Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 13

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Síða 13
LANDSTJÓRN. 13 á tilskipun 30. apríl 1824. Bœnarskráin um þetta mál fór frain á það, að breyta 10. lið í 3. grein tilskipunar þessarar þannig, að prestinum verði gjört að skyldu, að spyrja hjónaefni í votta viðurvist, hvort þau hafl þegið óendurgoldinn sveitarstyrk, og þá að eins þurfi leyfi sveitarstjórnarinnar, ef þau játi því. Nefnd þeirri, er sett var í málið, þótti þetta eigi nóg trygging fyrir prestinn, en lagði þar á mót til, að svaramönnum yrði gjört að skyldu, að bera alla lagaábyrgð af giptingum ásamt prestinum. Þingið rœddi síðan málið, en ritaði enga bœnarskrá um það til konungs, og fjell það svo niður. 17. Stapahafnarmálið. Bœndur íBreiðuvíkurhrepp sendu þinginu bcenarskrá um að biðja um að löggilda Stapa- höfn í Snæfellsnessýslu, er fyrrum hafði verið löggildur verzlun- arstaður, en nú hafði verið lagður niður um hríð. Nefndin í málinu áleit það varlega gjörandi að fjölga smáverzlunarstöðum á íslandi, er það dreifði verzlunaraflinu, en þó þóttu henni yfirgnæf- andi ástceður mæla með því, að leyfa verzlun á Stapa. t*ingið var á sama máli, og ritaði því konungi bœnarskrá um að nema sem fyrst úr gildi opið brjef 28. sept. 1823, er bannaði verzlun á Stapa. 18. Sjómannaskólamálið. þingmaður Snæfellinga bar þá boenarskrá upp við þingið, að það fceri þess á leit, að stjórnin legði árlega 1000 rd. til styrktar sjómannaskóla á ís- landi, og að kennaranum í reikningi í latínuskólanum og skip- stjórnarmanninum á póstskipinu yrði gjört að skyldu að prófa sjómannaefni í Reykjavík og gefa þeim vitnisburð. Nefndin, sem sett var í málið, vildi haga kennslufyrirkomulaginu þannig, að hið danska herskip, er sent er á ári hverju til íslands, veitti móttöku nokkrum ungum íslendingum, og að þeir fengju þar tilsögn í sjómannafroeði, og yrðu síðan prófaðir í þessari grein, en að þeir, sem stoeðust prófið, gætu síðan orðið stýrimenn; til þess að standast kostnað þann, er af þessu leiddi, lagði nefndin enn fremur til, að í hinni árlegu fjárhagsáætlun væri ætlað fje til þessa. í líka stefnu og boenarskráin og nefndin fór þingið í bcenarskrá sinni til konungs um málið. 19. Lagaskólamálið. Boenarskrá hafði komið frá 2 þingmönnum um stofnun lagaskóla. Þingið tók hana til greina og setti nefnd f málið. Nefndin rjeð þinginu að biðja konung

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.