunina og gjöra athugasemdir sínar um fjárhagsmálið og reikninga lands- ins um 2 næstkomandi fjárhagsár. þingið kaus nefnd eins og til var mælzt. f>á er hún hafði fengið þau gögn og skýrteini, er unnt var að fá í þessu máli, og rannsakað það vandlega, kvað hún upp álit sitt um það. Hið helzta, er hún fann að fjárhagsáætluninni, var það, að f henni væri ætlazt til, að hinn íslenzki landssjóður greiddi í ríkissjóðinn lestagjald það, er hann hefði tekið við af vörum þeim, er póstskipið flytti, þar sem fs- landi kœmi eigi annað við í þessu efni en póstsendingarnar; rjeð hún því þinginu að biðja konung um leiðrjetting á þeim reikningshalla íslandi í óhag, er af þessu leiddi; enn fremur rjeð hún að biðja um að endurskoða nákvæmar og leiðrjetta nokkur önnur atriði, er minna varða. Meiri hluti nefndarinnar rjeð enn fremur að biðja konung um að skipa nefnd manna, jafnmörgum Dönum og íslendingum, til að rannsaka öll reikn- ingaviðskipti beggja þjóðanna, og leggja síðan þá reikninga fyrir alþingi. Þegar þingið hafði rœtt málið, komst það að sömu niðurstöðu og nefndin, og gjörði niðurlagsatriði hennar að nið- urlagsatriðum í bœnarskrá þeirri, er það sendi konungi um málið. 15. Jarðasölumálið eða málið um sölu opinberra eigna. Þingmaður Reykvíkinga hafði lagt það til við þingið, að biðja konung um að skipa svo fyrir, að engin sala nje skipti á opinberum eignum megi hjer eptir fram fara nema með ráði al- þingis. Nefnd sú, er kosin var í málið, lagði hið sama lil; þingið fjellst á það, og gjörði það að niðurlagsatriði í bœnar- skrá sinni til konungs um málið, en undanskildi þó kirkjugózin. 16. Öreigagiptingamálið eða málið nm breytingu

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.